Morgunblaðið - 23.01.1997, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1997 C 7
ÍÞRÓTTIR
ÚRSLIT
TENNIS
Sampras sér
framástríð
við Muster
Pete Sampras og Thomas Muster
mætast í undanúrslitum Opna
ástralska mótsins í tennis á morgun
en í gær báru þeir sigurorð af mót-
heijum sínum í átta manna úrsiitum.
Sampras vann Albert Costa 6-3, 6-7,
6-1, 3-6, 6-2 en Muster vann Goran
Ivanisevic 6-4, 6-2, 6-3.
Sampras þurfti að hafa mikið fyr-
ir sigri sínum eins og tölurnar gefa
til kynna en reynslan skilaði sér í
lokin. Costa gaf ekkert eftir en hann
átti í erfiðleikum með uppgjafir mót-
herjans í lokarimmunni. „Hann er
fljótur, góður og bakhandai-högg
hans eru með þeim bestu sem ég hef
séð,“ sagði Sampras um Costa.
„Ótrúlegt var að sjá hvernig han
náði suraum boltum á ferðinni. En
nú á ég frí í einn dag og svo er það
Thomas. Það verður stríð.“
Muster átti ekki í erfiðleikum með
Ivanisevic. Króatinn er í flórða sæti
á styrkleikalistanum en lék eins og
taugaóstyrkur, minni spámaður og
var mjög mistækur. „Ég fékk mörg
tækifæri en nýtti þau ekki,“ sagði
hann. „Ef menn grípa ekki gæsina
þegar hún gefst er þetta búið spil.“
Ivanisevic hefur verið á meðal 10
bestu í meira en fimm ár en aldrei
fagnað sigri á einu af fjórum stóru
mótunum. Hann átti aldrei mögu-
leika á móti Austurríkismanninum,
sem virtist kunna vel við sig á hörð-
um vellinum undir þakinu en því var
rennt yfir vegna mikillar rigningar.
Auðvelt hjá Hingis
Martina Hingis, sem er aðeins 16
ára, átti ekki í erfiðleikum með að
tryggja sér sæti í undanúrslitum
kvenna, vann Irinu Spirlea frá Rúme-
níu 7-5, 6-2 í 70 mínútna leik. Sviss-
neska stúlkan hikaði reyndar aðeins
í byijun en bætti það þegar upp.
Hingis þakkaði fyrir rigninguna og
sagðist hafa beðið um hana. „Mér
hefur gengið vel í mótum innanhúss
og er öruggari inni.“
Mary Joe Fernandez, sem er í 14.
sæti á styrkleikalistanum, leikur í
undanúrslitum stórmóts í fyrsta sinn
í fjögur ár en mótheiji hennar í átta
liða úrslitum, Dominique van Roost,
varð að hætta leiknum þegar hæst
stóð vegna meiðsla en náði lengra
en Belgi hefur áður komist í stór-
móti. „Margir halda að Belgía sé
Frakkland og stundum er landið ekki
á korti en ég held að fleir viti meira
um Belgíu eftir það sem á undan
Reuter
hefur gengið í keppninni," sagði
belgíska stúlkan og var hin ánægð-
asta.
leika á að verða yngsti
meistari í einliðaleik kvenna
á Opna ástralska mótinu I
tennis en hér fagnar hún
sæti í undanúrslitum.
KÖRFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Jordan med 51 af 88
stigum Chicago
Michael Jordan er ótrúlegur leik-
maður og sýndi yfirburði sína
enn einu sinni í fyrrinótt þegar
Chicago vann New York 88:87 í
NBA-deildinni í körfuknattleik. Jord-
an skoraði 51 stig, sem er met í ein-
um leik á tímabilinu, en hann hefur
áður verið með 50 stig í vetur og
rofið 50 stiga múrinn 36 sinnum á
ferlinum. „Þetta var eins og leikur í
úrslitakeppninni, andrúmsloftið var
þannig og við gerðum ráð fyrir því,“
Olson tek-
ur við Ajax
DANINN Morten Olsen tekur
við af Louis van Gaal, þjálf-
ara Ajax, fyrir næsta tímabil,
að sögn hollenska dagblaðs-
ins Algemeen Dagblad í gær.
Olsen, sem er 47 ára, lék
102 landsleiki fyrir Dan-
mörku og er það met. Hann
var þjálfari Bröndby í tvö ár
og fór síðan til Kölnar þar
sem hann var látinn fara 1995
eftir að hafa þjálfað liðið í
fjögur ár. Olson byijaði að
spila með Vordingborg og fór
þaðan til Nyköping en síðan
var hann með Cercle Briigge,
Molenbeek og Anderlecht í
Belgíu. Hann lauk knatt-
spyrnuferlinum með Köln í
Þýskalandi.
