Morgunblaðið - 09.11.1996, Qupperneq 3
2 C LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1996 C 3
URSLIT
Handknattleikur
Stjarnan - Sparkasse33:24
Bruck í Austumki, fyrri leikur í 16 liða
úrslitum í EFH-keppninni í handknattleik,
föstudaginn 8. nóvember 1996.
Mörk Stjörnuimar: Valdimar Grímsson
12/3, Konráð Olavson 9/1, Hilmar Þor-
björnsson 5, Röguvaldur Johnson 2, Sigurð-
ur Viðarsson 2, Magnús A. Magnússon 2,
Viðar Erlingsson 1.
Varin skot: Ingvar Ragnarsson 14, Axel
Stefánsson 3.
Utan vallar: 20 mínútur.
Áliorfendur: Um 1.200 (fullt hús).
• Þetta var heimaleikur Stjörnunnar en
seinni leikurinn verður á sama stað í fyrra-
málið.
2. deild
ÍH - Ármann..............21:21
Þór- Ögri................40:19
Körfuknattleikur
ÍR-Keflavík 90:101
íþróttahúsið Seljaskóla, Lengjubikarinn,
8-liða úrslit - fyrri leikur, föstudaginn 8.
nóvember 1996.
Gangur leiksins: 3:0, 3:8, 12:15, 14:32,
26:44, 39:49, 39:52, 43:53, 49:67, 55:75,
61:77, 51:85, 73:85, 80:98, 90:100, 90:101.
Stig 1R: Eiríkur Önundarson 28, Tito Ba-
ker 26, Eggert Garðarsson 12, Atli Þor-
björnsson 9, Márus Arnarson 9, Gísli Jó-
hann Hauksson 2, Guðni Einarsson 2, Daði
Sigurþórsson 2.
Fráköst: 13 í sókn - 22 í vörn.
Stig Keflavíkur: Damon John 30, Kristinn
Friðriksson 24, Guðjón Skúlason 16, Krist-
ján Guðlaugsson 11, Gunnar Einarsson 8,
Albert Óskarsson 6, Elentínus Margeirsson
4, Þorsteinn Húnfjörð 2.
Frákðst: 7 í sókn - 29 f vörn.
Dómarar: Jón Bender og Georg Andersen
voru góðir en misstu tökin um tíma.
Villur: ÍR 24 - Keflavík 31.
Áhorfendur: 140.
UMFT-UMFG 81:81
íþróttahúsið á Sauðárkróki:
Gangur leiksins: Jeffrey Johnson 21, Arn-
ar Kárason 18, Cesare Piccini 13, Lárus
Dagur Pálsson 12, Ómar Sigmarsson 10,
Sigurvin Pálsson 5, Yourick Parke 2.
Fráköst: 12 í sókn - 17 ! vörn.
Stig UMFG: Hermann Mayers 24, Helgi
Jónas Guðfinnsson 19, Marel Guðlaugsson
14, Unndór Sigurðsson 9, Páll Axel Vil-
bergsson 5, Pétur Guðmundsson 4, Jón Kr.
Gíslason 4, Bergur Hinriksson 2.
Fráköst: 9 í sókn - 22 í vörn.
Dómarar: Sigmundur Herbetsson og Þor-
geir Jón Júlíusson, slakir.
Villur: UMFT 18 - UMFG 13.
Áhorfendur: 250.
NBA-deildin
New Jersey - Orlando....95:108
Denver - Houston.......108:110
■ Eftir framlengingu
Phoenix - Seattle.......98:103
Portland - Minnesota.....95:94
■ Eftir framlengingu
Golden State -New York.100:105
Sacramento - Atlanta.....87:91
Íshokkí
NHL-deildin
Boston - Edmonton..........0:6
Buffalo - Philadelphia.....2:5
Florida - Washington.......4:2
Ottawa - Toronto...........6:2
Chicago - New Jersey.......2:4
Los Angeles - Montreal.....4:1
Knattspyrna
Undankeppni HM
Egyptaland - Namibía.......7:1
Ali Maher (1.), Ahmed Hassan (11.), Ali
Maher (15.), Ibrahim Hassan (35.), Ali
Maher (70.), Hussam Hassan (73., 84.) -
Elifas Shivute (25.). - 30.000.
f/tám
FOLK
■ NIALL Quinn dýrasti leikmað-
ur Sunderland Ieikur ekki meira
með félaginu á þessari leiktíð. Hann
þarf að gangast undir uppskurð
vegna skemmdra liðbanda í fæti.
