Morgunblaðið - 10.12.1996, Qupperneq 5
4 C ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
KORFUKNATTLEIKUR
Einu stig Eggerts
skiptu sköpum
Eg fékk skotfæri og var viss um
að hitta og því kom ekkert
annað til greina en að reyna,“ sagði
^■■■■1 Eggert Garðarsson
jvar ÍR-ingur eftir að
Benediktsson hann hafði tryggt
skrifar félaginu sigur á KR,
91:88, á Seltjarnar-
nesi á sunnudag með körfu þegar
sex sekúndur voru eftir í ótrúlega
kaflaskiptum leik. „Ég var vissulega
ískaldur að reyna þetta en annað
komst ekki að,“ bætti Eggert við
en þessi karfa ásamt einu vítaskoti,
þegar tvær sekúndur voru eftir,
voru einu stig hans í leiknum.
KR-ingar byijuðu leikinn af mikl-
um krafti og leikgleði og ánægja
skein úr hveiju andljti. Leikurinn
var hraður og voru ÍR-ingar ekki
með á nótunum framan af og gekk
þeim flest í óhag á sama tíma og
KR-ingar léku við hvern sinn fing-
ur. Einstaklingsframtak Titos Bak-
ers hjá ÍR kom þeim þó inn í leikinn
um miðjan fyrri hálfleik en það var
ekki nema í stutta stund því KR tók
strax öll völd á ný. Þeir hreinlega
yfirspiluðu gesti sína með góðri vörn
og vel útfærðum sóknarleik þar sem
Jonathan Bow og David Edwards
voru í aðalhlutverki. Staðan í hálf-
leik var 58:36 og ÍR-ingar vissu
alls ekki hvaðan á þá stóð veðrið.
„Við vorum taugaspenntir í fyrri
hálfleik og gerðum ekkert rétt af
því sem okkur var ætlað. En við
náðum að beija okkur saman í leik-
hléi og koma af krafti í síðari hálf-
leikinn," sagði Eggert. Það voru svo
sannarlega orð að sönnu. Vörnin
batnaði til muna og Eiríkur Önund-
arson sem var heillum horfinn í fyrri
hálfleik kom sem nýsleginn túskild-
ingur til leiks í þeim síðari og dró
félaga sína áfram auk þess að gera
glæsikörfur upp á eigin spýtur.
Fljótlega tók að saxast á forskot
KR og þá um leið gerði taugaspenna
vart við sig í herbúðum Vesturbæ-
inga. í stað þess að leika agað og
af skynsemi gerðu þeir hveija vit-
leysuna á fætur annarri. Þetta nýttu
ÍR-ingar sér og auk Eiríks fékk
Baker að leika lausum hala og skora
dijúgt. Rúmum tveimur mínútum
fyrir leikslok jafna leikmenn ÍR
85:85 með körfu frá Baker og aftur
jafna þeir 88:88 er Eríkur skoraði
úr einu vítaskoti, þá var mínúta
eftir. Ingvari Ormarssyni, KR-ingi,
mistókst þriggja stiga skot þegar
hálf mínúta var eftir og ÍR stóð
með pálmann í höndunum. En í stað
þess að leika út reyndi Eggert skot,
þegar 6 sekúndur voru eftir, sem
lukkaðist. KR-ingar geystust upp
en nýttu tímann illa og Eggert inn-
siglaði sigur með körfu úr vítaskoti
þegar 2 sekúndur voru eftir.
Það var ótrúlegt að sjá KR-inga
kasta þessum sigri frá sér og þeir
geta engum nema sjálfum sér um
kennt og það hlýtur að verða þeim
lexía í næstu leikjum. ÍR-liðið sýndi
sterkan persónuleika að láta ekki
hugfallast þó útlitið væri dökkt í
leikhléi. „Þetta er sætasti sigur
ieiktíðarinnar," sagði Eggert með
bros á vör er hann gekk til búnings-
herbergis síns að leikslokum. Eftir
slakan leik fann hann fjölina sína
er mest reið á.
