Morgunblaðið - 25.01.1997, Qupperneq 3
2 C LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1997 C 3
URSLIT
...2.12.55
...2.12.95
..2.13.13
..2.13.22
...2.13.35
..2.13.38
...2.13.38
...2.13.55
..2.13.73
...2.13.83
HM á skíðum
Brun karla
Kitzbiihel í Austurríki. Brun karla, tvær
umferðir.
1. LucAlphand(FrakkL) ....
(1.071.06,29)
2. Wemer Franz (Austurr.).
(1.06,33/1.06,62)
3. William Besse (Sviss)...
(1.06,73/1,06.40)
4. Josef Strobl (Austurr.).
(1.06,57/1.06,65)
5. Fritz Strobi (Austurr.) .......
(1.06,89/1.06,42)
6. Atle Skaardal (Noregur) ....
(1.06.56/1.06.82)
7. Wemer Perathoner (Ítalíu)
(1.06,45/1.06,93)
8. Franco Cavegn (Sviss)...
(1.06,45/1.07,10)
9. Pietro Vitalini (Ítalíu) .
(1.06,81/1.06,92)
10. Ed Podivinsky (Kanada)..
(1.07,17/1.06,66)
Brun kvenna
Cortina D’Ampezzo á Ítalíu.
1. Isolde Kostner (Ítalíu).....1.30,81
1. Heidi Zurbriggen (Sviss)....1.30,81
• Þetta er í fyrsta skipti í þijátíu ár sem
tvær stúlkur verða jafnar í brani.
3. Katja Seizinger (Þýskal.)...1.30,83
4. Warwara Zelenskaja (Rússl.).1.30,96
5. Renate Goetschl (Austrr.)...1.31,23
6. BibianaPerez (Ítalíu).......1.31,25
7. Regine Cavagnoud (Frakkl.)..1.31,38
7. Pemilla Wiberg (Svíþ.) .....1.31,38
9. Hilary Lindh (Bandar.) .....1.31,42
10. Katherina Gutensohn (Þýskal.) ..1.31,46
Körfuknattleikur
NBA-deildin.
Toronto - Miami...................87.99
Cleveland - Chicago...............71.87
Indiana - New York................90.92
Orlando - Milwaukee...............96.92
Houston - New Jersey................111.104
Vancouver - Minnesota.............76.95
Golden State - Detroit............79.94
LA Clippers - Seattle...........102.100
Íshokkí
NHL-deildin.
Boston - Florida....................1.4
St Louis - Vancouver................4.3
Phoenix - Anaheim...................6.3
Pittsburgh - Colorado...............3.4
■Eftir framlengingu.
UMHELGINA
Sund
Stórmót Búnaðarbankans og VISA stendur
yfir f Sundhöll Hafnarfjarðar. Keppt verður
í dag og morgun kl. 10 og 15.30. Helstu
afreksmenn allra aldursflokka taka þátt i
mótinu.
Frjálsíþróttir
Alþjóðlegt afmælismót ÍR verður í Laugar-
dalshöllinni í dag. Mótsetning verður kl. 16
og heppni hefst kl. 16.30.
Glíma
Fyrsta mót ársins verður í íþróttahúsinu á
Seltjamamesi kl. 13 í dag. Það er Þorra-
mót GLÍ, keppt verður í stigaglímu í tveim-
ur aldursflokkum.
Handknattleikur
Bikarkeppni karla, undanúrslit.
Sunnudagur:
KA-húsið: KA - ÍR....................20
Bikarkeppni kvenna, undanúrslit.
