Morgunblaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 4
4 B FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ 4 DAGLEGT LÍF Blómaskreytirinn Edda Bjarna og kokkurinn Hermann ísidórsson reka Galleríð Listflóruna í gömlu HÁTT til lofts og vítt til veggja. Kjallarinn er 164 fm geimur, sem að miklu leyti er í sinni upprunalegu mynd. EITT sinn náði sjórinn að hafnargarðinum, sem núna er að hluta í svefnherberginu hjá Eddu og Hermanni. SKÆRGULT eldhúsið með járnv húsinu, en dyrnar til hægri STÓLL sem Hermann smíð- aði, fæturnir eru úr snjóflóðabirkitrjám Langþráður draumur fagurkera í KJALLARA hússins, sem nú er Grófin 1, hafa þau hreiðrað um sig og látið langþráðan draum um að sameina heimili og vinnustofu ræt- ast. „Þótt leigumiðlarinn segði að húsnæðið gæti vart talist mannabú- staður létum við ekki segjast, feng- um að kíkja og heilluðumst af öllu því hráa og upprunalega, sem hér er að finna,“ segja Edda Bjarna blómaskreytir og Hermann ísidórs- son matreiðslumaður, fyrstu íbúar kjallarans, sem er 164 fermetrar og lengst af hýsti lager Verslunar Björns Kristjánssonar, þess sem byggði húsið árið 1914. Edda og Hermann fluttu inn í haust og hafa síðan verið að skúra, skrúbba, mála, setja upp glugga- tjöld, smíða og dytta að ýmsu smá- legu. „Okkur fannst engin ástæða tíl að hylja grófgerðu hitarörin í loft- unum, enda hita þau ótrúlega vel þrátt fyrir óvenju mikla lofthæð og nánast enga milliveggi, auk þess sem okkur finnst þau bara til prýði. Sem betur fer hefur lítið verið hróflað við húsnæðinu frá upphafí. Hluti af gamla, hlaðna hafnargarðinum í Reykjavík myndar suðurvegginn i svefnherberginu og við erum í óða önn að skafa málningu af reykháfn- um til að steinahleðslan fái notið sín. Við fundum upprunalegu úti- hurðina og fannst tilvalið að gera hana upp og koma henni fýrir að innanverðu til skrauts yfír nýlega, tekkútihurð." Jólaskreytingar og rómantfk Þegar gengið er í bæinn er fátt sem minnir á að Edda og Hermann búa í hjarta borgarinnar. Rammgerð- ir útveggir koma í veg fýrir að há- vaði berist inn þótt allt í kring sé fólk á ferli og stöðugur umferðarnið- ur að nóttu sem degi. Kertaljós á borðum og hillum, íburðarmiklar blóma- og jólaskreytingar í hveijum krók og kima, gegnheil, sterkleg við- arhúsgögn og alls kyns handverk vitna um að þama búa hugmyndarík- ir fagurkerar, sem bera skynbragð á form og liti. Athygli vekur að Edda og Hermann nota margbrotinn efnivið náttúmnnar í ýmsa gripi til gagns og skrauts. Þeim hefur tekist að sveipa heim- ili sitt og vinnustofu einhverjum róm- antískum blæ; yfírbragðið er í senn listrænt og hlýlegt, nýtískulegt að Blómaskreytirinn Edda Bjarna og kokkurinn og þúsundþj alasmiðurinn Hermann ísidórsson hafa komið sér upp vinnustofu og heimili í 164 fermetra kjallara í Grófinni 1. Valgerður Þ. Jónsdóttir fór í heim- sókn og skoðaði hluta af gamla hafnargarðin- um í svefnherberginu, nýstárlegar jólaskreyt- ingar, ýmsa handgerða muni og sitthvað fleira. sumu leyti en þó svolítið „hrátt“ og sveitalegt. Vinnustofan, afmörkuð með hvítum gardínum með svokall- aðri ömmuuppsetningu, er stór hluti rýmisins. Þar heldur Edda blóma- skreytingamámskeið og vinnur nú að nýstárlegum jólaskreytingum. Hún segir Hermann liðtækan við skreytingamar en hann noti vinnu- stofuna einkum til að smíða húsgögn og ýmsa nytjahluti auk þess sem hann dundi svolítið við að mála mál- verk. Ekkert sjónvarp „Okkur hefur ekki þótt ástæða til að tengja sjónvarpið. Við söknum þess ekkert því við erum öllum stund- um eitthvað að sýsla. Ef mikið ligg- ur við skjótumst við til bróður míns, sem býr í næsta húsi, og horfum á fréttirnar," segir Hermann. Edda var nýverið á tveggja vikna námskeiði hjá einum fremsta blóma- skreytingarmeistara Frakka, Guy Martin, sem rekur Centre d’Art Flor- al skólann í aldagömlu munka- klaustri í útjaðri Parísar. „Eftir stúd- entspróf vann ég í blómabúð á Akur- eyri í eitt ár en fór þá í Beder Gatner- um.