Morgunblaðið - 17.12.1996, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.12.1996, Blaðsíða 8
KNATTSPYRNA Robbie Fowler braut 100 marka múrinn ÞEGAR Robbie Fowlervar ungur drengur átti hann sér þann draum að leika í blárri peysu Everton og skora mikið af mörkum. Nú er Fowier 22 ára og draumurinn um að skora hefur orðið að veruleika - hann hefur skorað yfir hundrað mörk, en ekki fyrir Everton, heldur í rauðri peysu Liverpool. Fowler var heldur betur á skotskónum gegn Middlesbrough. Hann skoraði fjögur mörk í 5:1 sigri, það fyrsta eftir aðeins 27 sek. og annað markið hans var 100. markið fyrir Liverpool. Þessi mikli markvarðahrellir hefur skorað 102 mörk fyrir Mersey- liðið í 165 leikjum. Steve MeManaman, sem lagði upp þriðja mark Fowlers, var einnig aðdáandi Everton á yngri árum. Þeir voru keyptir til Liver- pool er þeir voru skólastrákar og eru lykilmenn í liði Roy Evans, knattspymustjóra, sem vonast til að geta stýrt Liverpool til sigurs í meistarabaráttunni, þannig að Englandsmeistaratitlinn komi til Anfíeld Road í fyrsta skipti í sjö ár, síðast varð liðið meistari 1990. Fowler var þá skólastrákur. Þess má geta að Fowler sló met Ians Rush, sem náði að skora hundrað mörk fyrir Liverpool í 166 leikjum. Fowler skoraði fyrsta markið eftir sendingu frá Stan Collymore, sem lék með liðinu á ný þar sem Tékkinn Patrik Berger var veikur - með flensu. Collymore gerði bet- ur, hann átti þátt í fjórum af fimm mörkum Liverpool. „Það eru fáir betri en Collymore, þegar hann er f essinu sínu. Hann hefði ekki leik- ið í dag, ef Berger hefði ekki verið veikur. Collymore lék gegn Midd- lesbrough, eins og hann lék best fyrir okkur í fyrra,“ sagði Evans. Leikmenn Wimbledon, sem hafa leikið 19 leiki í röð án taps, lögðu Blackbum að velli, 1:0, á Selhurst Park. Blackburn hafði ekki tapað fímm leikjum í röð fyrir leikinn. Það var varamaðurinn Dean Holdsworth sem skoraði sigur- markið fimm mín. fyrir leikslok. Gengi Wimbledon-liðsins, sem hef- ur leikið mjög góða knattspymu í vetur, er frábært. Wimbledon, sem er stofnað 1889, varð ekki deildarl- ið fyrr en 1977. 1983 lék liðið 22 leiki í röð án taps í 4. deild og nú, 1995, er Wimbledon með í meist- arabaráttunni. Leeds og Tottenham gerðu jafn- tefli á Elland Road, 0:0. Tottenham var nær sigri - tvisvar hafnaði knötturinn á tréverkinu á marki Leeds, eftir skalla frá Ruel Fox og David Howells. Chelsea, sem hefur leikið fimm leiki án sigurs, mátti þola tap fyrir Sunderland, 3:0. Chelsea fagnaði síðast sigri 2. nóvember, á Man- chester United á Old Trafford. ÞEIR þóttust vera aft horfa á úr sín, til aft sjá hvaft það tók Fowler langan tíma tll aft skora. Reuter ROBBI Fowler fagnar eftlr aft hann skoraðl sitt fjórða mark. Á litu myndinni bergftur hann og Steve McManaman á leik, eftir aft Fowler skoraði fyrsta marklft - eftlr afteins 27 sek. ■ GUÐNI Bergsson skoraði fyrir Bolton gegn Ipswich, en það dugði ekki tii sigurs, þar sem leikmenn Ipswich skomðu tvö mörk, sigur- markið tveimur mín. fyrir leikslok. Bolton tapaði fyrsta leik sínum á heimavelli í vetur. Bolton hefur leikið sjö leiki í röð án sigurs. ■ MARTIN Aldridge skoraði þtjú mörk fyrir Oxford á fimmtán mín. þegar liðið lagði Sheffield Utd. 4:1. ■ ROBERTO Baggio hefur hug á að yfírgefa herbúðir AC Milan. Baggio er ekki yfír sig hrifínn af þjálfaranum Arrigo Sacchi, sem setti hann út úr ítalska landsliðinu fyrir EM í Englandi sl. sumar. ■ ÞEGAR Sacchi var spurður um yfírlýsingar Baggio, að hann væri á förum frá AC Milan, sagði hann: „í þau 23 ár sem ég hef verið þjálf- ari, hef ég ekki lagt það í vana minn að munnhöggvast við leik- menn. Vinátta okkar Roberto verð- ur áfram sú sama.