Morgunblaðið - 10.11.1996, Blaðsíða 1
I sérmerktum bolum
á fótboltalandsleik
merki borgarinnar og kveðja til íra, en ætlast
er til þess að íslensku gestirnir gefi írskum
áhorfendum bolina að leik loknum með góðri
kveðju frá Reykjavíkurborg sem vill þannig
minna á vaxandi samskipti landanna tveggja.
Boeing 747 þota Atlanta fór á fimmtudag
og föstudag sérstakar ferðir til Dyflinnar
vegna leiksins. ■
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri,
með bolinn sem gefa á Irum. Með Ingibjörgu
eru frá vinstri Helgi Pétursson markaðssljóri
SL, Helgi Jóhannsson, framkvæmdasljóri SL
og Gunnar Rafn Birgisson, deildarsljóri
innanlandsdeildar.
ÞAÐ má búast við því að hátt í ijögur hundr-
uð íslendingar, sem verða á áhorfendapöllun-
um á landsleik írlands og íslands í knatt-
spyrnu, sem fram fer í Dyflinm á sunnudag,
muni skera sig úr íjöldanum. Islendingarnir
verða allir í sérmerktum bolum sem atvinnu-
og ferðamálastofa Reykjavíkur og Samvinnu-
Morgunbiaðið/Jón Svavarsson ferðir-Landsýn hafa látið úbúa. A bolunum er
SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER1996 BLAÐ C
Lítið framboð ó skipulögðum hópferðum til erlendra stórborga um óramótin
Alltaf fleiri
áramóta-
gestir f rá
útlöndum
UM 150 íslendingar fara á vegum Ferðaskrifstof-
unnar Úrvals/Útsýnar í skipulagða fjögurra nátta
áramótaferð í beinu leiguflugi til Berlínar 28.
desember. Að sögn Goða Sveinssonar markaðs-
stjóra er ferðin í samvinnu við þýska ferðaskrif-
stofu, sem flytur jafnmarga Þjóðveija til og frá
íslandi þar sem þeir hyggjast fagna nýju ári.
Goði segir æ algengara að íslendingar dvelji í
útlöndum um jól og áramót, t.d. á Kanaríeyjum,
en minna hafi verið um skipulagðar hópferðir til
erlendra stórborga á þessum tíma. „Við eigum
enn nokkur sæti laus til Berlínar, sem ásamt gist-
ingu verða seld á 29 þúsund krónur miðað við
einn í tvíbýli. Allur „pakkinn" er á tæpar 50
þúsund krónur, en þá er innifalinn áramótafagn-
aður með veisluborði, skemmtiatriðum, danstónl-
ist og flugeldasýningu og íslensk fararstjórn."
Skiptiflug
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar ehf.
býður 153 sæti í leiguflugi til Zurich í Sviss að-
faranótt 29. desember, og til baka að morgni 2.
janúar. Von er á jafnmörgum Svisslendingum
hingað til lands á vegum nokkurra svissneskra
ferðaskrifstofa. „Við köllum þetta skiptiflug,"
segir Emil Örn Kristjánsson, framkvæmdastjóri
utanlandsdeildar. Hann segir að ferðin til Zurich
sé ekki skipulögð hópferð, en einstaklingar og
hópar geti snúið sér til ferðaskrifstofunnar og
keypt flug og gistingu eða flug og
bíl. Sem dæmi um verð segir hann að
flug og bíll kosti 28.700 á mann mið-
að við tvo í bíl í C-flokki. „Flestir fara
út fyrir borgina; á skíði eða í heim-
sókn til vina og ættingja á nærliggj-
andi slóðum, enda ekkert sérstakt um
að vera í Zurieh um áramótin."
n f 11
Aukin eftirspurn
Urval/Utsýn
býður f jögurra
nótta skipu-
lagöa hópferð
til Berlínar um
áramót.
Áramótaferðir til íslands verða sífeilt vinsælli. Morgunblaðið/Þorkeii
lands, sem sölu-
skrifstofur Flug-
leiða erlendis ™ •
bjóði, njóti auk-
inna vinsælda.
Hún segir að í
fyrra hafi 364
keypt siíkar
ferðir en nú
stefni allt í að
fjöldinn fari
yfir 400.