“ Ást vlð fyrstu sýn HERMANN fylgist grannt með handbragði Eddu, en hún segir hann lí úr Vaglaskógi en bak og sæti úr óhefluðu timbri. skolen, Jordbrugsteknik fagskole i Danmörku þar sem ég lauk námi í blómaskreytingum. Frá því ég man eftir mér hef ég verið að föndra og búa til hluti. Á æskuslóðunum í Ljósavatnsskarði, rétt austan við Akureyri, var fjölskyldan ævinlega önnum kafin að safna hráefni úr náttúrunni fyrir mömmu mína, Krist- ínu Sigurðardóttur, sem býr til alls kyns listaverk úr ólíklegustu hlut- Náttúran er uppspretta hugmynda Edda kynntist Hermanni, sem var á síðasta ári í matreiðslunámi, viku áður en hún hélt til Danmerkur. Hún segist varla hafa tímt að fara utan svo vel hafí sér litist á piltinn. „Við sáumst ekki í heilan vetur, síma- reikningarnir fóru upp úr öllu valdi og við skrifuðumst á í belg og biðu,“ segir Hermann, sem prúður og penn beið unnustunnar. Þau eru sammála um að gagn- kvæm hrifning hafi gripið þau við fyrstu sýn en Edda hafí átt frum- kvæðið að kynnum þeirra. „Mér fannst kokkurinn sem vann með mömmu í eldhúsinu á Hótel Eddu á Stóru Tjörnum sumarið 1994 óskap- lega sætur og gerði mér upp erindi við mömmu til að fá tækifæri til að tala við hann. Fljótlega kom í Ijós að við áttum mörg sameiginleg áhugamál og gátum rætt endalaust um veiði, útivist, hönnun og matar- gerð,“ segir Edda, sem lét til skar- ar skríða og mætti eitt kvöldið uppábúin í lopapeysu og með veiðistöngina í farteskinu. „Mér leist strax vel á þessa stelpu og bráðnaði gjörsam- lega þegar hún kom þarna um kvöld- ið,“ rifjar Hermann upp. Hann var vanur að veiða í tjörnunum í kring á hveiju kvöldi eftir vinnu og fannst vitaskuld kjörið að bjóða ungfrúnni með þar sem hún af „einskærri til- viljun" átti leið um með veiðistöngina sína. Síðan hafa þau farið í ótal veiði- ferðir og leiðangra upp um fjöll og firnindi í jeppanum sínum. Þau segj- ast nota hvert tækifæri til útivistar og safna um leið tijágreinum, viðarb- útum, lyngi, mosa, steinum og öllu mögulegu, sem þeim dettur í hug að nýta í skreytingar og smíðar. „Ferðir af þessu tagi eru oft upp- spretta hugmynda. Af nógu er að taka þótt ekki sé gengið á náttúru- auðlindimar. Við höfum nýtt ýmis- legt sem komið hefur undan snjóflóð- um og reynum alltaf að sá fræjum þar sem við eigum leið um.“ Hermann smíðaði skrifborðið og skrifstofustólinn í vinnustofunni að hluta til úr snjóflóðabirkitijám úr Vaglaskógi en keypti óheflað timbur í borðplötu, bak og sæti. „Ég skóf með spoijárni og slípaði með sand- pappír. Eina nýtísku verkfærið sem ég notaði við smíðina var borvélin mín, sem raunar er hálfgerður ant- kikgripur. Þetta var afar seinlegt en ég hef gaman af svona dútli,“ segir Hermann. Matargeró og blómaskreytingar „Hann er einn af þessum þúsund- þjalasmiðum," útskýrir Edda og fer nokkrum orðum um hæfileika Her- manns í matargerð. Að sögn hans er Eddu heldur ekki alls varnað í þeim efnum. í fyrra tóku þau að sér að sjá um fermingarveislur og aðrar stórveislur. Þau segja afar skemmti- legt að sameina þannig krafta sína, en Edda sá um skreytingarnar, Her- mann eldaði, saman reiknuðu þau út kostnaðinn, keyptu inn hráefnið, gengu um beina og að lokinni veislu komu þau öllu í fyrra horf. „Pabbi var eitthvað að monta sig við kunningja sinn sem var að vandræðast með

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.