SKIÐI
Morgunblaðið/Golli
KR-INGURINN David Edwards var drjúgur við að fiska knött-
inn af ÍR-ingum framan af leik á laugardaginn. Hér reynir
hann að ná knettinum af Eiríki Önundarsyni og Jonathan Bow
fylgist með hvernig „veiði" er háttað hjá félaga sínum.
ísfirðingar
börðust vel
í Keflavík
Keflvíkingar sigruðu nýliða ís-
firðinga eins og við var búist
þegar liðin mættust í Keflavík
á sunnudagskvöldið. En mun-
urinn varð minni en reiknað var
með og það einfaldlega vegna
þess að gestirnir léku oft ágæt-
lega og virtust hvergi bangnir
við sterkt lið Keflvikinga. Loka-
tölur leiksins urðu 108:91, eftir
að staðan í hálfleik hafði verið
52:37.
Um leikinn þarf ekki að fara
mörgum orðum. Keflvíking-
ar náðu fljótlega undirtökunum
sem þeir síðan_ héldu allt til loka.
ísfirðingar máttu
þó eiga það, að þeir
gáfust aldrei upp
og börðust vel allt
til loka. í síðari
hálfleik þegar mun-
urinn var 90:69 settu þeir 11 stig
í röð sem segir sína sögu um ágæta
baráttu þeirra. Damon Johnson
var besti maður í liði Keflvíkinga
sem í heild lék einnig mjög vel.
Hjá ísfirðingum var Derrick Bry-
ant bestur.
Gisli
Blöndal
skrifar frá
Keflavík
Öraggur
sigur
Þórs
Enntapa
Blikar
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar frá
Akureyri
Þórsarar fíkra sig nú af blá-
botni deildarinnar og einn
liður í þeirri aðgerð var að sigra
Skallagrím ör-
ugglega í
Iþróttahöllinni á
Akureyri sl.
sunnudagskvöld,
78:64. Borgnesingum var spáð
góðu gengi í vetur og Torfi
Magnússon setti liðið í 3. sæti
í kynningarblaði deildarinnar en
spáði Þórsurum 12. og neðsta
sætinu. Gengi Skallagríms hlýt-
ur því að valda nokkrum von-
brigðum því liðið er í botnbarátt-
unni.
Leikurinn fór afar hægt af
stað, Borgnesingar heldur
hressari í byijun en annars var
þetta göngu- og kyrrstöðubolti
sem boðið var upp á. Þórsarar
komust fyrst yfir þegar 7 mínút-
ur voru eftir af hálfleiknum og
staðan þá 19:17. Heimamenn
fylgdu þessu eftir með pressu-
vöm og juku forskotið með því
að skipta um gír í sóknarleiknum
meðan Borgnesingar virkuðu
stirðir og þunglamalegir. For-
skot Þórs var 12 stig í leikhléi,
39:27.
Þórsarar spiluðu sterka vörn
og náðu 20 stiga forskoti í seinni
hálfleik, 51:81. Þá kom loks fjör-
kippur frá gestunum og 11 stig
í röð fleyttu þeim inn í leikinn.
Munurinn var aðeins fjögur stig
þegar 6,30 mín. voru eftir,
56:52. Lengra komst Skalla-
grímur ekki og Fred Williams
og félagar hans klámðu dæmið
og sigruðu með 14 stiga mun.
Fred Williams var yfirburða-
maður í vöm og sókn og skor-
aði 29 stig. Hafsteinn og Böðvar
léku einnig vel í liði Þórs og
vamarleikurinn var góður. Samt
fékk liðið ekki nema 10 villur
dæmdar á sig í leiknum og seg-
ir það nokkuð um hve linir gest-
imir vom í sókninni. Bragi og
Tómas áttu þokkalegan sprett í
seinni hálfleik en liðið var langt
frá því að vera sannfærandi.
að var ekki áferðarfallegur
körfubolti sem leikinn var í
Smáranum á sunnudagskvöld þegar
ÍA sigraði Blika
H .... 75:65. Heimamenn í
Bachmann Breiðabliki byijuðu
skrifar betur og leiddu
fyrstu mínúturnar.
