Morgunblaðið - 30.10.1996, Blaðsíða 2
2 D MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
+
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1996 D 3
URSLIT
IÞROTTIR
IÞROTTIR
Knattspyrna
UEFA-bikarkeppnin
Önnur umferð, seinni leikir:
Trabzon, Tyrklandi:
Trabzonspor - Schalke.............3:3
Sota Aveladze (55.), Hami Mandirali 2 (65.,
70.) - Johan de Kock 2 (33., 38.), Martin
Max (75.). 25.000.
• Schalke áfram 4:3.
Makva, Rússlandi:
Spartak Moskva — Hamburger........2:2
Alexei Meleshin (10.), Andrei Tikhonov
(42.) - Markus Schupp (29.), Jiirgen Hart-
mann (73.). 7.000.
• Hamburger áfram 5:2.
Mónakó:
Mónakó - Mönchengladbach..........0:1
- Michael Klinkert (70.). 12.000.
•Mónakó áfram 4:3.
Kapfenberg, Austurríki:
Casino Graz - Inter Mílanó........1:0
Herfried Sabitzer (35.). 10.500.
•Jafnt 1:1. Inter vann í vítaspyrnukeppni
5:3 og komst áfram.
Búkarest, Rúmeníu:
National - FC Briigge.............1:1
Radu Niculescu (63.) - Gert Verheyen (62.).
18.000.
•FC Briigge áfram 3:1.
Kaupmannahöfn, Danmörku:
Bröndby - Aberdeen................0:0
12.005.
•Bröndby áfram 2:0.
ístanbúl, Tyrklæandi:
Besiktas - Legia Varsjá...........2:1
Daniel Amokachi (14.), Zlatko Yankov (78.)
- Kucharski (37.). 30.000.
•Besiktas vann 3:2.
Neuchatel, Sviss:
Neuchatei - Helsingborg...........1:1
Thierry Bonalair (51. - vítasp.) - Mattias
Jonsson (43.). 7.200.
•Helsingborg áfram 3:1.
Briissel, Belgíu:
Anderlecht - Guimaraes (Port.)....0:0
•Jafnt 1:1. Anderlecht áfram á marki skor-
uðu á útivelli.
Rotterdam, Hollandi:
Feyenoord - EspanyolO:l
- Arteaga (9.). 30.000.
•Feyenoord áfram 3:1.
Róm, Ótalfu:
Roma - Karlsruhe..................2:1
Abel Balbo 2 (21., 26.) - Marc Keller (83.).
46.439.
•Karlsruhe áfram 4:2.
Newcastle, Englandi:
Newcastle - Ferencvaros...........4:0
Faustino Asprilla 2 (42., 58.), David Ginola
(65.), Les Ferdinand (90.). 35.740.
•Newcastle áfram 6:3.
Valencia, Spáni:
Valencia -Slavia Prag.............0:0
37.000.
•Valencia áfram 1:0.
Lissabon, Portúgal:
Sporting Lissbon - Metz...........2:1
Ricardo Sa Pinto 2 (73., 83.) - Frederic
Arpinon (17.). 30.000.
•Metz áfram 3:2.
Porto, Portúgal:
Boavista - Dynamo Tbilisi.........5:0
Russel Latapy 2 (3., 67.), Jerrel Jimmy 2
(25., 55.), Jose Tavares (89.). 8.000.
•Boavista áfram 5:1.
Tenerife, Spáni:
Tenerife - Lazíó..................5:3
Nesta (15. - sjálfsm.), Meho Kodro (26.),
Juanele Castanos 2 (39., 62.), Slavisa Jok-
anovic (48.) - Pavel Nedved (13.), Diego
Fuser (29.), Pierluigi Casiraghi (47.).
21.000.
•Tenerife áfram 5:4.
England
1. deild:
Bolton - Reading..................2:1
Bradford - Crystal Palace.........0:4
Grimsby - Oldham .................0:3
Oxford - Stoke....................4:1
PortVale-Barnsley.................1:3
Portsmouth - Birmingham...........1:1
Southend - Manchester City .......2:3
Tranmere - Charlton...............4:0
Handknattleikur
1. deild kvenna:
Fram-KR.........................21:13
Mörk Fram: Þórunn Garðarsdóttir 4, Þuríð-
ur Hjartardóttir 4, Sigurbjörg Kristjánsdótt-
ir 3, Svanhildur Þengilsdóttir 3, Sveinunn
Tómasdóttir 2, Helga Kristjánsdóttir 2,
Arna Steinsen 2.