■ PAUL Parker fyrrum leikmað-
ur Manchester United og enska
landsliðsins hefur gert samning við
Sheffield United til eins mánaðar.
■ JAVIER Clemente landsliðs-
þjálfari Spánar hefur ákveðið að
hafa Jose Luis Caminero ekki í
hópi sínum sem mætir Slóvakiu á
miðvikudaginn í undankeppni HM.
Einnig hefur hann sett Ismael
Urzaiz út úr hópnum. Hans sæti í
liðinu tekur væntanlega Javier
Manjarin leikmaður LaCoruna.
■ HERMANN Karlsson sem hef-
ur í mörg ár verið markvörður Þórs
á Akureyri í handknattleik hefur
skipt yfir í KA.
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Sigurður Jónsson verður aftasti maður ívörninni í stað Guðna fyrirliða Bergssonar
Byggjum leikinn
ásterkri vöm
íslendingar hafa tapað
tveimur leikjum og gert
eitt jafntefli í undan-
keppni heimsmeistara-
mótsins til þessa. Sig-
mundur Ó. Steinars-
son er í Dublin, þar sem
íslendingar mæta írum
í keppninni á morgun.
Hann ræddi í gær við
Loga Ólafsson, lands-
liðsþjálfara.
Ljóst er að róðurinn verður mjög
erfiður hér í Dublin, þar sem
íslendingar glíma við mikið
stemmningslið Ira, sem hefur skor-
að átta mörk í síðustu tveimur
landsleikjum án þess að þurfa að
ná í knöttinn í eigið mark; írar lögðu
lið Litháens 5:0 og Makedóniu 3:0.
Það er erfitt að leika við íra fyrir
framan fullt hús áhorfenda - 33
þúsund manns. Þeir eru engin lömb
að leika sér við.
í framför
„írska liðið er í stöðugri framför
undir stjórn Mick McCarthys. írar
hafa breytt leik sínum frá því að
Jack Charlton var með liðið, hafa
fetað í fótspor Englendinga og beita
leikaðferðinni 3-5-2, sem byggist á
því að þeir byija að leika knettinum
frá aftasta manni og fram á miðj-
una en því er ekki að neita að gamla
sagan tekur við þegar nær dregur
marki; þá fara háu fyrirgjafirnar
að sjást. En við erum með hávaxna
menn í vörninni til að stöðva þær
sendingar," sagði Logi í gær.
Þjálfarinn var spurður að því
hvort ekki væri erfitt að mæta með
íslenska liðið í svo erfiðan ieik, eft-
ir slæm töp gegn Litháen og Rúm-
eníu. Hvort ekki væri erfitt að herða
liðið upp. Logi sagði að íslendingar
myndu rétta úr kútnum og það
mætti ekki gefa mörk eins og í leikj-
unum gegn Litháen og Rúmeníu.
„Ef við getum komið í veg fyrir það
eru strákarnir til alls líklegir. Við
munum byggja leik okkar á sterk-
um varnarleik og reyna að halda
marki okkar hreinu," sagði Logi.
Að undanförnu hefur verið mikið
rætt um það hvort ekki væri kom-
inn tími til að gera breytingar á
íslenska landsliðinu og þegar Logi
var spurður um þetta sagði hann
að þetta væru eðlilegur umræður.
