Morgunblaðið - 18.12.1996, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR18. DESEMBER1996 D 3
ÍÞRÓTTIR
Reuter
:ur í stigakeppninni í svigi eftir
rs í sviginu á Ítalíu í gær.
HNEFALEIKAR
Golota tapaði aftur
Pólski hnefaleikakappinn
Andrew Golota var með unn-
inn bardaga gegn Bandaríkjamann-
inum Riddick Bowe um helgina en
í níundu lotu sá dómari leiksins sér
ekki annað fært en dæma Golota
úr keppni þar sem hann sló Bowe
ítrekað undir beltisstað. Þetta var
annar bardagi þeirra á fimm mán-
uðum en þeir áttust við 11. júlí og
þá hafði Golota einnig yfirburði en
var dæmdur úr keppni vegna högga
undir beltisstað.
Strax í annarri lotu var dregið
stig af Golota fyrir að skalla Bowe
og í þeirri fjórðu missti hann annað
stig fyrir að slá Bandaríkjamanninn
undir beltisstað og hann endurtók
leikinn þegar 2 mínútur og 58 sek-
úndur voru liðnar af níundu lotu
og þá stöðvaði dómarinn bardagann
og dæmdi Bowe sigur. „Hann fékk
aðvörun og ég dró af honum stig
fyrr í bardaganum, bæði fyrir að
skalla mótherja sinn og einnig fyrir
að slá hann undir beltisstað. Þegar
hann gerðist brotlegur við reglurnar
í þriðja sinn var ekki um neitt ann-
að að ræða en dæma Bowe sigur-
inn,“ sagði Eddie Cotton dómari.
Bardaginn var fjörugur og áhorf-
Reuter
HUGAÐ að Bowe eftir að
hann féll í gólfið í níundu
lotu. Bowe var dæmdur sig-
ur stuttu síðar.
endur fengu mikið fyrir peninginn.
Golota, sem er 28 ára gamall, lamdi
Bowe tvisvar í gólfið og sjálfur lá
hann einu sinni eftir þung högg
Bandaríkjamannsins og er þetta í
fyrsta sinn sem hann er laminn í
gólfið. Með sigrinum bætti Bowe
enn árangur sinn, hefur sigrað 40
sinnum en aðeins tapað einu sinni.
Golota hefur hins vegar sigraði í
28 viðureignum og tapað tvívegis,
í bæði skiptin fyrir að lemja undir
beltisstað á Bowe.
Eftir að Bowe fór í gólfið í fyrra
skiptið hélt Golota áfram að lemja
á honum en sjálfur fékk hann skurð
á augabrún. I fjórðu lotu náði Bowe
góðum höggum þannig að Pólveij-
inn féll í gólfið. Hann var fljótur á
fætur aftur, réðist að Bowe og tók
til við að lemja hann undir beltis-
stað þannig að Bowe féll í gólfið.
Dómarinn tók stig af Golota og
Bowe var um eina mínútu að jafna
sig, en hefði mátt taka sér fimm
mínútna hvíld.
Eftir fjórðu lotu sagði Lou Duva,
þjálfari Golota við hann. „Þú átt
ekki að slá hann í líkamann. Öll
högg eiga að lenda á höfði hans.“
Bowe virtist þreyttur í fimmtu lotu
og Golota náði nokkrum góðum
höggum á hann og um tíma virtist
sem Bowe ætti erfitt með að standa
í fæturna. En það kom ekki að sök
því enn á ný var það Golota sem
sló sjálfan sig út úr keppninni.
>n og lærisveinaríWallau/Massenheim að stöðva Lemgo?
ryggis-
ifanir
nheim
við vorum einum leikmanni færri
fengum við á okkur tvö mörk, við
misstum örugga forustu, 30:26, nið-
ur í 30:29. Þar sem sigur okkar var
aðeins eitt mark, var ákveðið að
leikurinn færi fram á ný,“ sagði
Kristján.
Kristján sagði að það væri mjög
þýðingarmikið fyrir Wallau að
leggja Lemgo að velli. „Með sigri
förum við upp í annað sætið, ef við
töpum er Lemgo komið með aðra
hönd á meistaratitilinn. Við værum
þá níu stigum á eftir Lemgo."
