Morgunblaðið - 07.12.1996, Síða 4
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
Hinn óþekkti Cafféy dró
vagninn fyrir Chicago
Oþekktur leikmaður, Jason Caf-
fey, dró vagninn fyrir Chicago
Bulls til sigurs í viðureign við Los
Angeles Clippers í fyrrakvöld. Caf-
fey gerði 13 af 23 stigum sínum í
leiknum á lokakaflanum þegar
Chicagoliðið gerði 21 stig gegn 4
og innsiglaði þar með 17. sigur sinn
á leiktíðinni - lokatölur 114:96.
„Margir hafa verið að bíða eftir því
að Caffey sýndi hvers hann er megn-
ugur á körfuknattleiksvellinum.
Hann hefur hæfileikana og getuna
en þarf bara að beisla hvort
tveggja,“ sagði Michael Jordan um
félaga sinn eftir leikinn. Jordan kom
næstur á eftir Caffey í stigaskorun
fyrir Chicago, gerði 20 stig en
Scottie Pippen gerði flest, 25 talsins.
Caffey, sem er frá Alabama, er
að leika sitt annað leiktímabil með
Chicago, hafði fyrir Ieikinn mest
gert 13 stig í einum leik í NBA og
kom mjög á óvart með góðri
frammistöðu í þær 24 mínútur sem
hann lék með. Hann hitti einnig
mjög vel og skoraði úr 11 af 13
tilraunum sínum. Pooh Richardson
skoraði 20 stig fyrir Clippers, Loy
Vaught 19 og Brent Barry 17.
„Við lentum í basli með að stöðva
Caffey og það er greinilegt að þama
er á ferðinni mikið efni“ sagði
Vaught, en leikmenn Clippers höfðu
frumkvæði í leiknum í 3. leikhluta
og allt þar til Caffey tók til sinna
ráða.
í Toronto innsiglaði hinn fertugi
John Long 82:80 sigur heimamanna
á Washington með langskoti níu
sekúndum fyrir leikslok. Walt Will-
iams gerði 29 stig og Doug Christie
var með 19 stig, tók 11 fráköst,
átti 7 stoðsendingar og stal knettin-
um sex sinnum í þriðja sigurleik
Toronto í röð. Long gerði samning
við kanadíska liðið í vikunni en
hefur ekki leikið í NBA síðan tíma-
bilið 1990-91. Frá þeim tíma hefur
hann m.a. verið með sýningarliði
Magic Johnsons.
I Dallas var æsispenna á Ioka-
spretti viðureignar Dallas og
Philadelphia og þar höfðu heima-
menn betur 106:102 eftir að hafa
náð að rétta hlut sinn verulega í
flórða leikhluta. Jimmy Jackson
gerði 21 stig og Derek Harper var
með 20 stig. Allen Iverson var
stigahæstur gestanna með 36 stig
og átti að auki 11 stoðsendingar.
Isaiah Rider gerði 15 af 21 stigi
sínu fyrir Portland í fjórða leikhluta
viðureignar liðsins við Denver á
útivelli. Þar hafði Portland betur
115:104. Kenny Anderson gerði 26
stig og Arvydas Sabonis var með
22 stig fyrir Portland í leiknum en
þetta var 7. sigurleikur liðsins í síð-
ustu 10 leikjum. Denver hefur á
hinn bóginn tapað fimm leikjum í
röð undir stjóm hins nýja þjálfara
Dick Motta. Bryant Stith var stiga-
hæstur heimamanna með 37.
Seattle fór hins vegar létt með
Minnesota á heimavelli, lokatölur
117:86. Shawn Kemp skoraði 21
stig fyrir Seattle og tók auk þess
15 fráköst. Larry Stewart gerði 19
og Garry Payton var með 18 stig
auk þess að eiga sjö stoðsendingar.
