Morgunblaðið - 04.02.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 C 19
XIIR 4.75S
FIDKKURÍ996
Nc 96100000
Ki*, m
VERÐTKYGGT
HÖSBREF
IYCCRCWBJÓÖ3 RÍWSIXS
Byggingarsjóðnr rfkisins. kt. 460169-2409. Rcyfjavík,
týsir kérjneO yfir Jn’í. að htmn sknidar
HúshnffþcUa ergcfiðút með heimUd (Iðgiun nc 97/1993
mcð sfðari lnrytingum.
Byggmgarsjóður ríkisins gniðir vcrðbtclur af brífi þessu
stv. bnrytingum ti rísitölu neysUrvcrðs frá útgáfudegi brifsÍHS
tilejalddaga og vextifyrir santa túnabiL
Um ciKhirgreiðslii ríð liulrútt ag innkuan, svo og verðlryggingn.
rustakjðr og ihuuir kjðr og skiimálafer samkvfrmt regbigerð
nr. 6/1996. sjábalMið.
Hiisbrifskal «rlið skm á nafn.
Um skattalagameöferfl húsbrifs þessa rísast lU V. girinar
nglugerðar á bakidið.
Krxl^*.IXjmmámtV»
fJl BYCOINGAR5JÓÐS RÍKISlNX RÍKISSJÓDS ÍSLA.NDS
Sýnishorn af
húsbréfi. Er
flutningnr á
stórum þáttum
húsbréfakerfis-
ins til bankanna
á næsta leiti?
námskeið þeirra.
Sigurður telur það mikinn ann-
marka á tillögum nefndarinnar, að
þar vantar algerlega greinargerð
um kosti þess og galla að flytja
húsbréfakerfið í bankana. — An
þess er ekki hægt að legga dóm á
kostina, segir hann. — Jafnframt
er ekki unnt að bæta úr göllunum
né heldur bæta úr því, ef það hag-
ræði, sem að var stefnt, hefur ekki
náðst fram.
Mikil hætta getur líka orðið á
hagsmunaárekstrum. I mörgum til-
fellum væru starfsmenn bankakerf-
isins að taka ákvarðanir um útlán
vegna tveggja lánveitenda. Annars
vegar væri verið að taka ákvörðun
um útlán í húsbréfakerfinu og hins
vegar útlán bankanna.
Allt bankakerfið býður viðskipta-
vinum sínum nú þegar upp á lán
til allt að 25 ára. í mörgum tilfellum
geta húseignir borið bæði hámarks
húsbréfalán og hafa jafnframt svig-
rúm fyrir frekari lán. í þeim tilfell-
um, þar sem bankakerfið væri sjálft
að lána til íbúðarkaupenda auk
húsbréfalánsins, myndi það senni-
lega ganga þannig frá lánunum,
að lán bankanna yrði á undan hús-
bréfunum í veðröðinni. Réttlætingin
fyrir þessu er sú, að bankakerfið
gerir stífari veðkröfur, en gerðar
eru í húsbréfakerfinu.
Þetta myndi leiða til þess, að
bankalánin, sem bera hærri vexti,
yrðu með betri veðtryggingu en
húsbréfalánin. — Þetta er mjög
óeðlilegt, segir Sigurður. — Þetta
fyrirkomulag mun leiða til þess, að
það lendir í öllum tilfellum á hús-
bréfakerfinu að leysa til sín hús-
eignir á uppboðum, ef vanskil verða
og bera síðan áhættuna af því að
endursöluverð viðkomandi eigna
nægi til að greiða upp vanskilin,
þannig að húsbréfakerfið sleppi
skaðlaust. Ef færa á alla húsbréfa-
vinnslu til bankanna, þyrfti að
ganga þannig frá vinnureglum, að
slík tvenns konar hagsmunagæzla
gæti ekki átt sér stað.
Samkvæmt tillögum nefndarinn-
ar er gert ráð fyrir því, að húsnæðis-
stofnunin starfi áfram og að hús-
bréfaútgáfan verði áfram í höndum
hennar svo og umsjón
með húsbréfunum. —
Ef ákvarðanir um lán-
veitingar yrðu áfram
hjá húsnæðisstofnun
en ekki hjá bankakerf-
inu, væri hins vegar
engin ástæða til þess
að bankarnir beri ein-
hverja bótaskylda
ábyrgð og jafnframt
erfitt að réttlæta slíka
ábyrgð, þar sem þeir
tækju þá enga ábyrgð,
segir Sigurður.