Þá var Brynjar Sigurðsson settur
til höfuðs Andre Bowain og gaf það
góða raun. Á kaflanum sem á eftir
kom skoruðu Skagamenn 18 stig
en Blikar aðeins tvö og breyttu stöð-
unni úr 12:8 í 14:26. Þá tóku Blik-
ar við sér og minnkuðu muninn í 5
stig, 30:35, en Skagamenn áttu síð-
ustu törnina og þegar flautað var
til leikhlés var staðan 32:45.
í síðari hálfleik héldu Skagamenn
uppteknum hætti og um miðjan
hálfleikinn var munurinn orðinn 20
stig, 44:64. Þá tóku Blikar annan
kipp, skoruðu 11 stig, án þess að
Skagamenn næðu að svara. Lengra
komust Blikar ekki þrátt fyrir að
fá mörg tækifæri til að minnka
muninn enn frekar og töpuðu 65:75.
Andre Bowain var að vanda besti
maður Blika sem spiluðu á köflum
skynsamlega en virtist skorta
sjálfstraust til að ljúka sóknunum
vel. Hjá Skagamönnum voru bestir
Ronald Bayless, Alexander Ermol-
inskji og Brynjar Karl Sigurðsson.
Sigurður Elvar Þórólfsson átti einn-
ig góða spretti.
Grindvíkingar
vora sterkari í ná-
grannaslagnum
Grindvikingar léku vel og skytt-
ur þeirra hittu ákaflega vel á
meðan lítið gekk hjá okkur, sagði
■^HM Hrannar Hólm,
Björn þjálfari Njarðvík-
Blöndal inga, eftir að lið
skrifarfrá hans hafði tapað
Njarövik fyrir Grindvíking-
um, 81:92, í Ljónagryfjunni í Njarð-
vík á sunnudaginn. „Það var erfitt
að stöðva skytturnar hjá þeim og
í þessu lá munurinn. Við misstum
þá of langt frá okkur í upphafi og
eftir það var erfitt að snúa taflinu
við þó litlu hafi mátt muna um tíma
í síðari hálfleik." Þetta var annað
tap Njarðvíkinga í röð á heimavelli
í deildarkeppninni og ljóst að þeir
þurfa eitthvað að endurskoða leik
sinn.
Njarðvíkingum voru mislagðar
hendur í upphafi þessa leiks og það
hvorki gekk né rak hjá þeim lengi
vel. Eftir 6 mínútur höfðu þeir að-
eins sett 3 stig sem segir sína sögu.
Grindvíkingar náðu mest 19 stiga
mun í fyrri hálfleik. Allt annar brag-
ur var á heimamönnum í síðari
hálfleik og þeim tókst þá að saxa
verulega á forskot gestanna og um
tíma munaði aðeins 3 stigum á lið-
unum. En íslandsmeistaramir
sýndu þá að þeir kunna ýmislegt
fyrir sér og með góðum leik tryggðu
þeir sér sætan og um leið verðskuld-
aðan sigur á nágrönnum sínum.
Liðsheild Grindvíkinga var mjög
góð í þessum leik svo og leikskipu-
lag og innáskiptingar. Herman
Myers, Páll Axel Vilbergsson, Helgi
Jónas Guðfinnsson og Jón Kr. Gísla-
son voru þó bestu menn liðsins.
Njarðvíkingar áttu slæman dag að
þessu sinni svo ekki sé meira sagt
og eini maðurinn í liðinu sem lék
af eðlilegri getu var Torry John.
