Morgunblaðið - 30.11.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1!»
>1
i:
1
B'
Í8!
IV,
%
-'•é'
þt
C1
■
3K
,uí
W
KNATTSPYRNA
Pl®nr0iml»líí&ií»
1996
LAUGARDAGUR30. NÓVEMBER
BLAD
Ríkharður í
Grikklandi
RÍKHARÐUR Daðason, markakóngur íslands-
mótsins í knattspyrnu, er í Gríkklandi að skoða
aðstæður iýá Kalamata sem leikur í fyrstu
deildinni. Rikharður, sem fór til gríska félags-
ins í vikunni, kemur heim á þriðjudaginn. Kala-
mata er frá samnefndri borg á suðvesturströnd
Grikklands og knattepyrnulið borgarinnar varð
i þríðja sæti í 2. deildinni i fyrra og vann sér
þar með rétt til að leika í þeirri fyrstu í ár.
Sem stendur er liðið um miðja deild og hefur
ekki gert mikið af mörkum þannig að forráða-
menn þess höfðu samband við Ríkharð og buðu
honum að koma og iita á aðstæður og til við-
ræðna.
Fullveldisfagn-
aðuríÁlaborg
Nýtt merki KSI
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
BJÖRGVIN Schram, fyrrum formaður KSÍ, afhjúpaði nýtt merki Knattspyrnusambands ísiands við setningu
51. ársþings þess í g»r. Ástþór Jóhannsson hjð auglýsingastofunnl Góðu fólki hannaði merkið. Hér er Egg-
ert Magnússon formaður ásamt Björgvini en Eilert B. Schram, sonur Björgvlns og forseti ÍSÍ, sæmdi Eggert
gullmerki ÍSÍ fyrir vel unnin stöf í þágu knattspyrnunnar á ísiandi.
Verulegt tap hjá KSI
Vítaspymuævintýri
íTyrklandi
ÞAÐ var heldur betur vítaspyrnuævintýri, sem
áhorfendum var boðið uppá í bikarleik Galatas-
aray og Genclerbirligi í Tyrklandi. Þeir fengu
að sjá 34 vítaspymur þegar Genclerbirligi stóð
uppi sem sigurvegari 17:16. Ilyas Kahraman,
miðvallarspilari Galatasaray, náði ekki að nýta
34 vítaspymuna. Leikur liðanna endaði með
jafntefli eftir framlengingu, 1:1. Leikurinn og
vitaspymukeppnin stóð yfir í þijár klukku-
stundir. Að sjálfsögðu er þetta vítaspymumet
í Tyrklandi, fyrra melið var
síðan 1993,9:8. Heimsmetið
í vítaspyraukeppni er aftur
á mótí frá 1988, sett í Arg-
entínu. Argentínos Juniors
vann þá Racing Club 20:19.
Arsþing Knattspyrnusambands
Islands, það 51. 1 röðinni, var
sett á Hótel Loftleiðum í gær, en
120 hafa rétt til þingsetu. Sem
endranær liggja mörg mál fyrir þing-
inu og verða nefndarstörf í dag en
þinginu lýkur um miðjan dag á
morgun. Velta sambandsins var
rúmlega 144 milljónir króna og tap
eftir fyrningar nam rétt tæpum 15
milljónum króna og hefur ekki verið
meira hjá sambandinu.
Eggert Magnússon, formaður KSI,
sagði í setningarræðu sinni að tap
sambandsins væri vissulega áhyggju-
efni og að stjóm KSI sætti sig alls
ekki við áframhaldandi taprekstur
og ætlunin væri að gera bragarbót
á. „Við verðum að taka á tapinu af
alvöru og festu, annars stefnir í
óefni,“ sagði Eggert og benti meðal
annars á að KSÍ hefði undanfarin
þijú ár greitt laun dómara á leikjum
og að þátttökugjöld væru mun lægri
hér á landi en í nágrannalöndunum.
Formaðurinn sagði að gjaldahlið
fjárhagsáætlunar ársins hefði staðist
en tekjurnar hefðu hins vegar orðið
minni en áætlunin gerði ráð fyrir.
Þannig urðu tekjur af landsleikum
aðeins 6,4 milljónir en voru 14,8
milljónir árið 1995. Tekjur af lands-
leikjum kvennalandsliða íslands voru
aðeins 7.860 krónur á árinu en gjöld
vegna kvennalandsleikja voru hins
vegar tæpum 14 milljónum króna.
