Morgunblaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR15. NÓVEMBER1996 B 7 DAGLEGT LÍF HÓPURINN gisti í vlrðulegum kastala í Alden Biesen í Belgíu. á móti okkar frumvarpi, en okkur tókst með kænsku og góðum rökum að fá það samþykkt án nokkurra mótatkvæða," segja þau ennfrem- ur, og leggja áherslu á að það sé í fyrsta skipti sem stofnlögum sam- bandsins hafi verið breytt. Kannski sé þetta byijunin á því að önnur lönd innan Evrópusambandsins fái skilning á því hve fiskurinn er ís- lendingum mikilvægur. Nemendurnir segjast hafa undir- búið frumvarpið mjög vel, en hafi samt ekki haft eins langan tíma og önnur lönd. „Danir voru til dæmis átta mánuði að undirbúa sitt frumvarp, sem fjallaði um vist- væna orku. En þrátt fyrir það náði það ekki fram að ganga,“ segja þau. Þetta var ekki í eina skiptið sem þau þurftu að tala máli sínu á ráð- stefnunni. Fyrr höfðu þau til dæm- is haldið fyrirlestur um mengun í hafinu og hvemig megi minnka hana auk þess sem þau svöruðu fyrirspurnum þar um. Þá tóku þau með sér smá-sýnishorn af dæmi- gerðum íslenskum mat og sælgæti og er skemmst frá því að segja að íslenski maturinn vakti mikla lukku annarra þátttakenda. „Það var bið- röð að okkar matarborði, en nánast autt hjá hinum,“ segja þau svolítið montin. Evrópusambandið er mikið bákn Nemendurnir voru á einu máli um það að þetta hefði verið afskap- lega skemmtileg og lærdómsrík ferð. „Það kom okkur til dæmis á Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir NEMENDURNIR sem tóku þátt í samstarfsverkefni ESB og EES ásamt Guðjóni land- og jarðfræðikennara, sem stendur Iengst til hægri. óvart hve Evrópusambandið er stórt og mikið bákn og hve langan tíma það getur tekið að koma málum í gegn,“ segja þau og benda á sem dæmi að einn þriðji af starfsliði Evrópusambandins sé fólk sem vinni við þýðingar. Þá segja segja þau að stærsti vandinn á þessari ráðstefnu hafi verið tungumálaerfiðleikarnir, en það hafi þó ekki alltaf komið að sök. „Við kynntumst mörgum krökkum, en héldum okkur þó mest í hóp með Dönum, enda náð- um við betur saman við þá en Belga og Þjóðveija, sem aftur á móti voru meira saman,“ segja þau og bæta því við að þau hafi lært heilmikið um samskipti á milli þjóða og hve þær séu ólíkar. Boðið aftur að ári „Við vorum líka ötul við að kynna land okkar og þjóð, enda virtust margir ráðstefnugestir ekki vita margt um lifnaðarhætti okkar íslendinga," segja þau. Guðjón segir að hópurinn hafí fengið ýmsa styrki til fararinnar og því hafí þau ekki þurft að borga mikið úr eigin vasa. Hann segir einnig að búið sé að bjóða Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti að taka aftur þátt í samstarfsverkefn- inu að ári, því krakkarnir hafi stað- ið sig svo vel. „Væntanlega verður svipaður áfangi settur á laggimar fyrir þá ferð, eins og nú, sem metin verður til jafns við aðra raungreinaáfanga,“ segir hann. „Aðeins tólf manns geta farið í ferðina að ári og því gæti hugsan- lega þurft að velja úr hópi þeirra sem skrá sig í áfangann. Líklega verður miðað við að viðkomandi sé með góða mætingu og stundi námið af kappi, auk þess að hafa ágæta tungumálakunnáttu. Þá er það skilyrði að viðkomandi sé átján til nítján ára og þori að standa upp og tjá sig á ensku fyrir framan hóp af fólki,“ segir Guðjón að síð- ustu. ■ Arna Schram ÍSLENSKAR matvörur voru kynntar á ráðstefnunni og lík- uðu vel. vaknaðu! á undan frunsunni... ...með því að bera á hana Zovir krem sefur hún áfram Hafir þú fengið frunsu þekkir þú eflaust fyrirboöa hennar, sting, sviða eða æðaslátt. í kjölfarið láta fyrstu blöðrurnar á sér kræla. í Zovir kreminu er virka efnið acíklóvír sem kemur T veg fyrir fjölgun frunsuveirunnar. Berðu Zovir kremið á um leið og þú finnur fyrir fyrstu einkennum og þá getur þú náö að svæfa hana strax. Berðu á sýkta svæðið 5 sinnum á dag í 5 daga. ZOVIR kremið fæst nú einnig með pumþu sem er auðveld í notkun og skammtar kremiö á þægilegan og hreinlegan hátt. ZOVIR kremið 2 g fæst án lyfseðils í apótekum. Kynnið ykkur vel leiðbeiningarnar sem fylgja lyfinu. OVIR' o GlaxoWellcome • Þverholti 14 • 105Reykjavík • Sími 5616930

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.