Mörk KR: Edda Kristjánsdóttir 6, Brynja
Jónsdóttir 2, Eva B. Hlöðversdóttir 2, Sæ-
unn Stefánsdóttir 1, Valdís Fjölnisdóttir 1,
Brynja Steinsen 1.
2. deild karla
Breiðablik - Armann..
..36:15
Ágúst ekki með Brann
gegn Eindhoven?
ÁGÚST Gylfason, knattspyrnu-
maður hjá Brann í Noregi,
meiddist í æfingaleik gegn Ros-
enborg á fimmtudaginn var og
hefur ekkert getað æft síðan.
„Ég hélt að þetta væri tognun
í kálfa en læknir liðsins heldur
að þetta geti verið eitthvað
meira. Ég skokkaði á æf ingu í
dag en get ekki leikið eins og
er,“ sagði Ágúst í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Brann leikur síðari leikinn
við PSV Eindhoven í Evrópu-
keppni bikarhafa á morgun og
verður leikið í Hollandi. Brann
sigraði 2:1 í fyrri leiknum og
sagði Ágúst hug í leikmönnum
Brann að standa sig og helst
komast áfram. Birkir Kristins-
son, landsliðsmarkvörður,
verður í marki Rrann annað
kvöld.
Ágúst endurnýjaði á dögun-
um samning sinn við Brann.
„Ég kann mjög vel við mig hér
og það á bara eftir að ákveða
hvort samningurinn verður til
eins eða tveggja ára,“ sagði
Ágúst í gær.
Fj. leikja u j T Mörk Stig
HAUKAR 3 3 0 0 83: 50 6
STJARNAN 4 3 0 1 95: 76 6
KR 4 3 0 1 76: 74 6
VIKINGUR 4 2 1 1 67: 65 5
IBV 4 2 0 2 69: 82 4
FRAM 3 1 1 1 58: 54 3
FH 3 1 1 1 50: 48 3
VALUR 5 1 0 4 73: 85 2
IBA 2 0 1 1 36: 38 1
FYLKIR 4 O 0 4 66: 101 0
Íshokkí
NHL-deildin
Montreal - Phoenix............4:5
■Eftir framlengdan leik
Colorado - Washington.........1:0
Newcastle ekki ívandræðum með Ferencvaros
Ginolameð
glæsimark
Þrjú þýsk lið komin áfram. Tenerife lagði Lazio. Vítaspyrnu-
keppni í Graz. Ince og Zubizarreta báðir reknir útaf
NEWCASTLE lék mjög vel í gær og vann Ferencvaros 4:0 og
komst þar með íþriðju umferð UEFA-keppninnar íknatt-
spyrnu. Tvö lið frá Skandinavíu komust einnig áfram, Bröndby
frá Danmörku og Helsingborg frá Svíðjóð. Danirnir gerðu
markalaust jafntefli við Aberdeen og Svíarnir 1:1 jafntefli við
Neuchatel í Sviss. Inter komst áfram eftir sigur á Graz f víta-
spyrnukeppni og þrjú þýsk lið tryggðu sér rétt til áframhaid-
andi keppni, HSV, Schalke og Karlsruhe. Tenerife vann fræk-
inn sigur á Lazio, 5:3 og komst áfram.
Leikmenn hjá Dortmund
sektaðir fyrir gagnrýni
Tveir leikmenn þýska meist-
araliðsins Dortmund hafa
verið sektaðir af stjórn félagsins
fyrir að gagnrýna lækni félagsins
opinberlega. Leikmennirnir sem
eiga í hlut er Matthias Sammer
og Rene Schneider.
„Það er ekki þolað í okkar
herbúðum að leikmenn gagnrýni
starfsmenn félagsins á opinber-
um vettvangi," sagði Ottmar
Hitzfeld þjálfari, en hann vildi
ekki nefna hversu háa upphæð
leikmennirnir hefðu verið sektað-
ir um.
Umræddur læknir, Achim
Buescher, hætti síðastliðinn
föstudag eftir að Schneider sagði
í viðtali við íþróttablað í Þýska-
landi að blindur maður gæti
greint meiðsli hans í ökkla og fór
í kjölfarið á fund læknis lands-
liðsins og fékk hann til að greina
meiðsli sín.