„Margir hafa jafnvel viljað kasta
gömlum mönnum út og taka nýja
inn í staðinn og sumir sagt að það
væri hugleysi að gera það ekki, en
ég tel það ákveðið hugrekki að tefla
fram sama mannskapnum, sýna
þessum strákum það traust að það
sé í þeirra höndum að snúa hjólinu
við. Ég trúi því að strákarnir leiki
betur en þeir hafa verið að gera í
tveimur síðustu leikjum og að þeir
nái fram betri úrslitum hér í Du-
blin.“
Erfitt
„Við gerum okkur fyllilega grein
fyrir því að þetta verður mjög erf-
itt, það hefði verið betra að fá aðra
en Ira og það hér í Dublin, til að
sleikja sárin eftir síðustu leiki en
það verður ekki umflúið, þetta er
næsti leikur og leikmenn verða að
gefa allt sem þeir eiga í þetta verk-
efni. Það er hugur í mönnum en
hugarfarið eitt og sér hjálpar okkur
ekkert heldur verða menn að sýna
sitt besta og leikskipulagið verður
að heppnast. Ef það gengur upp
kvíði ég ekki. Við vitum um þá erfið-
leika sem við komum til með að
glíma við og ég held að leikmennirn-
ir séu fullkomlega tilbúnir til þess
að glíma við íra hér í Dublin,“ sagði
Logi Ólafsson, landsliðsþjálfari í
gær.
Sigurður í vöminni
Ekki er ljóst hvemig byrjunarlið
íslands verður í Dublin á morgun
en þó er vitað mál að Sigurður Jóns-
son kemur til með að taka stöðu
Guðna Bergssonar, sem er meiddur
og getur ekki leikið gegn írum. Sig-
urður verður því aftastur í vörninni
en Guðni kemur reyndar til Dublin
í dag, leikmþnnum til andlegs stuðn-
ings. Logi Ólafsson sagði að hópur-
inn hefði lítið getað æft varnarleik-
inn án Guðna, aðeins var um að
ræða eina æfíngu í gær og ein verð-
ur í dag en hann segist treysta Sig-
urði fullkomlega til að taka við hlut-
verkinu þar sem hann hefði leikið
það mjög vel seinni hluta keppnis-
tímabilsins með Orebro í Svíþjóð.
Þar var hann aftasti varnarmaður
og fékk frábæra dóma fyrir.
Logi er að velta því fyrir sér hvort
hann stilli upp ijögurra eða fímm
manna vörn; ef varnarmennirnir
verða fimm færist Lárus Orri Sig-
urðsson úr stöðu hægri bakvarðar
inn á miðjuna að hlið Sigurðar og
Ólafs Adolfssonar - þeir þrír yrðu
þá miðverðir - og á köntunum sem
bakverðir yrðu þá Ágúst Gylfason,
hægra megin, og Rúnar Kristinsson.
Þetta veltur á því hvort Ágúst getur
leikið, en hann hefur verið meiddur.
Reuter
SIGURÐUR Jónsson hefur staðið sig vel sem aftasti maður varnar hjá Orebro í Svíþjóð og hefur Logi
Ólafsson ákveðið að hann taki stöðu fyrirliðans Guðna Bergssonar sem er meiddur.
Landsiei
íslands 199
í knattspvr
Landsleikir
stjórn Loqa Olafssonar
—MAITA, Ta’Qali
7. feb., vinittulandsU Ísland-Slóventa 1:7,
9. feb., vináttuiandsi:: Ísland-Rússland 0:3
11. feb., vináttulandsl.: Ísland-Mall
KORFUKNATTLEIKUR
Jafntefli á Króknum
og öruggt hjá Keflavík
Björn
Björnsson
skrifar frá
Sauðárkróki
Cftir að hafa verið betri aðilinn
™ lengst af leiknum f gærkvöldi
urðu Grindvíkingar að sætta sig við
jafntefli við Tinda-
stólsmenn á Sauðár-
króki í gærkvöldi er
liðin mættust í fyrri
leik sínum í átta liða
úrslitum Lengjubikarsins í körfu-
knattleik - 81:81.
Grindvíkingar tóku forystu
snemma og fór Hermann Mayers
þar fremstur í flokki. Marel Guð-
laugsson lék einnig vel. Grindvíking-
ar voru mun betri og sigldu fram
úr, leiddu allan hálfleikinn. Þeir hittu
vel og skoruðu m.a. úr sjö þriggja
stiga körfum. Staðan í hléi, 38:52.
Tindastólsmenn byijuðu síðan
af grimmd og skoruðu fimm fyrstu
stigin. Vörnin var öflug. Þeir slógu
gestina út af laginu og smátt og
smátt saxaðist á forskotið. Helgi
Guðfinnson var bestur í liði UMFG.