Laugardagur:
Yalshús: Valur - KR..................14
Ásgarður: Stjaman - Haukar...........14
1. deild karla:
Sunnudagur
Seljaskóli: ÍR - Stjaman.............20
Seltjamames: Grótta-ÍBV..............20
Kaplakriki: FH - Valur...............20
2. deild karla:
Laugardagur:
Seltjamames: KR - Víkingur........16.30
Höllin Akureyri: Keflavík - Þór......15
Sunnudagur:
Laugardalsh.: Ármann - Fylkir.....14.30
Laugardalsh.: Ögri-HM.............16.30
Körfuknattleikur
Úrvalsdeildin
Sunnudagur:
Strandgata: Haukar - KR..............16
Borgames: Skallagrimur - Grindavfk...20
Höllin Akureyri: Þór - í A...........20
ísafjörður: KFÍ - ÍR.................20
Keflavík: Keflavík - Njarðvfk........20
Sauðárkrókur: Tindas. - Breiðablik...20
1. deild kvenna:
Laugardagur:
Keflavík: Keflavík - Breiðablik......19
Njarðvík: Njarðvík - Grindavík.......16
Mánudagur:
Kennaraháskólinn: ÍS - KR............20
1. deild karla:
Laugardagur:
Egilsstaðir: Höttur - Valur..........14
Þorlákshöfn: ÞórÞ. - Selfoss.........17
Sunnudagur:
Stykkishólmur: Snæfell - ÍS..........20
Ásgarður: Stjaman - Stafholtstungur..15
Íshokkí
Þriðji leikurinn í íslandsmótinu í íshokkí
verður á skautasvellinu í Laugardal í dag
og hefst kl. 20. Þar mætast SR og SA.
KNATTSPYRNA
IÞROTTIR
LENGJAM
Launa-
hæstu
„stjórarnir“
TALIÐ er að Kenny Dalglish, nýráðinn knatt-
spyrnusljóri Newcastle, fái 112 millj. ísl. kr.
í árslaun, sem er nokkru meira en fyrirrenn-
ari hans, Kevin Keegan, fékk í vasann, en
hann fékk 100,5 millj. kr. Dalglish er launa-
hæsti „stjórinn" á Bretlandseyjum, þar til
Sven Göran Eriksson tekur til starfa hjá
Blackburn - árslaun hans verða 122,9 millj.
Dalglish var með 39 millj. í árslaun er hann
starfaði síðast hjá Blackburn.
Þess má geta að Bobby Robson, þjálfari
Barcelona, ér með 111,7 millj. kr. í árslaun,
John Toshack hjá La Coruna er með 72,6
millj. kr. og Ray Hodgson hjá Inter Mílanó
er með 67 millj. kr.
Snúum okkur aftur til Bretlandseyja, þar
sem Ruud Gullit hjá Chelsea er með 110,5
miiy. kr. í árslaun, Arsene Wenger hjá Ars-
enal 78,2 milij. kr., Alex Ferguson, Man.
Utd., 55,8 millj. kr. George Graham hjá Le-
eds er með 33,5 millj., Bryan Robson hjá
Middlesbrough 28 millj. og Walter Smith hjá
Glasgow Rangers 20,2 millj. ísl. kr.
Glenn Hoddle, landsliðsþjálfari Englands,
er með 28 millj. kr. í árslaun, en Terry Vena-
bles, fyrrum þjálfari Englands, fær 27,5 millj.
kr. í árslaun sem landsliðsþjálfari Ástralíu.
Anton Want/Allsport
EFAN Ekoku, hinn hættulegi miöherjf Wimbledon, er hér ( blkarleik gegn Crewe á dögunum. Hann og félagar
hans verða í svlðsljósinu ð Olt Trafford í dag, þar sem þeir mæta Man. lltd. í bikarkeppnlnnl.
Leið Wimbledon
á toppinn
■ 1977: Tryggði sér rétt til að leika í
deildarkeppninni með því að bera sigur
af hólmi í Southern-deildarkeppninni.
■ 1978-79: Varð númer þrettán á fyrsta
keppnisári í 4. deild.
■ 1978: Dario Gradi tekur við knatt-
spyrnustjórastöðinni af Allen Batsford.
Mesta tap, 0:8, í bikarleik gegn Everton.
■ 1981: Dave Bassett tekur við knatt-
spyrnustjórastöðunni. Liðið fær metupp-
hæð fyrir Steve Galliers, sem fór til Cryst-
al Palace fyrir 70 þús. pund.
■ 1982-83: Verður sigurvegari í 4. deild
og sigraði „League Group Cup“.
■ 1983-84: Verður nr. þijú í 3. deild og
vinnur sér sæti í 2. deild. Alan Cork setti
liðsmet, skoraði 29 mörk.
■ 1985-86: Wimbledon tryggi sér rétt til
að leika í 1. deild, með því að verða í
þriðja sæti í 2. deild á eftir Norwich og
Charlton. John Fashanu varð dýrasti Ieik-
maður liðsins, er hann var keyptur frá
Millwall í mars 1986 á 125 þús. pund.