„Þetta er
nokkurra
daga
skipulögð
hópferð um
áramót. Innifalið í verði
áramótafagnaður,
Eftir því sem næst var komist bjóða
aðrar ferðaskrifstofur ekki upp á skipulagðar
hópferðir til stórborga um áramót. Hins vegar
segja talsmenn nokkurra ferðaskrifstofa að alltaf
sé eitthvað um skipulagðar einstaklingsferðir til
einhverrar borgarinnar á þessum tíma. Laufey
Jóhannsdótti!1, framkvæmdastjóri Plúsferða, seg-
ist merkja aukna eftirspurn í slíkar ferðir og því
sé ekki útilokað að ferðaskrifstofan bjóði upp á
skipulagða áramótahópferð áramótin 1997/98.
í sama streng tekur íslaug Aðalsteinsdóttir,
framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Reykjavíkur,
en hún segir meira um bókanir í nokkurra daga
ferðir til London og Amsterdam um áramótin en
oft áður. „Fyrir nokkrum árum buðum
við upp á skipulagðar hópferðir þangað
um áramót, en hættum vegna minnk-
andi eftirspurnar. Mér virðist áhuginn
aftur vera að glæðast og við erum að
kanna hvort grundvöllur sé fyrir að
bjóða slíkar ferðir aftur núna,“ segir
íslaug.
Hjá Flugleiðum fengust þær upplýs-
ingar að enn væri ekki mikið um bókan-
ir í stuttar áramótaferðir til stórborga.
Þeir sem hyggðu á slíkar ferðir virtust
helst hafa augastað á London en flestir sem
væru á ferð og flugi um þetta leyti væru að heim-
sækja vini og vandamenn í útlöndum.
Útlendingar á íslandi
Dóra Magnúsdóttir í upplýs?
ingadeild Flugleiða segir áber-
andi að áramótaferðir til ís-
er
brennuferð, kynnisferðir að
Gullfossi og Geysi og sitt-
hvað fleira. Bæði Flugleiða-
hótelin eru fullbókuð sem þýð-
ir að 600 gestir dvelja þar um
áramótin. Bandaríkjamönnum
og Þjþðverjum virðist einkum
þykja Island fýsilegur kostur til
að fagna nýju ári,“ segir
Dóra.
Göngu-
skíða-
keppni á
Grænlandi
► ARTIC Circle Race ’97
skíðagöngukeppni fer fram í
fyrsta skipti á Grænlandi
7.-14. apríl nk. Til stóð að
keppnin yrði haldin í apríl á
þessu ári, en þá þurfti að af-
lýsa henni vegna óvenju milds
vetrar. Keppendur ganga 160
km á þremur dögum, frá inn-
landsísnum til vesturstrandar-
innar yfir áhrifaríkt, ósnert
landslag. í frétt frá Græn-
lenska ferðamálaráðinu kemur
fram að Artic Circle Race
muni hafa alla burði til að
verða ein stærsta gönguskíða-
keppnin.
Keppnin er ætluð reyndum
gönguskíðamönnum sem þurfa
að vera í mjöggóðu formi. Leið-
in er merkt, en liggur um
óbyggðir og keppendur munu
gista í tvær nætur í tjaldbúð-
um. Farangur verður fluttur
á hundasleðum eða snjó-
sleðum, en sérstakir að-
stoðarmenn úr röðum
hagvanra, grænlenskra
veiðimanna, munu fylgja
keppendum eftir á sleðum
alla ieiðina.
Veðurfar í apríl er
meðal þess sem best
gerist á Grænlandi.
Þá sést sólin í
18 tima á
dag og meðalhiti er um -10 C.
Upplýsingar um keppnina
fæst hjá Grænlenska ferða-
málaráðinu: Greenland Tour-
ism a/s, PO Box 1139, Pi-
lestræde 52 DK-1010 Copen-
hagen K - Denmark. Póstfang
er greenfo@inet.imi-c.dk.
Einnig er
hægt að
finna upp-
lýsingar á
alnetinu á
slóðinni:
http://www.gre-
eniand-guide.dk. Tilkynna
þarf þátttöku fyrir 1. febrúar
1997. ■