Ómar tekur við Þór
Omar Torfason, fyrrum lands-
liðsmaður úr Fram, Víkingi og
svissnesku liðunum Luzern og Olt-
en, mun þjálfa lið Þórs frá Akur-
eyri í 2. deildinni næsta ár. Aðeins
á eftir að skrifa undir samninginn
og það verður gert í dag ef Ómar
kemst norður. Peter Jones, formað-
ur knattspyrnudeildar Þórs, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi að stefna Þórs væri að byggja
upp og ætlunin væri að vera með
sterkt lið í fyrstu deild eftir tvö til
þrjú ár.
Reuter
FAUSTINO Asprilla lék mjög vel með Newcastle í gær er liðiö slgraðl Ferencvaros 4:0. Hann gerði tvö
mörk og Ginola gerði gullfallegt mark, „eitt af þeim fallegri sem ég hef gert", eins og hann orðaði það.
og mun hann stýra liðinu i 4. deildinni í knattspyrnu á komandi
keppnistímabili. Nói er ekki ókunnur í herbúðuðm Magna, þjálf-
aði liðið árin 1992-1994 í 3. og 4. deild. Hann tekur við starfinu
af fyrrum félaga sínum úr Þór, Sigurbimi Viðarssyni, sem tók
við liðinu af Nóa og hefur stýrt því sl. tvö ár. Nói hefur þjálfað
lið Þórs í 2. deildinni sl. tvö ár, auk þess sem hann tók við Þórs-
liðinu seirini part sumars 1994, eftir að Sigurði Lárussyni var
sagt upp störfum.
Newcastele sigraði Ferencvaros
4:0 á St. James’ Park í gær-
kvöldi og er komið í þriðju umferð
UEFA keppninnar, en ungverska
liðið sigraði 3:2 í fyrri leiknum.
Það gekk hvorki né rak hjá Newc-
astle í upphafi og á 40. mínútu
misnotaði Peter Beardsley víta-
spyrnu. Kólombíumaðurinn Faust-
ino Asprilla átti mjög góðan leik
og var allt í öllu í sókninni. Hann
gerði fyrstu tvö mörk Newcastle,
eitt í hvorum hálfleik en Frakkinn
David Ginola gerði þriðja markið.
Og hvíiíkt mark. Hann fékk bolt-
ann rétt utan vítateigs, tók hann
niður á hægra lærið, lyfti honum
síðan örlítið innanfótar með hægri
fæti og þrumaði knettinum síðan
með þeim vinstri efst í hægra
markhornið. Það var síðan Les
Ferdinand sem gerði fjórða mark
Newcastle. „Þetta er með fallegri
mörkum sem ég hef gert,“ viður-
kenndi Frakkinn eftir leikinn.
Ince sá rautt
Tíu leikmenn Inter Mílanó
tryggðu sér rétt til að leika í 16-
liða úrslitunum með því að leggja
Casino Graz 5:3 í vítaspyrnu-
keppni, eftir að hafa þurft að
sætta sig við tap, 0:1, í framlengd-
um leik. Enski miðvallarleikmað-
urinn Paul Ince var rekinn af lei-
kvelli í byijun framlengingar, á
95. mín., þegar hann fékk sitt
annað gula spjald - fyrir gróft
brot á Dieter Ramusch, áður hafði
hann fengið áminningu fyrir að
þrasa við dómara leiksins, Gilles
Veissierer frá Frakklandi.
Það var markvörðurinn
Gianluca Pagliuca sem bjargaði
Ince frá leiðindum, með því að
vera yfirvegaður og vetja víta-
spyrnu frá Erwin Dampfhofer. Það
var svo Salvatore Fresi sem
tryggði Inter sigur í vítaspyrnu-
keppninni, 5:3.
Eins og í fyrri leiknum áttu leik-
menn Inter í miklum erfiðleikum
með að koma knettinum fram hjá
hinum nítján ára markverði Graz,
Alexander Manninger, sem átti
frábæran leik.
