Morgunblaðið - 01.11.1996, Page 2

Morgunblaðið - 01.11.1996, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ 2 B FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 ____________________________DAGLEGT LÍF__________________________ •Hún eyðir kvíða og streitu*Hún veitir frelsi frá reiði *Hún er andstæða hefndarinnar • Aðdragandi hennar er langur »Hún krefst styrks og visku • Hún er á valdi þolandans •Hún er undirstaða vellíðunar og nýs og betra lífs F yrir gefning FYRIRGEFNING er ekki bara handa prestum og syndugum trú- mönnum. Fyrirgefning er handa smáum og stórum, auðugum og fátækum og fijálsum og ófrjálsum. Hugtakið hefur vakið áhuga ráð- gjafa innan félagsvísindanna og afl hennar er að öðlast viðurkenningu sem mikilvægur þáttur í meðferð. Nýleg rannsókn varpar nokkm Ijósi á gildi fyrirgefningar. Robert Enright og Suzanne Freedman doktorar tóku viðtöl við konur sem þurftu að líða sifjaspell. Enginn í hópnum virtist hafa vilja til að fyrir- gefa þeim sem glæpinn framdi. Hálfur hópurinn fór síðan í gegnum fyrirgefningarnámskeið og ári síðar voru helmingarnir bornir saman. Munurinn var áberandi mikill. Það var eins og þungu fargi hefði verið létt af þeim sem fyrirgáfu og mældist minni kvíði og þunglyndi með þeim en hinum sem fóru ekki á námskeiðið. En hvað er fyrirgefn- ing? Fyrirgefning kostar þjáningu Misgerðarmaður iðrast og biður um fyrirgefningu, og það er á valdi þess sem hlaut skaða að veita hana. Ef fórnarlambið getur fyrirgefíð í hjarta sínu og misgerðarmaðurinn tekið við henni virðist það hafa líkn- andi áhrif á báða. Gera þarf skýran greinarmun á afsökun og fyrirgefningu. Óvita- skap þarf ekki að fyrirgefa, tilvilj- un, það sem á sér gildar ástæður, misskilning og það sem gert er sök- um skorts á upplýsingum, þarf held- ur ekki að fyrirgefa. Afsökun dugir. Fyrirgefa má á hinn bóginn það sem gert er vísvitandi og þegar þeir sem þekkja siðareglurnar bijóta þær. Breytni gegn betri vit- und má fyrirgefa. En enginn getur upplifað fyrirgefningu nema hann iðrist gjörða sinna. Fyrirgefning felst í að láta af hatri sínu og reiði gagnvart ódæð- ismanninum, og losna undan gremj- unni og nagandi kvíða. Iðrandi syndari þráir ekkert meira en fyrir- gefningu fórnarlambsins. Honum er sama um refsingu laganna og finnst hún jafnvel réttlát. Ekkert er honum meira virði en andleg fýrirgefning þess sem hann skaðaði og aðeins eftir það getur hann tek- ist á við lífið. Fyrirgefning gengur ekki kaup- um og sölum og hún liggur ekki á lausu. Það getur kostað þjáningu að gefa hana og að meðtaka hana, en hún er veitt vegna þess að hún er sem lyf gegn hatri og reiði. Nið- urstaða hennar er gleði beggja. Hún er sem þíðandi sólarljós á klaka- böndin milli mannanna. Sennilega á hún rætur að rekja til samúðar- kenndarinnar gagnvart illa stödd- um. Hefndin f dagdraumum Hatur sem brýst út sem hefnd er andstæða fyrirgefningarinnar, og má oftlega sjá í ákveðinni kvik- myndalínu frá Hollywood: „Góðu gæjarnir hefna ódæða með ofbeldi, tilgangurinn helgar meðalið og góðu gæjarnir eru jafnmiklir ef ekki meiri ofbeldisseggir og vondu gæjarnir." Þessar myndir eru byggðar á dagdraumum en hefnd í raunveru- leikanum gerir aðeins illt verra: Flækir málin enn frekar og skapar ekki rósemd hjartans. Galdurinn á bak við fyrirgefninguna er að gera eins og Agústínus kirkjufaðir ráð- lagði: „Hataðu syndina en ekki syndarann." Ekki er hægt að ganga að fyrir- gefningunni sem vísri. Hún er aldr- ei sjálfsögð og ekki hægt að „syndga upp á náðina" eins og séra Þorvaldur Karl Helgason bendir á. Hún er ævinlega á valdi þess sem brotið var á og hann einn getur fyrirgefið. Hin ódýra og hin dýra fyrirgefning „Hjá okkur birtist fyrirgefningin vegna brota í mannlegum samskipt- um,“ segir Þorvaldur Karl Helgson hjá Fjölskylduráðgjöf kirkjunnar. „Guðfræðingur hefur greint fyrir- gefninguna í tvennt, hina ódýru fyrirgefningu sem felst í að telja að málin séu afgreidd um leið og búið sé að biðjast fyrirgefningar. Einnig að treysta á hana sem sjálf- sagðan hlut. En fyrirgefningin er ekki einföld f.