Morgunblaðið - 08.11.1996, Side 1
■ SJÁLFRÆÐIÁ EFRIÁRUM/2 ■ VINKOMUR í ÁRATUG EFTIR AÐ HAFA
KYMMST Á FÆÐIMGARDEILDINNI/3 ■ HÚSVERMD í REYKJAVÍK/6 ■ BRÚÐ-
KAUP AÐ SKOSKUM SIÐ/7 ■ TEIKNIMYNDASAGA UM EGIL/8 ■
Háralitur og
ímynd konu
UM 80% íslenskra kvenna
lita á sér hárið að minnsta
kosti einu sinni á ári, sam-
kvæmt því sem talið er.
Ástæðurnar þar að baki
eru fjölmargar, sumar
vilja einfaldlega breyta
til, aðrar vilja fela gráu
hárin og einhverjar vilja
skapa sér ákveðna ímynd
með háralitnum.
Hver þekkir ekki goð-
sögnina um að rauðhærð-
ar konur séu skapmiklar
en dökkhærðar konur
ábyrgðarfullar? Hefur
ekki verið sagt um
aumingja ljóskurnar
að þær séu heimsk-
ar? Eru þetta
klisjur sem eng-
inn tekur mark
á, eða leynist hjá
fólki sú trú
að háralitur jm
skipti máli?
Heitar hendur
á köldum vetrardögum
NÚ ÞEGAR veturinn er genginn í
garð þarf að huga að ýmsum fatn-
aði til að hlífa eyrum, hálsi og hönd-
um. Margir hafa eflaust leitað i hirsl-
unum heima hjá sér og dregið upp
gamla hanska eða húfur til að veij-
ast kuldanum. Aðra munar sennilega
ekkert um að pijóna nokkra vettl-
inga, en einhveijir hyggjast áreiðan-
lega fjárfesta í nýjum hlífðarfatnaði
þetta árið. En hvað þarf að hafa í
huga þegar hanskar eða vettlingar
eru keyptir til daglegra nota? Dag-
legt líf fór á stúfana og leitaði svara
við þessari spurningu.
Halldóra María Steingrímsdóttir,
snyrtifræðingur, segir að í miklum
kulda verði fingurnir stundum bláir
vegna blóðleysis og þá sérstaklega
hjá eldra fólki. „En til þess að koma
í veg fyrir það er mjög gott að vera
með vettlinga," segir hún.
Halldóra mælir eindregið með ís-
lenskum lopavettlingum, því þeir
haldi vel hita og hleypi súrefni í
gegn. „Ef súrefni kemst ekki að
húðinni getur sveppasýking mynd-
ast,“ segir hún.
Pálína Bjarnadóttir, starfsmaður
Útilífs í Glæsibæ, segir að hanskar
úr flísefni séu að verða mjög vinsæl-
ir enda hafi þeir reynst vel í miklum
kulda. „Slíkir hanskar eru til í öllum
stærðum og gerðum og eru sumir
þeirra jafnvel með leðri á lófan-
um eða frá lófa upp að
fingurgómum, sem þykir
þægilegt fyrir þá sem eru
að hjóla eða keyra,“ seg-
ir hún.
Pálína segir að venju-
legir flíshanskar séu
hvorki vatns- né vind-
heldir. „En hins vegar eru
til flíshanskar, með sérstakri
filmu á milli, sem gerir þá vind-
helda,“ segir hún.
Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdðttir
Heiðar Ágústsson starfsmaður
hjá Seglagerðinni Ægi segir að mjög
gott sé að vera með tvöfalda vettl-
inga; annars vegar hlýja vettlinga
innst og hins vegar vatns- og vind-
helda vettlinga yst. „Best er að hafa
flísvettlinga eða þæfða ullarvettl-
inga næst húðinni, og að utan yfir
þá séu nælonvettlingar með svokall-
aðri öndunarfilmu, en það er filma
sem hleypir út svita en hindrar að
vatn komist inn.“
Heiðar segir að leðurhanskar séu
líka ágætir þvi að vindurinn nái ekki
að blása í gegnum þá. „Þeir blotna
að vísu, en það tekur langan tíma
fyrir bleytuna að komast í gegn, svo
framarlega sem veðrið sé ekki mjög
votasamt," segir hann að lokum. ■
i
Roðlaus Ameríku «
ýsuflök
Kjúklinga-Burrito
Tortiilas pönnukaka
m/kjúklingi-
Lambalaeri
Kjörís-Heimaís
Eddufelli - Grensásvegi - Norðurbrún - Rofabæ - Pverbrekku