Feyenoord tapaði, en áfram
Feyenoord, sem lék án vaj-nar-
mannsins Ronaid Koeman og mið-
vallarspilarans Jean-Paul van
Gastel, náði sér aldrei á strik gegn
Espanyol frá Spáni og mátti þola
tap heima, 0:1. Það kom ekki að
sök, þar sem Feyenoord vann í
Barcelona 3:0. Arie Haan, þjálfari
Feyenoord, var ekki yfir sig
ánægður eftir leikinn: „Við getum
aðeins verið ánægðir með, að við
erum komnir áfram. Við lékum
vel í Barcelona, en illa hér í Rott-
erdam.“
Mónakó áf ram þrátt fyrir tap
Franska liðið Mónakó átti aldrei
í vandræðum er það mætti þýska
liðinu Borussia Mönchengladbach
í Frakklandi í gær. Þjóðveijarnir
sigruðu 1:0 en þar sem Mónakó
vann 4:2 í fyrri leiknum í Þýska-
landi dugði það þýskum skammt.
Leikur iiðanna þótti einstaklega
daufur og leiðinlegur. Heimamenn
vörðust vel og Þjóðveijar ógnuðu
þeim ekki teljandi þrátt fyrir linnu-
litla sókn framan af leik. Nígeríu-
maðurinn Victor Ikpeba skoraði
fyrir heimamenn mínútu fyrir leik-
hlé eftir stórkostlega sendingu frá
Brasilíumanninum Anderson.
Markið var dæmt af vegna rang-
stöðu og var það rangur dómur
Reuter
INTER MILAN sigraði Graz frá Austuríkl 5:3 eftir vítaspyrnukeppni í
gærkvöldi og hér fagna, frá vinstri, Gianluca Pagliuga, Nicola Berti,
Ciriaco Sforza og Ivan Zamorano.
að flestra mati. Mónakó slakaði aðeins
á í vörninni eftir hlé og á 70. mínútu
komust gestirnir yfir með glæsimarki
frá Michael Klinkert. Skotinn John Coll-
ins verður ekki með Mónakó í næstu
umferð þar sem iiann var bókaður öðru
sinni í gær.
Þjóðverjar ánægðir
Þijú þýsk lið tryggðu sér rétt til áfram-
haldandi keppni. HSV gerði 2:2 jafntefli
við Spörtu í Moskvu en sigraði 3:0 í fyrri
leiknum og komst því auðveldlega áfram.
Schalke komst einnig áfram en það
gekk ekki eins auðveldlega og hjá HSV.
Schalke mætti Trabzonspor í Tyrklandi
og náði 3:3 jafntefli en komst áfram
þar sem liðið sigraði 1:0 í fyrri leiknum.
Hollendingurinn Johan de Kock kom
Schalke í 2:0, skoraði með skalla með
fimm mínútna millibili. Heimamenn
komust síðan í 3:2 þegar 20 mínútur
voru eftir og sóttu mikið, en Martin
Max, sem gerði eina markið í leik lið-
anna í Þýskalandi, jafnaði er stundar-
fjórðungur var eftir.
Karlsruhe átti trúlega erfiðasta leik-
inn þó svo liðið hafi sigraði Roma 3:0
í fyrri leiknum, en þá lék ítalska liðíð
mjög illa. Carlos Bianchi, þjálfari
Roma, gerði miklar breytingar á liði
sínu, lét þrjá leikmenn í framlínuna og
liðið sótti og sótti. Uppskeran var góð,
tvö mörk í fyrri hálfleik. Sókn Roma
hélt áfram í þeim síðari og Bianchi
bætti fjórða manninum í sóknina og
heimamenn voru óheppnir að gera ekki
nokkur mörk. En sjö mínútum fyrir
leikslok skoraði Marc Keller og þar við
sat.
Zubizarreta
rekinn út af
Valencia tókst að hanga á marka-
lausu jafntefli er liðið tók á móti Slavia
Prag, en Spánveijar unnu 1:0 í fyrri
leiknum. Markvörðurinn Andoni Zubiz-
arreta var rekinn af velli í upphafi síð-
ari hálfleiks fyrir að handleika knöttinn
utan teigs og er þetta í annað sinn á
stuttum tíma sem hann fær að líta rauða
spjaldið.
íttímw
FOLK
■ ROMARIO lék um helgina
fyrsta leik sinn með Flamengo eft-
ir að hann sneri heim að lokinni
stuttri veru hjá Valencia á Spáni.
Romario gat ekki lokið leiknum
um helgian því sökum meiðsla varð
hann að yfirgefa leikvanginn rétt
fyrir leikhlé.