Hjá Minnesota var Tom Guliotta
efstur á blaði með 27 stig jafnframt
því sem hann tók 10 fráköst. Þetta
var 23. sigur Seattle í röð á Minne-
sota.
Reuter
MICHAEL Jordan skorar fyrir Chlcago á móti LA Clippers
en Terry Dehere reynir að stöðva hann og Wright horfir á.
Þrír ný-
liðar hjá
Rúmenum
ANGHEL lordanescu, lands-
liðsþjálfari Rúmeníu í knatt-
spyrnu, valdi þrjá nýliða i hóp-
inn fyrir leikinn við Makedóníu
í undankeppni HM eftir viku
en sem kunnugt er eru liðin í
riðli með íslendingum.
Iordanescu valdi miðjumann-
inn Valentin Stefan og miðherj-
ann Viorel Ion hjá Otelul Gai-
ati og vamarmanninn Liviu
Ciobotariu þjá National Búkar-
est vegna frammistöðu þeirra
í deildinni. Miðjumaðurinn Adr-
ian Hie, sem fór frá Steaua til
Galatasaray í Tyrklandi fyrir
skðmmu verður í banni.
Eftirtaldir eru i hópnum:
Markverðir: Bogdan Stelea og
Florin Prunea.
Vamarmenn: Dan Petrescu,
Daniel Prodan, Anton Dobos,
Comel Papura, Liviu Ciobotariu,
Tibor Selymess og Iulian Fili-
pescu.
Miðjumenn: Gheorghe Hagi,
Gheorghe Popescu, Constantin
Galca, Valentin Stefan, Basarab
Panduru, Dorinel Munteanu og
Ovidiu Stinga.
Framheijar: Ioan Vladoiu, Ghe-
orghe Craioveanu, Ionel Danciu-
lescu og Viorel Ion.
Real Madrid og
Barcelona
beint á Stöð 3
STÓRLEIKUR spænsku 1.
deildarinnar í knattspyrnu á
milli Real Madrid og Barcel-
ona verður sýndur í beinni
útsendingu á Stöð 3 í kvöld
og hefst útsendingin kl. 19.25.
Á morgun kl. 13 verður úr-
slitaleikurinn í karlaflokki á
tennismótinu i Miinchen sýnd-
ur og kl. 16 leikur West Ham
og Manchester United.
RÚV sýnir beint frá leik
Arsenal og Derby í ensku úr-
valsdeQdinni kl. 15 í dag.
Stöð 2 sýnir leik Vicenza
og Inter kl. 13.30 á morgun.
Kl. 16 verður bein útsending
frá leik Njarðvikinga og
Grindvíkinga i úrvalsdeildinni
í kðrfuknattieik.
Sýn sýnir leik Roma og
Lazio á morgun og hefst hann
kl. 19.30.
ÚRSLIT
Körfuknattlelkur
Bikarkeppni karla, 16-liða úrslit
KFÍ-ÞórAk.....................78:77
Gangur leiksins: 2:0, 19:16, 24:23, 31:29,
35:34, 37:37, 39:37, 44:42, 48:57, 58:59,
67:61, 76:77, 78:77.
Stig KFÍ: Derrick Bryant 29, Friðrik Stef-
ánsson 15, Baldur Jónasson 10, Hrafn Krist-
jánsson 9, Ingimar Guðmundsson 6, Guðni
Guðnason 4, Andrew Vallejo 3, Magnús
Gíslason 2.
Stig Þórs: Fred Williams 31, Einar Val-
bergsson 21, Konráð Óskarsson 9, Böðvar
Kritjánsson 6, Þórður Steindórsson 6, Haf-
steinn Lúðvíksson 4.
Dómarar: Björn Rúnarss. og Einar Einarss.
Áhorfendur: 400.
