Morgunblaðið - 24.01.1997, Side 4
JHtftngtmMafrÍft
FOLX
■ SVÍINN Olof MeUberg og
Portúgaiinn Raul Oliverio æfa
nú með Newcastle. Báðir eru vam-
Síðasti harðjaxlinn
Vamarmaðurinn snjalli Franco Baresi kominn með 700 leiki fyrir AC Milan
Síðastliðinn sunnudag, í blíðskap-
arveðri á eynni Sardiníu, skokk-
aði 36 ára gamall unglingur út á
völlinn og tók til við
EinarLogi að hirða knöttinn af
Vignisson ungum framlínu-
skrifar' mönnum heimaliðs-
frá Italiu jns j Cagliari sem
voru flestir ennþá að dunda sér í leik-
skóla þegar hann _hóf að leika með
fyrstu deildinni á Ítalíu, Serie A.
r Ekki var hægt að sjá að viðkom-
andi „unglingur" - Franco Baresi -
væri orðinn leiður á fótbolta þótt
þetta væri 700. leikur hans fyrir
AC Milan, glottið fræga var enn á
sínum stað og sem fyrr mótmælti
hann kröftuglega í hvert skipti sem
dæmt var á hann leikbrot' og leit
jafnan undrandi til áhorfenda, sem,
þótt flestir væru á bandi andstæð-
inganna gátu ekki annað en glott í
-kampinn yfir ákafanum. Og þeir
klöppuðu mikið fyrir honum í leiks-
lok, enda Baresi fyrir löngu orðinn
’þjóðareign á Ítalíu.
20 ðr hjá Mllan
Hann er að leika tuttugasta leik-
tímabil sitt með AC Milan en lætur
engan bilbug á sér fínna. Eftir að
hafa átt í meiðslum í haust er hann
kominn á fullt aftur og fékk, eins
og svo oft áður, hæstu einkunn varn-
armanna Milan fyrir leikinn gegn
Cagliari. Fjarvera hans framan af
tímabilinu er talin ein meginástæða
slaks gengis Milan-liðsins og ef hann
þvertæki ekki fyrir það sjálfur myndi
Cesare Maldini landsliðsþjálfari
eflaust stilla honum upp sem aftasta
manni f leiknum mikilvæga gegn
Englendingum 12. febrúar næst-
- komandi.
Þegar, eða á maður að segja ef,
Franco Baresi leggur skóna á hilluna
í vor lýkur ákveðnu tímabili í ít-
alskri knattspyrnusögu. Hann ásamt
Giuseppe Bergomi (33 ára) og Pietro
Vierchowod (37 ára) eru síðustu
„starfandi" dæmigerðu ítölsku
harðjaxlamir sem sóknarmenn í
Evrópu hafa óttast svo mjög síðustu
áratugina. Baresi er reyndar mun
ijölhæfari leikmaður en þeir tveir
fyrrnefndu, en þessir kappar lærðu
allir iðn sína af leikmönnum eins og
Tarcisio Burgnich, Giacento Facc-
hetti, Romeo Benetti, Gaetano
Scirea og kannski frægasta slátrar-
anum af þeim öllum, Claudio Gent-
*'ile. „Það er eiginlega bara frí að
mæta varnarmönnum andstæðing-
anna eftir að hafa att kappi við
Baresi á æfíngum alla vikuna," sagði
hollenski sóknarmaðurinn Marco
Van Basten fyrir nokkmm ámm, en
bætti við: „Hinsvegar er hann ekki
grófur leikmaður og þó hann kunni
sín brögð er hann ekki einn af þeim
sem beitir óþverraskap."
Ennþá kallaður „guttinn"
Baresi lék fyrsta leik sinn með
Milan í apríl 1978 í 2:1 sigurleik
gegn Verona. Hann var einungis 18
ára gamall, sem er kornungt fyrir
varnarmann á Ítalíu, en þáverandi
þjálfari Milan, sænska goðsögnin
Nils Liedholm, sá mikið efni í Bar-
esi og tímabilið á eftir er Milan varð
mei8tari var hann fastamaður í lið-
inu. Hann fékk viðurnefnið „II pisc-
armenn.
