Morgunblaðið - 25.01.1997, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
JRttnðtmlþliifetík
C
1997
LAUGARDAGUR 25. JANUAR
BLAD
Muster steinlá
og hneigði sig
PETE Sampras fór á kostum er hann sigraði
Thomas Muster í undanúrslitum einliðaleiks á
opna ástralska meistaramótinu í tennis. Samp-
ras, sem er efstur á heimslistanum, mætir Spán-
veijann Carlos Moya á morgun.
Sampras sigraði Muster 6-1, 7-6, 6-3, á innan
við tveimur klukkustundum og voru fréttamenn
á því að hann hefði aldrei leikið betur á níu ára
ferli en í gær. Það var nánast sama hvað Must-
er reyndi, Sampras átti svar við flestu. Þegar
úrslitin voru ráðin hneigði Muster sig fyrir
Sampras í virðingarskyni og í framhaldi af því
stóð áhorfendaskarinn úr sætum sínum og hyllti
sigurvegarann vel og lengi.
Svissneska stúlkan Martina Hingis og Natasha
Zvereva frá Hvíta-Rússlandi sigruðu í tvíliðaleik
í gær. Lindsay Davenport og Lisa Raymond frá
Bandaríkjunum áttu aldrei möguleika; úrslitin
urðu 6-2, 6-2.
FRJALSIÞROTTIR / AFMÆLISMOT IR
Vala hefur
stokkið 4 m
VALA Flosadóttir hefur keppt
tvívegis á síðustu vikum, en
hún segist að undanförnu hafa
lagt áherslu á að æfa 16 skrefa
atrennu. „Á fyrra mótinu
keppti ég með tíu skrefa at-
rennu og stökk fjóra metra
en um sfðustu helgi stökk ég
tuttugu sentimetrum lægra en
notaði þá lengri atrennuna,“
sagði Vala í gær. „Það var
æfmgamót og æfingar með
lengri atrennuna hafa gengið
vei í vikunni og ég vona svo
verði einnig á mótinu í Laug-
ardalshöll.
Á næstunni keppir Vaia á
nokkrum mótum til þess að
ffnpússa atrennuna fyrir
heimsmeistaramótið í París i
mars. Eftir mótið hér á landi
keppir hún í Þýskalandi, í
Moskvu og i Englandi auk
danska og sænska meistara-
mótsíns, en það sænska verður
líklega það siðasta fyrir HM.
Stefnan á
4,20 m á HM
„ÆFINGAR hjó Völu hafa
gengið mjög vel og hún hefur
verið laus við öll meiðsli. Upp
á síðkastið hefur megin-
áhersla verið lögð á tæknileg
atriði og allt lagt undir til
þes6 að hún verði f sem bestri
æfingu þegar hún mætir til
keppni á HM í París,“ sagði
Szczybra þjálfari Völu. Hann
segist gera sér vonir um að
hún fari yfir 4,20 m á HM en
þar með myndii hún bæta sig
innanhúss um 4 sm. „Vala er
ung og á framtíðina fyrir sér,
en hún og aðrir verða að sýna
þolinmæði. Hún hefur ekki
æft greinina lengi og það tek-
ur sinn tima að ná enn lengra
en hún hefur nú gert.“
Þráinn glotti
við tönn
UNDIR lok fundar ÍR-inga
með blaðamönnum i Laugar-
dalshöll f gær var kallað á Jón
Arnar Magnússon tugþrautar-
kappa í síma þar sem honum
var tilkynnt að hann hefði
verið valinn kynþokkafyllsti
karimaður landsins af hlust-
endum Rásar tvö. Við það kom
glampi í augu Þráins Haf-
steinssonar þjálfara hjá ÍR.
Morgunblaðið/Þorkell
JÓN Arnar Magnússon og Vala Flosadóttlr verða í hópl sterkra íþróttamanna sem etja kappl á afmælismóti ÍR. Þau hlttust á fundl
í Laugardalshöll í gær og Vala smellti kossi á klnn Jóns og óskaðl honum tll hamlngju með nýfenglnn styrk til æfinga auk
þess sem hann hafði þá nýlega verlð valinn kynþokkafyllsti karlmaður landsins af hlustendum Rásar tvö.