■ 1986-87: hafnaði í sjötta sæti á fyrstu
leiktíð sinni í 1. deild. Dave Bassett fór
til Watford, Bobby Gould tók við knatt-
spyrnustjórastöðunni. Terry Gibson varð
dýrasti leikmaður liðsins, keyptur frá
Man. Utd. á 200 þús. pund.
■ 1988: Wimbledon verður sigurvegari í
bikarkeppninni þegar Lawrie Sanchez
skoraði sigurmark liðsins á Wembley gegn
Liverpool, 1:0. Andy Thorn er seldur til
Newcastle fyrir metupphæð, 900 þús.
pund.
■ 1990: Ray Harford tekur við knatt-
HANDKNATTLEIKUR
Ivanescu tók
við af Klijaic
hjá Essen
Miklar líkur eru á að Velimir Klijaic
stjórni Wallau-Massenheim gegn Essen
i%jálfari þýska 1. deildarliðsins
Essen, Velimir Klijaic, sagði
upp störfum í fyrradag og strax
um kvöldið tók gamla kempan
Petr Ivanescu við stjórn liðsins.
„Klijaic er mjög góður góður
þjálfari, ég var að minnsta kosti
mjög ánægður með hann. En við
höfum ekki unnið nógu marga leiki
og tapið í bikarleiknum gegn
Grosswallstadt [í 8-liða úrslitunum]
hefur líklega fyllt mælinn,“ sagði
Patrekur Jóhannesson, sem leikur
með liðinu, við Morgunblaðið í gær.
Klijaic er talinn mjög hæfur þjálf-
aii og stýrði liði Króatíu til sigurs
á Ólympíuleikunum í Atlanta í sum-
□EnnjnilQEEl
ar. Hann var áður við stjómvölinn
hjá Wallau-Massenheim og era allar
líkur á að hann fari aftur þangað;
taki við af Kristjáni Arasyni, sem
var rekinn á dögunum.
„Liðið hefur ekki náð að smella
nógu vel saman, en þess ber að
geta að breytingar era mjög mikl-
ar frá því í fyrra; nýr leikmaður í
vinstra horninu, ég er nýr í skyttu-
stöðunni vinstra megin, miðjumað-
urinn er nýr og líka hægri homa-
maðurinn. Við erum allir ungir og
það tekur tíma að ná saman. Deild-
in er það sterk að ef lið nær ekki
100% saman er ómögulegt að því
gangi vel,“ sagði Patrekur.
Ivanescu þekkir vel til hjá Essen;
þjálfaði þar þegar Alfreð Gíslason
var hjá félaginu og þá var það
sigursælt. „Ég vona að þessi breyt-
ing hafí góð áhrif. Við eigum að
spila við Dormagen á heimavelli á
morgun og ég trúi ekki öðra en
stemmningin verði í lagi. Fyrsti
leikurinn eftir fríið vegna landsleikj-
anna [milli íslands og Þýskalands
ytra] er á útivelli gegn Wallau. Það
yrði fyndið ef Klijaic yrði þá tekinn
við Wallau!“ sagði Patrekur.
WIMBLEDON hefur svo sannarlega verið spútnikliðið á Englandi
í vetur. „Hversu gott lið er Wimbledon," spurðu menn fyrir nokkru.
Enginn trúði því að liðið myndi ná að leika nítján leiki í röð án
taps. Já, þegar stórstjörnur eins og Gianluca Vialii, Patrick Ber-
ger, Gianfranco Zola og Fabrizio Ravanelli voru keyptir til Eng-
lands, reiknaði enginn með að Vinnie Jones og félagar hjá Wimble-
don yrðu með í meistarabaráttunni. Lið sem á ekki heimavöll,
hefur fengið inni á Selhurst Park, heimavelli Crystal Palace í
London.
Styrkur Wimbledon er að leik-
menn kappkosta að skammta
sér, leggja hart að sér við æfmgar
og bera litla virðingu
Sigmundur Ó. fyrir leikmönnum
Steinarsson sem hafa venð
skrifar keyptir fyrir miltjóna
punda, sumir án þess
að vinna fyrir launum sínum. Barátt-
an og leikgleðin er sterkasta vopn
leikmanna Wimbledon. Liðið hefur
náð ævintýralega langt með þann
leikmannahóp sem er í herbúðum
þess. Joe Kinnear, knattspyrnustjóri
liðsins, hefur sagt: „Við vitum vei
að við erum ekki neitt stjömulið. Við
erum flokkur manna, sem stendur
þétt saman og við styðjum vel við
bakið hver á öðrum. Já, það er heimil-
islegt hjá okkur. Við höfum trú á
því sem við eram að gera og erum
með gott lið, hvað sem margir segja
um okkur. Við höfum lært smátt og
smátt að búa við það, sem ýmsir
„spekingar" hafa sagt um okkur,
enda hættir að kippa okkur upp við
það,“ sagði Kinnear.
