Morgunblaðið - 24.12.1996, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
omunlifcitriti
1996
SKÍÐi
Ghed-
inaá
fullri
ferð
ÍTALINN Krist-
ian Ghedina sigr-
aði í bruni karla
sem fram fór í
Val Gardena á
Italíu um helg-
ina. Hann vann
þar með fimmta
heimsbikarsigur
sinn. Ghedina,
sem er 27 ára,
lenti í umferðar-
slysi fyrir fimm
árum sem kost-
aði hann næstum
lífið. Hann hefur
nú náð sér full-
komlega og
sýndi það eftir-
minnilega í brun-
inu um helgina.
Næsta heimsbik-
armót verður 29.
desember.
ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER
BLAD
B
Reuter
KNATTSPYRNA
Landsliðsmarkvörðurinn Birkir Kristinsson með Birmingham til 1. febrúar
Á möguleika á að mæta
öllum „Islendingaliðunum"
Gamail draumur Birkis Krist-
inssonar, landsliðsmarkvarðar
í knattspyrnu, varð að veruleika
um helgina, þegar Brann í Noregi,
sem hann er samningsbundinn
fram í október á næsta ári, sam-
þykkti að leigja hann til Birming-
ham til og með 1. febrúar á næsta
ári. „Mig hefur oft langað til að
leika með ensku liði og það er
mikið mál að komast til Eng-
lands,“ sagði Birkir við Morgun-
blaðið. „Allir fylgjast með ensku
knattspyrnunni og þetta er ákveðið
tækifæri sem byggist á mér sjálf-
um - ef ég stend mig er líklegt
að einhver taki eftir því.“
Eins og Morgunblaðið greindi
frá á laugardag kom tilboð Birm-
ingham City skyndilega upp en lið-
ið er í toppbaráttunni í 1. deild.
Markvörður þess verður frá næstu
vikurnar vegna fingurmeiðsla og
var haft samband við Brann um
miðja liðna viku til að falast eftir
íslenska markverðinum. Þá var
Birkir á námskeiði í Ósló en þegar
hann kom til íslands sl. fimmtudag
fékk hann skilaboð um að hafa
samband við félag sitt. „Við fjöl-
skyldan ætluðum að vera hjá ætt-
ingjum um jólin en sennilega hefði
ég ekki komið til Islands ef ég
hefði vitað af þessum möguleika,"
sagði Birkir. Samningar tókust
seint á laugardagskvöld og fór
Birkir út morguninn eftir en hann
vonast til að fá eiginkonuna og
þriggja ára son þeirra til sín á
milli jóla og nýárs.
Birmingham sækir Þorvald Ör-
lygsson og samhetja í Oldham heim
á annan í jólum en á heimaleik við
Tranmere 28. desember og við
BIRKIR Kristinsson
Manchester City 1. janúar. Síðan
er bikarleikur en 11. janúar leikur
Birmingham við Lárus Orra Sig-
urðsson og félaga í Stoke, 18. jan-
úar er heimaleikur við Reading, 29.
janúar útileikur við Birmingham og
1. febrúar útileikur við Guðna
Bergsson og leikbræður hans í Bol-
ton.
„Þetta eru allt mjög spennandi
leikir og ekki er amalegt að vita
til þess að ég eigi möguleika á að
mæta öllum íslensku kempunum,"
sagði Birkir. „Mér líst svo sannar-
lega vel á þetta.“
Birkir hittir félaga sína í Brann
í Frankfurt í Þýskalandi 2. febrúar
og þaðan fer norska liðið í æfinga-
ferð til Suður-Afríku og Spánar en
mikil áhersla var lögð á að Birkir
færi með.
ViNNINGSTOLUFt
MiÐViKUDAGIN'N
AÐALTOLUR
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð
“f . 6 af 6 1 44.110.000
o S af 6 0 1.071.781
3. 58,6 4 63.710
4. 4 af 6 250 1.620
r- 3 af 6 O. + bónus 961 180
Samtais; 1.261 46.014.601
'117.12.- 23.12. '96
121/
UPPLYSINGAR
• Mtdarnir meö 1. vinnmgi « Lottcs 5/38
voru keyptsr í Soiuturnínum Lerfsgötu i
Reykjavik og Ábæ á SauöerkrokL en
bónusvinningunum i Esjuskáianum vió
Vallargrund á Kjatarnesí. Olis
Langatanga i MosfeUsbæ, Happa-^
húsinu i Kringlunni og Nöatúni viö
Rofabæ i Rvk. og Hornínu a Seffossi.
Dregld verður i Vikingalottoinu a
fímmtudag og geta lottóspilsrs keypt
miöa til hádagis i dag, aöfangadag og
milli 12 og 17 á fimmtudag.
t m ^
að vino3
1, vinningur er áætlaður 40 milljónir kr.
KNATTSPYRNA: SPENNAÁ ENGLANDI / B3