Morgunblaðið - 28.01.1997, Page 22
22 C ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
GARÐl JR
S. 562-1200 562-1201
Skipholti 5
2ja herb.
Kleppsvegur. 2ja herb. 55,6 fm
fb. á 1. hæð.
Krummahólar. 2ja herb. 54,6 fm
mjög góð íb. á 1. hæð. Parket. Verð 4,5
millj.
Auðbrekka. 2ja herb. 50 fm ágæt
íb. á 2. hæð. Sérinng. Suðursv.
Hlíðarhjalli. 2ja herb. 65,1 fm íb. á
2. hæð í lítilli blokk. 24,6 fm bilsk. Laus.
Áhv. byggsj. 4,7 millj. Ath. 23.700 kr. á
mán.
Sléttahraun. 2ja herb. 64,8 fm íb.
á efstu hæð. Stórar svalir. Þvherb. innaf
eldh. Laus. V. 5,2 m.
Hraunbær. 2ja herb. 54 fm björt og
góð íb. á 3. hæð. Laus. V. 5,1 millj. Áhv.
2,4 m. byggsj. Laus.
Smárabarð - Hf. 2ja herb. snot-
ur nýl. 53,5 fm íb. með sérinng. Laus.
Verð 4,9 millj. Húsbr. 2,7 millj.
Engjasel. 2ja-3ja herb. 62 fm íb. á
efstu hæð. Stæði í bílgeymslu. Verð 5,2
millj.
3ja herb.
Langholtsvegur - bílskúr.
3ja herb. 82 fm mjög góð kjíb. Sérhiti og
-inng. 28 fm bílsk. Laus. Áhv. byggsj. 3
millj. Verð 7 millj.
Reykás. 3ja herb. 95,3 fm falleg
og vönduð íb. á 2. hæð í litilli blokk.
Falleg eikarinnr. (fulningahurðir) i
eldhúsi, þvottaherb. í íb. Tvennar
svalir. Bílskúrsréttur. Mikið útsýni.
Langamýri - Gbæ. 3ja herb.
gullfalleg 83,7 fm endaíb. á 2. hæð (efri)
í góðu sambýlishúsí. Sérinng. Innb. bil-
skúr fylgir. Vönduð eign á eftirsóttum
stað. Verð 9,5 millj.
íbúð fyrir aldraða.
3ja herb. íb. á 10. hæð í nýju húsi
við Gullsmára. Hafðu samband og
við sýnum þér góðan kost.
Engjasel. 3ja herb. 85,6 fm íb. á 1.
hæð i 3ja hæða blokk. Góð ib. með
stóru svefnherb. Verð 6,2 millj.
Lindasmári. 3ja herb. vel Skiþul.
íb. á jarðh. Selst tilb. til innr. og afh.
strax. Verð 6,5 millj.
Eyjabakki. 3ja herb. 79,6 fm íb. á
1. hæð í blokk. Verð 6,2 millj.
Hraunbær. 3ja herb. 86,5 fm'íb. á
3. hæð, efstu. Góður staður. Suðursv.
Húsið er klætt að utan. Verð 6,5 millj.
Fífurimi. 3ja herb. nýl. falleg íb. á
efri hæð i tvíb. Sérinng. Innb. bilskúr.
Laus. Verð 7,9 millj.
Lækjarkinn. 3ja herb. góð fb.
'a efri hæð í fjórbýlishúsi. Verð að-
eins 6,3 millj. Áhv. 4,3 millj.
Álfhólsvegur - KÓp. 3ja herb.
íb. á 2. hæð. Bíjskúr. Þvherb. innaf eldh.
Mikið útsýni. Áhv. 3,4 millj. Verð 6,3
millj.
Æsufell. 3ja herb. rúmg. ib. á 2.
hæð. Sérl. vel um gengin og falleg íb.
Mikið útsýni. Laus fljótl. Verð 6 millj.
Kársnesbraut. 3ja herb. 72 fm íb.
á 2. hæð. Sérinng. Verð 5,5 millj.
Garðhús. 3ja-4ra herb. 99,1 fm
endaíb. á 2. hæð. Góð ibúð. Þvotta-
herb. í íb. Ath. áhv. byggsj. 5,3 millj.
Hringbraut. 3ja herb. 69,6 fm íb. á
2. hæð i steinh. Verð 4,9 millj.
Rauðarárstígur. 3ja herb. rúmg.
falleg nýl. íb. á 2. hæð. Stæði í bílg.
Verð 8,5 millj.
4ra herb. og stærra
Grettisgata. 4ra herb. 108,5 fm
góð íb. á 4. hæð. Nýl. stórt eldhús og
baðherb. Tvennar svalir. Verð 7,7 millj.
