Morgunblaðið - 14.01.1997, Qupperneq 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Bikarkeppnin í handknattleik
Liðin sem leika í undanúrslitum 22.-26. jan.
KONOR;
Valur - KR
25. janúar
Stjarnan - Haukar
26. janúar
KARLAR:
KA-ÍR
22. janúar
Haukar- FH
23. janúar
Stjarnan, 2 sinnum
S? KR: einu sinni
Valur: einu sinni
Haukar hafa aldrei orðið bikarmeistarar
W KA
IR hefur aldrei orðið bikarmeistari
■ HARALDUR Ingólfsson kom
inná sem varamaður hjá Aberdeen
í seinni hálfleik gegn Glasgow
Rangers, sem vann stórsigur 4:0.
■ DANSKI miðheijinn Erik Bo
Andersen skoraði tvö mörk fyrir
Glasgow Rangers, sem er með
ellefu stiga forskot á Celtic í Skot-
landi.
■ ERIK Bo Andersen hefur skor-
að ellefu mörk í sjö leikjum, þar
af fimm mörk í síðustu þremur
leikjum Rangers.
■ EINNAR mín. þögn var fyrir
leikinn, til minningar um George
Young, fyrrum fyrirliða Rangers
og Skotlands, sem dó á föstudag-
inn, 74 ára. Hann lék 53 landsleiki
fyrir Skotland.
■ ÞÓRÐUR Guðjónsson meiddist
lítilsháttar á hné í leik með Bochum
á innanhússmóti um helgina.
■ GUÐMUNDUR Bragason átti
mjög góðan leik með BCJ Ham-
borg í þýsku 2. deildarkeppninni
í körguknattleik - skoraði sextán
stig þegar liðið vann Salzkotten
89:82. BCJ er með fjögurra stiga
forskot í deildinni og virðist fátt
geta komið í veg fyrir að liðið fari
upp í 1. deild.
■ EYJÓLFUR Sverrisson og fé-
lagar hans hjá Herthu Berlín hafa
fengið góðan liðsstyrk. Uwe Weid-
ermann er kominn frá Schalke og
þá er Ungveijinn Pal Dardi kom-
inn í herbúðir Berlínarliðsins.
■ ROMA er á höttunum eftir
Brasilíumanninum Paul Sergio,
leikmanni hjá Bayer Leverkusen.
Ef Sergio fer, er næsta víst að
Ruud Völler fái félaga sinn
Thomas Hassler frá Karlsruhe,
en samningur hans við liðið rennur
út eftir þetta keppnistímabil.
■ BLACKBURN hafnaði tilboði
frá Man. Utd. í Norðmanninn
Hanning Berg. Alex Ferguson,
knattspyrnustjóri United, bauð
fimm millj. punda í Berg.
■ SÆNSKA liðið Degerfors lán-
aði Derby leikmanninn Marino
Ramberg í gær.
■ ARNOLD Palmer, hinn þekkti
kylfingur, sem er orðinn 67 ára,
tilkynnti um helgina að hann hefði
greinst með krabbamein í blöðru-
hálskirtli og myndi ekki keppa op-
inberlega fyrr en læknar hefðu
komist fyrir meinið.
■ SIGURÐUR Eyjólfsson,
knattspyrnumaður, sem leikur
með UNCG Norður-Karolínu í
Bandaríkjunum, hefur staðið sig
vel og var vaiinn í úrvalslið há-
skólakeppninnar fyrir áramótin.
Sigurður, sem leikur sem fram-
heiji, var á lista yfir fimm bestu,
bæði hvað varðar fjölda marka og
einnig í stigagjöfinni. Hann gerði
23 mörk í jafn mörgum leikjum
og lagði að auki upp sjö þannig
að hann fékk 53 stig.
■ LIÐ Sigurðar, UNCG, sigraði
í 21 leik en tapaði aðeins tveimur.
Þjálfarar liðanna gefa einkunn eft-
ir hvern leik og síðan þegar búið
er að leggja saman einkunnir allra
leikja er úrvalsliðið valið. Valin eru
þijú lið og var Sigurður í öðru lið-
inu. Þess má geta að skólaliðin sem
leika í fyrstu deild eru 191 talsins.
■ SIGURÐUR, sem lék með Vík-
ingum í sumar, hefur ákveðið að
leika með Þrótti í Reykjavík
næsta sumar.
