Morgunblaðið - 26.11.1996, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 26.11.1996, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996 C 3 Zola byijaði vel með Chelsea Gianfranco Zola byijaði vel með Chelsea og aðeins hárfín snert- ing Gianluca Viallis kom í veg fyrir að hann skoraði á móti Newcastle á Stamford Bridge. Zola tók auka- spymu um miðjan fyrri hálfleik og boltinn var á leið í netið framhjá Pavel Srnicek, markverði gestanna, en Vialli fylgdi á eftir og fagnaði sjöunda marki sínu á tímabilinu. „Eg snerti boltann en vil ekki rífast um það,“ sagði Vialli. „Ég tæki aldrei mark frá Gianfranco og alls ekki í fyrsta leik hans ef það væri ekki rétt.“ Zola tók landa sinn trúanleg- an. „Hann sagðist hafa komið við boltann og ég trúi honum en ég ætlaði að skora. Ég hef gert mörg svona mörk á Ítalíu.“ Ruud Gullit, knattspyrnustjóri og leikmaður Chelsea, sagði að mikilvægt hefði verið að skora en ekki hver skoraði. „Ef til vill snerti Vialli boltann með eina hári sínu,“ sagði þessi hárprúði maður um krúnurakaðan samheija sinn. Markið örvaði Newcastle til dáða og Alan Shearer jafnaði eftir send- ingu frá Faustino Asprilla skömmu fyrir hlé, níunda mark hans á tímabil- inu. Aukin harka færðist í leikinn. David Ginola og Phiiippe Albert voru bókaðir og David Batty var vikið af velli fyrir brot á Mark Hughes. Chelsea sótti stíft til sigurs, Dennis Wise átti skot í slá og Srineck varði glæsilega frá Dan Petrescu. Stan Collymore var í byijunarliði Liverpool í fyrsta sinn síðan 12. októ- ber og skoraði þegar á fyrstu mínútu á móti Wimbledon. Norðmaðurinn Öyvind Leonhardsen jafnaði í seinni hálfleik og hefur Wimbledon aðeins tapað einu sinni í síðustu sjö leikjum á Anfíeld. Manchester United náði tvisvar forystu á Ríverside-velli Middles- brough en heimamenn jöfnuðu í bæði skiptin og úrslit urðu 2:2. Roy Keane og David May skoruðu fyrir gestina en Ravanelli gerði fyrra mark Boro og Hignett átti síðasta orðið úr vítaspyrnu sjö mínútum fyr- ir leikslok. Arsenal vann Tottenham 3:1 og skaust upp í 2. sætið. Ian Wright gerði fyrsta markið úr víta- spyrnu um miðjan fyrri hálfleik, 16. mark hans á tímabilinu, en Andy Sinton jafnaði eftir hlé. Allt stefndi í jafntefli en fyrirliðinn Tony Adams breytti stöðunni tveimur mínútum fyrir leikslok og Dennis Bergkamp gerði þriðja markið á síðustu sekúnd- unum. Þetta var fyrsti sigur Arsenal á Tottenham síðan í ágúst 1993 og fyrsti heimasigurinn á nágrönnunum síðan í desember 1991 en Gerry Francis, knattspymustjóri Spurs, hafði ekki áður tapað sem stjóri Arsenal. Mikil harka var í leiknum og voru fjórir leikmenn bókaðir, þar á meðal franski vamarmaðurinn Patrick Vi- era hjá Arsenal en hann var heppinn að fá ekki rauða spjaldið. „Hann var heppinn og slapp með skrekkinn en hefði honum verið vikið af velli hefði það getað gert út af við okkur,“ sagði Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal. Dverglið á toppnum! Vicenza hefur undanfarin ár ekki verið í hæstu hæðum ítalskrar knattspyrnu og má kallast dverglið. Liðið hefur hinsveg- EinarLogi ar leikið geysilega Vignisson agaðan og árang- skrifar frá ursríkan fótbolta í haust og náði um helgina efsta sæti ítölsku deildar- innar með traustum 2:0 sigri á hinu skelfilega slaka liði Reggiana með tveimur mörkum frá Ambrosetti. Árangurinn er aðallega þakkaður þjálfaranum Francesco Guidolin sem hefur náð ótrúlega miklu útúr leikmönnum þessa litla félags, í lið- inu em engar stórstjörnur þó Úragúvæmaðurinn Marcelo Otero sé að komast