Morgunblaðið - 08.11.1996, Síða 4
4 C FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Háralitur
og ímynd konunnar
ÞAÐ eru eflaust margar ástæður
fyrir því að konur láta lita á sér
hárið. Sumar vilja einfaldlega
breyta til, aðrar fela gráu hárin.
Einhveijar eru bara að „fríka út“
og enn aðrar vilja skapa sér
ákveðna ímynd með háralitnum.
Þá erum við komin að kjama þessa
máls, hvemig skapar háraliturinn
konum ímynd?
Hver þekkir ekki goðsögnina um
að rauðhærðar konur séu skap-
miklar en dökkhærðar konur
ábyrgðarfullar? Segir ekki mál-
tækið að oft leynist dyggð undir
dökkum hárum? Hefur ekki verið
sagt um aumingja ljóskumar að
þær séu heimskar?
í kvikmyndum hefur það verið
nokkuð algengt að einfalda persón-
ur á þennan hátt. Marilyn Monroe,
frægasta ljóska heims, var gjarnan
látin leika konur sem höfðu ekki
mikið vit í kollinum en voru þeim
mun kynþokkafyllri. Því miður
varð raunin sú að þessi ímynd
færðist yfir á hana sjálfa. Er Mari-
lyn Monroe er líklega fyrsta konan
sem fær á sigþann stimpil opinber-
lega, að vera „dumb blonde“ eins
og Ameríkanar orða það. Seinna
hafa menn þó orðið að viðurkenna
að undir hennar ljósa yfirbragði
og fagra barmi leyndist sæmilega
vel gefinn einstaklingur en það er
önnur saga.
Rauðhærðar konur áttu líka sína
ímynd í kvikmyndunum. Þær voru
gjaman sýndar sem afar skapmikl-
ar og ákveðnar konur sem létu
karlmennina ekki komast upp með
neinn moðreyk. Þessi kvenímynd
var áberandi um og eftir seinni
heimsstyijöldina. Ýmsar frægar
leikkonur gegndu þessu hlutverki
eins og Rita Hayworth, Maureen
OHara og Katherine Hepbum.
Dökkhœrða hörkukvendlð ð
framabrautinni.
Þegar líða tók á fimmta
áratuginn þokaði dökkhærða
ímyndin þeirri rauðhærðu til
hliðar. Dökkhærðu konurnar
gegndu hlutverki hinnar trú-
föstu og góðu eiginkonu og
móður sem þarf að glíma
við fjölskylduföður á villigöt-
um. Reyndar var ímynd dökk-
hærðu konunnar nokkuð á
reiki því þær voru einnig sýndar
sem ákveðnar en hættulegar
konur. Margar þekktar leikkon-
ur fóru með þessi hlutverk eins
Ava Gardner, Elísabeth Taylor,
Soghia Loren og fleiri.
Á síðari ámm verður svo til
hörkukvendið á framabrautinni
sem svífst einskis, eins og í kvik-
myndinni Diselosure þar sem hin
dökkhærða Demi Moore fer með
aðalhlutverkið.
í nýlegri kvikmynd, sem heitir
The President, stingur aftur upp
kollinum goðsögnin um hina
ábyrgðarfullu, dökkhærðu konu.
Þar leikur Annette Bening
stúlku sem ætlar sér frama
í stjómmálum. Ákveður
hún að
Það er talið að um áttatíu
prósent íslenskra kvenna skipti
um háralit einu sinni eða oftar
á ári. Spumingin er ekki hvort
lita eigi hárið heldur hvemig?
Hildur Einarsdóttir veltir
því fyrir sér hvaða ímynd
háraliturinn hafí.
í KVIKMYNDINNI The President lék
Annette Bening konu sem iitaði hárið
á sér dðkkt til að tekið væri meira
mark á henni í stjómmálunum.
dekkja hár sitt, sem er ljóst, svo
tekið verði mark á henni í metorða-
kapphlaupinu í Washington.
Raunveruieikinn
styður ímyndina
Það er ýmislegt sem bendir til
þess að þær kvenímyndir sem hér
hefur verið lýst lifi ennþá góðu lífi
á meðal okkar. Sérstaklega á þetta
við um ljóskuímyndina. Ein ástæð-
an fyrir langlífi hennar má ætla
að sé sú að Marilyn Monroe eignað-
ist marga arftaka í kvikmyndun-
um, bæði ameríska og evrópska.
Má þar nefna Jane Mansfield,
Brigitte Bardot, Jane Fonda,
Farrah Fawcett og nýliðann í
hópnum, Pamelu Anderson. Allar
festust þær í kynbombuhlutverk-
inu, að minnsta kosti í upphafi
ferils síns og líkt og Monroe áttu
þær stormasamt líf, þar sem marg-
ir elskhugar komu við sögu. Fjöl-
miðlarnir veltu sér upp úr einkalífi
þeirra og af þeim spunnust oft
fáranlegar sögur, sannar eða upp-
lognar. í þessum tilfellum
virðist eins og ímyndin og
raunveruleikinn hafi stutt
hvort annað og hefur það
eflaust styrkt ímyndina
um heimsku blondínuna
enn frekar. Leikkonan Shar-
on Stone, sem er glæsileg
ljóska, virðist þó vera undan-
skilin í þessari skilgreiningu því
fjölmiðlar hafa fundið hjá sér
hvöt til að taka það fram að Stone,
sem hefur meðal annars leikið
morðóð kvendi, sé vel gefin kona,
- eins og þeir séu að leiðrétta ein-
hvem misskilning.
T-TÓSKUBRANDARARNIR bera vott um
Ljóskur skemmta sér betur
Ýmsir fleiri þættir hafa orðið
þess valdandi að ljóskuímyndin
hefur fest sig í sessi. Hljómplötu-
iðnaðurinn hefur haft þar mikil
áhrif. Söngvarar hafa nýtt sér
ímyndina sér til framdráttar. Hver
man ekki eftir hljómsveitinni
Blondie með söngkonuna seið-
andi, Debbie Harry,í broddi
fylkingar. Debbie sem er
ljóshærð gerir út á blond-
ínu ímyndina í þokkafull-
um söng sínum og fram-
komu. Kvennagullið Rod Stewart,
söng, „Blondes have more fun,“ á
samnefndri plötu. Skyldi maður
ætla að hann vissi hvað hann syngi
því allar konumar hans hans hafa
verið ljóskur.
Fatahönnuðir hafa líka nýtt sér
kvenímyndir kvikmyndanna. Að
sögn Elsu Haraldsdóttir, eiganda
Salon Veh, sem greitt hefur sýn-
ingarstúlkum fyrir hátískusýning-
arnar í París, velja tískuhönnuðirn-
ir sér ákveðnar tískuímyndir ár
hvert úr röðum sýningarstúlkn-
anna. Sagði hún að ítalski fata-
hönnuðurinn Versace sem hannar
mjög þröngan og kynþokkafullan
fatnað, veldi sér gjaman ljóshærð-
LJÓSKAN eins og X'ersaco sér liana.
iru dökkhærðor konur
upp til hópo óbyrgður-
fullor konur í óhrifo-
stöðum, hættuleg
hörkukvendi eðo jnf n-
vel louslætisdrósir?
MARILYNE Monroe er líklega fyrsta
konan sem fær á sig það orð opinber-
lega að vera heimsk ljóska.