Van Gaal tiikynnti fyrr í
vetur að hann ætlaði að hætta
hjá Ajax og gaf til kynna að
hann væri með starf utan
Hollands í sigtinu. Á meðal
líklegra arftaka voru nefndir
Johan Cruyff, Marco van
Basten og Kevin Keegan.
sagði Jordan. „Strákarnir stóðu sig
frábærlega."
Chicago hefur haft tak á New
York í áratug og virtist ekki koma
að sök þó Dennis Rodman og Ron
Harper væru ekki með. Patrick Ewing
skoraði 19 stig fýrir gestina og tók
14 fráköst.
Glen Rice setti persónulegt met á
tímabilinu þegar hann setti niður 42
stig í 114:108 sigri Charlotte á Houst-
on. Liðin hafa mæst 20 sinnum og
var þetta í þriðja sinn sem Charlotte
hafði betur. „Þetta var átakaleikur
og við vildum láta finna fyrir okkur,“
sagði Rice sem tók átta fráköst og
hefur verið stigahæstur liðs síns í síð-
ustu 13 leikjum. Dell Curry skoraði
23 stig og Anthony Mason 19 stig
auk þess sem hann tók níu fráköst
en skotnýting heimamanna var 50%.
Clyde Drexler fór fyrir gestunum með
39 stig og Hakeem Olajuwon var með
26 stig.
Reuter
„Ég hef séð marga skora en hann
bætti við þessu sem þarf til að sigra,"
sagði Rick Adelman, þjálfari Golden
State, um Latrell Sprewell, sem gerði
16 af 46 stigum sínum í ijórða leik-
hluta og var maðurinn á bak við
105:93 sigur á Dallas.
Miami vann Atlanta 94:91 eftir að
staðan hafði verið 74:64 fyrir gestina
eftir þriðja leikhluta. Tim Hardaway,
sem skoraði 24 stig og átti 11 stoð-
sendingar, var með þijár þriggja stiga
körfur á síðustu tveimur mínútunum,
sem riðu baggamuninn. Atlanta hafði
sigrað í 10 leikjum í röð.
Indiana gerði góða ferð til Mil-
waukee og vann 92:89. Rik Smits
skoraði 25 stig, sem er persónulegt
met á tímabilinu, og tók níu fráköst
en Derrick McKey og Reggie Miller
skoruðu sín 14 stigin hvor. Glenn
Robinson var stigahæstur heima-
manna með 29 stig en Vin Baker
skoraði 22 stig og tók 14 fráköst.
Milwaukee fékk þijú tækifæri til að
jafna eða komast yfír á síðustu 3,2
sekúndunum en það átti ekki fyrir
liðinu að liggja.
Ekkert gengur hjá Washington
þessa dagana en liðið hefur tapað
fimm af síðustu sex leikjum, að þessu
sinni 93:88 í Orlando. Rony Seikaly
skoraði 26 stig fyrir heimamenn og
varði mikilvæg skot undir lokin.
Penny Hardaway var með 19 stig og
Derek Strong 14 en hann tók níu
fráköst.
Cliff Robinson setti niður 23 stig
fyrir Portland sem vann LA Clippers
100:82. Kenny Anderson skoraði 15
stig og átti 12 stoðsendingar. „Til
tilbreytingar lékum við vel frá byijun
en þetta lið [Clippers] má ekki fá
sjálfstraustið í upphafí leiks ætli mót-
heijarnir sér sigur," sagði P.J. Carle-
simo, þjálfari Portland.
Toronto fékk Minnesota í heimsókn
og vann 118:106. Walt Williams skor-
aði 20 af 32 stigum sínum í fyrri
hálfleik, Carlos Rogers var með 24
stig, nýliðinn Marcus Camby 23,
Doug Christie 17 og Damon Stoud-
amire 12 stig auk þess sem hann
átti 17 stoðsendingar fyrir heima-
menn.
MICHAEL Jordan var óstöðv-
andi á móti New York og gerði
51 stig en hér tekur hann
sporið fyrir Alan Houston.
Fjögurra þjóða mót í Ástralíu
Ástralía - Suður-Kórea...........2:1
Matthew Bingley 37., Alistair Edwards 72.
- Ha Seok Ju 76.
