Morgunblaðið - 29.11.1996, Blaðsíða 4
Landsliðin
íalbláa
búninga
Landsliðin í knattspymu leika
framvegis í albláum búningum,
bláum peysum með svörtu mynstri,
buxum og sokkum. Knattspymusam-
band íslands og Sportey ehf., um-
boðsaðili Reusch íþróttafatnaðar á
íslandi, hafa gert þriggja ára sam-
starfssamning, sem metinn er á 21,7
millj. kr. og er stærsti samningur
sinnar tegundar á íslandi fram til
þessa.
Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, Geir Þorsteinsson, skrifstofu-
stjóri sambandsins, og Jón Erlends-
son, eigandi Sporteyjar, heimsóttu
stjórnendur Reusch í Metzingen í
Þýskalandi á dögunum, þar sem sam-
komulag var innsiglað og íþrótta-
fatnaður valinn.
011 sjö landsliðin, sem keppa undir
merkjum KSÍ, keppa í búningum frá
þýska fyrirtækinu næstu þrjú árin.
Landsliðin verða þau fyrstu í heimin-
um til að æfa og keppa í íþróttafatn-
aði frá Reusch.
Fjölmörg
mál hjá KSÍ
ÁRSÞING Knattspyrnusambands ís-
lands, það 51. í röðinni, verður sett
á Hótel Loftleiðum í dag kl. 17. Fjöl-
mörg mál liggja fyrir þinginu og þau
ef til vill helst að til stendur að breyta
nafni efstu deildar í karlaflokki úr
1. deild í 0. deild. Einnig er tillaga
um að fjölga í deildinni og breyta
fyrirkomulagi 1. deildar kvenna.
Einnig liggur fyrir þinginu mikið
skjal þar sem lagðar eru línurnar
fyrir félagaskipti leikmanna og er
þar tekið tillit til Bosnam-málsins
svokallaða. Þingið stendur allan
morgundaginn og er áætlað að því
ljúki um kl. 16 á sunnudag.
Guðni og félagar
komnir í jólaskap
„ÞAÐ var Ijúft að leggja gömlu
félagana að velli. Sigur okkar
var auðveldur og stór, eftir leik-
inn braust út mikil gleði - það
var létt yfir mönnum, sem kom-
ust í jólaskap," sagði Guðni
Bergsson, fyrirliði Bolton, eftir
stórsigur í deildarbikarkeppn-
inni, 6:1. „Eins og mfnir menn
léku, eiga þeir ekki skilið að
klæðast búningi félagsins,"
sagði Terry Francis, knatt-
spyrnustjóri Tottenham.
Guðni og samheijar hans, sem
eru efstir í 1. deild, mæta
Wilbledon heima í 8-liða úrslitum.
„Heimavöllur okkar hefur verið
happasæll - við höfum lagt tvö
Lundúnalið hér að velli, Chelsea og
Tottenham, nú er það þriðja á leið-
inni,“ sagði Guðni.
Gangi Boltons hefur verið miklu
betra en menn áttu von á, þar sem
tveir sterkir leikmenn fóru frá liðinu
eftir sl. keppnistímabil, Alan Stubbs
til Celtic og Júgóslavinn Sasa Curc-
is til Aston Villa. „Það kemur mað-
ur í manns stað. Það er meira jafn-
vægi í leik liðsins heldur en síðast-
liðið keppnistímabil, sem hefur gert
liðið sterkara. Við stefnum að sjálf-
sögðu að því að endurheimta úrvals-
deildarsætið. Keppnin er þó rétt að
byija og við eigum marga erfiða
leiki eftir, eins og gegn Barnsley á
laugardaginn."
Þegar Guðni var spurður hvort
að hann hafi sent fyrrum félögum
„létt skot“ eftir leikinn, sagði hann:
„Ég vildi ekki vera að strá salti í
sárin, það var nægilegur skammtur
fyrir leikmenn Tottenham að hafa
fengið sex mörk á sig. Mörkin gátu
verið sjö, þar sem knötturinn fór
yfír marklínu hjá Tottenham rétt
fyrir leikslok. Ætli dómarinn hafi
ekki hugsað, að nú væri nóg komið
og því ekki dæmt mark,“ sagði
Guðni.
Leikirnir í 8-liða úrslitum deildar-
bikarkeppninnar eru: Ipswich -
Leicester, Bolton - Wimbledon,
West Ham eða Stockport - Sout-
hampton eða Oxford og þá stórleik-
urinn Middlesbrough - Liverpool.
KNATTSPYRNA / ÞÝSKALAND
KNATTSPYRNA
Þrír lykilmenn aftur
í landsliðshóp Vogts
MATTHIAS Sammers, varn-
arleikmaðurinn sterki hjá
Dortmund, er kominn á ný í
landsliðshóp Þýskalands,
eftir meiðsli.
rír af lykilmönnum Þjóðveija,
sem urðu Evrópumeistarar í
Englandi í sumar, eru á ný komnir
í landsliðshóp Bertis Vogts lands-
liðsþjálfara sem hann hefur valið
fyrir leik gegn Portúgal í undan-
keppni HM. Það eru þeir Matthias
Sammer, Dortmund, Thomas Hel-
mer og Christian Ziege, Bayern
Munchen, sem léku ekki með þegar
Þjóðveijar gerðu óvænt jafntefli
heima gegn Norður-írlandi, 1:1.