í hóp betri leikmanna deildarinnar. Inter gaf toppsætið eftir með því að gera jafntefli við nágranna sína í AC Milan í risaslag helgarinnar. San Siro leikvangurinn var troðfull- ur og virtist leikurinn ætla að verða mikil skemmtun fyrir hina 80 þús- und áhorfendur er tvö mörk litu dagsins ljós á fyrstu 11 mínútunum. Fyrst skoraði Roberto Baggio fyrir Milan eftir stungusendingu frá Marcel Desailly en Youri Djorkaeff jafnaði fyrir Inter úr víti sem Paolo Maldini fékk dæmt á sig fyrir að skella Ivan Zamorano kylliflötum er hann var að komast aleinn inn fyrir vörnina. Eftir þetta róaðist leikurinn og varð að taktísku ein- vígi þar sem bæði lið lögðu áherslu á að stífla sóknarrásir andstæðing- anna. Milan stjórnaði leiknum og hefði getað sigrað ef Baggio og Boban hefðu ekki farið illa með upplögð færi. „Við áttum að klára þetta,“ sagði Tabarez þjálfari Milan eftir leikinn. „Við vorum betri og erum yfirhöfuð betri en Inter og eigum ekki að vera fjórum stigum á eftir þeim.“ „Baggio olli mér áhyggjum fyrir þennan leik og hann sýndi að þær áhyggjur voru réttmætar með góðu marki og almennt ógnandi leik,“ sagði Roy Hodgson þjálfari Inter sem var ánægður með að ná stigi. Bologna er í öðru sæti ásamt Inter, stigi á eftir Vicenza. Liðið lék skínandi vel á móti Atalanta og sigraði með þremur mörkum gegn einu. Fallegásta mark leiksins átti þó markahrókurinn Filippo Inzaghi, þrumuskot hans beint úr auka- spyrnu var áttunda mark hans í vetur og er hann markahæstur ásamt Abel Balbo hjá Roma sem ekki náði að setja mark frekar en aðrir leikmenn í markalausu jafn- tefli Parma og Roma. „Þú náðir þó alltént að skora, skrattakollur, það er meira en ég gerði,“ sagði Enrico Chiesa við fyrr- um samheija sinn hjá Sampdoria, Roberto Mancini, í sjónvarpsþætti þar sem að Mancini var að barma sér yfir því að hafa misnotað færi á snilldarlegan hátt gegn Lazio í Róm. Mancini hafði náð forystunni fyrir Samp með góðum skalla en brenndi illa af síðar og átti einnig þátt í að Lazio náði að jafna undir lok leiksins. Reuter PAUL Gascoigne var hatja Rangers í úrslitaleik delldarblk- arkeppninnar; skoraðl tvívegis og fagnar hér að lelkslokum ásamt Archie Knox, þjálfara. Gascoigne slökkti á Hearts Paul Gascoigne gerði tvö mörk á 90 sekúndum og slökkti á Hearts i úrslitaleik skosku deildarbikarkeppninnar. Ally McCoist kom Rangers í 2:0 en Steve Fulton og John Robertson jöfnuðu og Hearts virt- ist líklegt til að sigra í keppni í fyrsta sinn i 34 ár. En Gascoigne eyddi þeirri von um miðjan seinni hálfleik og mark David Weirs á síðustu mín- útu breytti engu þar um. „Þetta hjálpar mér í einkalífinu,“ sagði Gazza sem hefur átt í erfíðleik- um utan vallar. „Vonandi verður þetta til að snúa blaðinu við.“ Walter Smith, þjálfari Rangers, fagnaði 11. titlinum og McCoist, sem er 34 ára, varð meistari í níunda sinn en hann hefur gert átta mörk í úrslitaleikjum deildarbikarkeppninnar. Arnar meiddist SOHAUX vann LC 2:012. deild í Frakklandi og er í 5. sæti með 30 stig, sjö stigum á eftir efsta liði. Araar Gunn- laugsson kom inná hjá Soc- haux í byrjun seinni hálfleiks en fór meiddur af velli 20 mínútum síðar. „Ég tognaði á lærvöðva og ætli ég verði ekki að loka mig inni það sem eftir er ársins,“ sagði Araar við Morgunblaðið en þetta var fyrsti leikur hans með aðallið- inu í mánuð nema hvað hann lék bikarleik fyrir skömmu. Góður sig- ur hjá Bjarka BJARKI Gunnlaugsson og samherjar í Mannheim stöðv- uðu sigurgöngu Kaiserslaut- ern í 2. deild í Þýskalandi og unnu, 2:0. „Það var mjög gaman hjá 30.000 áhorfend- um og ekki síður hjá okkur enda sigurinn mikilvægur," sagði Bjarki sem fór út af stundarfjórðungi fyrir leiks- lok. „Ég fann til í lærvöðva og vildi ekki taka neina áhættu. Við höfum verið að spila ágætlega, sérstaklega á heimavelli, en höfum ekki enn unnið á útivelli og þurfum að breyta því. Samt er munurinn ekki svo mikill á liðunum og við eram aðeins sjö stigum á eftir Fortuna í 3. sæti en tveir næstu Ieikir eru við lakari iið.