Noregur - Nýja-Sjáland...........3:0
Bent Skammerlsrud 60., Chris Zoricich 79.
sjálfsm., Havard Flo 84.
Körfuknattleikur
NBA-deildin
Toronto - Minnesota..........118:106
Charlotte - Houston..........114:108
Miami - Atlanta................94:91
Orlando - Washington...........93:88
Chicago - New york.............88:87
Milwaukee - Indiana............89:92
Portland - LA Clippers........100:82
Golden State - Dallas.........105:93
Íshokkí
NHL-deildin
■ NY Rangers - Edmonton.......4:4
■ Philadelphia - Dallas.......3:3
Pittsburgh - Calgary............4:2
■ Tampa Bay - Colorado........3:2
Los Angeles - New Jersey........1:4
Tennis
Opna ástralska mótið
Átta manna úrslit einliðaleiks karla
5-Thomas Muster (Austurríki) vann 3-Gor-
an Ivanisevic (Króatíu) 6-4 6-2 6-3
1-Pete Sampras (Bandarikjunum) vann
10-Albert Costa (Spáni) 6-3 6-7 (5-7) 6-1
3- 6 6-2
Átta manna úrslit einliðaleiks kvenna
14-Mary Joe Fernandez (Bandaríkjunum)
vann Dominique van Roost (Belgíu) 7-5 4-0
(hætti)
4- Martina Hingis (Sviss) vann 8-Irina
Spirlea (Rúmeníu) 7-5 6-2
Undanúrslit tvíliðaleiks kvenna
3-Lindsay Davenport (Bandaríkjunum) og
Lisa Raymond (Bandarikjunum) unnu 2-
Larisu Neiland (Lettlandi) og Helenu
Sukova (Tékklandi) 7-5 6-3
Keila
1. deild karla
Keilulandssveitin - KR-b.............6:2
Keiluböðlar - Úlfarnir...............8:0
PLS - Lærlingar......................2:6
KR-a - Stormsveitin..................8:0
ET - Keilugarpar.....................2:6
Keflavík-a - Þröstu..................8:0
Staðan (leikir, stig)
Lærlingar..........................56 88
Stormsveitin.......................56 72
KR-a...............................56 68
PLS................................56 66
Keilulandssveitin..................52 62
Keiluböðlar........................52 60
Keilugarpar........................52 58
Keflavík-a.........................52 52
Þröstur............................56 52
KR-b...............................56 28
ET.................................56 26
Úlfarnir...........................56 24
1. deild kvenna
Tryggðatröll - Flakkarar.............0:8
Bombumar - Afturgöngurnar............2:6
Keilusystur - Keiluálfar.............6:2
Staðan
Afturgöngurnar.....................52 88
Flakkarar..........................52 76
Bomburnar..........................52 50
Tryggðatröll.......................52 38
Keilusystur........................52:36
Keiluálfar.........................52 24
FELAGSLIF
Herrakvöld Fylkis
HERRAKVÖLD Fylkis verður föstu-
daginn 24. janúar og hefst kl. 19 í
Fylkishöllinni. Ræðumaður verður
Séra Gunnar Sigurjónsson og þeir
Hallgrímur Helgason og Jóhannes
Kristjánsson skemmta.
Þorrablót Keilis
KEILISMENN halda þorrablót sitt á
Bóndadaginn, föstudaginn 24. janúar
og hefst það kl. 19.30 í golfskálanun-
um. Gestur kvöldsins verður Jón Bald-
vin Hannibalsson.
ÞorrablótVals
HIÐ árlega þorrablót Valsmanna verð-
ur að Hlíðarenda laugardaginn 25.
janúar og verður húsið opnað kl. 19.
Ingibjörg Sóirún Gísladóttir borgar-
stjóri og Hjörleifur Sveinbjörnsson
verða heiðursgestir en Þorsteinn Har-
aldsson veislustjóri.
Aðalfundur
Blikaklúbbsins
AÐALFUNDUR Blikaklúbbsins,
stuðningsklúbbs knattspymudeildar
Breiðabliks, verður í Smárar.um kl.
20.30 föstudaginn 24. janúar.
í Kvöld
Körfuknattleikur
Úrvalsdeildin:
...20
Grindavík: Grindavík - Þór ...20
Njarðvík: UMFN - Haukar ...20
Sauðárkrókur: Tindastóll - KFÍ... ...20
Seljaskóli: ÍR - Skallagrímur ...20
Smárinn: Breiðablik - KR ...20
Handknattleikur
Bikarkeppni karla, 4-liða úrslit:
KA-heimili: KA-IR ....20