1. deild kvenna
Njarðvík - Keflavík..........60:100
Handknattleikur
Evrópumót kvenna
A-RIÐILL
Danmörk - Svíþjóð.......... 30:13
Ungveijaland - Pólland.......21:19
Króatía - Austurríki.........21:25
B-RIÐILL
Noregur - Litháen............36:18
Rússland - Úkraína...........30:23
Þýskaland - Rúmenía..........22:21
Knattspyrna
Þýskaland
Bochum - Bayer Leverkusen......2:2
WerderBremen -1860 Múnchen.....1:1
Karlsruhe - Freiburg...........3:0
Schalke - Hansa Rostock........2:0
Magnús
hetja KFÍ
KFÍ tryggði sér sæti í 8-liða úrslit-
um bikarkeppni KKÍ með þvi
að vinna Þór frá Ákureyri, 78:77, í
æsispennandi leik á
ísafirði í gærkvöldi.
Pétursson Leikurinn var jafn
skhfarfrá allan tímann og réð-
Isafirði ust úrslit á lokasek-
úndunni.
Þegar átta sekúndur voru eftir af
leiknum var Þór yfir, 77:78. Þá fékk
Derrick Bryant tvö vítaskot og hitti
úr hvorugu. Þórsarar fengu boltann
en Bryant stal honum af þeim og
sendi á Magnús Gíslason og brotið
á honum þegar fjórar sekúndur voru
eftir. Magnús, sem var að koma inn
á í fyrsta sinn í leiknum, hitti úr
báðum vítaskotunum og kom KFÍ
yfir, 78:77. Konráð Óskarsson brun-
aði upp fyrir Þór og Isfirðingar brutu
á honum á lokasekúndunni. Hann
fékk því tvö vítaskot og gat tryggt
liði sínu sigur. En honum brást boga-
listin og KFl fagnaði sigri og sæti í
8-liða úrslitum bikarkeppninnar í
fyrsta sinn í sögu félagsins.
Morgunblaðið/Kristinn
JANNE Kolling, leikreynd-
asta danska stúlkan, lék
sinn 190. landslelk í gær-
kvöldi og skoraöi 5 mörk.
Stálstúlkumar
byrjuðu vel
Danska kvennalandsliðið í hand-
knattleik hóf úrslitakeppni
Evrópumótsins á heimavelli með
stórsigri á Svíum
Sigurgeir 30:13 í Kaupmanna-
Guðlaugsson höfn í gær. Leikur-
skrifarfrá jnn fór hægt af stað
Danmörku 0g eftir sjö mínútur
var staðan jöfn 1:1 en þá setti
danska liðið á fulla ferð og í hálf-
leik voru þær 13:6 yfir. Danska lið-
ið skoraði síðan fyrstu fimm mörkin
í síðari hálfleik og eftir það þurfti
enginn að velkjast í vafa um hvorum
megin sigurinn hafnaði. Anja And-
ersen var yfirburða leikmaður á
vellinum, skoraði þrjú og átti tíu
stoðsendingar sem gáfu mörk. Meg-
inmunur á liðunum var sterkur
varnarleikur danska liðsins sem
sænsku sóknarmennirnir áttu ekk-
ert svar við. Þá skoruðu dönsku
ólympíumeistararnir 14 mörk úr
hraðaupphlaupum en sænska liðið
gerði ekkert.
Anetta Hoffmann var marka-
hæst í danska liðinu með 6 mörk,
Janne Kolling kom næst með 5
mörk og Tina Böttzau gerði 4. Lina
Olsson og Veronica Isaksson skor-
uðu flest mörk sænska liðsins, 3
hvor.
íslenska dómaraparið, Stefán
Amaldsson og Rögnvaldur Erlings-
son dæmdu leikinn og stóðu sig vel
að mati dönsku sjónvarpsmannanna
sem fóru um þá fögrum orðum fyr-
ir leikinn. Sögðu þá reynslumikla
og góða dómara sem oft hefðu
dæmt í Danmörku áður, um leið
og þeir verðskulduðu að fá að glíma
við opnunarleik mótsins.
HANDKNATTLEIKUR