Engihlíð. 4ra herb. 89,2 fm íb. í kj. í
þríbh. Verð 6,0 millj.
Heiðarhjalli - Kóp. em
sérhæð 122,3 fm ásamt 26 fm bíl-
skúr. (búðin er skiþul. sem 4ra-5
herb. en ýmslr mögul. á skiþtingu.
Einstakt útsýni. Selst í núverandi
ástandi til innr. Hús frág. utan. Mjög
góður valkostur t.d. fyrir þá sem eru
að minnka við sig og marga aðra.
Verð 9,8 milij.
Heiðarhjalli - Kóp. Neðn sér-
hæö 122,3 fm ásamt 41 fm bílskúr.
Selst til innr. Miklir mögul. í skipulagi.
Mikiö fallegt útsýni. Verð 9,3 millj.
< ........... .........
Efstasund. Efrl hæð I tvibhúsi, 5
herb. 127 fm. Innb. bílskúr. fb. er öll ný-
standsett, falleg og til afh. núna. Verð
11,7 millj.
Efstasund. Sérhæð, þ.e. 1. hæð
og kj. í tvíbhúsi, samtals 162 fm. Sgenn-
andi ib. fyrir þann sem þarf mikið rými.
Verð 8,9 millj.
Álfheimar. 5 herb. endaíb. á 4. I
hæð í blokk. Góður staður. Húsið klætt
að hluta.
Lyngbrekka. 4ra herb. snotur (b. á
jarðh. Sérinng og sérhiti. Verð 7,5 millj.
Hólabraut. 4ra herb. 86,9 fm ib. á
2. hæð. Nýtt eldhús o.fl. Verð 6,9 millj.
Hrísmóar. 6 herb. stórgl. íb„
hæð og ris, í 3ja hæða blokk. Innb.
bílsk. Stærð samtals 174,3 fm. fb.
er með nýju eldhúsi, gólfefnum,
innihurðum o.fl. Tvennar stórar
svalir. Laus. Áhv. 4 millj. Verð 11,9
millj.
Ásbraut. 4ra herb. 90,8 fm endaíb.
á 3. hæð/efstu. Góð lán. Verð 6,4 millj.
Lyngbrekka. 5 herb. 110,6 fm íb.
á jarðh. í þríb. Allt sér. Góð íb. Verð 7,5
millj.
Nýbýlavegur. 4ra herb. 100 fm íb.
á miðh. fb. er ný, ónotuð, fullb. án gólf-
efna. Tvennar svalir. Útsýni. Þvherb. í ib.
Áhv. húsbr. Verð 8,4 millj.
Nýbýlavegur. 4ra herb. 100 fm
miðh. í nýju 5 íb. húsi. Hagst. kaug fyrir
t.d. smið. ATH: Verð 7 millj.
Nýbýlavegur. Ný, stór og falleg ib.
á jarðhæð. fb. er stofur, 2 rúmg. svefn-
herb., eldh., baðherb., þvherb. og útfrá
fremri forstofu er litil einstaklíb. Bilskúr.
Mjög góð aðkoma fyrir hreyfihamlaða.
Verð 10 millj.
Lundarbrekka. 4ra herb. 92,7 fm
góð endaíb. á 2. hæð. Hús og sameign í
góðu ástandi. Laus. Verð 7,5 mlllj. Fal-
leg íb.
Bæjarholt. Ný 4ra herb. 96,5 fm
endaíb. til afh. strax. Verð 8,6 millj.
Vesturhús. 4ra herb. neðri hasð í
tvíbýlish. Bílsk. Góð lán. Verð 8,5 millj.
Álfheimar. 4ra herb. íb. á 2. hæð.
Nýl. eldh. og þarket. tvær iþ. á hæð.
Hjallabraut - Hf. Endaíb. 139,6
fm á 1. hæð. Góð ib. Þvherb. i ib. 4
svefnherb, Verð 8,5 millj.
Sjávargrund - Gbæ. Rúmg. 5-
7 herb. ib. á tveimur hæðum ásamt
stæði i bílskýli. 4 svefnherb. Þvherb. f
ib. 2 svalir. Góð sameign. Stærð 190 fm
samtals. Verð 12,9 millj.
Raðhús - einbýlishús
Stekkjarhvammur. Raðhús
219,9 fm ásamt 25,2 fm bilskúr. Fullb.
hús. Skiþti möguleg.
Holtasel. Vorum að fá i einka-
sölu vandað einbýlishús með innb.
bílskúr, samtals 274,6 fm. Á hæð-
inni eru eldhús, fjölskyiduherb., 2-3
svefnh. snyrting, forstofa og
þvottahús. I risi eru falleg sérstök
stofa, hjónaherb. m. baðherb. innaf
og 1 herb. Niðri er 2ja herb. íb. með
sérinng., bilskúr o.fl. Fallegur garð-
ur. Mikið útsýni. Mjög rólegur stað-
ur við Oþið friðlýst svæði. Verð 17,5
millj.