— Heppilegasta
lausnin væri að nota
svipaðar aðferðir og
notaðar eru þegar hjá
Húsnæðisstofnuninni á
Akureyri, heldur Sig-
urður áfram. — Þar er
unnið að öllu leyti úr
öllum þeim húsbréfa-
umsóknum, sem þang-
að berast. Þegar út-
reikningum er lokið, er
umsóknin send til hús-
bréfadeildarinnar hér í
Reykjavík og ákvörðun
um heimild til skulda-
bréfaskipta tekin hjá
okkur. Ef þetta verk-
efni væri flutt til bank-
anna, gætu umsækjendur um hús-
bréf snúið sér beint til síns viðskipta-
banka. Afgreiðslan yrði þá hjá
bankakerfinu, þó svo að ákvarðana-
takan yrði áfram hjá okkur.
Enn liggja ekki fyrir neinar upp-
lýsingar um, hve mikinn kostnað
bankakerfíð myndi hafa af því að
taka þessa afgreiðslu að sér að
nokkru eða öllu leyti og því ekkert
vitað um, hvort þetta myndi leiða
til kostnaðarauka fyrir almenning
og þá hve mikill hann yrði.
Oflun og miðlun upplýsinga
Verði húsbréfakerfið flutt til
bankanna, verður sú vinna unnin á
mörgum stöðum, sem áður var unn-
in á einum stað. — Upplýsingasöfn-
un verður um leið erfiðari, en hún
er nauðsynleg m. a. til að tryggja,
að ekki verði samþykkt meiri
skuldabréfaskipti en heimilt er
hveiju sinni, segir Sigurður. — Um
leið verður upplýsingamiðlun um
húsbréfamarkaðinn örðugri en áð-
ur, af því að upplýsingarnar eru
ekki fyrir hendi á einum stað.
Það yrði því að koma upp viða-
miklu samskiptaneti milli banka-
kerfisins og húsnæðisstofnunarinn-
ar eða veita bönkunum aðgang að
tölvukerfi stofnunarinnar, svo að
allar upplýsingar verði tölvuskráðar
hjá stofnuninni. Núverandi tölvu-
kerfi stofnunarinnar er nú þegar
engan veginn fullnægjandi. Eigi
bankarnir að taka við húsbréfakerf-
inu, verður því ekki lengur hægt
að fresta úrbótum á því.
Einn af þeim þáttum, sem þarf
að bæta úr, tengist öryggismálum,
þannig að ekki sé hægt að svíkja
fé út úr húsbréfakerfinu eða fikta
í gagnasafni Húsnæðisstofnunar-
innar. Á meðan tölvukerfið er ekki
opið öðrum en takmörkuðum hópi
starfsmanna stofnunarinnar, er
réttlætanlegt að fresta umbótum,
en ekki þegar veita á fjölda ann-
arra utan stofnunarinnar aðgang
að kerfinu.
Fram að þessu hafa skuldabréfa-
skiptin einungis farið fram hjá veð-
deildinni. — Það hefur verið viss
fyrirstaða hjá Húsnæðisstofnun
gegn því, að þau gætu einnig farið
fram annars staðar, segir Sigurður.
— Ástæðan er sú, að við þurfum
ávallt að liggja með birgðir af óút-
fylltum húsbréfum og síðan er fært
inn á þau nafn viðtakanda og heim-
ilsfang, áður en hann fær þau af-
hent.
Ef þessi óútfylltu húsbréf lægju
á fleiri stöðum en einum, þá ykist
hættan á því, að óútfyllt bréf kæm-
ust í umferð. Ef það gerðist, þá
gæti hver sem er sett þar inn nafn
sitt og sett þau bréf síðan á markað-
inn. Það yrði meiri háttar áfall fyr-
ir húsbréfakerfið og myndi veikja
mjög traust manna á húsbréfunum
sem markaðsverðbréfum.