Hjá heimamönnum voru Lárus
Dagur Pálsson, Ómar Sigmarsson,
og Arnar Kárason bestir. Eftir sex
mínútur var munurinn orðinn sex
stig. Þegar 3,37 mín voru eftir
eftir komst UMFT yfir i fyrsta sinn
og eftir það skiptust liðin á með
eins stigs forystu til loka. Þegar
17 sek. voru eftir var brotið á
Marel en þá var UMFT einu stigi
yfir, 81:80. Marel skoraði úr öðru
og jafnaði og þar við sat.
Damon óstöðvandi
Damon Johnson Keflvíkingur fór
hamförum í upphafi leiks gegn
ÍR-ingum í Seljaskóla þegar liðin
mættust í fyrir leik
Stefán liðanna í Lengjubik-
Stefánsson arnum. Hann átti 12
skrifar stoðsendingar, lék
frábæra vörn, tók
flestöll fráköst í .byijun og skoraði
grimmt. Sú byrjun dugði til góðs
forskots og sigurs í lokin, 90:101,
en síðustu mínúturnar lék unglingal-
ið Keflavíkur.
Sem fyrr segir iék Damon á als
oddi á meðan samheiji hans, Albert
Óskarsson, hélt IR-ingnum Tito Ba-
ker niðri og skilaði það góðri for-
ystu. Þegar leið á fyrri hálfleik fór
Albert í hvíld og ÍR-ingar náðu þá
að klóra í bakkann og minnka for-
skotið niður í tíu stig.
Eftir hlé komu nokkrir furðulegir
dómar sem slógu heimamenn útaf
laginu um stund og gestirnir náðu
20 stiga forskoti.
Eiríkur Önundarson og Tito Baker
tóku góða spretti hjá ÍR, Guðni Ein-
arsson byijaði vel og Eggert Garð-
arsson sýndi tilþrif í lokin.
Keflvíkingar höfðu frá upphafi öll
tök á leiknum og þó þeir hafi slakað
á um tíma, tóku þeir í taumana þeg-
ar til þurfti. Damon átti stórleik,
sérstaklega í byijun, Albert Óskars-
son, Kristinn Friðriksson og Guðjón
Skúlason gerðu góða hluti.
350 íslenskir
áhorfendur
ALLS verða um 350 íslenskir áhorfend-
ur á landsleik íslands og írlands í
Dublin í dag, en þeir fóru utan með
flugi. Það eru Samvinnuferðir-Land-
sýn sem buðu upp á flug til Dublin
bæði i gær og fyrradag.
Aldrei hafa svo margir íslendingar
verið á leik íslenska landsliðsins í út-
löndum áður. Flestir voru í Bergen
árið 1975, er um 200 manns fóru gagn-
gert í leiguflugi til að fylgjast með
vináttulandsleik íslands og Noregs sem
Norðmenn unnu, 3:2.
írar bjartsýnir
og stórar tölur
nefndar
GEYSILEG bjartsýni ríkir í írskum
hlöðum og meðal almennings fyrir ieik-
uin á morgun og hafa heyrst tölur eins
°g 5:0 og 7:0. Logi Ólafsson landsliðs-
þjálfari segir að þannig bjartsýni vinni
•neð ísienska landsliðinu. „Ef bjartsýni
leikmannanna er slík, sem ég trúi reynd-
ar ekki, hefur það slævandi áhrif á leik
•iðsins. En því má ekki gleyma að þetta
eru atvinnumenn og vita alveg hvað
þarf að gera til að vinna leiki í undan-
keppni HM. Þeir fóru flatt á þcssu gcgn
Lichtenstein i undankeppni síðustu Evr-
ópukepppni, gerðu markalaust jafntefli
við liðið á útivelli og það kostaði íra
sæti í úrslitakeppninni á Englandi í sum-
ar. En segja má að þeir hafi bætt fyrir
þetta með því að sigra Litháen 5:0 í
þessari undankeppni HM. Ég trúi því
ekki að irsku leikmennirnir séu svona
bjartsýnir þó aðrir séu það.“
Arnarferaftur
til Schalke
ARNAR Grétarsson landsliðsmaður úr
Breiðabliki fer aftur til þýska félagsins
Schalke í næstu viku. Hann var þar
fyrir þremur vikum, þjálfarinn hafði svo
samband á dögunum og vildi fá Arnar
• varaliðsleik um þessa helgi, en hann
getur það vitaskuld ekki vegna lands-
leiksins í Dublin. Amar fer hins vegar
til Þýskalands í framhaJdi af landsleikn-
um.