Vala Flosadóttir og Jón Arnar Magnússon mæta til hörkukeppni í Laugardalshöll
Vinnur Vala Bartovu?
„ÉG hlakka til mótsins því mér hefur gengið vel á æfingum upp
á síðkastið," sagði Vala Flosadóttir, Evrópumeistari kvenna í
stangarstökki innanhúss er hún var nýkomin til landsins til þátt-
töku á Af mælismóti ÍR sem hefst í Laugardalshöll klukkan 16 í
dag. „Mér líst bara vel á að mæta Bartovu þótt hún hafi sett
Evrópumet í vikunni, það bara gerir mótið enn skemmtilegra.“
Auk keppninnar í stangarstökki
verður tekist á í þríþraut karla
þar sem Jón Arnar Magnússon mun
etja kappi við tvo valinkunna tug-
þrautarkappa. Þórdís Gísladóttir
hástökkvari fær verðuga keppni en
tvær finnskar og ein sænsk stúlka
mæta til keppni. Einnig verður ein-
vígi fljótustu manna landsins í 50 m
hlaupi.
Vala keppir nú í annað sinn á
móti hér á landi og í fyrsta sinn
innanhúss. Daniela Bartova frá
Tékklandi er ein þeirra sem mætir
Völu, en Bartova er fyrrum heims-
methafi utanhúss og setti nú í vik-
unni Evrópumet innanhúss, 4,30 m.
Hún náði þriðja besta árangri utan-
húss á sl. ári, 4,27 m. Vala hefur
aðeins mætt henni einu sinni, á
Evrópumótinu í Stokkhólmi og þá
hafði Vala betur eins og kunnugt
er. „Staðan er eitt núll mér í hag
svo ég fer full sjálfstrausts í þessa
keppni." Vala sagðist ennfremur
glöð yfir að fá tækifæri til að taka
þátt í móti hér heima. Hún óttast
ekki álagið sem fylgir því að keppa
hér á landi eftir glæsilega frammi-
stöðu á síðasta ári. „Þetta verður
skemmtilegt.“
Auk Völu og Bartovu mætir fyrr-
um heimsmethafi innanhúss til leiks
en það er þýska stúlkan Nicole Riger
sem er næst á eftir Völu á heimslista
síðasta árs með 4,16 m. Einnig kepp-
ir Janet Zach en hún á best 4 m slétta.
Jón Arnar mætir fyrrum Ólymp-
íumeistara í tugþraut, Robert Zmelik
frá Tékklandi og Bandaríkjamannin-
um Ricky Barker í þríþraut - 50 m
grindahlaupi, kúluvarpi og lang-
stökki. „Mér líst vel á, ég hef æft
vel síðustu mánuði og bíð spenntur
eftir að mæta þeim,“ sagði Jón Arn-
ar í gær. „Ég hef ekkert keppt síðan
í lok september og því er svo sannar-
lega tími til.“ Jón sagðist þekkja
þessa menn vel, einkum þó Zmelik
en þeir mættust síðast á ólympíuleik-
unum í Atlanta sl. sumar. „Það er
alltaf gaman að keppa hér heima
og ég vona bara að sem flestir komi
og fylgist með.“
{ hástökki kvenna mætir íslands-
methafínn Þórdís Gísladóttir finnsku
stúlkunum Kaisa Gustafsson og
Daniela Loitonien og Ann Högberg
frá Svíþjóð. Gustafsson stökk 1,90
m í fyrra en hinar tvær 1,85. Þórdís
fór hæst 1,83 m í fyrra en íslands-
met hennar er 1,88 m.
KNATTSPYRNA: LEIÐ WIMBLEDON Á TOPPINN í ENGLANDI / C3,C4