■ BEBETO félagi Romario hjá
Flamengo er nú undir smásjánni
hjá forráðamönnum Sevilla. Hann
vill koma á ný til Spánar og það
ætti að skýrast fyrir vikulokin hvort
hann kemur til okkar,“ sagði einn
forráðamanna félagsins í gær. Sem
kunnugt er lék Bebeto um tíma
með La Coruna á Spáni. Einnig
herma freknir að enska félagið
Blackburn hafi borið víurnar í
Bebeto og voni að með kaupum á
honum nái félagið að rétta sig af
eftir ágjafir haustsins.
■ JOSE Míiriu Bakero fyrrum
landsliðsmaður Spánar hefur í
hyggju að yfirgefa Barcelona og
leika með mexíkóska félagsliðinu
Veracruz. Bakero sem er 33 ára
gamall og hefur skorað 136 mörk
í 479 deildarlekjum í heimalandi
sínu hefur ekki verið inn í mynd-
inni hjá Bobby Robson þjálfara
Barcelona síðan hann tók við
stjórnvölunum. Landar Bakeros,
Emilio Butragueno og Michel
Gonzalez, leika báðir í Mexíkó,
með Atletico Gonzalez.
■ HRISTO Stoichkov var í vik-
unni valinn í búlgarska landsliðið
vegna tveggja vináttulandsleikja
við Sádi-Arabíu og Tæland í byrj-
un næsta mánaðar. Báðir leikir eru
undirbúningur fyrir leik í undan-
keppni HM gegn Kýpur í byrjun
desember. Stoichkov hefur ekkert
leikið með landsliðinu síðan í Evr-
ópukeppninni í sumar sökum þess
að hann er ósáttur við þjálfara liðs-
íns, en hefur nú gefið eftir.
Að duga eða drep-
ast fyrir AC Milan
FJÓRÐA umferð meistaradeildar Evrópu fer fram í kvöld. Ítalíu-
meistarar AC Milan eru í óvenjulegri stöðu, hafa tapað tveimur
leikjum og verða að sigra Gautaborg í Svíþjóð til að eiga mögu-
leika á að komast áfram. „Þessi leikur skiptir öllu máli,“ sagði
króatíski miðjumaðurinn Zvonimir Boban. „Við verðum að sigra
til að komast upp úr riðlakeppninni."
George Weah, miðheiji liðsins
frá Líberíu, sagði að vanda-
mál liðsins fælust í andlegu hiið-
inni. „í fyrra unnum við leiki 1:0
eða náðum markalausu jafntefli.
Ef við náum forystu núna sigla
mótheijarnir yfir okkur og ef staðan
er markalaus töpum við. Þetta er
spurning um hugarfar, einbeitni.
Við verðum að vera ákveðnari og
gæta þess að sofna ekki á verðin-
um.“
Miðjumaðurinn Demetrio Albert-
ini verður sennilega í byrjunarliði
AC Milan á ný eftir að hafa verið
frá vegna meiðsla en sú er raunin
með Dejan Savicevic og fyrirliðann
Franco Baresi. Albertini verður á
miðjunni með Boban en.Hollending-
urinn Edgar Davids verður á vinstri
kantinum og Tomas Locatelli eða
Stefano Eranio hægra megin. Weah
og Marco Simone verða í fremstu
röð sem þýðir að Roberto Baggio
situr á varamannabekknum. Marcel
Desailly fer af miðjunni í vörnina
fyrir Baresi og við hlið hans verður
Alessandro Costacurta.
Gautaborg varð meistari í Svíþjóð
ijórða árið í röð. Jesper Blomqvist,
sem er 22 ára og hefur vakið mikla
athygli margra liða, undirritaði nýj-
an samning við félagið um helgina
og verður á miðjunni ásamt Niclas
Alexandersson, Magnus Erling-
mark og Stefan Lindqvist. Andreas
Andersson, sem var markahæstur
í sænsku deildinni með 19 mörk,
verður frammi með Stefan Petters-
son, fyrrum leikmanni Ajax.
Rangers varia hindrun
Ajax er efst í a-riðli með sex
stig og sækir Glasgow Rangers
heim sem er án stiga. Ajax vann
4:1 í fyrri leik liðanna fyrir hálfum
mánuði og Walter Smith, knatt-
spyrnustjóri Rangers, á ekki von á
kraftaverki.
