Morgunblaðið - 17.12.1996, Page 1

Morgunblaðið - 17.12.1996, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1996 ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER BLAD HANDKNATTLEIKUR VINNINGSTOLUR MIÐVIKUDAGINN Viggó vill fáGeir VIGGÓ Sigurðsson, þjálfari þýska liðsins Wuppertal, hefur mikinn áhuga á að fá landsliðsfyrirliðann Geir Sveinsson til félagsins.Viggó sagði að hann hefði rætt við Geir og vonaðist til að hann kæmi og liti á aðstæður hjá félaginu strax eftir áramótinu. „En það er ekki búið að skrifa undir neina samn- inga eða neitt í þeim dúr. Við höfum áhuga á að fá Geir og hann vill leika í Þýskalandi. Hann myndi leysa tvö vandamái fyrir okkur. Línumaðurinn okkar er ekki mjög sterkur og þar yrði Geir góður og svo auðvitað í vöm- inni, þar erum við með 36 ára gamlann Rússa sem Geir myndi leysa af,“ sagði Viggó. Viggó og félagar í Wuppertal unnu Diisseldorf, 27:21, á sunnu- daginn og er iiðið nú eitt í efsta sæti norðurriðli 2. deildar, hefur 26 stig en Rostock og Schwartau em með 24 stig og næstu Iið þar á eftir með 18. Dímítrí Filippov gerði 6 mörk, Ólafur Stefánsson 5 og Dagur Sigurðsson 4. í leik á dögunum, sem Wuppertal vann 39:19, gerði Filippov 14 mörk og sagði Viggó hann í miklum ham þessa dagana. „ Auðvitað langar Geir að leika í fyrstu deildinni hér og það hljóta fleiri lið en okkar að hafa áhuga á að fá hann. Ég get þvi miður ekki enn lofað því að við leikum í fyrstu deild næsta vetur því við eigum erfiða leiki eftir,“ sagði Viggó. Atján lið em í hvomm riðli 2. deildar. Efsta lið hvors riðils fer beint upp í 1. deild en liðin sem verða í öðm sæti leika heima og að heiman um réttinn til að leika við það lið sem verður í þriðja neðsta sæti 1. deildar. „Ef við lendum í þessu er það mjög slæmt fyrir landsliðið þvi síðasti leikur- inn er ekki fyrr en 16. maí og HM í Japan hefst daginn eftir,“ sagði Viggó. AÐALTÖLUR Gullstúlkurnar samar vid sig Nordfoto DÓIMSKU ólympíumeistararnir í handknattleik bœttu enn einni rósinni í hnappagatió um helgina með því að verja Evrópumeistaratitillnn eftir sigur á Norðmönnum í úrsiitalelk mótsins, 25:23. Hér er Janne Kolling með verðlaunaskjöldlnn og vlð hllð hennar stendur Camille Andersen. SKIÐI Kristinn sló silfur- hafanum frá ÓL við íífl í'toi mu; uni ÓT3. njjfl Kristinn Björnsson frá Ólafsfirði er heldur betur að ná sér á strik í skíðabrekkunum í Evrópu. Á laugardaginn sigraði hann í alþjóð- legu svigmóti í Hoch Ybrig í Sviss og sló þar m.a. við frægum köppum úr heimsbikamum. Hann hlaut 12,31 FlS-stig sem er besti árangur hans til þessa. Kristinn hafði mikla yfírburði í sviginu og fór báðar ferðimar á sam- tals 1.32,23 mín. og var rúmum tveimur sekúndum á undan Juha Javi frá Finnlandi sem varð annar. Silvan Beitrametti frá Sviss varð þriðji og Urs Kaelin, sem vann m.a. silfurverðlaun í stórsvigi á Ólympíu- leikunum í Lillehammer og hefur verið á meðal fremstu manna í heimsbikarnum undanfarin ár, varð fjórði. Kristinn er nú kominn með 13,15 FlS-stig á alþjóða styrkleika- listanum, en tvö bestu mótin gilda. Miðað við síðasta heimslista gefur þessi árangur hans sæti í kringum 45 á heimslistanum sem er besti árangur sem íslenskur skíðamaður hefur náð í svigi. Á sunnudag náði Arnór Gunnars- son frá ísafirði 6. sæti í svigi á sama stað. Kristinn fór út úr brautinni í fyrri umferð og hætti. Arnór hlaut 23 FlS-stig og er það besti árangur hans til þessa. Kristinn og Arnór keppa báðir í svigi heimsbikarsins sem fram fer í Madonna di Campiglio á Ítalíu í dag. Kristinn Björnsson. AFREK / C2 Gunnar með tilboð frá Roda JC GUNNAR Einarsson, knatt- spyrnumaður úr Val, er með tilboð frá hollenska liðinu Roda JC. Félagið hefur náð samkomulagi við Gunnar um tveggja ára samning, en verið er að ganga frá samningum við Val um félagaskiptin. Gunnar er tvítugur og hef- ur verið fastamaður f U-21 árs landsliðinu í síðustu leikj- um. Hann lék í vörainni lyá Val í sumar og vakti athygli fyrir góðan leik á fyrsta ári sínu í 1. deild. Hann fór til Roda JC eftir keppnistimabil- ið hér heima og hefur æft með liðinu síðan. Hann hefur leikið tvo leiki með aðalliðinu og stóð sig það vel að félagið vffl nú semja við hann. Gunn- ar kemur heim fyrir jóiin en fer með liðinu í æfingabúðir til Kanaríeyja eftir áramótin. UPPLYSINGAR ► Tveir af fjórum bónusvinningunum i laugardagslottoinu voru keyptir i Happahúsinu í Reykjavik. Hinir voru keyptir i bensin og veitingasölunni i ! Stykkishólmi og Blönduskálanum Blönduosi. Lottospilurunum er bent a ad þeir geta nálgst allar upplýsingar um úrslit leikja Islenskrar getspár i grœnu símnnúmeri: 800 6511, en einnig í sima 568 1511 KNATTSPYRNA: HELGISIGURÐSSON AFTUR í FRAM / C3

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.