Morgunblaðið - 17.12.1996, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996 C 5
KÖRFUKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Golli
SHAWN Smith hjá Haukum var illviðráAanlegur í Seljaskóla á sunnudag-
inn. Hér reyna Gísli Hallsson og Daði Slgurþórsson að stöðva hann.
Rodman kom
endumærður
Chris Webber náði þrefaldri
tvennu er Washington Bullets
lagði Golden State 110:102 á sunnu-
dagskvöldið. Hann skoraði 19 stig,
tók 12 fráköst og átti 10 stoðsend-
ingar. Rod Strickland gerði 22 stig
auk þess að eiga 15 stoðsendingar
og Juwan Howards gerði 20 stig.
„Eg fékk góða aðstoð,“ sagði Web-
ber að leikslokum. Latrell Sprewell
var stigahæstur í liði Golden State
með 43 og hefur aldrei gert fleiri
stig í einum leik á ferlinum. „Yið
studdum ekki nógu vel við bakið á
Sprewell í leiknum,“ sagði Chris
Mullin. „Við lékum ekki eins góðan
varnarleik og við getum best,“ bætti
hann við.
í Portland sigraði Houston liðið í
sínum 21. leik á leiktíðinni og breytti
engu þó Charles Barkley væri ekki
með. Hakeem Olajuwon og Clyde
Drexler fundu sig vel og bættu upp
missi Barkleys. Lokatölur 99:89 og
skoraði Olajuwon flest stig Houstons
26 og tók 10 fráköst og Drexler
gerði 22 stig. Kenny Anderson var
stigahæstur heimamanna með 26
stig auk þess að senda tíu stoðsend-
ingar og Arvydas Sabonis var með
18 stig og 9 fráköst í fimmta tap-
leik Portland í röð.
Robert Horry gerði 19 stig er
Phoenix lagði Vancouver 103:84, en
þetta var sjötti sigurleikur Phoenix
í röð. Kevin Johnson var með 16 stig
og 12 stoðsendingar. Lið Vancouver
hefur ekki náð sér að strik, en þetta
var 12 tapleikur þess í síðustu 13
Ieikjum. Shareef Abdur-Rahim var
atkvæðamestur hjá Vancouver með
28 stig og 14 fráköst.
Seattle engin hindrun
Lið Seattle var Houston lítil fyrir-
staða er félögin mættust á sunnu-
dagskvöldið. Að þessu sinni lék
Charles Barkley stórt hlutvek í sigr-
inum, gerði 26 stig og tók 15 frá-
köst. Clyde Drexler skoraði 23 stig.
Hakeem Olajuwon var fremur róleg-
ur gerði aðeins 9 stig og tók 10 frá-
köst. Þetta var um leið fyrsti sigur
Houston á Seattle síðan 17. apríl
1993. „Við lékum vel og þetta var
mikilvægur áfangi á tímabilinu,"
sagði Barkley. Shawn Kemp var
stigahæstur í liði Seattle með 28
stig og tók jafnframt 10 fráköst og
Gary Payton var með 16 stig og 5
stoðsendingar.
Dennis Rodman kom endurnærð-
ur til leiks á ný á sunnudagskvöldið
eftir tveggja leikja hvíld vegna aga-
vandamála og tók 23 fráköst er
Chicago lagði Charlotte 87:82 á
heimavelli. Eins og svo oft áður fór
Michael Jordan fyrir sínum mönnum
og skoraði 29 stig. Matt Geiger fór
mikinn fyrir Charleotte í ijórða leik-
hluta og gerði þá 18 af 20 stigum
sínum í leiknum. „Við vorum heppn-
ir að þessu sinni. Engu mátti muna
að Geiger ynni leikinn fyrir þá,“
sagði Jordan að leikslokum en hann
var ánægður að hafa fengið Rodman
til baka í góðu formi. „Hann lék vel
og hafði góð áhrif á liðið auk þess
sem hann hélt Anthony Mason vel
niðri,“ sagði Jordan ennfremur.
ÍR fór of fljótt í jólafrí
IR-ingar voru ekki með sjálfum sér
er þeir tóku á móti Haukum í 11.
og síðustu umferð fyrri umferðarinnar
í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik. Það
var eins og æsispenn-
andi leikur á fimmtu-
daginn við Keflavík
sæti enn í leikmönnum, eða þá að jóla-
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
spenningurinn hafði náð tökum á IR-
liðinu. Haukar léku reyndar ágætlega,
nokkuð fast á köflum, og átti ekki í
minnstu erfiðleikum með að sigra.