Lemgo er með fullt hús stiga, 22
stig eftir ellefu leiki. Leikmenn liðs-
ins hafa tekið stefnuna á að bæta
met Essen, sem náði 27 stigum úr
fjórtán leikjum - vann þrettán,
gerði eitt jafntefli. Wallau/Massen-
heim hefur leikið vel að undanförnu
og hefur liðið ekki tapað sjö síðustu
leikjum sínum.
Mikili áhugi
Kristján sagði að áhuginn væri
mikill fyrir keppninni í 1. deild í
Þýskalandi. „Áhuginn hefur aldrei
verið meiri, enda leikir skemmtileg-
ir. Þá leika flestir bestu handknatt-
leiksmenn heims í deildinni. Uppselt
er á flesta leiki, þannig að um þijú
þúsund áhorfendur mæta á leikina
að meðaltali og er stemmningin
mikil. Þýska deildin er sú sterkasta,
miklu sterkari en á Spáni, þar sem
aðeins eru sex góð lið. Hér getur
ekkert lið bókað sigur fyrirfram, svo
jöfn eru þau.“
- Hvernig hafa íslensku landsliðs-
mennirnir staðið sig?
„Það hefur gengið upp og ofan
hjá þeim. Héðinn Gilsson hefur ver-
ið meiddur og lítið leikið með Fred-
enbeck, sem er í fallbaráttu. Hann
kom inná í leik liðsins í Grosswall-
stad um helgina. Fredenbeck tap-
KRISTJAIM Arason, þjálfarl Wallau/Massenheim, kann ýmis-
legt fyrir sér í göldrum handboltans. Hann seglr að ekkert lið
geti bókað slgur fyrirfram, svo jöfn eru liðin í þýsku deildinnl.
aði, 33:25. Sigurður Bjarnason
hefur verið frá vegna meiðsla í
nára í tíu daga. Patrekur Jóhann-
esson byijaði vel með Essen, dal-
aði síðan. Hann náði að skora sjö
mörk fyrir Essen gegn Flensborg,
en Essen mátti þó þola tap á
heimavelli, 24:27. Þar munaði
mestu um að Tuyschkin lék ekki
með, hann hefur verið potturinn
og pannan í leik liðsins í vetur
ásamt Stefan Hecker, markverði.
Róbert Sighvatsson hefur staðið
sig vel á línunni hjá Schutterwald,
sem á erfitt uppdráttar eins og
Fredenbeck. Bæði liðin komu upp
úr 2. deild í fyrra og það er alltaf
erfitt fyrir nýliða að aðlaga sig 1.
deildarkeppninni.
Ólafur, Dagur og Jason
standa sig vel
Kristján sagði að landsliðs-
mennirnir þrír, sem leika í 2. deild,
hafi staðið sig vel. „Valsaramir
Ólafur Stefánsson og Dagur Sig-
urðsson hafa náð sér vel á strik
með Wuppertal, sem eru að beij-
ast um 1. deildarsæti við Bad
Schwartau og Rostock í norður-
riðli 2. deildar. Jason Ólafsson
hefur verið að gera góða hluti með
Leutershausen í suðurriðlinum og
hef ég trú á að liðið verði þar í
efsta sæti. Aðeins Dutenhofen
getur veitt Jason og félögum
keppni.“
Kjaftshögg fyrlr IHF
Þjóðveijar komust ekki í HM í
Japan. Kristján sagði að það hafi
verið þeim sjálfum að kenna.
„Margir af bestu leikmönnum
Þýskalands gáfu ekki kost á sér
í landsliðið, en þeir gáfu ekki upp
rétta ástæðu fyrir að þeir gæfu
ekki kost á sér - að þeir vildu
ekki leika undir stjórn Arno Ehret,
landsliðsþjálfara. Heiner Brand
hefur tekið við starfi Ehret, sem
var látinn hætta eftir ófarirnar í
undankeppni HM.
Það var kjatfshögg fyrir IHF,
alþjóða handknattleikssambandið,
að þýska landliðið leikur ekki í
heimsmeistarakeppninni. Með því
verður sjónvarpsáhorfun frá HM
ekki sú sama,“ sagði Kristján.