- Eyjólfur og Hertha á góðri sigl- ingu EYJÓLFUR Sverrisson og félagar I Hertha unnu Stutt- garter Kickers, 2:1, á útivelli og eru í 2. sæti með 25 stig í 2. deild í Þýskalandi en Kais- erslautera er með 30 stig. „Það er mikil og góð stemmn- ing í liðinu og staða þess er ekkitilvijjun,“ sagði Eyjólfur. „ Við áttum allan leikinn í Stuttgart og komumst í 2:0 en þeir minnkuðu muninn á síðustu mínútunum.“ Skömmu áður fékk Eyjólfur gult spjald öðru sinni og þar með rautt. „Seinna spjaldið var út í hött enda hlógu all- ir,“ sagði Eyjólfur. „Félagið ætlar að mótmæla en senni- lega þýðir það ekkert svo ég tek sennilega út leikbann um helgina.“ Uli Stein héh hreinu í 500. deildaiieiknum Uli Stein lék 500. leik sinn fyrir Arminia Bielefeld á laugardag en liðið vann Freiburg, 2:0. Þetta var þriðji sigurleikur Bielefeld í röð. Miðjumaðurinn Mario Baslergerði bæði mörk Bayern í 2:1 sigri á botnl- iði Hansa Rostoek. Fyrst skoraði hann úr vítaspyrnu sem var dæmd eftir að Jiirgen Klinsman var felldur innan teigs eftir hálftíma leik og síðan gerði hann glæsilegt mark af löngu færi tveimur mínútum fyrir hlé. Akpoborie minnkaði muninn um miðjan seinni hálfleik og var það fyrsta mark Hansa Rostock á móti Bayern Múnchen á Ólympíuleik- vanginum í Múnchen. Giovanni Trapattoni, þjálfari Bay- ern, var langt því frá að vera ánægð- ur þó liðið færi í efsta sætið. „Ég 500 er aðeins ánægður með úrslitin. Við lékum ekki vel, vorum taugaóstyrkir og þvingaðir. Ég get aðeins sætt mig við 20 mínútur af leiknum." Frank Pagelsdorf, þjálfari Rostock, sagði það óheppni að liðið hefði ekki náð stigi. „Bayern átti varla marktækifæri í fyrri hálfleik en samt vorum við 2:0 undir. Engu að síður gáfumst við aldrei upp og sköpuðum okkur færi í seinni hálf- leik.“ Meistarar Dortmund færðust upp í þriðja sætið með 4:0 sigri á móti slöku liði Werder Bremen. Svisslend- ingurinn Stephane Chapuisat braut ísinn að tveimur stundarfjórðungum loknum og Heiko Herrlich bætti við tveimur mörkum fyrir hlé. Heima- menn áttu síðasta orðið þegar Heimo Pfeifenberger gerði sjálfsmark um miðjan seinni hálfleik. „Við vorum heppnari en mótheij- arnir,“ sagði Ottmar Hitzfeld, þjálf- ari Dortmund, en Paulo Sousa, Matt- hias Sammer og Steffen Freund léku ekki með vegna meiðsla. „Öryggið kom með fyrsta markinu og eftir það var erfitt fyrir Bremen að spila vel.“ Besti leikur umferðarinnar var viðureign Kölnar og HSV sem end- aði með jafntefli, 2:2. Þetta var 300. jafntefli HSV í sögu deildarinnar. Antonio Ananyev, markvörður Köln- ar, braut illa á mótheija á síðustu mínútu og var vikið af velli. Enginn markvörður var á bekknum og fór miðjumaðurinn Sunday Oliseh frá Nígeríu í markið. Stuttgari tapaði 3:1 í Duisburg og missti af efsta sætinu. Brasilíu- maðurinn Giovane Elber skoraði fyr- ir gestina eftir 38 sekúndur, 10. mark hans á tímabilinu. Markus Osthoff jafnaði á sjöundu mínútu, Thomas Vana bætti marki við skömmu eftir hlé og Michael Zeyer innsiglaði sigurinn á 78. mínútu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.