Morgunblaðið - 17.12.1996, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 17.12.1996, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996 C 3 ÍÞRÓTTIR SUND KNATTSPYRNA — Völker fékk fimm gullverðlaun ýska stúlkan Sandra Völker sigraði í fimm greinum á Evr- ópumótinu í 25 metra laug sem lauk í Rostock í Þýskalandi á sunnudaginn. Síðasta gullpening- inn fékk hún þegar hún tryggði þýsku kvennasveitinni sigur í 4x50 metra fjórsundi og synti sveitin á besta tíma sem náðst hefur í heim- inum. Þjóðveijar sigruðu í 14 grein- um af 38, hlutu einnig 14 silfur- verðlaun og 11 brons, eða alls 39 verðlaunapeninga og eru óneitan- lega sigurvegarar enda komu Bret- ar næstir með tiu verðlaunapen- inga. Marcel Wouda, Hollendingurinn hávaxni, hlaut einnig fimm gull- verðlaun, krækti í þau síðustu með öruggum sigri í 400 metra fjór- sundi, var rúmum fjórum sekúnd- um á' undan næsta manni. „Ég hélt mig væri að dreyma," sagði hann eftir sigurinn. Hin átján ára gamla sænska stúlka Johanna Sjöberg stóð sig vel á mótinu en varð að játa sig sigraða í 200 metra flugsundi er Barbara Franco frá Spáni kom fyrst að bakkanum og varð fyrst spænskra kvenna til að sigra í ein- staklingsgrein á EM. Sjöberg setti tvö Evrópumet, í 50 og 100 metra flugsundi. Breska stúlkan Susan Rolph synti 200 metra fjórsundið mjög vel og jafnaði tíma Petru Schneider frá því í janúar 1982. Hún fær árangur sinn samt ekki skráðan sem Evrópumet þvi árangur Schneider er ekki talið Evrópumet, heldur kallað „staðlaður tími“, og því verður ekkert Evrópumet skráð í greininni fyrr en einhver syndir á betri tíma. Sem sárabót var árangur Rolph talinn besti árangur konu á mótinu, þrátt fyrir frábæran árangur Völker, og fékk hún leður- jakka að gjöf frá mótshöldurum. Rolph sagði við verðlaunaaf- hendinguna að hún hefði „stolið" jakkanum frá Völker en sú þýska sagðist hafa keypt sér Ieðuijakka áður en hún kom á mótið og þyrfti ekki annan og því mætti Rolph eiga þennan. Islandsmet í Rostock FJÖGUR íslandsmet voru sett á Evrópumeistaramótinu i sundi i 25 m laug, í Rostock á sunnudag- inn. Hjalti Guðmundsson setti met í 200 m bringusund, synti á 2.18,4 mín. Gamla metið átti Eðvarð Þór Eðvarðsson, 2.18,23, mín., sett í Aberdeen 1987. Hjalti var 0,4 sek. frá meti í 100 m bringusundi, synti á 1.03,95 sek. Ríkharður Ríkharðsson setti met í 50 m skriðsundi, 23,51 sek. Gamla metið átti Magnús Már Ólafsson, 23,54 sek., sett í Bonn 1991. Eydís Konráðsdóttir setti met í 50 m baksundi, 30,37 sek. Hún átti sjálf gamla metið, 30,83 sek., sett í Finnlandi 1995. Eydís var aðeins einni sek. frá því að setja met í 100 m baksundi, synti á 1.05,17 mín. Henni mistókst í fyrsta snúningi, þannig að metið féllekki. Örn Arnarson setti piltamet í 50 m baksundi, 28,13 sek. Örn átti sjálfur gamla metið, sem hann setti á föstudaginn — 28,30 sek. Hann setti metið í 4x50 m fjórsundi - sveitin synti á 1.47,15 mín., sem er landsveitamet. Gamla metið var 1.47,90 mín., sett 1987 í Aberdeen. Helgi aftur í Fram en ísland ekki endastöð Helgi Sigurðsson er hættur hjá Borussia Berlin í 3. deild í Þýskalandi og kom heim um helg- ina í þeim tilgangi að æfa með Fram og spila með liðinu næsta tímabil. Hann lék með því 1994 og fór til Þýskalands eftir það. „Mér leið vel í Fram og ég veit að hverju ég geng þar,“ sagði Helgi. „Ég er spenntur að leika hér heima í sum- ar og reyni að standa mig.“ Helgi sagði við Morgunblaðið að hann hefði verið óánægður með nýja þjáifarann hjá Berlin. „Ýmis- legt kom upp á en útslagið gerði að hann vildi láta mig leika á miðj- unni en ég vildi það ekki, vildi ekki drepa hæfileikana sem miðheiji og fórna þannig ferlinum. Liðið er ekki í baráttu um að komast upp og því var ekkert mál að losna undan samningnum sem annars gilti út tímabilið 1998. Besta lausn- in í stöðunni var að koma heim en ísland er engin endastöð og ég gef atvinnumennsku ekki upp á bát- inn.