ívar fyrir
Brynjar
Ívar Ingimarsson kemur inn í ung-
mennalið íslands fyrir Brynjar
Gunnarsson, sem tekur út leikbann,
þegar strákamir mæta írum í Evrópu-
keppninni í Dublin í kvöld en að öðru
leyti er liðið eins og í síðasta leik.
Atli Eðvaldsson, þjálfari liðsins, sagði
við Morgunblaðið að ljóst væri að Irar
ætluðu sér að spila upp í hornin og
treysta á íyrirgjafír þaðan. „Við leikum
á mjög stórum heimavelli Bohemians,
rúmlega 100 metra löngum og meira
en 75 metra breiðum og við vitum á
hveiju við eigum von,“ sagði Atli.
Árni Gautur Arason verður í
markinu. Bjarki Stefánsson hægri
bakvörður og Arnar Viðarsson
vinstra megin en ívar og Guðni Rún-
ar Helgason miðverðir. Sigurvin Ól-
afsson verður hægra rnegin á miðj-
unni, Ólafur Stígsson vinstra megin
og Valur Fannar Gíslason og Bjarn-
ólfur Lárusson stjórna spilinu.
Frammi verða Bjarni Guðjónsson og
Þorbjörn Atli Sveinsson.
HNEFALEIKAR
IÞROTTIR
HANDKNATTLEIKUR
„Metnaður KA-manna
ætti að vera mikill“
SEXTÁN liða úrslit Evrópukeppn-
innar í handknattleik eru á dagskrá
um helgina þar sem þijú íslensk
karlalið eru í eldlínunni, Stjarnan
sem mætir Sparkasse Bruck frá
Austurríki í EFH-keppninni, KA
fær belgíska félagið Herstal Liége
í heimsókn á morgun í keppni bikar-
hafa og Haukar mæta Créteil í
Frakklandi í Borgakeppni Evrópu.
„Möguleikarnir á sigri KA ættu
að vera meiri en belgíska félagsins
og metnaður KA-manna ætti að
vera mikill því í fyrsta skipti í stuttri
velgengnissögu þeirra eiga þeir nú
möguleika á að komast í 8 liða
úrslit Evrópukeppninnar," sagði
Jóhann Ingi Gunnarsson, fyrrver-
andi landsliðsþjálfari, er Morgun-
blaðið ræddi við hann í gær um
Evrópuleikina.
„Belgíska liðið er þó greinilega
sýnd veiði en ekki gefin því í liði
þeirra eru tveir júgóslavneskir
hornamenn og auk þess skilst mér
að Frakki frá Alsír sé línumaður í
liðinu. Þá hefur belgíska landsliðið
sennilega komið mest allra á óvart
í undankeppni HM með jafntefli og
sigri gegn Rúmeníu. KA-menn
verða því að ná upp góðri stemmn-
ingu og sigra á heimavelli með fimm
til sjö mörkum til að eiga góða
möguleika á að komast. áfram.
KA-liðið er á uppleið, það er nú
fullskipað á ný eftir að meiðsli
hijáðu leikmenn þess, og lék prýði-
lega í vikunni. Ég hef trú á að
KA-menn séu tilbúnir í þetta verk-
efni.“
Stjarnan sigraði Sparkassen í
Austurríki í gærkvöldi en liðin
mætast aftur á morgun. „Það er
auðvitað alltaf slæmt að þurfa að
selja leikina sína en líka má segja
að ef Stjarnan getur ekki sigrað lið
frá Austurrríki á útivelli hafi liðið
ekkert að gera lengra. Liðið hefur
leikið prýðilega á köflum í vetur en
dottið niður á milli og þessi barátta
í Evrópukeppninni er góð prófraun
á styrk Stjörnumanna. Handknatt-
leikur í Austurríki hefur verið upp
og niður, félagslið og landslið hafa
náð ágætum árangri á stundum en
svo hefur ekkert heyrst frá þeim
þess á milli,“ sagði Jóhann Ingi.