KÖRFUBOLTI
Forráðamenn Körfuknattleiks-
sambandsins hafa haldið því
fram undanfarin ár að körfu-
knattleikurinn sé í mikilii sókn
og má það til sanns vegar færa,
í það minnsta til skamms tíma.
En svo virðist sem uppgangurinn
sé að minnka.
Síðasta keppnistímabil
var fremur tíðindalítið,
landsliðið stóð sig illa en
náði að rétta aðeins úr
kútnum í vor þegar það
tryggði sér sæti í Evrópu-
keppninni. Slakt gengi
liðsins í Danmörku á miili hátíð-
anna hefur einnig vakið spuming-
ar, en þar tapaði liðið þriðja sinni
á einu ári fyrir Dönum þrátt fyr-
ir að frændur vorir væru ekki
með sitt sterkasta lið. Danir virð-
ast vera að sigla hægt og bítandi
fram úr íslendingum og hafa
sumir bent á að ein af ástæðunum
sé að hér á landi æfí menn mun
minna en þar og víðast í Evrópu.
Sumir hafa einnig nefnt að þjálf-
arar í körfunni hér séu ekki nægi-
lega menntaðir og því komi að
því að við drögumst meira aftur
en þegar er orðið.
Menn hafa velt talsvert fyrir
sér þeirri ákvörðun KKI að ráða
landsliðsþjálfara sem er að ieika
með liði í úrvalsdeildinni. Jón Kr.
er vanur þjáifari og kann ýmis-
legt fyrir sér en trúlega er það
einsdæmi á síðari árum að lands-
liðsþjálfari spili í efstu deild. Jón
sagði í viðtali í Morgunblaðinu
fyrir skömmu að hann hefði kom-
ist á eina tólf leiki í deildinni í
vetur, fyrir utan þá sem hann
leikur. Hann reynir sem sagt að
vinna sína vinnu eins samvisku-
samlega og unnt er, en það breyt-
ir ekki þeirri staðreynd að lands-
liðsþjálfarinn leikur í úrvalsdeild-
inni.
Annað sem menn hafa hugað
að er leikstíli íslenska iiðsins.
Undanfarin ár hefur íslenska
landsliðið leikið mikið uppá að
ljúka sókninni hjá einhverri af
þriggja stiga skyttunum og hefur
það gengið svona og svona. Það
er oft sagt að leikir vinnist ekki
með stökkskotum, en þrátt fyrir
það hefur íslenska iiðið stílað á
slíkt. Það skal reyndar viður-
kennt að ekki er mikið um ipjög
hávaxna leikmenn á íslandi
þannig að hægt sé að byggja
sóknina að mestu á því að spila
inn í teiginn, en við eigum vel
frambærilega ieikmenn í þessar
stöður o g því mætti byggja sókn-
ina meira á þeim.
Áhorfendum hefur fækkað á
íþróttaviðburðum að undanförnu
og þrátt fyrir að leikjafyrirkomu-
laginu hafí verið breytt ti! hins
betra í körfunni fyrir þetta tíma-
bil hefur áhorfendum líklega
fækkað heldur meira en í hand-
boltanum.
Oft er rætt um dómara í Sþrótt-
um og ef tii vill of oft með nei-
kvæðum formerkjum. Nokkrir
frammámenn körfuknattleiks-
íþróttarinnar telja að dómarar
séu hrokafull klika sem taki allri
gagnrýni illa og snúi uppá sig
sé reynt að ræða við þá. Sömu
menn hafa réttilega bent á að í
dómaranefnd KKI séu aðeins
starfandi dómarar, sem dæmi í
úrvalsdeildinni. Þama hefur
karfan einnig sérstöðu því hjá
hinum stóru sérsamböndunum
eru dómaranefndimar að mestu
skipaðar mönnum sem eru hætt-
ir að dæma.
Skúli Unnar
Sveinsson
Dregid hefur úr upp-
gangi körfuknatt-
leiksins hér á landi
Hver er hann þessi FRIÐRIK STEFÁNSSOIM körfuboltamaðurínn efnilegi hjá KFÍ?