óttaleið eða tækifæri til að geta syndgað upp á náðina. Hin dýra fyrirgefning byggir hins vegar á iðrun og á eftir henni fylg- ir breytt hátterni. Þorvaldur nefnir að í syndajátningunni segi: „Guð fyrirgefi yður allar syndir.“ „Þá er væntanlega mikilvægt að menn játi syndir sínar, og líka að leiða saman gerandann og þolandann." Hann segir að það geti reynst sumum erfitt að þiggja fyrirgefn- ingu. Að minnsta kosti tvær ástæð- ur geta verið fyrir því, annars veg- ar tregðan að viðurkenna sekt sína og hins vegar tilhneigingin að telja sig eiga hana skilið. „Sumir hugsa: „Eg hef brotið svo hroðalega af mér að ég á ekki rétt á þessari fyrirgefningu." Og eiga meðal ann- ars af þessum ástæðum erfitt með að ganga til altaris í kirkjum." Þorvaldur Karl segir fyrirgefn- inguna ávallt undirliggjandi og í henni felist mikil lækning og frelsi. En hins vegar sé það valdníðsla að krefjast fyrirgefningar. ■ Gunnar Hersveinn Ásta Kristrún Ólafsdóttir Hrefna Ólafsdóttir Fyrirgefning er ekki Er kynferðisleg misnotkun staðfesting á ósigri fyrirgefanleg? ÉG HEF orðið vör við að fólk ruglar stundum fyrirgefningunni við annað, eins og að leggja blessun sínayfir ákveðna hegðun," segirÁsta Kristrún Ólafsdóttir, ráðgjafi fyrirfíkla og að- standendur þeirra. „Það er rétt að reiðast,“ segir hún, „því reiðin er merki um að til dæmis ofbeldi sé rangt.“ Ásta segir suma trega til að fyrirgef a vegna þess að þeir telji rétt að halda í reiðina. Ef dragi úr reiðinni halda þeir að hætt verði að taka mark á þeim. „Þetta er hugsanaskekkja," segir Ásta, „því reiðin breytir ekki fortíðinni. Ég heyrði einu sinni sagt: „Að fyrirgefa er að gefa upp vonina um betri fortíð.“ Og það er rétt.“ Fyrirgefningin léttir lífiA og veitir frelsi Ásta segir að þýðingarlaust sé að reyna endalaust að upplifa atvikið sem veidur reið- inni og hugsa um möguleikana sem voru fyrir hendi. Endurupplifunin kallar fram beiskju, hatur og biturð og ekkert breytist til betri vegar. „Að fyrirgefa er að sætta sig við fortíð- ina,“ segir hún, „og viðurkenna að lífið var sem helvíti. Fyrirgefningin er svo gjöf sem maður gefur sjálfum sér.“ Fólk sem heldur reiðinni logandi innra með sér, er að mati Ástu að leyfa misgerðarmönn- unum að taka sér bólfestu í huganum. „Það er eins og að hafa leigjendur í huganum sem borga ekki Jeiguna. Fyrirgefningin er að segja þeim upp húsnæðinu," segir hún. „Fyrirgefningin er ekki staðfesting á ósigri eins og sumir telja sér trú um. Einhver sagði: „Af hveiju á ég að fyrirgefa ef mér gefst kostur á að hefna mín?“ Ásta segir hefndina þunga byrði sem skapi reiði og ánauð. Fyrirgefningin á hinn bóginn gerir menn létta og veitir þeim frelsi. „Að hefna er eins og að leika guð,“ segir hún og vitnar í fullyrðingu aðstand- enda alkóhólista: „Annaðhvort verð ég hamingjusöm eða hef rétt fyrir mér.“ Viljinn til að langa að fyrirgefa Hefndin og langvarandi reiði eru byggð á misskildu stolti að mati Ástu. „En ef við fyrirgefum ekki, höldum við áfram að vera fórnarlömb.“ Fyrirgefningin er nauðsyn- leg til að stíga upp úr hlutverki þolandans, og Ásta leggur áherslu á að vegurinn að henni geti verið langur og torfarinn, enda þarf fyrst að bera sigurorð af reiðinni. „Fyrirgefningin er æskileg þótt fólki langi jafnvel ekki til að gefa hana,“ segir Ásta. Sumir vilja fyrirgefa en finna samt ekki nógu sterka löngun. Það er eitt að vilja og annað að langa. „Löngunin getur látið bíða eftir sér þótt viljinn sé fyrir hendi,“ segir Ásta, „fyrir- gefning verður aldrei þvinguð fram, og því þarf oft að hjálpa fólki til að vinna að henni og sýna þeim réttu verkfærin." Sumir geta talið sig hafa fyrirgefið og sagt: „Ég er löngu búinn að fyrirgefa þessu pakki.