Leika með hjartanu
Þess má geta til gamans, að éftir
að leikmenn Wimbledon höfðu með
mikilli leikgleði og baráttu lagt eitt
af „stórliðunum“ af velli í vetur, kom
þjálfari liðsins til Kinnear og sagði:
„Ég verð að segja þér hvað þitt lið
hefur fram yfir mitt,“ um leið og
hann sló hægri hendi á vinstra bijóst-
ið. - „Þetta!“ og um leið togaði þjálf-
arinn með vinstri hendi í skyrtu sína
og sagði: „Og þetta...“
Já, leikmenn Wimbledon leika með
hjartanu, eins og svo oft er sagt á
íslandi og lífsregia þeirra er að mæta
alltaf með réttu hugarfari til leiks.
Wimbledon-liðið hefur leikið skyn-
samlega í vetur, leikmenn liðsins hafa
varist og látið knöttinn síðan ganga
hratt á milli manna þegar þeir hafa
farið í sókn - nýtt sér hraða og styrk
sinn, hafa hrellt vamir og markverði
andstæðinga sinna hvað eftir annað.
Þegar Wimbledon fær aukaspymur
eða homspymur, skapast alltaf
hætta, enda hafa leikmenn liðsins
skorað mikið af mörkum með skalla.
„Brjálaða gengið“
Baráttugleði leikmanna Wimble-
don hefur orðið til þess að ýmsar
sögur hafa verið sagðar um þá, að
þeir séu „siagsmálabræður" sem
sparki allt niður sem hreyfist til að
klekkja á mótheijunum. Margar
þessar sögur eru ofsagðar. Auðvitað
hefur járnmaðurinn Vinnie Jones
sett sinn svip á leik liðsins, hann
er harður í horn að taka og kallar
ekki allt ömmu sína, þegar á hólm-
inn er komið. Vegna framgöngu
hans fékk liðið eitt sinn á sig nafn-
ið „bijálaða gengið". Jones er litrík-
ur persónuleiki og hann hefur oft
látið orð falla í blöðum, sem betur
hefðu verið ósögð. Frægt var þegar
hann lét gera myndbandið „Harði
maðurinn“ sem varð vægast sagt
umdeilt. Á myndbandinu sýndi hann
ýmis fólskuleg brot. Vegna mynd-
bandsins var Jones settur í sex
mánaða keppnisbann og dæmdur til
að greiða 20 þús. pund í sekt.
„Getum unnið hvaða
lið sem er“
Wimbledon byijaði illa, tapaði
þremur fyrstu leikjum sínum, en síð-
an kom glæsileg sigurganga - liðið
lék nítján leiki í röð án taps. „Við
getum lagL hvaða lið sem er að velli.
Það er trú okkar að við getum hald-
ið út í meistarabaráttunni," segir
Nígeríumaðurinn Efan Ekoku.
VINNIE Jones, leikmaðurlnn baráttuglaði, sést hér í landsleik gegn Hollendingum.
„Þegar ég hugsa til baka, þegar
ég var hjá Norwich fyrir þremur
árum, er allt mögulegt. Norwich var
þá með minni leikmannahóp en
Wimbledon nú. Norwich var ekki
iangt frá meistaratitlinum, hafnaði í
þriðja sæti.“
Ekoko hrósar Joe Kinnear, knatt-
spyrnustjóra Wimbledon, segir að
hann komi fram við leikmennina
eins og syni sína - umgengst þá
meira en aðrir „stjórar" gera.