Hafnfirðingar gerðu 95 stig gegn 78
stigum heimamanna.
Það var strax ljóst í hvað stefndi.
ÍR-ingar voru heinlega ekki með.
Skot þeirra voru hræðileg og mörg
hver langt frá körfuhringngum. Ekki
tók betra við þegar boltinn kom úr
spjaldinu eða af körfuhringnum því
þar voru Haukar allsráðandi, tóku 50
fráköst en ÍR aðeins 25.
Þegar staðan var 6:15 og fimm
mínútur liðnar af leiknum fór Sigfús
Gizurarson útaf með fjórar villur, sum-
ar hveijar ansi ódýrar, og töldu menn
að þá vænkaðist hagur IR því Sigfús
er góður varnarmaður og hafði séð
til þess að Tito Bakar hafði ekki gert
eitt einasta stig. Baker fór að skora
en aðrir leikmenn voru við sama hey-
garðshornið og fyrr. Hittu aldrei.
Síðari hálfleikur var mun betri en
sá fyrri, a.m.k. jafnari og forystan sem
Haukar höfðu náð fyrir hlé, 36:57,
dugði til leiksloka. ÍR saxaði örlítið á
forskotið en allt kom fyrir ekki. Jól-
afríið var tekið of snemma.
Baker var allt í öllu hjá ÍR, Eggert
hitti vel og hefði mátt skjóta mun
meira og Márus kom sterkur inn, hefði
að ósekju mátt koma fyrr inná. Hjá
Haukum var Smith illviðráðanlegur í
annars mjög jöfnu liði. Smith lék í
16 mínútur í fyrri hálfieik og tók þá
12 fráköst og gerði 21 stig.
Skalla-
grímur
sterkarí
íbotn
slagnum
Breiðablik eitt án án
stiga á botninum
Við erum á grænni grein ef við
höldum áfram að leika eins og
við gerðum hér í kvöld," sagði Terry
Robert Upshaw,
Theodór þjálfari Skaliagríms
Þórðarson eftir 94:65 stiga sig-
skrifar ur heimamanna yfir
liði Breiðabliks.
„Mér finnst liðið vera á réttri ieið
núna og það er gott að fara heim í
jólafríið með sigur í farteskinu. Eg
vona bara að við höldum áfram á
þessari braut og þá verðum við erfið-
ir andstæðingar fyrir hvaða lið sem
er í deildinni,“ sagði þjálfarinn
„Þetta er erfiður völlur heim að
sækja og þeir tóku fast á okkur“,
sagði Birgir Guðbjörnsson þjálfari
Breiðabliks eftir leikinn. „Við vorum
án tveggja okkar bestu manna í
kvöld og það var því kannski ekki
við miklu að búast. Það er bara að
vona að við náum að endurskipu-
leggja okkar hluti fyrir seinni um-
ferðina og koma sterkari til leiks
eftir jólafríið,“ sagði Birgir.
Heimamenn byijuðu leikinn af
miklum krafti og náðu fljótlega yfir-
höndinni. En erlendi leikmaður Blik- -
anna, Andre Bowain, sá þó til þess
að halda Blikunum inni í leiknum.
Var hann allt í öllu hjá liðinu og
skoraði alls 20 stig í fyrri hálfleik
og 13 í þeim síðari. Var það honum
að þakka að munurinn var ekki
nema 13 stig, 44:31 fyrir heima-
menn í leikhlé.
Eftir leikhié tókst Sigmari Egils-
syni að taka Andre Bowain nánast
úr umferð og þó að leikmennirnir,
Einar Hannesson og Einar Bjarna-
son tækju við sér í seinni hlutanum
hjá Blikunum nægði það engan veg-
inn til að jafna metin.
Hjá heimamönnum áttu þeir
Curtis Raymond, Bragi Magnússon
og Tómas Holton mjög góðan leik.
Alls skoraði Curtis Raymond 37 stig
í leiknum og þar af tróð hann boltan-
um margoft í körfuna við mikil
fagnaðarlæti áhorfenda sem voru
orðnir langeygir eftir sigri sinna
manna.