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 1996 C 5
ÍÞRÓTTIR
Reuter
Gladishiva kom
áóvartogsló
þeim bestu við
Ovænt úrslit urðu í risasvigi
kvenna í Vail í Colorado á
laugardag er rússneska stúlkan
Svetlana Gladishiva sigraði. Hún
hafði rásnúmer 32 og áttu því
fáir von á að hún næði besta tím-
anum. Pernilla Wiberg frá Svíþjóð,
sem var önnur, var farin að fagna
öðrum sigri sínum í risasvigi þegar
PERNILLA Wiberg er hér á
fullri ferð í risasviginu í Vail
á laugardaginn. Hún náði
öðru sæti og er nú næstefst
að stigum í heimsbikarnum.
Gladishiva kom niður brautina.
Carole Montillet frá Frakklandi,
sem einnig hafði hátt rásnúmer
(nr. 29), varð þriðja og kom það
einnig á óvart. Þetta var fyrsti
heimsbikarsigur rússnesku stúlk-
unnar sem er 25 ára gömul. „Ég
trúi því ekki að ég hafí sigrað,“
sagði Gladishiva.
Stúlkurnar kepptu í bruni fyrr
um daginn og þar náði Renate
Götschl frá Austurríki besta tím-
anum og vann um leið fyrsta sigur
sinn í greininni. Katja Seizinger,
sem er efst að stigum, varð önnur
en hún var aðeins í níunda sæti í
risasviginu og er það lakasti
árangur hennar í vetur. Islode
Kostner frá Ítalíu varð þriðja.
„Sigurinn kom mjög á óvart og
ég er auðvitað í sjöunda himni,“
sagði Götschl, sem fyrir fjórum
árum var yngsta stúlkan til að
vinna heimsbikarmót - svig í Lille-
hammer, en þá var hún aðeins 16
ára. „Það er gaman að vinna brun-
mót því brunið er svo stór grein
í Austurríki. Landsliðið okkar náði
sér ekki á strik í síðustu viku svo
við þurftum á þessum sigri að
halda. Nú er markmiðið hjá mér
að sigra í stórsvigi.“
■ Úrslit / B7
HANDKNATTLEIKUR
Sigur
eralltaf
, sigur
IR vann sinn þriðja sigur í
deildinni á sunnudaginn er
liðið tók á móti Selfyssingum
og sigraði 29:22. Hið unga og
■■■■H skemmtilega lið
Skúli Unnar ÍR hefur oft
Sveinsson leikið vel í vetur
skrifar en gengið erfið-
lega að sigra. Á
sunnudaginn lék liðið fremur
illa en sigraði samt.
Eftir að heimamenn höfðu
gert fyrsta mark leiksins komu
fimm í röð frá gestunum og við
það færðu ÍR-ingar vörnina
aðeins framar, Selfyssingar
flýttu sér allt of mikið í sókn-
inni og þegar fimm mínútur
voru til leikhlés jafnaði Selfoss,
9:9. Gestirnir gerðu raunar að-
eins eitt mark á tíu mínútna
kafla og síðustu fímm mínút-
umar gerði liðið aðeins eitt
mark. Umhugsunarefni fyrir
Selfoss að gera aðeins tvö mörk
síðari stundarfjórðunginn fyrir
hlé.
Selfoss náði að jafna, 19:19,
og aftur, 20:20, þegar tíu mín-
útur voru eftir af leiknum en
þá sögðu ÍR-ingar hingað og
ekki lengra, lokuðu vöminni og
gerðu níu mörk gegn tveimur
það sem eftir var leiksins.
Ólafur Gylfason var f miklu
stuði og það er orðið langt síðan
hann hefur fundið sig jafnvel
og á sunnudaginn. Jóhann og
Ragnar voru einnig sprækir en
besti maður liðsins var Hrafn
Margeirsson. Talverðar breyt-
ingar voru hjá ÍR að þessu sinni.
Matthías var í bytjunarliðinu,
Guðmundur Þórðarson kom
ekki í vörnina fyrr en um miðj-
an síðari hálfleik og Ólafur Sig-
uijónsson var óvenju mikið á
bekknum.