“ ■ SÆNSKI þjálfarinn Sven Gor- an Eriksson verður næsti knatt- spyrnustjóri Blackburn. Eriksson, sem er þjálfari Sampdoria, tekur við stjórninni í júlí. Tony Parkes mun stjórna liðinu út þetta keppnis- tímabil. ■ ERIKSSON skri/aði undir þriggja ára samning. Árslaun hans hjá Blackburn verða um 176 millj. ísl á ári ■ ERIKSSON hóf þjálfaraferil sinn hjá IFK Gautaborg, síðan hefur hann þjálfað Benfica (tvisv- ar), Roma og Fiorentina. Hann hefur þjálfað Sampdoría sl. fímm ár. ■ SEBASTIAN Rozental, lands- liðsmiðherji Chile, hefur gert þriggja ára samning við Glasgow Rangers. Liðið borgaði Uni- versidad Catolica 402 millj. ísl. kr. fyrir þennan 20 ára leikmann, sem kemur til Rangers fyrir jól. ■ MEHMET Scholl, miðvallar- spilari hjá Bayem Miinchen, hefur fengið lokaaðvörðun hjá liðinu, eftir að hann gekk berserksgang í næt- urklúbbi í Austurríki, þar sem hann var á skíðaferðalagi með nokkrum leikmönnum Bayern. ■ SCHOLL hefur átt í persónuleg- um vandræðum að undanfömu, verið mikið í sviðsljósinu í næturlíf- inu. Eiginkona hans fór frá honum í byrjun október, með sex mánaða son þeirra - hún sagði að hann væri aldrei heima. Hún flutti inn til mans sem átti heima skammt frá þeim hjónum. Stórieikur Del Piero Juventus hefurtekið örugga forustu á Italíu ALESSANDRO Del Piero skoraði tvö mörk þegar Juventus vann Verona 3:2. Juventus hefur náð fimm stiga forskoti á Vicenza og sjö stig á Inter, AC Milan og Bologna. Inter mátti þola tap fyrir Sampdorfa á San Siro-leikvellinum í Mílanó, 3:4, eftir að hafa verið yfir 3:1. Mancini skoraði sigurmark Sampdoría rétt fyrir leiks- lok og var það mark svar hans við ummælum Roy Hodgson, þjálf- ara Inter. Hodgson spurði fyrr í vetur: „Hvaða Mancini?“ þegar Massimo Moratti, forseti Inter, reyndi að fá Mancini til liðsins. Leikurinn á San Siro var söguleg- ur. Það voru gestirnir sem byij- uðu á því að skora, Vincenzo Mont- ella eftir sjö mín. Marco Branca, sem skoraði tvö mörk, og Nicola Berti ■* svörðuðu fyrir heimamenn - örugg- ur sigur þeirra virtist í höfn. Svo var ekki, því að Montella bætti við marki á 56. mín. og Marco Francesc- hetti jafnaði, 3:3, á 85. mín. Manc- ini skoraði síðan sigurmarkið, 3:4, á 88. mín. Eftir leikinn brutu reiðir stuðningsmenn Inter rúður á San Siro. „Eg skil vel hvers vegna menn urðu reiðir. Þetta voru mjög slæm úrslit fyrir okkur. „Ég er ekki reið- ur, vonbrigðin eru mikil,“ sagði Hodgson. Leikmenn Juventus sýndu ákveð- inn styrk á Stadio delle Alpi leikvell- inum í Torino, þar sem þeir voru undir gegn Veróna, 0:2 - unnu fimmta leikinn í röð. Felippo Mani- ero skoraði mörk gestanna á 25. og 44. mín. Sergio Porrini minnkaði muninn fyrir Juventus rétt fyrir leik- hlé og Del Piero jafnaði fljótlega eftir leikhlé, þegar hann skoraði úr vítaspyrnu og á 72. mín. skoraði hann sigurmarkið með frábæru skoti af 20 m færi. „Munurinn á liðunum var snilldarleikur Del Piero,“ sagði Luigi Cagni, þjálfari Veróna. Demetrio Albertini skoraði öll mörk AC Milan, tvö úr vítaspyrnum, þegar liðið lagði Reggiana, 3:0. „Þessi sigur er leikmönnum mínum og fyrrverandi þjálfara [Oscar Was- hington Tabarez] að þakka. Enginn þjálfari setur mark sitt á lið á aðeins tíu dögum,“ sagði Sacchi, þjálfari AC Milan. ■ Úrsllt / C6 ■ Staðan / C6 Cesare Maldini tekur við af Sacchi Cesare Maldini hefur verið ráðinn þjálfari italska landsliðsins í knattspymu, tekur við starfí Arrigo Sacchi. Maldini, sem er faðir Paolo, fyrirliða landsliðsins, hefur verið þjálfari ungmennaliðs Ítalíu, skipað leikmönnum undir 21 árs aldri. Mald- ini, sem er 64 ára, mun stjóma ít- alska landsliðinu í fyrsta sinn í leik gegn Englendingum á Wembley 12. febrúar í undankeppni HM. Hann er ekki ókunnugur á Wembley, þar sem hann tók við Evrópubikarnum 1963 sem fyrirliði AC Milan, sem lagði Benfíca. Maldini, sem var einn af aðstoðarmönnum Sacchi er hann tók við ítalska landsliðinu 1991, var einn- ig aðstoðarmaður Enzo Bearzot, fyrmm landsliðsþjálfara, þegar ítalir urðu heimsmeistarar á Spáni 1982. „Ég óska félaga mínum góðs geng- is,“ sagði Sacchi, þegar hann frétti að Maldini yrði eftirmaður hans. Marco Tardelli, einn af ieikmönn- um heimameistaraliðs Ítalíu 1982, verður aðstoðarmaður Maldini. GETRAUNIR: 11X2X1 121 1211 LOTTO 6 11 22 27 + 13

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.