Ekkert lið taplaust
í riðlakeppninni
Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í
körfuknattleik lauk í síðustu viku
og fimmtudaginn 9. janúar hefst næsta
stig keppninnar, sem er einnig riðla-
keppni þar sem fyrri riðlum er blandað
saman. Keppnin í ár hefur verið spenn-
andi og jöfn og athygli vekur að ekkert
lið komst taplaust í gegnum riðlakeppn-
ina.
Keppt var í fjórum riðlum, A, B, C og
D, og á næsta stigi verður einnig keppt
í fjórum riðlum. Þrjú efstu liðin í A-riðli
fara í E-riðil ásamt þremur neðstu liðum
B-riðils. í F-riðil fara þijú efstu lið B-rið-
ils og þijú neðstu úr A-riðli. Á sama
hátt verður liðum úr C og D-riðli raðað í
G og H-riðil.
Hvert lið í riðlinum leikur sex leiki,
heima og að heiman við þau þijú lið sem
koma úr hinum riðlinum, en úrslitin úr
leikjum liðanna sem koma úr sama riðli
eru látin standa.
Þetta er nýtt kerfi í keppninni og virð-
ist það ætla að gefast vel því þó lið telji
sig „óheppin“ með riðil fær það annað
tækifæri til að sanna sig og þegar upp
er staðið ættu bestu liðin að komast í
lokakeppni fjögurra liða í Róm í april.
í E-riðli leika því Stefanel Milan frá
Ítalíu, CSKA Moskva frá Rússlandi,
Maccabi Tel Aviv frá ísrael, Alba Berlín
frá Þýskalandi, Olympiakos frá Grikk-
landi og Charleroi frá Belgíu.
Ef við tökum dæmi þá mun Milan leika
heima og heiman við Álba Berlín, Olymp-
iakos og Charleroi en úrslit leikja liðsins
við CSKA Moskvu og Maccabi Tel Aviv
úr A-riðlinum standa.
F-riðill verður skipaður Teamsystem
Bologna frá Ítalíu, Estudiantes Madrid
frá Spáni, Cibona Zagreb frá Króatíu,
Ulker Spor frá Tyrklandi, Limoges frá
Frakklandi og Panionios frá Grikklandi.
í G-riðli verða Panathinaikos frá Grikk-
landi, Ljubljana frá Slóveníu, Villeur-
banne frá Frakklandi, Pau-Orthez frá
Frakklandi, Sevilla frá Spáni og Dynamo
Moskva frá Rússlandi.
H-riðill verður því skipaður Efes Pilsen
frá Tyrklandi, Partizan Belgrad frá Júgó-
siavíu, Kinder Bologna frá Italíu, Barcel-
ona frá Spáni, Split frá Króatíu og Bayer
Leverkusen frá Þýskalandi.
A-RIÐILL
Stefanel Milan (Ítalíu).......................10 7 3 17
CSKA Moskva (Rússl.)..........................10 6 4 16
Maccabi Tel Aviv (ísrael).....................10 6 4 16
Ulker Spor (Tyrkl.)...........................10 4 6 14
Limoges (Frakkl.).............................10 4 6 14
Panionios (Grikkl.)...........................10 3 7 13
B-RIÐILL
Teams. Bologna (Ítalíu)......................10 7 3 17
Estudiantes Madríd (Spáni)...................10 6 4 16
Cibona Zagreb (Króatíu)......................10 6 4 16
Alba Berlin (Þýskal.)........................10 6 4 16
Olympiakos (Grikkl.).........................10 5 5 15
Charleroi (Belgíu)...........................10 0 10 10
C-RIÐILL
Panathinaikos (Grikkl.)......................10 8 2 18
Ljubljana (Slóveníu).........................10 7 3 17
Villeurbanne (Frakkl.).......................10 7 3 17
Barcelona (Spáni)............................10 4 6 14
Split (Króatíu)..............................10 4 6 14
Leverkusen (Þýskal.).........................10 0 10 10
D-RIÐILL
Efes Pilsen (Tyrkl.)..........................10 8 2 18
Partizan Belgrade (Júgósl.)...................10 6 4 16
Kinder Bologna (Ítalíu).......................10 5 5 15
Pau-Orthez (Frakkl.)..........................10 5 5 15
Sevilla (Spáni)..............................10 4 6 14
Dynamo Moscow (Rússl.).......................10 2 8 12