Hjá Selfossi var Rússinn
Demidov sterkur, en hann
mætti að ósekju spila meira
uppá Björgvin í hominu. Þeir
tveir gerðu 14 af mörkunum
22 sem liðið gerði. Hallgrímur
byijaði mjög vel í markinu en
lét minna að sér kveða eftir hlé.
Nú er hún Snorra-
búð slekkur
LEIKMENN Aftureldingar létu ekki slaka Valsmenn slá sig út af laginu í
síðasta leik sínum fyrir jólaleyfi er liðin mættust á Varmá á sunnudags-
kvöldið. Reyndar var munurinn ekki nema þrjú mörk þegar upp var stað-
ið, 25:22, en sigurinn var mun öruggari en tölurnar gefa til kynna. Mos-
fellingar höfðu töglin og hagldirnar allan leiktímann og ef ekki hefði kom-
ið til prýðisleikur Guðmundar Hrafnkelssonar í marki Vals og langar og
leiðinlegar sóknir hefði munurinn hæglega orðið meiri, en hún Snorrabúð
er svo sannarlega stekkur.
Nokkurt fum og fát var á leikmönn-
um beggja liða á upphafsmínút-
unum og það var ekki fyrr en liðnar
voru þijár mínútur að
[var fyrsta markið var gert
Benediktsson og það var heimamanna
skrifar eins og tvö þau næstu.
Valsmenn byijuðu á því
að misnota fyrstu sex upphlaup sín,
bitu frá sér og jöfnuðu en fljótlega
komust þó Aftureldingarmenn yfir á
ný og náðu að halda tveggja til fjög-
urra marka forystu allt þar til yfír lauk
án þess að þurfa að hafa verulegar
áhyggjur. Staðan í hálfleik 14:10 fyrir
UMFA.
Bæði lið léku varnarleikinn ákveðið
og framarlega og er á leið síðari hálf-
leik komu Valsmenn enn framar á völl-
inn í von um að geta slegið á frum-
kvæði Mosfellinga, en án árangurs. í
þetta sinn létu leikmenn Aftureldingar
ekki slá sig út af laginu og heldu sínu
striki. Sóknarleikurinn gekk lengst af
allvel og mörk falleg tilþrif sáust þá
vörnin var ágæt. Valsmenn aftur á
móti léku eins og fyrr segir langar sókn-
ir sem oft og tíðum voru mesta hnoð
og lítt fyrir augað. Vinstra hornið var
nær því óvirkt og það sama má segja
um línuna.
Nú þegar fyrri umferð deildarkeppn-
innar er lokið hefur UMFA þægilega
stöðu í efsta sæti deildarinnar. Á annan
dag jóla hefst síðari umferðin og þá
heldur áfram að reyna á kappana sem
oft og tíðum hafa ekki verið nógu heil-
steyptir í gegnum leikina þó vinningur
hafí í flestum tilfellum komið í hús.
Þegar horft er á liðið virðist það geta
meira en það hefur sýnt, hingað til
hefur það þó nægt.
Þrátt fyrir brotsjó á Valsliðið að geta
leikið mun betur en það hefur gert á
leiktíðinni. Það er skipað mönnum með
reynslu sem eiga að kunna fleira en
að hnoðast og vera kann að úr öllu
hnoðinu verði kannski til ágætt brauð
er kemur fram á Þorra eða Góu.
Háspenna á lokamínútunum
að var svo sannarlega háspenna í
KA-heimilinu á lokamínútunum í
leik KA og Fram, en hann endaði með
jafntefli, 21:21. Þegar
ReynirB. um 7 mínútur voru til
Eiriksson leiksloka og staðan var
skrifarfrá 20:17, KA í vil, virtist
liðið hafa leikinn í hendi
sér og fátt geta komið í veg fyrir heima-
sigur. Framarar voru þó ekki á sama
máli og gerðu þeir fjögur næstu mörk-
in og breyttu stöðunni í 21:20 sér í vil
þegar rúm ein mínúta var til leiksloka.
