Morgunblaðið - 06.11.1996, Blaðsíða 8
illillilíl
FOLK
f
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER1996
Morgunblaðið/Guðni
HÖSKULDUR Ásgeirsson er framkvæmdastjóri Iceland Seafood Ltd. í Englandi.
Metár í framleiðslu og
sölu Iceland Seafood Ltd.
FYRSTU tíu mánuði ársins
Selt fyrir 7 milljarða
fyrstu 10 mánuði ársins
seldu sölufyrirtæki Islenskra
sjávarafurða (Iceland Sea-
food) í Englandi, Þýskalandi
og Frakklandi sjávarafurðir
fyrir 64,3 milljónir punda (7 milljarða ÍKR) og er það sölumet í sögu fyrirtækis-
ins. Á sama tímabili í fyrra seldu sömu fyrirtæki fyrir 58,8 milljónir punda (6,4
jinilljarða ÍKR) og er söluaukningingin um tæp 10% milli ára.
Mikil framleiðsluaukning hefur verið
hjá íslenskum sjávarafurðum á al-
þjóðavísu á þessu ári. Allt árið í fyrra
voru framleidd 65.700 tonn af frystum
sjávarafurðum en í lok september síð-
astliðins var framleiðslan komin í
105.200 tonn eftir 9 mánaða rekstur.
Rúmlega helmingurinn, eða 50,4%,
kemur frá Rússlandi og Namibíu. Ala-
skaufsinn sem framleiddur eru í Rúss-
landi er ekki eins verðmætur og þorsk-
ur og ýsa svo heildarverðmætið eykst
ekki í réttu hlutfalli við magnið. Verð-
mætisaukning er um 60% á milli ára.
Besta söluárið
- Höskuldur Ásgeirsson er fram-
kvæmdastjóri Iceland Seafood Ltd. í
Hessle, rétt utan við Hull í Englandi
og heyra sölufyrirtæki ÍS í Hamborg,
Þýskalandi og Bologne-sur-Mer,
Frakklandi undir skrifstofu hans. Á
skrifstofunum þremur vinna um 20
starfsmenn, þar af helmingurinn ís-
lendingar.
Höskuldur segir að í framleiðslu-
aukningunni hjá ÍS muni mest um
frosnar sjávarafurðir frá UTRF í Kamt-
sjatka í Rússlandi. Auk Alaskaufsa
hefur einnig orðið aukning í frosnum
pjávarafla frá íslandi og Namibíu. Hös-
kuldur nefnir til dæmis að viðskipti með
frysta síld frá íslandi hafi aukist veru-
lega inn á öll markaðssvæði.
Um 10% söluaukning, í magni og
verðmætum, hefur orðið á milli ára í
ýmissi sérvöru sem er framleidd beint
inn á neytendamarkaði í Evrópu. Þá
hefur orðið um 30% söluaukning að
magni í rækju á þessu ári, og þrátt
fyrir verðlækkun er veltan í rækjunni
6% meiri í fyrra. „Það stefnir í að árið
1996 verði besta söluár í sögu þessa
félags," segir Höskuldur.
Nýtt sölufélag á Spáni
Höskuldur er á förum heim ásamt
konu sinni Elsu Þórisdóttur og börnum
eftir 10 ára útivist. Hann tekur við
íslenskar sjávarafurðir:
Framleiðsla á frystum
sjávarafurðum 1990-96
I Rússlandi
í Namibíu
Landfryst heims
| Sjófryst
1990 '91 '92 '93 ’94 ’95 '96
starfi framkvæmdastjóra sölu- og
markaðssviðs íslenskra sjávarafurða
hf. í byrjun nýs árs. „Ég er búinn að
vera úti frá 1986,“ segir Höskuldur.
„Fyrst var ég í hér í námi. Árið 1988
fór ég til Frakklands, setti þar upp
skrifstofu Iceland Seafood og vann þar
i fjögur ár. Ég hef verið hér í Hull frá
seinnihluta árs 1992.“
Iceland Seafood Ltd. í Englandi var
stofnað 1980 og er skráð sem hlutafé-
lag í Bretlandi. Um áramótin verða
stofnuð hlutafélög um skrifstofurnar í
Þýskalandi og Frakklandi og eignar-
haldi félagsins í Englandi breytt. Fram-
leiðendur innan íslenskra sjávarafurða
hafa átt um 40% hlut í Iceland Sea-
food Ltd.. Nú færist félagið alveg í
eigu IS en framleiðendurnir fá í stað
eignarhluta síns hlutabréf í móðurfé-
laginu á íslandi. Sami háttur verður
hafður á varðandi eignarhluta fram-
leiðenda í Iceland Seafood Corporation
í Bandaríkjunum.