„Stemmningin og andrúmsloftið er
stórkostlegt hjá okkur, boðið er upp
á glens og grín. Leikmenn leggja
mjög hart að sér við æfingar. Hjá
Norwich var lagt meira upp úr því
að æfa leikkerfi með knöttinn. Þjálf-
arinn, Mike Walker, sagði okkur,
að við ættum alltaf að leika eins og
við hefðum æft, hveijir sem móther-
jarnir væru. Hér hjá Wimbledon vit-
um við manna best að lið okkar er
ekki skipað eins mörgum snjöllum
leikmönnum og hjá stærri félögun-
um. Þess vegna verðum við að leika
skynsamlega og skipta um hern-
aðaraðgerðir leik frá leik, eftir
hveijir mótheijarnir eru. Við erum
líkamlega sterkir og í mjög góðri
æfingu. Það nýtum við okkur.
Kinnear lagði grunninn að þeim
styrk sl. sumar, þegar hann fór með
okkur í æfingabúðir við Portsmo-
uth,“ sagði Ekoku.
Bo Johanssonfór í heimsókn
Árangur Wimbledon hefur vakið
mikla athygli víðs vegar um Evrópu
og á dögunum fór Bo Johansson,
fyrrum landsliðsþjálfari íslendinga
og núverandi þjálfari danska lands-
liðsins, í heimsókn til Wimbledon.
Bo sá Wimbledon, án Vinni Jones,
sem var að leika með landsliði Wa-
les, leggja Blackburn að velli, 1:0.
Eftir leikinn settust Bo og Joe Kinne-
ar niður og ræddu um leikinn og
Wimbledon-liðið. Bo sagði: „Ég hef
aldrei séð lið leika eins skipuiagðan
varnarleik, með fimm leikmenn í öft-
ustu varnarlínu, sem fóru nær aldrei
fram á völlinn. Það er erfítt fyrir
mótheijana að skapa sér tækifæri
gegn liði, sem leikur eins og Wimble-
don.“
Kinnear svaraði Bo: „Ég er með
tvo landsliðsmenn í mínu liði, en
Blackbum er með ellefu landsliðs-
menn. Það gefur augaleið að við fór-
um því ekki út á völlinn til að leika
glæsilega knattspyrnu gegn þeim.
Við hefðum ekkert fengið út úr því.
Við mættum til leiks með því hugarf-
ari að fá ekki á okkur mark, veij-
ast, ná skyndisóknum - og skora.
Við náðum settu marki og erum
ánægðir."
Hætta í „háloftum"
Eitt af sterkustu vopnum Wimble-
don eru háar sendingar fyrir mark
andstæðinganna, sama leikaðferð og
Joe Hooley lét Keflvíkinga leika á
árum áður með góðum árangri. Leik-
menn liðsins eru sterkir í loftinu,
skora mikið af mörkum með skalla.
Ef þeir ná ekki að vinna knöttinn í
loftinu, eru þeir tilbúnir að taka við
knettinum þegar hann kemur niður.
Þeir pressa geysilega inn í vítateig
andstæðinganna, sem hefur gefið
þeim mörg mörk og sigra.
Það er mikil stemmning í kringum
spyrnustjórastöðunni af Bobby Gould. Lið-
ið hafnar í áttunda sæti í 1. deild.
■ 1991-92: Wimbledon fær inni á Sel-
hurst Park. Ray Hardord fer til Black-
burn, Peter Withe verður sjötti „stjóri"
liðsins. Robbie Earle er keyptur fyrir
metupphæð - 775 þús. pund frá Port
Vale, Keith Curle er seldur fyrir metfé,
2,5 millj. punda til Man. City.
■ 1992: Joe Kinnear, fyrrum bakvörður
Tottenham, verður stjóri. Liðið hafnar í
þrettánda sæti í úrvalsdeildinni.
■ 1993: Mesti áhorfendafjöidinn á Shel-
hurst Park - 30 þús. áhorfendur sáu leik
gegn Man. Utd. í maí.
■ 1993-94: Wimbledon hafnar í sjötta
sæti í úrvalsdeildinni, sem er besti árang-
ur liðsins frá því það hafnaði í sjötta sæti
í 1. deild 1987.
■ 1994-1995: Liðið verður í níunda sæti,
Efan Okoku er keyptur frá Norwich á 920
þús. pund, sem er metupphæð.
■ 1995-96: Warren Barton er seldur til
Newcastle á fímm milljónir sterlings-
punda. Liðið verður nr. fjórtán í úrvals-
deildinni.