■ BRUCE Rioch, fyrmm knatt-
spymustjóri Arsenal, er nú sterk-
lega orðaður við starf „stjóra"
WBA. Einnig hefur Ray Harford,
fyrrnrn stjóri Blackburn, verið
nefndur í sambandi við starfíð.
■ MIKE Sheron, markahrókur
Stokeer heldur betur eftirsóttur.
West Ham og Nott. Forest em
komin í hóp þeirra liða, sem vilja
fá hann til sín.
■ DALIAN Atkinson, fyrram
leikmaður Sheff. Wed. og Aston
Villa, sem lék síðast með tyrk-
neska liðinu Fenerbache, æfír nú
með Man. City.
■ GLENN Hoddle, landsliðsþjálf-
ari Englands, var meðal áhorfenda
á leik Italíu og N-írlands í Pal-
ermo, 2:0. Hann sá að leikmenn
ítalska iiðsins áttu í erfíðleikum
upp við markið.
■ CESARE Maldini, þjálfari ítal-
íu, sem stjórnaði liði sínu í fyrsta
sinn, mun stjórna því næst í leik
gegn Englandi á Wembley 12.
febrúar.
■ „VIÐ vorum betri en Norður-
írar, en áttum í vandræðum með
sóknarleikinn - upp við mark
þeirra. Við þurfum að skerpa á
sóknarleiknum," sagði Maldini.
■ MALDINI lét fimm leikmenn
leika í öftustu vamarlínu, Ciro
Ferrara sem aftasta mann og son
sinn, Paolo, fyrir framan hann.
■ FABRIZIO> RavanelU var ekki
í byijunarliði Ítalíu, en kom inná
sem varamaður.
■ ÍTALSKA Uðið var þannig:
Angelo Peruzzi, Ciro Ferrara,
Paolo Maldini, Amedeo Carboní,
Alessandro Costacurta (Fabio
Cannavaro 72.), Dino Baggio,
Angelo Di Livio (Stefano Eranio
79.), Roberto Di Matteo (Diego
Fuser 58.), Pierluigi Casiraghi
(Fabrizio Ravanelli 58.), De-
metrio Albertini og Gianfranco
Zola (Alessandro Del Piero 62.).
■ ZOLA skoraði fyrra markið, en
Del Piero, sem kom inná sem vara-
maður fyrir hann, það seinna á síð-
ustu mín. leiksins.
FRANCO Baresl, „guttlnn" elns og hann er oft kallaður, er virtastl knattspyrnumaður-
Inn á Ítalíu. Hann hefur oft œtlað sár að leggja skóna á hllluna en jafnan látið tll
lelðast að halda áfram eftlr áskoranir frá þjálfurum og lelkmönnum.
■: 8. maí 1960 í Travagliato,
Hæð / þyngd: 1,76 m / 70 kg
Fyrsti deildarleikur: 23. apríl 1978
(Verona - Milan 1:2)
Fyrsti landsleikur: 4. desember 1982
(Italía - Rúmenía 0:0)
Síðasti landsleikur: 7. september 1992
(Slóvenía - Ítalía 1:1)
Opinberir leikir fyrir AC Milan: 700,
þar af 453 í 1. deild.
Landsleikir: 81
Titlar:
ítalskur meistari: 1979, ’88, ’92, ’93,
’94, ’96.
Meistari meistaranna á Ítalíu: 1988,
’92, ’93, ’94.
Evrópumeistari: 1989, ’90, ’94.
Meistari meisraranna í Evrópu: 1989,
’90, ’95.
Heimsmeistari félagsliða: 1989, ’90.
inin“ sem þýðir á mállýsku Lombar-
díahéraðs „guttinn" og var það
vegna ungs aldurs en meðal sam-
heija hans í liðinu voru gamlar
kempur á borð við Gianni Rivera og
Fabio Capello, sem átti eftir að verða
þjálfari Baresi hjá Milan síðar meir.