Ætlaði að
hætta aðæfa
FRIÐRIK Stefánsson, leikmaður úrvalsdeildarliðs KFÍ frá
ísafirði, hefur vakið athygli fyrir góðan leik í vetur og var valinn
í landsliðshópinn fyrir leikina á mótinu f Danmörku milli hátíð-
anna. Hann meiddist hins vegar á landsliðsæfingu og kom því
ekki til greina f liðið sem fór til Danmerkur. Friðrik er tvítugur
Vestmannaeyingur. Unnusta hans heitir Guðrún Astrid Elvars-
dóttir og er frá Súðavfk.
Friðrik, sem er 203 sentímetrar
á hæð, byijaði að æfa körfu-
knattleik í Vestmannaeyjum fyrir
aðeins fjórum
Eftir árum og þykir það
pa/e undrun sæta
lónatansson hversu skjótur
frami hans hefur
verið í körfuboltanum.
„Ég byrjaði að leika mér í
körfubolta heima í Vestmannaeyj-
um þegar ég var 16 ára. Við strák-
arnir úr Eyjum tókum þátt í móti
í Njarðvík 1992 og þar kom Axel
Nikulásson auga á mig og valdi
mig í unglingalandsiiðið og eftir
það fór boltinn að rúlla.“
Þú reyndir fyrst fyrir þér hjá
KR í úrvalsdeildinni og síðan Þór.
Fannstu þig ekki vel hjá þessum
félögum?
„Það gekk ekki nægilega vel
hjá mér, ég var frekar reynslulít-
ili í svona sterkt lið eins og KR
og kunni einfaldlega ekki nægi-
lega mikið. Það var því ekki skrýt-
ið að_ég næði ekki að festa mig
þar. Eg hef hins vegar spilað lykil-
hiutverk hjá KFÍ í vetur og fengið
við það aukið sjálfstraust og það
hefur mikið að segja.“
Hvað kom til að þú ákvaðst að
fara til Ísaíjarðar?
„Guðjón Þorsteinsson, faðir
körfuboltans á ísafirði, hringdi í
mig og lagði hart að mér að koma
og ég sló til. Ég var satt að segja
að hugsa um að hætta í körfuboit-
anum því það hafði gengið svo illa
hjá mér síðustu tvö árin. Ég ákvað
svo að gefa körfuboltanum eitt ár
í viðbót og sjá síðan til. Mér líður
mjög vel á ísafirði og þar býr
gott fólk. Það hefur gengið mjög
vel hjá mér í vetur og nú er hugs-
unin um að hætta í boltanum ekki
til staðar. Nú er stefnan sett á
landsliðið."
Morgunblaðið/Valur B. Jónalansson
FRIÐRIK Stefánsson, leikmaður KFÍ, er einn efnilegasti
miðvörður í íslenskum körfubolta um þessar mundir.
Nú hefur gengi KFÍ komið á
óvart í vetur. Hvert er markmiðið
sem þið í liðinu setjið ykkur?
„Við vitum hvað við getum og
gerum aðeins það sem við ráðum
við. Guðni þjálfari leggur áherslu
á góðan varnarleik og við höfum
farið langt á því. Fyrsta markmið
hjá okkur er að halda sætinu í
deildinni, en allt umfram það er
bónus. Ég vona að við komumst
í úrslitakeppnina. Það yrði frá-
bært.“
Hve oft æfið þið í viku?
„Við æfum fimm sinnum í viku
og síðan eru yfirleitt tveir leikir á
viku þannig að við erum að meira
og minna alla daga vikunnar.“
Nú varst þú valinn í landsliðs-
hóp Jón Kr. Gíslasonar fyrir mótið
í Danmörku í desember. Það hlýt-
ur að hafa gefið þér byr undir
báða vængi?
„Já, það var mjög gaman. En
ég var óheppinn og meiddist á
landsliðsæfingu og því kom aldrei
til þess að Jón Kr. þyrfti að velja
mig í liðið sem fór til Danmerkur."
Hver eru helstu framtíðaráform
þín. Verður þú áfram á ísafirði
næsta vetur?
„Ég hef hug á að mennta mig
meira, ég er aðeins með grunn-
skólapróf. Körfuboltinn tekur auð-
vitað mikinn tíma, en menntunin
má ekki sitja á hakanum of lengi
og ég verð að fara að hugsa um
þann þátt. Ég er með samning við
KFÍ út þetta tímabil og það er
allt opið eftir það.“