„Við vitum að á brattan er að
sækja og möguleikar á að komast
áfram eru hverfandi en við gefumst
ekki upp meðan enn er von,“ sagði
hann. Fjórir leikmenn Rangers
verða í banni í kvöld, Paul Gasco-
igne, fyrirliðinn Richard Gough og
varnarmennirnir Alex Cleland og
Craig Moore. Ekki bætir úr skák
að markvörðurinn Andy Goram,
varnarmaðurinn Alan McLaren,
miðjumaðurinn Stuart McCall og
miðheijarnir Gordon Durie, Ian
Ferguson og Ally McCoist eru
meiddir auk þess sem hollenski
framhetjinn Peter van Vossen er
tæpur.
Dortmund án lykilmanna
Dortmund er nær öruggt með
að komast áfram, er með níu stig
eftir þijá leiki, en verður án margra
lykilmanna þegar það tekur á móti
Atletico Madrid. Sjö leikmenn eru
meiddir og tveir í banni, Júrgen
Kohler og Jörg Heinrich.
Norðmaðurinn Steinar Petersen
leikur fyrsta leik sinn í meistara-
deildinni og verður í vörninni í stað-
inn fyrir Martiii Kree, sem er meidd-
ur. Engu að síður vantar mikið í
vörnina þegar Kohler, Matthias
Sammer og Wolfgang Feiersinger
eru fjarverandi.
Atletico vonast til að geta teflt
fram leikstjórnandanum Jose Luis
Caminero en án hans hefur liðinu
ekki gengið vel að undanförnu.
Barátta í Zurich
Grasshopper tekur á móti Aux-
erre en bæði lið eru með sex stig
eins og Ajax í a-riðli. Franska liðið
vann 1:0 fyrir hálfum mánuði en
svissneska liðið hefur verið á hraðri
siglingu að undanförnu og sigrað í
þremur deildarleikjum í röð á sann-
færandi hátt.
Thomas Deniaud, sem gerði tvö
mörk á móti Rangers og sigurmark-
ið í fyrri viðureigninni við
Grasshopper, leikur ekki með Aux-
erre vegna meiðsla.
United taplaust heima
Manchester United hefur ekki
tapað leik í Evrópukeppni á heima-
velli í 40 ár en liðið tekur á móti
Fenerbache. United vann tyrkneska
liðið 2:0 fyrir hálfum mánuði og á
mikla möguleika á að verða fyrsta
enska liðið til að komast í átta liða
úrslit meistaradeildarinnar en tveir
síðustu deildarleikir hafa ekki skilið
mikið eftir sig, 5:0 tap í Newcastle
og 6:3 tap í Southampton.
Gary Pallister og Nicky Butt
meiddust í Southampton um helgina
og verða varla með en talið er að
norski varnarmaðurinn Ronny
Johnsen taki stöðu Pallisters. „Út-
litið er ekki bjart með Pallister og
staðan er lítið skárri hjá Butt,“
sagði Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri United. Hann bætti við að
Pallister þyrfti að fá tvær vikur til
að jafna sig en liðið þyrfti líka á
honum að halda í eins mikilvægum
leik og viðureign kvöldsins.
MARTIN Dahlin.
Dahlin aftur
á leið til
Gladbach
MARTIN Dahlin, sænski
landsliðsmaðurinn í knatt-
spyrnu, sem gekk til liðs við
Roma á Ítalíu í sumar, er lík-
lega á förum frá félaginu en
hann hefur ekki komist í leik-
mannahópinn hjá Rómverjum
það sem af er leiktíðinni. Allt
bendir til þess að hann hverfi
á ný til liðs við Borussia
Mönchengladbach þar sem
hann var áður en hann hélt
sunnar á bóginn. Hann hafði
áður afþakkað boð um að
leika með Rangers í Skot-
landi.
„Mér þykja þessi málalok
leiðinleg því ég hafði gert
mér vonir um að leika með
Roma en þjálfarinn er ekki á
þeim buxunum að gefa mér
tækifæri og þá er ekkert ann-
að að gera en leita á önnur
mið,“ sagði Dahlin í gær og
reiknar með að gengið verði
frá sínum málum fljótlega.
Fjögurra
leikja bann
fyrir að
hrækja
GIUSEPPE Pancaro, varnar-
maður Cagliari á Ítalíu, sem
var rekinn af leikvelli fyrir
að hrækja á andlit Gianluca
Pagliuca, markvarðar Inter
Mílanó, var í gær úrskurðaður
í fjögurra leikja bann.
Pancaro var einnig rekinn af
leikvelli á dögunum, þegar
hann lenti í átökum við leik-
mann Pagliuca í bikarleik.