Unufell. Raðhús ein hæð. Gott hús,
m.a. nýtt eldhús, bílskúr. ATH. Skipti
möguleg. Hagst. verð.
Bakkasmári. Parhús 182,7
fm með innb. bílsk. Selst tilb. til
innr. Til afh. strax. Góð staösetn. og
fallegt útsýni. Verð 10,8 millj.
Breiðholt. Parhús 172,5 fm með
innb. bilsk. Mjög fallegt og gott hús.
Fallegur garður. Verð 12,8 millj.
Lindasmári - Kóp. Raðh., hæð
og ris 174,1 fm m. innb. bilsk. Selst í nú-
verandi ástandi þ.e. tilb. u. trév. Til afh.
strax. V. 10,8 m.
Ártúnsholt. Einbhús með tvöf.
bílsk. Ib. er stofur, 4 góð herb., eld-
hús, baðherb., þvherb. og fallegur
garðskáli. Kj. með miklum rnögu-
leikum. Fallegt hús á eftirsóftum
stað. Fallegur garður. Skipti mögu-
leg.
Viðarrimi. Einbhús á einni hæð
með bílsk. Húsið ertimburhús og erfull-
frág. að utan. Hagst. verð.
Klukkuberg - Hf. Parhús, tvílyft,
fallegt hús með miklu útsýni. Innb. bilsk.
4 stór og góð svefnherb. Laust.
Brekkubyggð - Gb. Endaraöh.,
2ja herb. 75,8 fm íb. Falleg íbúð. Ib. er
stór stofa, svefnherb., eldhús, baðherb.
og þvherb. Verð 7,7 millj.
Kðri Fanndal Guðbrandsson,
Sigrún Sigurpálsdóttir,
lögg. fasteignasali,
Axel Kristjánsson hrl.
Þvingunarúrræði í
fjöleignar-
húsalögunum
Útburðargerðin byijar á þeim stað, þar sem
hún á að fara fram, segir Sandra Baldvins-
dóttir lögfræðingur. Sýslumaður skorar á
hinn brotlega að yfírgefa fasteignina.
Við gróf og ítrekuð brot eigenda
eða annarra íbúa húss eða
afnotahafa getur húsfélagið og ein-
stakir eigendur gert honum að
flytja úr húsinu og krafist þess að
hann selji eignarhluta sinn.
Þegar hinn brotlegi flyst ekki á
brott fúslega, eða selur eignarhluta
sinn, er nauðsynlegt að eigendur
hafi heimild til að fá hinn brotlega
á brott eða selja eign hans gegn
vilja hans. Úrræðin ná ekki tilgangi
sínum nema hægt verði að fá hann
á brott og selja eignarhluta hans
gegn vilja hans. Því er nauðsynlegt
að til séu leiðir til að framfylgja
úrræðunum.
í fjöleignarhúsalögunum segir að
ef hinn brotlegi sinni ekki kröfum
húsfélagsins um brottflutning og
sölu er unnt að framfylgja þeim
með lögsókn, eftir atvikum lögbanni
eða útburði án undangengins dóms.
Á grundvelli dóms um skyldu hins
brotlega til sölu eignar er unnt að
krefjast þess að hún verði seld
nauðungarsölu.
Lögsókn
Húsfélagið getur höfðað almennt
einkamál um kröfu sína og aflað
þannig dómsúrlausnar eða dóms-
sáttar um skyldu viðkomandi til að
flytja á brott eða selja eignarhlut-
ann. Húsfélagið getur síðan stutt
kröfu sína um útburð eða nauðung-
arsölu við dómsúrlausnina eða
dómssáttina.
Rekstur almenns einkamáls er
hin örugga og vandaða leið húsfé-
lagsins til að ná fram rétti sínum.
Það er hins vegar mikill annmarki
á þeirri leið vegna hinnar vönduðu
málsmeðferðar, hversu seinfarinn
slíkur málarekstur er.
Lögbann
Húsfélagið getur framfylgt kröfu
sinni eftir atvikum með lögbanni.
Lögbann getur komið til greina sem
bann við að búa í húsinu, þar til
dóms er aflað um skyldu hins brot-
lega til að flytja á brott. Þá getur
lögbann komið til álita í ýmsum
tilvikum að uppfylltum skilyrðum
laga, til að koma í veg fyrir einstök
eða viðvarandi brot eiganda, t.d.
með því að fá lagt lögbann við at-
höfn sem brýtur gegn rétti sameig-
enda. Þar sem í lögbanni felst bann
við athöfn kemur það ekki að gagni
til að fullnægja kröfu um sölu eign-
arhluta. Þegar hinn brotlegi sinnir
ekki kröfu um að selja er um at-
hafnaleysi hans að ræða, en með
lögbanni er ekki hægt að banna
athafnaleysi og þvinga viðkomandi
til athafnar, þ.e. selja eignina.
