Morgunblaðið - 03.11.1996, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 3. NÓVEMBER 1998 C 3
FERÐALÖG
Á DANS- Og söngvasýningn í Port Louis. Morgunblaðið/Jóhanna Kristjónsdóttir
Þótt helmingur
Mauritius sé þukinn
skógi er nðeins lítill
hluti hans eldri en
hundruð óra. Eina upp-
runalega skóglendið
er við ffljót sem heitir
Svartó og í henni eru
fallegir fossar,
Tamarind.
SKAMMT frá Tamarind-fossum.
og er notaleg borg. Hún hefur yfir
sér breskt svipmót, einkum í eldri
hverfum, enda stjórnuðu Bretar á
aðra öld og Máritíus er hluti af
breska samveldinu. Við þinghúsið
trónir stytta af Viktoríu drottningu.
í bænum eru hof, musteri, kirkj-
ur, synagógur svo að hver geti
iðkað trú sína að vild. Þá eru ótelj-
andi veitingastaðir og segir það
sig náttúrlega sjálft með tilliti til
þess hve marglitur uppruni íbú-
anna er að þar er að fá mat frá
öllum heimshornum. Þar fannst
mér þó indverskir og kínverskir
staðir bera af. Nokkrir bjóða af-
ríska góðmetisrétti auk hefðbund-
inna staða með evrópskan mat.
Fyrir ofan bæinn gnæfir Merkja-
hæð yfír Port Louis og þar er ein-
stakt útsýni svo við borð lá að mér
fyndist ég sjá yfir eyjuna alla.
Vaxandí ferðamannastraumur
Máritíusar hafa sína þjóðlaga-
og danshefð. Hún er eins og fleira
undir margs konar áhrifum en úr
hefur orðið ijörmikil blanda. Dans-
sýningar eru vinsælar hjá ferða-
mönnum og litadýrð í söng og
dansi ber lífsgleði vitni.
Ferðamannastraumur til Már-
itíus hefur verið vaxandi án þess
þó að fara úr böndunum. Evrópubú-
ar og Bandaríkjamenn sækja þang-
að í töluverðum mæli, efnaðir hvít-
ir Afríkubúar og nýjasta viðbótin
munu vera Japanir. Hótel er að fá
í öllum verðflokkum en mér fannst
það galli á gjöf Njarðar að mörg
hótel setja það sem skilyrði að gest-
ir séu í hálfu fæði. Mér þótti miklu
skemmtilegra að rölta inn til Port
Louis og fara á litla staði þar sem
úrvalið er meira og verð yfirleitt
lægra.
Máritíus er ekki beinlínis ódýr
áfangastaður, t.d. fyrir íslendinga '
þótt ekki væri nema fjarlægðarinn-
ar vegna. En þegar þangað er svo
komið má finna ýms tilboð og það
er gott að leita til ríkisferðaskrif-
stofunnar í Port Louis til að fá
aðstoð og upplýsingar. Mér fannst
starfsfólkið einkar liðlegt og það
viil allt fyrir gesti gera.
Ferðamenn hafa nóg við að vera
á Máritíus, skoðunarferðir um eyna
eru góð afþreying og margt að sjá,
sjóstangaveiði við suðurströndina,
perluköfun fyrir utan, alls konar
íþróttaiðkun og svo náttúrlega að
sleikja sólina. Mér finnst það kostur
við Máritíus að þar er fallegt og
mjúkt þótt ofmælt sé að landslagið
sé tilkomumikið. Það sem lengst
situr eftir er þó áreiðanlega hlýtt
viðmót fólksins og sú mikla sátt sem
allir virðast vera í, hvort sem er við
gesti og gangandi eða það sem enn
betra er, við sjálfa sig. ■
Jóhanna Kristjónsdóttir
NANNA Briem á veitingastaðnum
Can Majó í Barcelona.
og eftir smá-umhugsunar-
frest ákvað önnur okkar að
velja krabbarétt, en hin
blandaðan sjávarrétt.
Þjónamir þrír stóðu enn
við borðið og sá elsti spurði
okkur hvað við vildum
drekka með. Ég hef nú allt-
af verið hrifin af vínum frá
Rioja-héraðinu á Spáni og
spurði hvort þeir byðu upp
á það. „Jú, reyndar," sagði
eldri þjónninn, og ég var
ekki frá því að hann væri
svolítið súr yfir því að ég
skyldi ekki velja katalónskt
vín. „Eigið þið kannski eitt-
hvert gott vín frá Katalón-
íu,“ spurði vinkona mín að
bragði. Það lifnaði yfir þeim
gamla og hann mælti með
Torres hvítvíni frá Pénedes-
héraðinu, einu besta vínhér-
aði Katalóníu.
Fransola vínið frá Torres
var komið á borðið og á
meðan við biðum eftir matn-
um gæddum við okkur á
BLÖNDUÐU sjávarréttirnir.
grænum ólívum og pylsu-
sneiðum. Vínið bragðaðist
líka afskaplega vel, eins og
þjónninn hafði reyndar lofað.
Ekki leið á löngu þar til
aðalrétturinn var borinn á
borð fyrir okkur. Grillaði
krabbinn var ljúffengur og
blönduðu sjávarréttirnir
voru svo sannarlega lost-
æti. í eftirrétt fengum við
okkur svo gómsætar kökur
og sterkt kaffi að hætti
Katalóna.
Verðið á Can Majó var
mjög hagstætt. Fyrir
fveggja rétta máltíð með
víni, sódavatni og kaffi
borguðum við um fimm
þúsund krónur íslenskar
fyrir okkur tvær. Þetta
fannst okkur vel sloppið.
Eftir vel heppnað kvöld á
Can Majó kvöddum við
staðinn og héldum saddar
og glaðar út í nóttina í
Barcelona.
Fræðslurit um
Hengilssvæðið
HENGILSSVÆÐI er fjórða ritið
í röð fræðslurita sem Ferðafélagi
íslands hóf útgáfu á árið 1985.1
ritinu er fjallað um Hengil og
landið umhverfis, s.s. Grafning
oghluta Hellisheiðar.
í fréttatilkynningu frá Ferða-
félaginu segir að Hengilssvæðið
sé-áhugavert og stórbrotið útivist-
arsvæði sem ry'óti sívaxandi vin-
sælda. Lengi hafi skort handhæga
leiðsögn um svæðið, þar sem gerð
væri aðgengileg grein fyrir bæði
helstu gönguleiðum ásamt skoð-
unarverðum stöðum og almenn-
um dráttum í jarðfræði svæðisins.
Úr því bæti Ferðafélagið með
þessari litlu bók.
Sigurður Krisijánsson, kenn-
ari, skrifar kaflann Göngvleiðir
og staðhættir, þar sem fjallað er
um fjöll og fell og bent á hentug-
ustu gönguleiðir. Fjöldi litmynda
prýðir
þennan
kafla.
Höfundur
jarðfræði-
legs yfir-
lits er
Kristján
Sæmunds-
son, jarð-
fræðirtg-
ur, en þar
er fjallað
um eld-
stöðvar og
berggerð,
landslag og landmótun, jarðhita
og fjölda skoðunarverðra staða.
Fimm jarðfræðikort í lit eru í
kaflanum.
Félagsverð er 1.500 krónur, en
almennt verð bókarinnar er 1.900
krónur. ■