Kostnaður vegna landsleikja og
móta var tíu milljónum króna meiri
í ár en í fyrra, eða rétt tæpar 99
milljónir króna. Þá fékk KSÍ um tíu
milljónum minna vegna sjónvarps-
réttar í ár en í fyrra.
Eggert kom inn á fleiri þætti
starfsins í ræðu sinni og nefndi til
dæmis að aldrei hefðu knattspymu-
landslið íslands leikið eins mikið, en
landsleikir ársins urðu 61 talsins,
eða rúmur einn landsleikur í hverri
viku. Sagði formaðurinn að árangur
A landsliðanna hefðu valdið von-
brigðum en árangur yngri landslið-
anna hefði verið ánægjulegur. Leikir
í mótum á vegum sambandsins hafa
heldur aldrei verið fleiri en 3.597
knattspymuleikir vom háðir á veg-
um KSI í ár.
Formaðurinn benti á hið mikla
forvamastarf sem íþróttafélögin
vinna og sagði að það væri ómetan-
legt en því miður virtust áhrifamenn
þjóðarinnar ekki skilja það. Hann
sagði að tími væri til kominn að
stjómvöld settu meira fé til þessara
mála í stað þess að setja endalaust
fé í einhver gæluverkefni sem alltaf
virtist vera nóg af.
í máli Eggerts kom fram að mik-
ill hugur er í forráðamönnum knatt-
spymunnar hér á landi að reisa
knattspymuhús og sagði formaður-
inn að nú væri í fyrsta sinn rætt
um þessi mál af fullri alvöru, bæði
á Akureyri, á Seltjamamesi, í
Reykjavík og á Suðurnesjum. „Við
verðum að taka höndum saman og
koma þessu í framkvæmd," sagði
formaðurinn og sagðist jafnframt
sannfærður um að þegar búið væri
að reisa eitt hús yrði þess ekki langt
að bíða að fleiri hús risu.
Enskir
byrja fyrr
ENSKA knattspyrausam-
bandið hefur ákveðið að
deildarkeppnin hefjist viku
fyrr á næsta sumrí en vant
er. Þetta er gert tíl þess að
keppninni Ijúki fyrr og
Glenn Hoddle landsliðsþjálf-
ari hafi rýmri tíma tíl að búa
landslið sitt undir átökin i
HM í Frakklandi sem hefst
10. júni. Vegnaþessara
breytinga verður flautað til
leiks í úrvalssdeildinni 9.
ágúst og flautað til 1 eiksloka
í lok annarrar viku maí.
ÍSLENDINGAFÉLAGIÐ í Danmörku heldur
fullveldisfagnað í Álaborg I kvöld. Búist er við
að um þúsund íslendingar frá Noregi, Svíþjóð
og Danmörku komi til Alaborgar til að halda
tflW upp á daginn. Þegar íslendingafé-
Valur lagið í Danmörku ákvað að halda
Benedíkt fagnaðinn í Álaborg var ekki vit-
tónatansson ^ a5 landsleikur Dana og Íslend-
tanmöL ingayrðileiWnnþarÞettaerþví
skemmtueg tilvigun. Islendmga-
félagið hafði snör handtök þegar vitað var um
þennan mikiivæga leik og tryggði sér 600 að-
göngumiða og það kom sér vel því uppselt er
á leikinn, en íþróttahöllin tekur um 2.500 áhorf-
endur. Savinnuferðir-Landsýn leituðu til íslend-
ingafélagsins til að fá miða fyrir þá 130 íslend-
inga sem mæta á leikinn í beinu flugi Atlanta
á morgun. Það má þvi búast við að íslenskir
áhorfendur láti mikið að sér kveða og styðji
vel við bakið á islenska liðinu á sjálfan fullveld-
isdaginn. íslensku áhorfendurnir ætla að hitt-
ast í hádeginu á morgun tfl að mála sig í fána-
litunum og ná upp stemmningu I hópnum. Far-
ið verður í skrúðgöngu til íþróttahallarinnar
þannig að þessi mikli áhugi landans ættí að
gefa íslenska liðinu aukið sjálfstraust og sigur-
vilja.
1
KNATTSPYRNA: OBREYTT VARNARLINA HJA ARSENALIATTAAR / C4