Morgunblaðið - 29.11.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.11.1996, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ 2 B FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996 DAGLEGT LIF i T íminn Hvernig líður stundin í huga manns? sónum. Tíminn er punktur á línu, hringur, spírall og svelgur. Gunnar Hersveinn hugsaði um tímann fyrr og nú og ræddi við þrjár manneskjur um hann > HEFÐBUNDNUM afrískum I samfélögum liggur tíminn í 1 hring og er mældur í verk- um eftir árstíðum. Reiknað er með að framtíðin verði eins og nútíðin og fortíðin, hún geymir engan örlagaríkan atburð sem breytir öllu. Ókominn atburður, eins og spáð heimslok, sem enginn veit hvenær muni eiga sér stað leiðir tímann burt úr hringnum-í beina línu eft- ir stefnu og markmiði mannsins. Þrátt fyrir hringrás árstiðanna hefur hinn nútima vestræni maður sett stefnuna fram á veginn með þróun og þroska í augum. Tími kristninnar er lína frá sköp- un til fæðingar Krists og fram til dómsdags, tíminn er punktur sem rennur eftir beinni línu sem nemur staðar í heimsendi og allt verður nýtt aftur. Tíminn er bundin per- Morgunblaðið/Ásdís DAVÍÐ Ólafsson með dagbók Tómasar Jónas- sonar bónda á Hróarsstöðum í Fnjóskadal: „Týmatal og veðráttufar". hana ekki upp. Hann er á hálfgerðum hlaupum allan daginn og verður tímaþræll. Hann stjórnast af timan- um og lýtur klukk- unni. Dæmi 2: Óskar fylgist með sam- borgurum sínum og ályktar að þeir telji sig geta tapað tíma, mis- notað tíma og eytt tímanum. Hann ákveður að líta öðrum augum á málið: „Ég skapa minn tíma sjálfur. Ég ræð yfír hvað ég geri og hvenær ég geri það, en klukkan ekki. Tíminn verður til þegar ég framkvæmi eitthvað. Ef ég sit og spjalla um heima og geima við vini mína hef ég ekki tapað neinu. Ég mæli tím- ann með því sem ég geri.“ Hér eru tvennskonar viðhorf til tímans á ferðinni, að láta stjórnast af tímanum og að stjóma tímanum í lífi sínu. Breytt tímaskynjun íslendinga á 18. og 19. öld Davíð Ólafsson er í MA námi í sagnfræði við Háskóla íslands og stundar rannsóknir á handritadeild Landsbókasafns á upphafi, eðli og notkun dagbóka. Hann hefur fund- ið sterkar vísbendingar um hvemig fyrri aldar fólk upplifði tímann. KRONOS eftir Ignaz Giinther (1725- 1775). Tímann er einnig hægt að ímynda sér sem gorm, hann er hringlaga en hringirnir lokast aldrei, þetta felur í sér þróun og er einskonar stig milli línu og hrings. Tíminn er afstæður, hann er háður þeim sem upplifir hann og því per- sónulegur. Hver maður er vera í tíma og upplif- unin er líka háð tauga- kerfinu og menning- unni. Það sem mann- eskju finnst hratt finnst flugu hægur gangur. í rólegheitunum getur hún sloppið undan skell mannslófans enda taugakerfi hennar tíu sinnum sneggra en mannsins. Viðhorf til tímans skiptir máli. Dæmi 1: Einar skipuleggur dagana í smáatriðum og temur sér að lifa eftir stundaskrá. Hann hamast við að gera allt á ákveðnum tíma og það verður honum keppikefli. Hann verður háður stundatöflunni og brýtur Nýjar víddir í kynningu lands og þjóðar HÚN er listmálari og einn af þekkt- ustu grafísku hönnuðum landsins. Hann tekur óvenjulegar ljósmyndir. Þau heita Kristín Þorkelsdóttir og Hörður Daníelsson. Saman hafa þau ferðast um landið árum saman og málað og myndað. Arið 1993 stofnuðu þau fyrirtæk- ið Nýjar víddir, sem gefur út dagat- öl, póstkort, jólakort, bókmerki og fleira. Myndimar sem prýða fram- leiðsluna eru yfírleitt afrakstur ferðalaganna. „Sonur okkar, Daði, tók þátt í að koma fyrirtækinu á laggimar og er framkvæmdastjóri þess. Við höfum öll myndsköpun og hönnun að áhugamáli og leggjum mikinn metnað í að útgáfuefni okk- ar gleðji augað. Vandaðar kveðjur frá íslandi em meginvið- fangsefni okkar og kortin og dagatölin gera íslendingum kleift að mynda skemmtileg tengsl við viðskiptavini og vini í útlöndum," segir Krist- ín. Uppskera af akri Ijósslns Stærsti útgáfugripur Nýrra vídda er dagatalið Af ljósakri. Kristín segir dagat- alið einkum hafa unnið sér sess fyrir glæsilegar breið- myndir Harðar af íslenskri náttúra. Hörður á hugmyndina að nafninu, en ljósmyndimar era upp- skera hans af akri hinnar sérstöku íslensku birtu. JVJ DAGATALIÐ Af ljósakri árið 1997. Á baksíðu dagatalsins er að þessu sinni kort af íslandi, sem sýnir eldgosa- og landreksbelti, helstu virku eldstöðvar frá land- námstíma og sýnt hvar myndirnar eru teknar. „Það er eiginlega til- viljun að við eram með kort yfir eldstöðvar. Við gengum frá kort- inu í vor og áttum ekki, frekar en aðrir, von á eldgosi í ár.“ Með hverri ljósmynd fylgir ljóðrænn texti eftir Þórdísi Kristleifsdóttur, íslenskufræð- ing, sem einnig starfar við fyr- irtækið. „Við hjónin komum lítið nálægt rekstrinum að öðru leyti en því að vera ráðgjafar í hönn- un. Þótt við séum oft með í ráðum, hvílir hitinn og þunginn á Daða, Þórdísi og Gunnari Halldóri Gunn- arssyni, sölustjóra. Reyndar eru Nýjar víddir sannkallað fjölskyldu- fyrirtæki, þau Daði og Þórdís eru hjón, Gunnar er æskuvinur Daða og með okkur starfar einnig Her- borg Sigtryggsdóttir, iðnrekstr- arfræðingur, sem er skólasystir og æskuvinkona Þórdísar. „Við erum áhugasöm um að málfar sé ekki síður vandað en annað og þar sem textar, t.d. í Af ljósakri, eru á sænsku, ensku, þýsku, frönsku og spænsku höfum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.