Morgunblaðið - 06.11.1996, Blaðsíða 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
i
Síldin veiðist á ný
SÍLDVEIÐAR hafa nú glæðzt á
ný eftir erfiða tíð og litla veiði í
síðustu viku. Skipin fengu góðan
afla í upphafi vikunnar í Litla dýpi,
sem er norðaustur af Glettingi.
Meðal annarra landaði Börkur NK
500 tonnum í Neskaupstað og var
það stór og falleg síld. Alls hafa
um 30.000 tonn af síld borizt á
land á vertíðinni.
Mun meira hefur nú verið unnið
af síld hjá Síldarvinnslunni í Nes-
kaupstað en á sama tíma í fyrra.
Alls er búið að frysta um 900 tonn
og salta í meira en 28.000 tunnur.
Á sama tíma í fyrra hafði verið
saltað í um 21.000 tunnur og 600
tonn verið fryst. Svanbjörn Stef-
ánsson, framleiðslustjóri, segir að
með sama áframhaldi verði mun
meira unnið nú en í fyrra. Þá var
saltað í 42.000 tunnur og 1.200
tonn voru fryst og hafði ekki verið
unnið jafnmikið af síld til manneld-
is hjá fyrirtækinu fyrr. Það stefnir
því enn í metvinnslu hjá SVN. Um
120 manns vinna að jafnaði í síld-
inni.
þjónustunetið
FuUkomin og örugg þjónusta um land aUt!
Viðgerða- og viðhaldsþjónusta:
Reykjavík: Arentsstál hf. Dalvík: Vélvirki ehf.
Hafnarfjöröur: Ver hf. Neskaupstaður: Verkstæði Helga.
Stykkishólmur: Vélaþjónusta Þorgríms. Hornafj.: Foss hf.
Patreksfjörður: Vélsmiðjan Logi. Vélsmið'a Hornafjarðar.
Bolungarvík: Vélvirkinn sf. Vestmannaeyjar: Skipalyftan hf.
Akureyri: Höldur hf. Keflavík: Vélaverkst. Jóhanns Viðars.
Ráðgjöf - sala - þjónusta - varahlutir:
Gólf-
og veggefni
fyrir
matvælaiðnað
Maxi-1000
Maxi»oo
G Ó L F E F N I
Gólfefnið inniheldur litað afar sterkt
bindiefni með dynagrip fylliefni.
Hentar vel þar sem álag er mikið
svo sem á móttökur, vinnslusali o.fl.
TcSPPÍSWI
G Ó L F E F N I
V E G G E F N I
Henta vel á pökkunarsali,
snyrtingar o.fl. Einnig sem
veggefni upp í 1,8 m hæð,
þar sem álag er mikið.
Maxi ]OGö
V E G G E F N I
Veggefnið samanstendur af
epoxyspartli og vatnsuppleysan-
legri háglansandi epoxy málningu.
Imp
Efnin uppfylla ströngustu kröfur
sem gerðar eru til vinnusvæða
í matvælaiðnaði.
Ó L F E F N I
Gólfefnið inniheldur litað
bindiefni með kvartssandi.
Hentar vel á vélasali, verkstæði,
vörugeymslur o.fl.
n
Gólflasnir
IÐNAÐARGÓLF^^ SatóteiwflouÉrTí*
IÐNADARGÓLF
MAÉAND
^ooátARD'a.wyfiuOPAVööttn
JSKéÖrHWéfSl V(tftv'593i
FRÉTTIR
LODNUFRYSTING í EYJUM
• Frysting loðnu hófst í
Vinnslustöðinni í Vestmanna-
eyjum i vikunni en þetta er í
fyrsta skipti sem loðna er
fryst á þessum árstíma í Eyj-
um. Kap VE landaði um 800
tonnum af ágætis loðnu sem
þeir fengu út af Vestfjörðum
og voru um 60 tonn af aflan-
um fryst.
Þór Vilhjálmsson, verk-
sfjóri I Vinnslustöðinni, sagði
í samtali við Morgunblaðið
að loðnan sem verið væri að
frysta færi á Rússlandsmark-
að. Bæði hængur og hrygna
eru fryst og sagði Þór að
sæmilegt verð fengist fyrir
afurðina. Verðið væri þó ekki
það hátt að það borgaði sig
Morgunblaðið/Sigurgeir Jðnasson
að vinna við frystinguna í
yfirvinnu og væri því einung-
is unnin dagvinna. Þór sagði
að ekki hefði áður verið fryst
loðna í Vinnslustöðinni á
þessum árstíma en þarna
væri nýr markaður fyrir
frysta Ioðnu sem hefði opnast
og því væri þessi vinnsla að
hefjast nú.