Haukar fá erfiðasta verkefni ís-
lensku liðanna að þessu sinni, að
mati Jóhanns Inga. „Créteil er
öflugasta lið Frakklands i dag og
hefur, samkvæmt mínum upplýs-
ingum, ekki tapað leik á tímabilinu.
Þegar ég þjálfaði Tusem Essen lék-
um við Evrópuleik gegn Créteil í
Frakklandi og þá var leikið á orge!
allan tímann! Haukar verða að
passa sig á að láta ekki rugla sig
Besti leikurinn
Stjarnan skein skært í Austur-
ríki í gærkvöldi og vann Spar-
kasse 33:24 i fyrri leik liðanna í
16 liða úrslitum EFH-keppninnar í
handknattleik.
„Þetta er besti leikur liðsins á
árinu,“ sagði Valdimar Grímsson,
þjálfari Stjörnunnar, við Morgun-
blaðið í gærkvöldi en hann fór fýrir
sínum mönnum og gerði 12 mörk.
„Allir spiluðu mjög vel og 5-1 vörn-
in okkar var sterk.“
Jafnræði var með liðunum í fyrri
hálfleik en Stjarnan hafði ávallt
frumkvæðið og var marki yfir í hléi,
15:14. „Við vorum mjög ákveðnir
og fórum grimmt í bakið á þeim,“
sagði Valdimar. „Þegar sjö til átta
mínútur voru til leiksloka og staðan
25:22 settum við á fulla ferð, mót-
heijarnir gáfust upp, varnarleikur
þeirra var í molum og við unnum
33:24.“
Valdimar sagðist vera bjartsýnn
fyrir seinni leikinn sem hefst um
morgunkaffið í fyrramálið, kl. 9.15
að staðartíma. „Eg er mjög stoltur
af strákunum og bjartsýnn á fram-
haldið. Við ætlum áfrarn."
Magnús Andrésson, stjórnar-
maður Stjörnunnar og fararstjóri,
sagði að austurríska liðið væri á
toppnum í deildinni. Það væri með
tvær mjög öflugar skyttur og önn-
ur hefði verið markakóngur
deildarinnar í fyrra. Á blaða-
mannafundi fyrir leikinn hefði ver-
ið gengið út frá því að heimamenn
ættu greiða leið í átta liða úrslit
og því hefði sigur Stjörnunnar
komið öllum mjög á óvart. „Valdi-
mar var frábær, Konráð átti stór-
leik og Sigurður Viðarsson var
afbragðsgóður, fiskaði mörg víti
og stjórnaði sóknarleiknum," sagði
Magnús.
í nótt mætast í hnefaleikahringnum í MGM Grand Arena í Las
Vegas menn sem lengi hefur verið beðið eftir að mættust þar
til að reyna með sér. Þetta eru Bandaríkjamennirnir Mike Tyson
og Evander Holyfield, tveir af fremstu hnefaleikmönnum í þunga-
vigtarflokki sem stigið hafa fram á sjónarsviðið. Að ýmsra mati
er þessi bardagi of seint á ferðinni en aðrir eru þeirrar skoð-
unar að svo sé ekki. Þeir sem halda því fyrrnef nda f ram segja
Holyfield einfaldlega ekki vera við nógu góða heilsu og æfingu
til að hann hafi eitthvað íTyson að gera, bardaginn sétíma-
skekkja. Úr því hann hafi ekki geta farið fram þegar báðir voru
á toppnum sé honum enginn greiði gerður með því að ganga
fram á sviðið nú.
Tekst Holyfield að
afsanna hrakspár?
Fyrir fímm árum voru Tyson og
Holyfield bestu hnefaleikmenn
í þungavigtarflokki og þá var búið
að skipuleggja einvígi þeirra sem
hefði verið stórviðburður á þeim
tíma. En Tyson meiddist skömmu
síðar og þá var einvíginu frestað.