Lögbann verður ekki lagt við
athöfn ef réttarreglur um refsingu
fyrir röskun hagsmuna þess sem
beiðist lögbanns tryggja þá nægjan-
lega. Þannig er hugsanlegt að að-
gerðir lögreglu geti komið að sama
haldi og lögbann. Sem dæmi má
nefna rekstur vínveitingastaðar í
fjöleignarhúsi án tilskilinna
skemmtana- og vínveitingaleyfa,
sem raskar hagsmunum íbúa í hús-
inu. Nágranni sem teldi rétt sinn
brotinn þyrfti ekki að krefjast lög-
banns á reksturinn, heldur væri að
jafnaði nægilegt að kalla til lög-
reglu til að stöðva hann.
Útburður að
undangengnum dómi
Þegar fallist hefur verið á skyldu
hins brotlega til að flytja á brott
má géra aðför til fullnustu hennar
samkvæmt þeim dómi. Sú aðfarar-
gerð sem til greina kemur til fulln-
ustu þeim dómi er útburður. Það
felst hins vegar í eðli útburðargerða
að það úrræði er ekki til þess fallið
að fullnægja kröfu um söluskyldu.
Skylda sem verður fullnægt með
útburði verður beinlínis að vera orð-
uð í dómi eða dómssátt, en ekki
nægir að réttur gerðarbeiðanda sé
viðurkenndur þar. Þannig væri ekki
nóg að réttur um frið og ró væri
viðurkenndur en ekki kveðið á um
skyldu ófriðarseggsins til að flytja
á brott.
Utburðargerðin byrjar á þeim
stað þar sem hún á að fara fram.
Sýslumaður skorar á hinn brotlega
að verða við skyldu sinni til að yfir-
gefa fasteignina. Verði hann ekki
við því getur sýslumaður kallað til
lögreglu. Ef hinn brotlegi reynir að
hindra framgang gerðarinnar með
beinni mótspyrnu er hætt við að
athæfi hans verði talið refsivert.
Útburður án
undangengins dóms
Kröfu um brottflutning má eftir
atvikum framfylgja með útburði án
undangengins dóms. Meginreglan
er eftir sem áður að undangengnum
dómi. Heimilt er að beina til héraðs-
dómara beiðni þess efnis að skyldu
til brottflutnings verði fullnægt með
útburði, þótt dómur liggi ekki fyrir.
í þessum tilvikum gilda mjög
strangar reglur um heimildir húsfé-
lagsins til að sanna kröfu sína og
eru miklar takmarkanir á þeim
sönnunargögnum sem það getur
lagt fram til stuðnings máli sínu.
Vegna þessara þröngu heimilda til
að leggja fram sönnunargögn væri
húsfélagi erfitt um vik að sanna
mál sitt. Má segja að héraðsdómari
myndi sjaldnast fallast á kröfu um
útburð án undangengins dóms þar
sem allajafna þyrfti til úrlausnar
víðtækari sönnunarfærslu en heim-
ilt er í þessu tilviki.
Yfirleitt verður að telja útburð
að undangengnum dómi öruggari
leið, vegna vandaðri málsmeðferðar
og hætta á rangri niðurstöðu er
ekki jafn mikil.
Nauðungarsala
Ef hinn brotlegi sinnir ekki kröfu
um að selja íbúð sína er unnt að
framfylgja henni með nauðungar-
sölu. Húsfélagið verður fyrst að
stefna hinum brotlega fyrir almenn-
um dómstólum og ef þar er fallist
á kröfu félagsins getur nauðungar-
sala farið fram á grundvelli þess
dóms.
Bótaréttur eiganda
Þegar eigandi hefur þurft að
flytja á brott eða selja eignarhluta
sinn getur tjón hans verið mikið,
bæði fjárhagslegt og ófjárhagslegt.
Ef krafan reynist ólögmæt getur
hann átt rétt á skaðabótum. Með
sama hætti geta aðrir en eigandi
orðið fyrir tjóni, þ.e. íbúi eða afnota-
hafí og geta þeir átt bótarétt með
sama hætti.
Tjón getur verið margvíslegt og
má sem dæmi nefna missi leigu-
tekna leigusala ef leigjandi hans
hefur verið borinn út, lágt verð
íbúðar við nauðungarsölu o.fl. Sá
sem orðið hefur fýrir tjóni getur
krafist bóta á ýmsum grundvelli,
allt eftir atvikum hvetju sinni.