íslenskar sjávarafurðir hafa nýlega
opnað söluskrifstofu í Tokyo í Japan
og ráðgert er að opna nýja skrifstofu
á Spáni á næsta ári. Sú mun einbeita
sér að Suður-Evrópumarkaðnum. „Við
ætlum að styrkja stöðu okkkar á
íberíuskaganum. Það er engin launung
að Spánn er mjög sterkur markaður
og mikil neysla á sjávarafurðum þar.
Við erum að selja lýsing frá Namibíu
og stærsti markaðurinn fyrir hann er
á Spáni. Það er grundvallaratriði að
vera eins nálægt markaðnum og kostur
er,“ segir Höskuldur.
Verkefni munu aukast
„Það er ljóst að þessi erlendu verk-
efni munu aukast,“ sagði Höskuldur.
„Við höfum öðlast reynslu á þessu
sviði og getum óhikað farið í frekari
verkefni. Ég held að orðsporið sem við
höfum skapað okkur í þessum löndum
muni leiða til þess að aðrir leiti eftir
þjónustu samtaka okkar. Það eru ekki
mörg fyrirtæki í sjávarafurðageiranum
á heimsvísu sem eru með söluskrifstof-
ur á öllum helstu markaðssvæðum
heims, eins og íslensku sölufyrirtækin
eru með. Við getum boðið þeim sem
eru að framleiða frystan fisk aðgang
að öllum helstu mörkuðum heimsins.
Þetta gerir fyrirtæki eins og íslenskum
sjávarafurðum kleift að fjárfesta enn
frekar í sölu- og markaðsstarfsemi.“
Kristpán
endurkjöriim
Kristján Ingimar
Ragnarsson Halldórsson
formaður LIU
• KRISTJÁN Ragnarsson
var einróma endurkjörinn for-
maður LÍÚ á aðalfundi lands-
sambandsins sem nýlokið er.
Kristján er jafnframt fram-
kvæmdastjóri LÍÚ. Sam-
kvæmt reglum LÍÚ um stjórn-
arkjör skal kjósa 15 manns í
stjórn og 14 til vara. Formaður
er kjörinn til eins árs í senn,
en aðrir stjórnarmenn til
þriggja ára, þannig að fimm
stjórnarmenn ganga úr stjórn
tvö ár í röð, en fjórir hið þriðja.
Skal þess ávallt gætt að út-
vegsmannafélagi sem hefur
innan sinna vébanda að
minnsta kosti 10% af heildar-
rúmlestatölu skipa í eigu fé-
lagsmanna sé tryggður einn
maður í aðalstjórn. Að þessu
sinni áttu að ganga úr stjórn
LÍÚ þau Eiríkur Ólafsson,
Fáskrúðsfirði, Gísli Jón Her-
mannsson, Reykjavík, Guð-
rún Lárusdóttir, Hafnar-
firði, og Haraldur Stur-
laugsson, Akranesi, sem
kjörin voru til þriggja ára
1993. Auk þess átti Eggert
Jónsson, Isafirði, að ganga
úr stjórninni, en hann var kjör-
inn til eins árs á aðalfundinum
í fyrra. Þau fjögur fyrstnefndu
voru endurkjörin, en í stað
Eggerts kom Ingimar Hall-
dórsson, Súðavík, inn í
stjórnina á ný. Eggert var síð-
an kjörinn í varastjórn til eins
árs í stað Þorleifs Pálssonar,
Isafirði, sem óskaði eftir því
að hætta setu í varastjórn.