■ 1996-97: Wimbledon vann nítján leiki
í röð, er nú í fímmta sæti í deildinni, átta
stigum á eftir efsta liðinu, Liverpool, en
á þijá leiki til góða. Liðið er komið í undan-
úrslit í deildarbikarkeppninni.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Hardaway sýndi
Stoudamire
hvemig á að leika
^akvörðurinn Tim Hardaway hjá
íeiki Wimbledon á Selhurst Park, þó að aðeins
um 13.000 áhorfendur mæti á leiki liðsins,
það er nær 40.000 færri áhorfendur en koma
á heimaleiki Manchester United á Old Traf-
ford.
Nú er spumingin; tekst leikmönnum Wimble-
don að fagna meistaratitli í ár? Það reiknaði
enginn með því að Wimbledon myndi vinna Li-
verpool í bikarúrslitaleik á Wembley 1988.
Miami Heat sýndi hinum unga
Damon Stoudamire hjá Raptors
hvemig reyndir bakverðir gera þegar
Heat vann 99:87. Hardaway gerði
26 stig og nú hefur Heat sigrað í 20
af 25 leikjum á útivelli og hefur ekk-
ert lið í NBA náð betri árangri.
Hardaway lék vel í vöminni gegn
Stoudamire sem hitti aðeins úr sjö
skotum af 20. Stoudamire gagnrýndi
Hardaway á dögunum og sagði hann
ekki nógu góðan leikmann. „Ég var
ákveðinn í að láta hann fínna til te-
vatnsins," sagði Hardaway eftir leik-
inn. „Ég lék nokkuð fast á móti hon-
um framan af en síðan slakaði ég á,“
bætti Hardaway við. Stoudamire
sagði Heat með gott lið og að
Hardaway hefði ieikið vel. „Ég gætti
hans ekki nema í smá stund í vöm-
inni og fannst mér takast vel upp,“
sagði hann.
Jordan gerði 13 stig í síðasta leik-
hluta er Chicago vann Cleveland
87:71, og alls gerði hann 32 stig.
„Við þurftum svo sannarlega að hafa
fyrir þessum stigum en við náðum
að halda aftur af þeim í síðari hálf-
leik og mér tókst að gera nokkrar
auðveldar körfur í síðasta leikhluta,"
sagði Jordan. Terrell Brandon gerði
21 stig fyrir Cleveland, en hann gerði
ekkert stig í síðasta leikhluta.
Darrick Martin átti stóran þátt í
fyrsta sigri Clippers á Seattle í ein
þijú ár, eða í fjórtán leiki. Það var
25. janúar 1994 sem Clippers vann
SuperSonics síðast. Martin gerði 31
stig og var stigahæstur í leiknum sem
Clippers vann 102:100, en leikmenn
Clippers gerðu síðustu sex stigin í
leiknum. Shawn Kemp gerði 26 stig
fyrir heimamenn og tók 11 fráköst.
Þrír leikmenn Houston gerðu 20
stig er liðið sigraði New Jersey
111:106, Sam Mack, sem var í byij-
unarliðinu fyrir Mario Elie sem var
veikur, Olajuwon og Drexler. Þetta
var áttundi sigur Rockets á Nets í röð
Milwaukee hefur sigrað Orlando
tvívegis í vetur en í fyrrinótt hafði
Orlando betur, vann 96:92. Derek
Strong gerði átta stig síðustu fjórar
mínúturnar og tók auk þess 11 frá-
köst fyrir Magic en stigahæstir voru
þeir Penny Hardaway og Rony Seik-
aly með 23 stig hvor.
STJÖRNULEIKURINN tjörnu-
leikurinn í NBA körfunni verður
7. febrúar og nú hefur verið til-
kynnt hverjir taka þátt f atriðum
sem tengjast sjálfum leiknum. í
skotkeppninni verða Clyde Drexler
frá Houston, Tim Hardaway frá
Miami, Bobby Phills frá Cleveland
og Mitch Richmond frá Sacra-
mento. í þriggja stiga skotkeppnina
koma Dale Ellis frá Denver, Steve
Kerr frá Chicago, Tim Iægler frá
Washington, Terry Mills frá Detro-
it, Sam Perkins frá Seattle, Glen
Rice frá Charlotte, John Stockton
frá Utah og Walt Wiliiams frá Tor-
onto. Troðslukeppnin hefur alltaf
vakið mikla athygli og nú munu
sex leikmenn spreyta sig en það
eru Ray AUen frá Milwaukee, Kobe
Bryant frá Lakers, Chris Carr frá
Minnesota, Michael Finley frá Dall-
as, Allen Iverson frá Phiiadelphiu
og Bob Sura frá Cleveland.
faém
FOLK
■ MIKE Sheron, miðheiji Stoke,
hefur heldur betur verið í sviðsljós-
inu að undanförnu, skorað grimmt.