Nokkru seinna komst Tyson í kast
við lögin og fékk að dúsa á bak við
lás og slá í nokkurn tíma og sökum
þess datt bardaginn uppfyrir. Þegar
Tyson losnaði í prísundinni hóf hann
að æfa á fullum krafti og hefur
keppt í tvígang. Þar hefur hann
........15
.....16.30
.....16.30
.....16.30
í ríminu. Frakkar eru sterkir, þetta
er land heimsmeistaranna og það
er mikilvægt fyrir Hauka að ná
góðum úrslitum úti svo þeir geti
hugsanlega, með toppleik, snúið
dæminu við á heimavelli sínum á
Strandgötunni. Þess má geta að
bestu leikir Hauka í vetur voru
Evrópuleikirnir um daginn. Þó mót-
staðan hafi ekki verið mikil léku
þeir mjög vel og minna verður á,
að gegn lakari liðum þarf mikla
einbeitingu. Haukar voru mjög ein-
beittir í leikjunum gegn georgíska
liðinu sem þeir gjörsigruðu þá.“
UM HELGINA
Handknattleikur
Laugardagur:
1. deild kvenna:
Framhús: Fram - Víkingur.
Ásgarður: Stjarnan - KR.„.
Fylkishús: Fýlkir - FH....
KA-heimili: IBA - ÍBV....
Bikarkeppni HSÍ
32-liða úrslit karla:
Digranes: HK - ÍBV.................16
2. deild karla:
Vikin: Víkingur- HM.............16.30
Sunnudagur:
Evrópukeppni bikarhafa:
KA-heimilið: KA - Herstel Liege....17
Körfuknattleikur
Laugardagur:
Lengjubikarinn
8-liða úrslit, síðari leikir:
Njarðvík: UMFN - Skallagrímur......14
Strandgata: Haukar- KR.............16
1. deild karla:
Selfoss: Selfoss - Þór Þorl........16
2. deild karla:
Siglufj.: UMF.Glói - Smári.........15J
Þelamerkursk.: Skotf.Ak. - Leiftur.13
Sunnudagur:
Lengjubikarinn
8-liða úrslit, síðari leikir:
Keflavík: Keflavík - ÍR............20
Grindavík: UMFG - UMFT.............20
Blak
íslandsmót 2. og 3. flokks:
Það fer fram í íþróttahúsinu á Nes-
kaupsstað í dag og hefst klukkan 9.
1. deild karla:
Sunnudagur:
Hagaskóli: Þróttur-ÍS..............17
Glíma
Bikarglíma Reykjavíkur fer fram í
dag í íþróttahúsi Melaskólans og
byija glímumenn að takast á klukk-
an 15.
Karate
Meistaramót íslands í Shotokan
karate verður haldið í dag í íþrótta-
húsi Melaskólans. Mótið hefst
klukkan 13 og áætlað er að úrslit
hefjist um klukkan 14. Keppt verð-
ur í sex flokkum.
Holyfield
Tyson
undirstrikað að hann hefur fáu sem
engu gleymt af fyrri getu.
En það er Holyfield sem er spurn-
ingarmerkið. Við læknisskoðun fyr-
ir nokkrum árum kom í ljós hjarta-
galli og nú er því haldið fram að
hann muni ekki há honum þegar á
hólminn verður komið. Hvernig er
líkami hans búinn undir að taka á
móti þungum höggum Tysons?
Frammistaða Holyfields í bardaga
við Riddick Bowe fyrir ári var ekki
traustvekjandi og enn síður er hann
mætti Bobby Czyz í maí sl.
Þetta er aðeins brot af þeim
vangaveltum sem hafa verið manna
á milli undanfarna daga og m.a.
leitt til þess að líkurnar á sigri
Tyson eru 15-1 hjá veðmöngurum
og að hann haldi þar með heims-
meistaratign WBA í þungavigt.
Trúin á guð er talin megin ástæð-
an fyrir því að Holyfield telur sig
geta sigrað Tyson. Hann segist vera
í krossferð til þess að boða orð guðs
atmáttugs í gegnum hnefaleikana.
Holyfield segist sannfærður um að
sá þeirra sem trúaðastur sé í hnefa-
leikahringum í nótt standi uppi sem
sigurvegari. „Einvígið mun veita
mér blessun,“ segir Holyfíeld serrr
mun hafa 730 milljónir króna upp
úr krafsinu hver sem guðs vilji verð-
ur. „Nú hef ég tækifæri til að sýna
hvemig guð stjómar gerðum mínum
í hringnum. Ég get ekki tapað, ég
treysti á guð,“ bætti hann við. Þess
má geta að lokum að Tyson fær um
2 milljarða í vasann hver sem úrslit
einvígisins verða.