Framundan eru þó breytingar í
þessu efni með tilkomu verðbréfa-
miðstöðvar og pappírslausra verð-
bréfa, sem eiga eftir að hafa tals-
verð áhrif á húsbréfakerfið. Aðal-
áhrifin verða þau, að þá þarf ekki
að prenta sérstök húsbréf. Þetta
þýðir að enginn lager liggur þá
lengur hjá Veðdeildinni af prentuð-
um húsbréfum.
Þegar verðbréfamiðstöðin hefur
tekið til starfa, er engin þörf á því,
að skuldabréfaskiptin eigi sér ein-
ungis stað á einum afgreiðsiustað,
heldur gætu þau færst til allra þeirra
banka og sparisjóða, sem eru í
tengslum við verðbréf-
amiðstöðina. í fram-
haldi væri síðan athug-
andi, að húsbréfadeild
semdi við þessa aðila
um, að þeir önnuðust
innheimtu af þeim fast-
eignaveðbréfum, sem
þeir skipta fyrir húsbréf
í stað þess að senda þau
til Veðdeildar.
Þetta ætti að draga
úr rekstrarkostnaði
húsbréfadeildar og
þeim kostnaði, sem er
tengdur útdráttarfyrir-
komulaginu á húsbréf-
unum.
Þarf tíma og
undirbúning
— Enginn má skilja
orð mín hér á þann veg,
að ég sé andvígur flutn-
ingi húsbréfakerfisins
til bankanna, heldur
Sigurður áfram. —
Þvert á móti tel ég það
skref vera næsta
áfanga í þróun þess.
En þetta verkefni þarf
tíma og undirbúning,
því að leysa þarf úr ótal
fleiri atriðum til viðbót-
ar þeim, sem drepið hefur verið á
hér. Ég tel ekki óraunhæft að miða
þetta þrep við næstu áramót.
Sjálfum fínnst mér, að stefna
ætti að því að hafa einn “hús-
banka“ fyrir allt landið, sem sinnir
þessum verkefnum og þá með það
í huga að samræma kjörin, þannig
að allir eigi rétt á einhverri grunn
fjármögnun vegna íbúðarkaupa eða
bygginga, sem væru þá með betri
kjörum en önnur lán, en afgreiðsla
þeirra getur verið í gegnum hús-
bréfakerfið.
— Þar sem húsbréfakerfið verð-
ur áfram með ríkisábyrgð og lýtur
opinberum reglum, verður að
tryggja, að allir landsmenn eigi
sama rétt og sömu möguleika, hvar
sem þeir búa í landinu, segir Sigurð-
ur Geirsson að lokum.
Gott hundarúm
HUNDAR eru frægir fyrir að skilja eftir sig hár á húsgögnum. Ef
fólk hefur svona færanlegan gólfpúða við hendina til að skella und-
ir heimilisdýrið má fremur komast hjá hárugum húsgögnum.
SKRAÐU EIGNINA HJA HOLI NUNA!
‘Earg drílm ida
Þegar þú skráir eign hjá okkur færð þú skráningu á tveimur
pöööi* pu SKi air eiyu nju umi
stöðum þ.e. í Rvk. og Hafnarf.
rASTEIGNASAI.A
Skipholti 50b -105 - Reykjavik
S. 55 100 90-Fax 562-9091
Reykjavíkurvegi 60 - 220 Hafnarfirði
S. 565-5522 - Fax 565-4744
ÞAR SEM FASTEIGNIRNAR FUÚGA ÚT
Hjá okkur er eltt fullkomnasta tölvukerfi landsins sem
býður upp á ótrúlega möguleika víð að sýna eignir og leita að
réttu eignfnni tyrir þig.
Hóll er krattmikil lasteignasala og við leggjum ailt í
sölurnar til að þjóna þínum hagsmunum. Traustir og ábyrgir
aðilar sem hafa áralanga reynslu í sölu fasteigna.
... þú lítur við á fasteigna-
sölunni Hóli í Reykjavík
eða Hafnarfirði og tekur
þátt í laufléttum leik.
Þú lætur skrá eignina þína
hjá okkur. Um leið ferð
þú sjálfkrafa í drauma-
pottinri, þar sem dregin
verður út um páskana
glæsileg helgarferð fyrir 2
til Parísar
Já fasteignirnar
sannarlega fljúga út hjá
Hóli.
GÖDAJR ÁSTÆÐUR
HVERS VEGNA ÞU AT _
VH> HÓL HAFNJVRFIRDI!