„Njósnarar" frá mörgum liðum hafa
fylgst með honum.
ÞEGAR Stoke lék heima gegn
Norwich í vikunni, voru margir
knattspyrnustjórar mættir til að
horfa á Sheron. Það vora Kenny
Dalglish, Newcastle, Gordon
Strachan, Coventry, Harry
Redknapp, West Ham, og Stuart
Pearce, Nott. Forest, sendi mann á
svæðið.
■ LOU Macari, knattspyrnustjóri
Stoke, hefur hafnað tveggja miilj.
punda boðum frá QPR og Birming-
ham í Sheron. Nú er rætt um að
hann sé orðinn þriggja millj. punda
maður.
■ FABRIZIO Ravanelli sagði í
gær, að hann væri mjög ánægður
hjá Middlesbrough og hann ætlaði
sér að vera hjá félaginu þann tíma
sem hann hefur samið um - til
ársins 2001.
■ ROY Evans, knattspyrnustjóri
Liverpool, hefur áhuga á portú-
galska leikmanninum Jose Dom-
inguez, sem leikur með Sporting
Lissabon. Hann er metinn á tvær
millj. punda.
■ JOHN Toshack, fyrram leik-
maður Liverpool, sem þjálfar La
Coruna á Spáni, hefur einnig
augastað á Dominguez.
■ ÞÆR fréttir komu úr herbúðum
West Ham í gær, að liðið væri
hætt að reyna að fá hollenska leik-
manninn Pierre van Hooijdonk
frá Celtic.
■ MARCEL Witeczek, sóknar-
leikmaður hjá Bayem Miinchen,
sem hefur fengið fá tækifæri með
liðinu, vill fara frá því. „Ég hef
áhuga á að fá að leika. Það nægir
mér ekki að æfa eingöngu," sagði
Witeczek, sem Stuttgart,
Karlsmhe og Feyenoord vilja fá
til sín.
■ OSEI Samuel Kuffour, lands-
liðsmaður frá Ghana og varnar-
maður Bayern Miinchen, hefur
skrifað undir samning til ársins
2002 við liðið.
■ AJAX hefur hætt við að kaupa
júgóslavneska miðheijann Rade
Bogdanovic, sem hefur verið í
æfíngabúðum með liðinu á Spáni.
Kappinn féll ekki inn í leikstíl
liðsins.
■ BOGDANO VIC, sem er 26 ára,
hefur nú hug á að fara til Japans
og gerast leikmaður með JEF Un-
ited.
■ AJAX hefur keypt nýjan leik-
mann, Dean Gorre frá Groningen,
sem hefur skorað átta mörk fyrir
liðið. Hann kemur til Ajax eftir
þetta keppnistímabil.
■ FORRÁÐAMENN Ajax sögðu
í gær, að þeir svöruðu ekki orð-
rómi, þegar þeir voru spurðir hvort
Patrick Kluivert væri á leið til
Arsenal.
■ ÞESS má geta að blöð hafa
verið með ýmsar fréttir um Klui-
vert, eins og að hann væri þegar
búinn að skrifa undir samning við
AC Milan og kæmi til liðsins í sum-
ar.
■ JEAN-PauI Gastel, miðvallar-
leikmaður hjá Feyenoord, skrifaði
í gær undir nýjan samning við lið-
ið, sem er til ársins 2000.
■ NICKY Butt mun ekki leika
bikarleik með Man. Utd. gegn
Wimbledon á Old Trafford í dag,
vegna meiðsla og þá er óvíst hvort
David Beekham getur leikið. Aðrir
leikmenn United sem eru á sjúkra-
lista eru Ronny Johnsen og David
May.
■ FEYENOORD og Eindhoven
vilja kaupa Gillies De Bilde, leik-
mann Anderlecht, sem er í leik-
banni til 31. mars fyrir að lumbra
á mótheija. Gillies vill fara frá
Anderlecht.