Niederwiirzb..........12 17
Flensburg.............12 16
Wallau................11 15
Kiel..................12 15
Minden................12 15
Nettelstedt...........12 14
Grosswallst...........12 12
Essen.................12 11
Magdeburg.............12 11
Dormagen..............12 10
Gummersbach...........12 9
Rheinhausen...........12 9
Schutterwald..........12 6
Hameln................12 5
Fredenbeck............12 4
&
Nýjar bækur
• ÚT ER komin bókin BASSI -
lífshlaup Gunnars Huseby, af-
reksmanns á heimsvísu, eftir Sig-
urð Helgason. í kynningu kemur
fram að lífshlaup Gunnars eða
Bassa eins og hann var ætíð kall-
aður hafi verið mjög stórbrotið.
„Hann var glæsimenni sem þjóðin
horfði til með stolti, enda fáir ís-
lendingar hvorki fyrr né síðar sem
náð hafa jafn langt og hann á
íþróttasviðinu.“
Með hjálp
samferðamanna
Gunnars er
greint frá lífs-
hlaupi kúluvarp-
arans. „Við
kynnumst
bernsku Gunn-
ars í Vesturbæn-
um, unglingsár-
unum, vinunum,
konunum í lífi
hans, baráttunni
við Bakkus og útigangslífinu. Þá
er og gerð heildarúttekt á íþrótta-
ferli þessa mesta íþróttamanns sem
þjóðin hefur alið.“
Bókaútgáfan Reykholt er útgef-
andi. Bókin er 156 blaðsíður, mynd-
skreytt og með nafnaskrá. Verð
hennar er 3.480 krónur.
• ÍSLENSK knattspyrna 1996
er sextánda bókin eftir Víði Sig-
urðsson, íþróttafréttamann á DV,
í samnefndum bókaflokki sem hóf
göngu sína 1981. „í bókinni er að
finna tæmandi yfirlit yfir knatt-
spyrnuna á íslandi á árinu 1996,“
segir í kynningu.
„Henni er skipt
niður í kafla þar
sem ijallað er
ítarlega um
hveija deild fyrir .
sig, mest um 1.
deild, Sérstakir
kaflar eru um
bikarkeppni,
deildabikar,
Sigurðsson ynSr‘ flokka,
landsleiki, Evr-
ópuleiki og atvinnumennina.
Frá 1985 hefur verið sérstakur
kafli um sögu íslenskrar knatt-
spyrnu. í þessari bók er 12. sögu-
kaflinn og er fjallað um árið 1979.
Litmyndir eru af öllum meistaralið-
um í íslandsmóti og bikarkeppni
og ennfremur stórar litmyndir af
einstaklingum sem sköruðu fram
úr á árinu.
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin
er 176 bls. í stóru broti skreytt með
um 220 myndum, þar a f 34 litmynd-
um af liðum og einstaklingum.
Verð hennar er kr. 3.950.
• MEISTARAR í akstursíþrótt-
um er ný bók, sú fyrsta sem gefin
er út um akstursíþróttir hérlendis.
Bókin er eftir Gunnlaug Rögn-
valdsson og fjallar um torfæru-
kappa, rall-
akastur, vélsleða
og kappakstur í
máli og mynd-
um. í bókinni eru
200 litmyndir úr
akstursíþrótta-
mótum hérlendis"f
ásamt ítarlegum
viðtölum við ís-
landsmeistara
Gunnlaugur síðustu ára og
Rögn- keppendur sem
valdsson hafa staðið í
fremstu röð,
m.a. við þá Árna Kópsson, Harald
Pétursson, Gísla G. Jónsson, Guð-
berg Guðbergsson og Rúnar Jóns-
son, en 25 viðtöl eru við ökumenn
í bókinni. Þá er fjallað um uppbygg-
ingu torfærujeppa og spáð í fram-
tíðina í akstursíþróttum hérlendis. _T
Formula 1 kappakstur fær sess í
bókinni með umíjöllun um heims-
meistaralið Williams og ökumenn-
ina Damon Hill og Michael Schu-
macher. í bókinni er einnig upptaln-
ing á íslandsmeisturum frá upphafi
og úrslitum í íslandsmótinu gerð
skil.
ísmynd gefur út bókina. Verð f
hennar er 2.900 krónur.
Sigurður
Helgason