Guðbjörg ÍS 46 verður
áfram gerð út frá Isafírði
^^^^^■■^■■■■■■■■■■B ísafírði. - Stjórnendur út-
fcflVóínrrítV cro+n gerðarfyrirtækjanna Hrann-
II UlHgal ^clit ar hf. á ísafirði og Samherja
á Akureyri áttu á laugardag
fund um samstarf fyrirtækj-
anna með hugsanlega sam-
einingu þeirra í huga. Guð-
mundur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hrannar, staðfesti í samtali
við blaðið á mánudag að umræddur fundur hefði átt sér stað og að
markmiðið með viðræðunum væri að tryggja stöðu fyrirtækjanna. Hann
ítrekaði að á þessari stundu lægi ekkert fyrir hvað kæmi út úr viðræðunum.
verið rólegir, segir
Asgeir Guðbjartsson
„Ég veit ekki á þessari stundu
hvort sameining fyrirtækjanna
kemur til greina. Við höfðum aðeins
haldið einn rabbfund og annað ekki.
Það veit enginn á þessu stigi máls-
ins hvort af sameiningu verður,"
sagði Ásgeir Guðbjartsson, skip-
stjóri og einn aðaleigandi Hrannar,
* Tvðfalt lag af bylgjupappa gerir kassann
einstaklega sterkan og hentugan til tlutninga
* Hsgt að stafla upp með þar tll gerðum
hornum
Passar á venjuleg 100X120 cm bretti
uepönp.im-
umbúoahibstobinhf.
Hóðinsgðlu 2 Slml 581 3511
rVRIR f I S R I N N I 1ANDIHU
í samtali við blaðið. Ásgeir sagði
að á undanförnum tveimur árum
hefðu fyrirtækin tvö átt með sér
góða samvinnu og vonaðist hann
til að svo yrði áfram.
Samherji útvegaðl kvóta
„Þeir Samheijamenn hafa tekið
alla okkar iðnaðarrækju til vinnslu
og þeir útveguðu okkur mikinn kvóta
fyrsta árið, þegar við fískuðum sem
mest af rækjunni og því væntum
við góðrar samvinnu við þá áfram.
ísfírðingar eiga að geta verið róleg-
ir því að skipið verður áfram sem
hingað til gert út frá ísafírði, hvað
sem öllum öðrum málum líður. Guð-
björgin verður áfram ÍS og verður
gerð út frá ísafirði. Það get ég sagt
þér,“ sagði Ásgeir.
Eru að fð góða rækju á Halanum
Ásgeir taldi að engin niðurstaða
fengist í viðræðumar við Samheija-
menn fyrr en færi að nálgast ára-
mót. Sögusagnir hafa verið uppi
um að ástæðan fyrir viðræðum for-
svarsmanna fyrirtækjanna tveggja
sé sú að tveir af eigendum Hrannar
hafi óskað eftir því að vera keyptir
út úr fyrirtækinu.
„Það er ekkert sérstaklega
ástæðan, það held ég ekki. Við erum
aðallega að hugsa um framtíðina.
Það snýst allt um þennan kvóta,
hann er líf og dauði fyrirtækj-
anna,“ sagði Ásgeir.
Guðbjörgin, sem hefur verið á
veiðum á Flæmingjagrunni frá því
í mars á þessu ári, er nú komin á
heimamið og var að fá stóra og
góða rækju á Halamiðum á mánu-
dag, að sögn _ Ásgeirs. Skipið er
væntanlegt til ísafjarðar um miðjan
mánuðinn.
Áhrif bæjarfélaganna
engln í slíkum viðræðum
„Mér finnst eðlilegt að forsvars-
menn þessara fyrirtækja geri þær
ráðstafanir, sem þeim þykir eðli-
legt sjálfum. Þeir eiga þessi fyrir-
tæki og hafa full umráð yfir þeim.
Skoðanir sveitarstjórnarmanna á
þessum málum geta verið æði mis-
jafnar, en áhrif bæjarfélaga, þegar
þau eiga ekki hlut í viðkomandi
fyrirtækjum, eru engin,“ segir
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri
á ísafirði. Aðspurður um afstöðu
sína til sameiningar fyrirtækjanna
tveggja fyrir hönd sveitarfélagsins,
sagði Kristján að það lægi í augum
uppi að sameining af þessu tagi
gæti komið sveitarfélaginu bæði
vel og illa. Það veltur allt á því
hvernig forsvarsmenn þessara fyr-
irtækja spila úr sínum málum. „Ég
er viss um það að eigendur Sam-
heija sem og eigendur Hrannar
muni eftir sem áður gera það besta
úr kvótanum sem hægt er,“ sagði
Kristján Þór.
Grandi með 24.500 tonn
• HEILDARAFLI togara Langmest veiddist af karfa,
Granda hf. var 24.500 tonn 7.750 tonn af úthafskarfa og
fyrstu níu mánuði ársins. Þetta 7.125 af öðrum karfa. 2.873
er nokkru minna en ráð var tonn af þorski veiddust í Smug-
fyrir gert í áætlunum og skýr- uuni og 2.105 á heimaslóð,
ist það fyrst og fremst af 2.228 af ufsa og minna af öðr-
dræmri veiði í Smugunni í um tegundum, 1.323 tonn af
liaust. grálúðu og 783 tonn af ýsu.