Morgunblaðið - 13.12.1996, Page 4
Áhangend-
um Skota
boðiðtil
Monaco
ÁHANGENDUR skoska
landsliðsins I knattspyrnu,
sem fylgdu liðinu til Tall-
inn í Eistlandi vegna fyrir-
hugaðs HM-Ieiks við
heimamenn í október sL,
geta séð leik þjóðanna í
Monaco 11. febrúar nk. sér
að kostnaðarlausu. Eins og
fram hefur komið mætti
Teitur Þórðarson, landsl-
iðsþjálfari Eistlands, ekki
með sina menn til leiks við
Skotana á tilsettum tima
þar sem leiknum hafði ver-
ið flýtt með skömmum
fyrirvara og var gestunum
dæmdur sigur. Alþjóða
knattspyrnusambandið,
FIFA, breytti þeirri
ákvörðun, ákvað að leikið
yrði í Monaco og tók á sig
allan kostnað vegna ferðar
Skota. í gær tilkynnti FIFA
að fyrrnefndum skoskum
áhorfendum yrði boðið til
Monaco. Þar sem um
heimaleik Eistlands er að
ræða halda Eistlendingar
sjónvarps- og auglýsinga-
rétti en heimamenn í
Monaco fá aðgangseyrinn
að frátöldum kostnaði.
PENINGAR
Alþjóða
frjálsíþrótta-
forystan
óánægð
Forráðamenn Alþjóðafijáls-
íþróttasambandsins (LAAF)
eru óhressir með hversu lítið sam-
bandið fær greitt frá Alþjóða-
ólympíunefndinni. Talið er að
Ólympíunefndin hafi greitt LAAF
um 536 milljónir króna. „Miðasal-
an í Atlanta gaf rúman fímm og
hálfan milljarð króna og þá eru
tekjur af sjónvarpsrétti ekki tald-
ar. Það er aðallega okkar fólk sem
heldur Ólympíuleikunum uppi en
Alþjóðaólympíunefndin heldur
peningunum. Bara þróunaráætlun
okkar kostar um 335 milljónir
króna árlega," sagði talsmaður
IAAF í gær.
IAAF fundar þessa dagana í
Mónakó og munu forráðamenn
sambandins væntanlega skýra frá
því í dag að verðlaunafé á vegum
sambandsins á næsta ári verði alls
um 670 milljónir króna, en LAAF
veitir peningaverðlaun á síðasta
stigamót ársins og HM innanhúss
og utanhúss. Enn á eftir að fínna
fyrirtæki sem er tilbúið að kosta
stigamótin en IAAF hefur lofað
að hver sá íþróttamaður sem setur
heimsmet á þeim fái um 7 milljón-
ir króna.
KORFUKNATTLEIKUR
Þrrframlengt í Boston
Reuter
ÞAÐ er fátt sem stöövar Michael iordan þegar hann er í ham
og Tom Gugliotta, leikmanni Minnesota, tókst ekki aö stööva
Jordan að þessu sinni.
að var hart barist í Boston þeg-
ar botnliðin í austurdeildinni
mættust, en Celtics tók á móti Tor-
onto Raptors og höfðu heimamenn
sigur eftir þtjár framlengingar.
Rick Fox setti niður þriggja stiga
skot um leið og klukkan gall og
tryggði Boston þar með 115:113
sigur í lengsta leik tímabilsins.
Þetta var í fyrsta sinn í nærri þijá-
tíu ár sem Boston leikur þrífram-
lengdan leik í deildinni. Fox gerði
24 stig fyrir Boston og David Wes-
ley 20 auk þess sem hann átti 10
stoðsendingar. Barros gerði 18 stig,
þar af 15 með þriggja stiga skotum.
Damon Stoudamire gerði 31 stig
fyrir gestina og átti 12 stoðsending-
ar.
Anthony Mason gerði 25 stig og
tók 21 frákast þegar Charlotte vann
Denver 101:97 og var þetta í fyrsta
sinn sem Mason nær því að gera
yfír 20 stig og taka yfír 20 fráköst
í sama leiknum.
Chicago, sem hafði tapað tveimur
leikjum í röð, sigraði Minnesota
103:86 og var Jordan með 27 stig
og Pippen gerði stigi minna, tók 9
fráköst og átti 8 stoðsendingar.
Rodman var í banni og virðist það
há meisturunum verulega. Gestirnir
höfðu 50:49 yfir í leikhléi en í upp-
hafí þess síðari gerðu meistaramir
10 stig gegn tveimur og brutu þar
með ísinn.
Kendall Gill sýndi George Karl,
fyrrum þjálfara sínum hjá Seattle,
að hann getur leikið vel og gerði
24 stig þegar Nets vann Super-
Sonics 110:101. Þetta var stærsti
sigur sem hinn ungi þjálfari Nets,
John Calipari hefur unnið til þessa.
„Þetta var góður sigur hjá okkur.
Við vorum að sigra lið sem ætlar
að beijast um meistaratitilinn,"
sagði Gill eftir leikinn.
Miami Heat virðist óstöðvandi
og í fyrrinótt sigraði liðið í tíunda
útileik sínum, lagði Philadelphia
76ers 84:79. Allen Iverson kom
heimamönnum í 79:78 þegar 38
sekúndur voru eftir en Tim
Hardaway kom gestunum yfír á
ný 12 sekúndum síðar og lék góða
vöm gegn Iverson sem hitti ekki
er 5,7 sekúndur vom til leiksioka.
Hardaway gerði 21 stig, átti 8
stoðsendingar og Mouming var
með 20 stig og 17 fráköst en Iver-
son gerði aðeins átta stig fyrir
heimamenn.