Varamenn til næstu þriggja
ára voru kjörnir Adolf Guð-
mundsson, Seyðisfirði,
Hilmar Magnússon, Kefla-
vík, Jón Ægir Ólafsson,
Garðabæ, Sigurður Einars-
son, Vestmannaeyjum, og
Sigurbjörn Svavarsson,
Reykjavík. Fyrir í stjórn LÍÚ
voru Brynjólfur Bjarnason,
Reykjavík, Eiríkur Tómas-
son, Grindavík, Guðmundur
Kristjánsson, Rifi, Hermann
Guðmundsson, Árskógs-
strönd, Magnús Kristinsson,
Vestmannaeyjum, Magnús
Magnússon, Akureyri, Sig-
urður Bjarnason, Þorláks-
höfn, Valdimar Bragason,
Dalvík, og Þorsteinn Erl-
ingsson, Keflavík. yaramenn
þeirra eru Ármann Ármans-
son, Reykjavík, Emil Thor-
arensen, Eskifirði, Guð-
mundur Þorsteinsson,
Grindavík, Hannes Sigurðs-
son, Þorlákshöfn, Hilmar
Rósmundsson, Vestmanna-
eyjum, Gunnar I. Hafsteins-
son, Reykjavík, Jón Gunnar
Helgason, Höfn í Horna-
firði, og Kristján Ásgeirs-
son, Húsavík. Félagslegir
endurskoðendur voru endur-
kjörnir, þeir Benedikt Thor-
arensen, Þorlákshöfn, og
Guðmundur Jónsson, Hafn-
arfirði. I trúnaðarráð LÍÚ
voru kjörnir Jón Erlingsson,
Sandgerði, og Einar Sig-
urðsson, Þorlákshöfn, sem
kom í stað Benedikts Thorar-
ensen, Kristján Jóhannsson,
Isafirði, Guðjón Indriðason,
Tálknafirði, Þorsteinn Már
Baldvinsson, Akureyri,
Gunnar Sigvaldason, Ólafs-
firði, Freysteinn Bjarnason,
Neskaupstað, Halldóra B.
Jónsdóttir, Höfn í Horna-
firði, Runólfur Hallfreðsson,
Akranesi, og Ingimundur
Ingimundarson, Reykjavík.
Varamennj trúnaðarráð eru
Matthías Óskarsson, Vest-
mannaeyjum, Sigurður Vig-
gósson, Patreksfirði, Hreið-
ar Valtýsson, Akureyri,
Friðrik Guðmundsson,
Vopnafirði og Jón Guð-
mundsson, Hafnarfirði.
Svíar fá kvóta í Noregi
• SAMKVÆMTsamningum,
sem Evrópusambandið hefur
gert við Norðmenn, fá sænsk
fiskiskip veiðiheimildir innan
norskrar lögsögu. Er um að
ræða 2.560 tonn af þorski,
ufsa, lý og lýsingi, 840 tonn
af síld, 240 tonn af makríl og
150 tonn af rækju. Verða veið-
arnar stundaðar fyrir sunnan
62. breiddargráðu. Svíar og
Norðmenn hafa haft með sér
tvíhliða samning um fiskveiðar
allt frá árinu 1976 en með inn-
göngu þeirra fyrrnefndu í Evr-
ópusambandið varð að semja
um þær aftur. Hafa samning-
arnir tekið langan tíma vegna
kröfu Norðmanna um veruleg-
an niðurskurð á þeim.
Rækjusmáréttur
fyrir einhleypa
UPPSKRIFTIR eru yfirleitt ekki gefnar upp fyrir einn,
en hér er ein slík sem einhleypingar ættu að eiga auð-
rsBnMMnaB velt með að notfæra sér á fljótlegan
hátt. Réttur þessi er ættaður frá
spænska ferðamannabænum Torremolinos, en þangað
eru islenskir sólarunnendur nú farnir að streyma að
nýju eftir að þarlendir eru búnir að taka til heima hjá
sér svo um munar. Hjónin Terry og Juan, sem verið
hafa m.a. fararstgórar íslendinga á Kanaríeyjum, Spáni
og Portúgal, eiga heimili nærri Torremolinos og reka
þar einnig veitingahús, þaðan sem uppskriftin kemur.
Réttinn kalla þau á frummálinu Gambas pil-pil, en í
hann þarf:
10 úthafsrækjur
1 hvítlauksrif
fersk steinselju
þurrkað chili
salt
*/4 tsk. saffran
xh glas ólifuolíu
Seljið rækjumar í lítið eldfast mót ásamt smátt söxuðum
hvitlauknum og um það bil einni tsk. af steinselju og
annarri af chili. Hellið ólífuolíunni yfir og kryddið með
salti og saffran. Setjið því næst eidfasta mótið á heita
hellu og látið krauma i stutta stund. Borið fram með
heitu snittubrauði.