Vogts hefur valið 28 manna hóp
fyrir leikinn sem verður í Lissabon
14. desember.
Mario Basler, miðvallarleikmað-
ur hjá Bayern, getur ekki leikið
með vegna meiðsla og þá verður
Thomas Hassler ekki með - hann
meiddist á ökkla í leik með Karls-
ruhe á dögunum og verður frá
keppni í þijá mánuði.
Portúgalir eiga feitletraðar línur
í knattspyrnusögu Þýskalands þar
sem þeir eru þeir einu sem hafa
lagt Þjóðveija að velli í undan-
keppni HM - gerðu það í Stuttgart
1985, 0:1. Síðan þá hafa Þjóðveijar
ekki tapað fyrir Portúgölum, unnu
þá síðast 1:2 í vináttulandsleik í
Porto í febrúar.
Landsliðshópur Vogts er þannig
skipaður:
Markverðir: Oliver Kahn (Bayern
Miinchen), Andreas Köpke (Mar-
seille), Oliver Reck (Werder Brem-
en)
Varnarmenn: Markus Babbel,
Thomas Helmer (Bayern), Jurgen
Kohler (Dortmund), Stephan
Passlack (Mönchengladbach), Stef-
an Reuter, Matthias Sammer (Dort-
mund), Christian Wörns (Bayer
Leverkusen)
Miðjumenn: Mario Basler (Bay-
ern), Marco Bode, Dieter Eilts
(Werder Bremen), Thorsten Fink
(Karlsruhe), Matthias Hagner
(Stuttgart), Jörg Heinrich (Dort-
mund), Sven Kmetsch (Hamburg),
Andy Möller (Dortmund), Thomas
Strunz (Bayern), Michael Tarnat
(Karlsruhe), Dariusz Wosz (Boc-
hum), Christian Ziege (Bayern)
Sóknarmenn: Oliver Bierhoff (Udi-
nese), Fredi Bobic (Stuttgart),
Heiko Herrlich (Dortmund), Ulf
Kirsten (Leverkusen), Jurgen Klins-
mann, Alexander Zickler (Bayern).
Sundlið
Ragnars
í 5. sæti
SÍÐARI hluti dönsku bikar-
keppninnar í sundi fór fram
í Kastrup um helgina. ís-
landsmethafinn í 400,800
og 1500 m skriðsundi Ragn-
ar Guðmundsson starfar sem
aðalþjálfari sundfélagsins S
681 Hjörring í Jótlandi.
Karlalið S 68 var í 6. sæti
af 12 liðum í 1. deild, eftir
fyrri hluta keppninnar, sem
haldin var í Álaborg fyrir
tveimur vikum. Sundmenn
félagsins syntu vel í siðari
hluta keppninnar og unnu
sig upp í 5. sætið. Það er
besti árangur sem félagið
hefur náð til þessa. Sigur-
vegarar í dönsku 1. deildar-
keppninni urðu SGI frá Es-
bjerg í karlaflokki og KVEK
í Kastrup í kvennaflokki.
SGI hlaut alls 50.200 stig úr
báðum umferðum keppninn-
ar. Aldrei hafa fleiri stigum
verið náð í þessari keppni.
Meðalstigafjöldi er um 830
stig fyrir hvert sund, sem
er mjög góður árangur.
Einn af sundmönnum
Ragnars í S 68 setti eina
danska metið sem slegið var
í kariaflokki á mótinu. Það
gerði Jacob Rasmussen er
hann synti 200 m skriðsund
á 1:47.32 mín. Hann sigraði
Jacob Carstensen með
17/100 úr sekúndu, en Carst-
ensen synti í A-úrslit í 400 m
skriðsundi á Ólympíuleikun-
um í Atlanta. Jacob Carst-
ensen sigraði hins vegar í
400 m skriðsundinu með yf-
irburðum, synti á 3:47.17, en
annar varð Frank Byskov
fráS 68 á 3:54.00 ogbætti
sig mn rúmar 4 sek. Jacob
Rasmussen keppti hér á
landi á opna Reykjavíkur-
mótinu árið 1995.
Edda
vann
tvöfalt
Edda Blöndal varð í fyrra-
kvöld tvöfaldur íslands-
meistari i shotokan karate
er hún sigraði bæði í kata
og kumite, en fslandsmótið
var haldið í Valsheimilinu á
miðvikudagskvöldið. í kum-
ite karla sigraði Gunnar Júl-
íusson og Asmundur f sak
Jónsson sigraði í kata karla.
í liðakeppninni sigraði A-lið
Þórshamars en í liðinu voru
auk Ásmundar fsaks þeir
Helgi Jóhannesson og Jón
Ingi Þorvaldsson.
Björk Ásmundsdóttir varð
í öðru sæti i kumite og í því
þriðja í kata en þar náði
Ingibjörg Júlíusdóttír öðru
sætínu og Sólveíg Krista
Einarsdóttír varð þriðja í
kumite.
Jón Ingi Þorvaldsson varð
í öðru sæti, bæði í kata og
kumite. Haukur Jóhannes-
son varð þriðji í kumite en
Helgi Jóhannesson í kata.