Chris Webber gerði 23 stig fyrir
Bullets og tók auk þess 11 fráköst
og átti sjö stoðsendingar er liðið
sigraði Cleveland 106:95. Washing-
ton hafði tapað fimm leikjum í röð
áður en liðið sigraði í fyrrinótt.
Juwan Howard gerði 25 stig en hjá
Cleveland gerði Terrell Brandon 28
og Chris Mills 21.
O’Neal gerði 33 stig fyrir Lakers
er liðið vann Indiana og nú hefur
LA forystu í Kyrrahafsriðlinum.
O’Neal tók tíu fráköst og hefur nú
tekið 4.005 í deildinni.
KNATTSPYRNA
Beckenbauer ætlar
að hreinsa loftið
Franz Beckenbauer, forseti Bay-
em Múnchen, ætlar að byija
nýtt ár með því að hreinsa loftið í
herbúðum Bayem Múnchen, sem
hefur verið spennuþmngið allt frá
því að Lothar Mattheáus og Júrgen
Klismann deildu á sl. keppnistíma-
bili.
Klinsmann hefur að undanfömu
ekki verið ánægður með leikaðferð
Bayem. „Það koma rúmlega sextíu
þúsund áforfendur á hvem heima-
leik okkar til að sjá okkur leika
sóknarleik, en við leikum vamarleik
fyrir þá. Það næst engin tenging á
milli miðvallarleikmanna og sóknar-
leikmanna. Ef þetta heldur svona
áfram er ég farinn frá Bayem 1.
júlí á næsta ári,“ sagði fyrirliði
þýska landsliðsins. Þá rennur út
samningur hans við Bayem.
Beckenbauer sagðist ætla að
funda með Klinsmann í byijun
næsta árs. „Ég mun fyrst ræða við
hann um ýmis mál sem hafa verið
að koma upp, síðan um knattspym-
una,“ sagði Beckenbauer.
■ GUNNAR Örn Gunnarsson
hefur verið ráðinn þjálfari 4. deild-
ariiðs Aftureldingar úr Mos-
fellsbæ. Gunnar hefur m.a. leikið
með og þjálfað hjá Víkingi og
Leikni. Hann tekur við af öðrum
fyrrum leikmanni Víkings, Lár-
usi Guðmundssyni sem þjálfaði
Mosfellinga á síðustu leiktíð.
■ SIGURBJÖRN Hjartarson
verður næsti þjálfari meistara-
flokksliðs Aftureldingar í knatt-
spymu kvenna en liðið féll í 2. deild
í haust eftir eins árs vem í 1. deild.
Sigurbjörn leysir Eirík S. Sigfús-
son af hólmi.
■ BERND Schuster, fyrmm
landsliðsmaður Þýskalands í knatt-
spymu, gekk í fyrradag til liðs við
UNAM frá Mexíkó. Schuster, sem
er 36 ára gamall, hefur komið víða
við á ferlinum og oftar en ekki far-
ið frá félögum sínum eftir deildur
við aðra leikmenn eða forráðamenn.
■ PORTÚGALIR hafa kallað á
Femando Nelson hjá Aston Villa
til að leika gegn Þjóðveijum á
laugardaginn í níunda riðli undan-
keppni HM. Hann kemur í landslið-
ið í stað Sergios Conceicaos sem
meiddist á æfingu.
■ BÚLGARSKI Iandsliðsmaður-
inn Ludoslav Penev, sem hefur
átt í útistöðum við búlgarska
knattspyrusambandið, gaf ekki kost
á sér í leik gegn Kýpur í undan-
keppni HM, sem fer fram á morgun.
■ PATRICK Kluivert, miðheiji
Ajax, leikur sinn fyrsta landsleik í
langan tíma fyrir Holland, þegar
Hollendingar mæta Belgum á
morgun.
■ DANIR taka þátt í keppninni
um Bandaríkjabikarinn, sem fer
fram í janúar. Landslið Bandaríkj-
anna, Mexíkó og Ptrú taka einnig
þátt í keppninni.
■ JAN E. Jörgensen, landsliðs-
maður Dana í handknattleik, hefur
gert nýjan samning við þýska liðið
Flensburg-Handewitt. Samning-
urinn er til 30. júní 1998.
■ FERNANDO Hierro, miðvall-
arleikmaður Real Madrid, getur
ekki leikið með Spánveijum gegn
Júgóslövum, vegna meiðsla á hné.
Josep Guardiola eða Miguel Ang-
el Nadal, leikmenn með Barcel-
ona, eru líklegir til að taka stöðu
Hierros, sem hefur verið í byijun-
arliði Spánverja í sex ár.
■ ATLETICO Madrid er tilbúið
að kaupa Jonathan Akpoborie frá
þýska liðinu Hansa Rostock. Liðið
er tilbúið að borga 335 millj. ísl. kr.
fyrir Nigeríumanninn, sem hefur
skorað tíu af nítján mörkum
Rostock í þýsku 1. deildarkeppninni.
Ginola ekki
undir stýrið
KEVIN Keegan, knattspyrnu-
stjóri Newcastle, sló í gær á
allt tal um að franski Ieikmað-
urinn David Ginola myndi
prufuaka Reault Laguna kapp-
akstursbíl í næstu viku, er hann
sagði: „Á meðan Ginola er
samningsbundinn New-
castle.mun hann ekki aka kapp-
akstursbifreið. Mér er sama
hvað hann gerir þegar samn-
ingurinn er úti.“
Ginola hefur iátið hafa eftir
sér að hann hafi hug á að ger-
ast kappakstursmaður. Honum
er boðið til Frakklands í næstu
viku, til prufuaksturs ásamt
svissneska akstursmanninum
Alain Menu.