Þetta var í fyrsta skiptið í leiknum sem
þeir komust yfir. KA fór í sókn og fékk
Duranona víti sem Reynir varði þegar
48 sekúndur voru eftir, en KA fékk
boltann aftur og litlu síðar skaut Ser-
gei Siza framhjá. Sókn Framara var
fálmkennd og misstu þeir boltann
klaufalega í hendur KA þegar 22 sek-
úndur lifðu af leiknum og slógu hjörtu
flestra í KA-heimilinu nú sem aldrei
fyrr. KA-menn flýttu sér sem þeir
máttu í sóknina og þegar 5 sekúndur
voru eftir fengu þeir aukakast, boltinn
var sendur á Duranona sem brást ekki
bogalistin að þessu sinni, stökk upp og
skoraði. Jafntefli var staðreynd og
heimamenn drógu andann léttar enda
höfðu þeir sloppið með skrekkinn.
Framarar voru að sama skapi svekktir
að hafa misst stig til KA.
Leikurinn var mjög harður og varnir
beggja liða mjög sterkar mestan hluta
leikins. Sóknirnar voru hins vegar ekki
mikið augnayndi, fálmkenndar og mik-
ið af mistökum á báða bóga. Hjá KA
voru þeir Sergei Siza og Jóhann Jó-
hannsson bestir en liðið þarf að taka
Morgunblaðið/Golli
VALDIMAR Grímsson, þjálfari og leikmaður Stjörnunnar, var
maður leiksins á Seltjarnarnesi. Hann var allt í öllu, skoraði
12 mörk, mörg hver mjög glæsileg.
sig saman í andlitinu ætli það að
blanda sér í toppbaráttuna. Daði
Hafþórsson var mjög góður í síð-
ari hálfleik og hélt hann liðinu
inni í leiknum í upphafi síðari hálf-
leiks er hann gerði 4 glæsileg
mörk í röð, það var svo hann sem
skoraði síðasta mark þeirra. Oleg
Titov var einnig sterkur.
Grótta á botninum
Grótta steinlá á heimavelli,
25:30, á móti Stjörnunni.
Valdimar Grímsson, spilandi þjálf-
ari Stjörnunnar,
Höröur var maður leiksins.
Magnússon Hreint frábær leik-
skrifar ur hjá landsliðs-
manninum var allt
í öllu, skoraði 12 mörk, mörg hver
mjög glæsileg og lék félaga sína
uppi. Grótta var alls ekki sannfær-
andi og átti aldrei möguleika í
leiknum, þó að liðið fengi tæki-
færi til að komast inn í leikinn.
Sóknarleikur þess var á köflum
mjög ráðleysislegur og vörn og
markvarsla hafa oftast verið betri.
Til að mynda voru Stjörnumenn
tveimur færri í síðari hálfleik en
Gróttu tókst ekki að nýta sér það.
Þá fóru fjögur vítaköst í súginn.
Ljósið í myrkrinu var kornungur
hornamaður þeirra, Guðjón Valur
Sigurðsson, sem fór mikinn og
Stjörnumenn réðu illa við hann.
Júri Sadovski hefur oft leikið betur
en var reyndar í mjög strangri
gæslu gestanna. Breidd Gróttu
virðist vera lítil og „spútniklið“
deildarinnar í fyrra er í bullandi
fallhættu og með svona spila-
mennsku fer liðið beint niður.
Góður varnarleikur og mark-
varsla þeirra Axels Stefánssoar
og Ingvars Ragnarssonar ásamt
þætti Valdimars skópu sigurinn.
Gömlu KR-ingarnir Einar B. Árna-
son og Magnús A. Magnússon
voru gríðarlegur sterkir í vörn-
inni. Níu leikmenn Stjörnunnar
skoruðu í leiknum og þrátt fyrir
að missa Konráð Olavson út af
með rautt spjald um miðjan síðari
hálfleik misstu þeir aldrei tökin á
leiknum og unnu verðskuldaðan
sigur.
i