“ „En í raun hefur það aðeins afneitað stöðunni og lokað á eigin tilfinningar," segir Ásta. „Það þarf persónulegan styrk og visku til að fyrirgefa," segir hún. „í rnínum huga er fyrirgefning um frelsi, að vera fijáls frá for- tíðinni og fólki sem henni tilheyrir. Það er rétt að segja: „Ég á það skilið að fyrirgefa og ég geri það til að mér líði betur.“ Aftur á móti er það meinloka að fyrirgefning merki samþykki ákveðinnar hegðunar. ■ „FYRIRGEFNINGIN er mjögtíma- frekt ferli,“ segir Hrefna Ólafsdóttir, félagsráðgjafi með sérmenntun í barna-, unglinga- og Ijölskyldumeð- ferð frá Bandaríkjunum. Hún starfar á Barna- og unglingageðdeiidinni, Dalbraut 12 í Reykjavík, og vinnur meðal annars með börn sem hafa þurft að þola kynferðislegt ofbeldi á heimilum sínum. Hun er einnig sjálf- stætt starfandi ráðgjafi. Hrefna segir algeng fyrstu viðbrögð gerenda vera að biðjast fyrirgefningar strax og lofa að gera þetta aldrei aftur. Þolandinn sem er kúgaður af gerandanum segir svo ef til vill: „Já, alltílagi." „En þetta er engin alvöru fyrirgefning," segir Hrefna, „hún er langt langt ferli sem þarf að fara í gegnum áður en fólk getur lifað með atburðinum án þess að vera þjakað af erfiðum tilfinningum. Fyrst þarf þolandinn að glíma við tilfinn- ingar eins og reiði, sárindi og sorg, áður en hann getur átt fund með fjölskyldunni þar sem málið er rætt í hreinskilni, og viðurkenn- ing verður á að atburðurinn hafi átt sér stað,“ segir Hrefna. Viðurkenningin er nauðsynleg til að fjölskyldan geti breytt samskipta- mynstri sínu. Gerandinn er einnig búinn undir að mæta þolandanum með fjölskyldunni. Hann þarf að hafa gengist við afbrotinu og ábyrgð sinni á því, iðrast og beðist fyrirgefningar. Fyrirgefning þolandans er ekki einföld eða auðfengin. Kynferðisleg misnotkun verður nefnilega aldrei léttvæg fundin. Aldrei verður um fyrirgefningu að ræða, að mati Hrefnu, sem þurrkar út misgjörðina, eins og stundum er túlkað í guðfræði. Hún snýst um annað. Fyrirgefning felst í að vinna bug á erfiðum tilfinningum sem standa hamingjunni fyrir þrifum. Þolanda kynferðislegs ofbeldis er líka mikilvægt að gerand- inn viðurkenni sekt sína og afneiti henni ekki. „Þolendurnir þrá alls ekki hefnd,“ segir Hrefna, „heldur að ger- andinn horfist í augu við brot sitt.“ Börn sem verða fyrir þessu vilja að gerendur taki út sína refsingu vegna þess að það er staðfesting á að þeim sé trúað að annað gerði rangt: „Full- orðna fólkið trúir mér, dómskerfið trúir mér, allir trúa mér.“ Hrefna segir geranda eiga oft erfitt með að viðurkenna ábyrgð sína á brotinu. Hann þarf að standa auglitis til auglitis við þoland- ann og aðra í ljölskyldunni. Hann þarf líka að setja sig í spor þolandans og að gera sér grein fyrir að hann vann annarri manneskju óafmáanlegt tjón. Láta ekki glæpinn eitra og stjórna Iff I sínu Fyrirgefningin og sáttin verður ekki nema eftir þennan aðdraganda vegna þess að kyn- ferðisleg misnotkun á börnum er svo alvarleg- ur verknaður. „Þolendur sem aftur á móti vinna ekki bug á reiðinni og hefndartilfinningunni," segir Hrefna, „láta verknaðinn stjórna lífi sínu og eitra.“ Hinum sem tekst að ganga í gegnum fyrirgefningarferlið líður betur. Sárið er gró- ið og örið stendur eftir. „Fyrirgefningin hefur oft meira gildi fyrir þolandann en gerandann," segir Hrefna og hún kostar oft mikið. Gerandinn þarf svo hinsvegar að axla ábyrgðina, því ekki er hægt að svíkja barn meira en á þennan hátt. Refsingarnar eru svo til að leggja áherslu á hversu alvarlegur verknaðurinn er. ■ Ásta Kr. Ólafsdóttir Hrefna Ólafsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.