Baresi heldur ennþá gælunafninu
þótt hið hátíðlega „II principe di
Milano", „prinsinn af Milano“ hafí
verið meira notað í seinni tíð og
þyki heldur virðulegra fyrir mann
vel kominn á fertugsaldurinn!
Eftir að Milan vann titilinn 1979
tók við erfítt tímabil. Liðið var dæmt
niður í aðra deild 1980 vegna fjár-
málaóreiðu og nokkrir lykilmenn
hurfu á brott. Ónnur deildin var tek-
in með trompi en liðið dvaldi einung-
is eitt ár í fyrstu deild og féll á ný
1981. Baresi hafði lengi verið orðað-
ur við landsliðið en það var erfítt
að vinna sér sæti fyrir HM 1982
leikandi í annarri deild, sérstaklega
þar sem ekki minni maður er Gaet-
ano Scirea lék í sömu stöðu og Bar-
esi. „Guttinn" var hinsvegar valinn
í hópinn sem hélt í sigurför til Spán-
ar sumarið 1982 en lék engan leik
og fyrsti landsleikurinn kom ekki
fyrr en í desember sama ár. Næstu
árin var Baresi ævinlega varaskeifa
fyrir Scirea en eftir að sá síðar-
nefndi hafði átt fremur dapra leiki
á HM í Mexíkó 1986 ákvað hann
að láta gott heita og eftirlét Baresi
hina mikilvægu stöðu fríheija sem
hann hélt næstu átta árin og héldi
enn ef hann vildi eins og áður sagði.
Alltaf alveg aA hætta
Baresi hefur margoft lýst því yfir
að viðkomandi leiktíð sé hans síðasta
en alltaf látið til leiðast að halda
áfram eftir áskoranir frá þjálfurum
og leikmönnum. Hann hætti að leika
með landsliðinu 1992 en liðið var
ekki sannfærandi í næstu leikjum og
Arrigo Sacchi taldi Baresi á að hjálpa
til við að koma liðinu í úrslitakeppn-
ina í Bandaríkjunum 1994. Baresi
leiddi þar liðið alla leið í úrslitin gegn
Brasilíumönnum þar sem ítalir töp-
uðu í vítakeppni. Þar brenndi Baresi
ásamt Roberto Baggio af víti og gekk
af velli grátandi við öxl Sacchi. Að
loknum einum leik í viðbót, hans át-
tugasta og fyrsta, ákvað Baresi að
nóg væri komið með
landsliðinu. Milan hélt
hinsvegar áfram að njóta
krafta hans og síðasta vor
vann liðið sinn ijórða
meistaratitil á fímm árum
og þótti Baresi það viðeig-
andi kveðjustund. En
þjálfarinn Capello hélt á
braut og nýi þjálfarinn,
Oscar Washington Ta-
barez, grátbað Baresi um
að hjálpa sér við að halda
liðinu á réttri braut, bara
eitt tímabil einn! Tabarez
stoppaði stutt við en Bar-
esi heldur áfram og með
hveijum leik bætir hann
leikjamet Milan, en fyrra metið, 651
leik, átti Gianni Rivera.
Rivera var ánægður með að fyrr-
um samheiji sinn hefði bætt metið.
„Ég hef misst metið til sanns meist-
ara, leikmenn eins og Baresi eru
afar sjaldgæfír," sagði Rivera. Ljóst
er þó að Milan getur ekki endalaust
stólað á Baresi og liðið verður að
fara að leita að arftaka hans. Lengi
hefur verið rætt um að Paolo Mald-
ini leysi hann af, bæði hjá Milan og
landsliðinu, en bakvörðurinn Maldini
vill ógjaman missa það sóknarfrelsi
sem hann hefur á kantinum og allt
eins er víst að nýr leikmaður verði
fenginn til félagsins. Baresi verður
hinsvegar örugglega áfram í sviðs-
ljósinu hjá AC Milan, hann gæti
hugsanlega orðið þjálfari félagsins
í framtíðinni eða tekið við annarri
háttsettri stöðu.
KNATTSPYRNA