“ Popescu með þrennu fyrir Rúmena í Skopie GHEORGHE Popescu skoraði þrjú mörk þegar Rúmenar lögðu lið Makedóníu að velli í Skopje í Makedónfu í undan- keppni HM, 0:3. Rúmenar réðu gengi leiksins og ekki kom að sök þó að þrír lykilmenn léku ekki, Gheorghe Hagi, llie Dumi- trescu og Adrian llie. Nokkrir leikir voru leiknir í und- ankeppni HM og var leikur nágrannana Belgíu og Hollands í sviðsljósinu. Hollendingar voru ósparir á yfirlýsingar fyrir leikinn - sögðust vera með betra lið en Belgíumenn og ætluðu sér sigur. Þeir stóðu við stóru orðin, skelltu Belgíumönnum í Brussel, 0:3. Dennis Bergkamp kom þeim á bragðið á 25. mín., þegar rang- stöðuleikaðferð Belga brást. Clar- ence Seedorf þrumaði knettinum upp undir þaknetið á marki Belga, aðeins fjórum mín. síðar. Þriðja markið skoraði Wim Jonk á loka- mín. leiksins, úr vítaspyrnu, sem dæmd var á Philippe Albert. Belgíumenn léku tíu nær allan seinni hálfleikinn, þar sem Pascal Renier var rekinn af leikvelli eftir brot á Ronald de Boer á 49. mín. Hollendingar gátu hæglega unnið stærri sigur, þeir fóru illa með nokkur upplögð marktækifæri. „Belgíumenn eru með sterkt lið, við náðum að skora á réttum tíma - tvö mörk með stuttu millibili," sagði Guus Hiddink, þjálfari Hol- lands. „Með þessum sigri höfum við stigið mikilvægt skref í áttina til Frakklands, þar sem heimsmeist- arakeppnin fer fram 1998,“ sagði Ronald de Boer, miðheiji Hollands. Guardiola hetja Spánverja. Josep Guardiola, sem hefur háð harða baráttu um að halda sæti sínu í liði Barcelona og spánska landsliðinu, var hetja Spánveija í Valencia, þar sem þeir unnu Júgó- slava, 2:0. Hann skoraði fyrra mark Spánveija úr vítaspyrnu og lagði upp seinna markið, sem Raul Gonz- alez skoraði. Guardiola fékk tækifæri til að leika með Spánveijum þegar ljóst var að Fernando Hierro léki ekki vegna meiðsla. „Þetta var góður sigur, en við eigum eftir að leika í Júgóslavíu," sagði Javier Clemente, landsliðsþjálfari Spánveija, sem eru nú komir til Möltu, þar sem þeir leika á morgun. Jafnt í Lissabon Portúgal og Þýskaland gerðu jafntefli í Lissabon, 0:0. Þjóðveijar voru sterkari til að byija með, en í seinni hálfleik forðaði Andreas Köpke þeim frá tapi, er hann varði meistaralega skot frá Joao Vieira Pinto. „Við lékum mjög vel í seinni hálfleik, en náðum ekki að nýta okkur það,“ sagði Artur Jorge, þjálfari Portúgals. tjóðveijar áttu að fá vítaspyrnu - ungverski dóm- arinn Sandor Puhl sá ekki ástæðu til að dæma vítaspyru, er Carlos Secretario braut á Fredi Bobic inn- an vítateigs. „Ég er ánægður með jafnteflið," sagði Berti Vogts, þjálfari Þjóð- veija. „Við fengum tækifæri til að skora í fyrri hálfleik, en í seinni hálfleik sýndu Portúgalar að þeir eru með sterkt lið.“ Krassimir Balakov, leikmaður með Stuttgart, skoraði tvö mörk fýrir Búlgaríu sem vann Kýpur, 3:1. Ian Dowie skoraði bæði mörk N-írlands gegn Albaníu í Belfast, 2:0. Dowie, sem hefur ekki náð að skora fýrir West Ham í vetur, var óheppinn að bæta ekki þriðja mark- inu við - átti skalla, sem hafnaði á stöng. „Þetta var sigur liðsheild- arinnar. Það var mjög þýðingarmik- ið fyrir okkur að skora fljótlega í leiknum," sagði Dowie, sem skoraði fýrra markið eftir tólf mín. og bætti síðan marki við níu mín. síðar. MANNVIRKI / LAUGARDALSVÖLLUR Jóhann ráðinn JÓHANN G. Kristinsson, fram- kvæmdastjóri knattspyrnudeildar Fram, var í gær ráðinn umsjónar- maður Laugardalsvallar og tekur hann við starfinu 1. janúar nk. en þá yfirtekur KSÍ rekstur vall- arins. Sérstök rekstrarnefnd sér um reksturinn en í henni eru Eggert Magnússon formaður, Elías Her- geirsson gjaldkeri og Eggert Steingrímsspn frá KSÍ, Omar Ein- arsson frá ÍTR og Reynir Ragn- arsson frá ÍBR. Eggert Magnús- son sagði að ráðningin hefði verið fyrsta verk nefndarinnar enstarf- ið félli undir skrifstofu KSÍ. „Jó- hann hefur haft mikil samskipti við Laugardalsvöll sem fram- kvæmdastjóri knattspyrnudeildar Fram í fjöldamörg ár og þekkir þessa starfsemi út og inn.“ Jóhann hefur verið hjá Fram undanfarin 13 ár. „Ég hcf þjón- ustað grasrótina en þetta er á svolítið öðrum vettvangi þar sem um þjónustu við hreyfinguna er að ræða,“ sagði Jóhann. „En þetta er spennandi starf og gaman verður að takast á við það.“ Morgunblaðið/Golli JÓHANN G. Kristinsson og Eggert Magnússon í Baldurshaga á Laugardalsvelli eftir aA gengið var frá ráðningunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.