Morgunblaðið - 04.02.1997, Blaðsíða 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR •
fHofgltltllfafrífe
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þriðjudagur 4. febrúar 1997
Blað C
Orsakir
vandans
FULLYRÐINGAR um, að hús-
bréfakerfið sé meginorsök
skuldasöfnunar heimilanna,
eru ekki á rökum reistar, segir
Grétar J. Guðmundsson í
þættinum Markaðurinn. Megin
skýring á greiðsluvanda fólks,
eru breyttar aðstæður. / 2 ►
Bfl-
skúrar
RÁÐSTÖFUN bílskúra við fjöl-
eignarhús veldur oft deilum.
Meginreglan er sú, að óheimilt
er að ráðstafa bílskúrum út
fyrir húsið, en á því eru þó
undantekningar. Sandra Bald-
vinsdóttir lögfræðingur fjallar
um þetta úrlausnarefni. / 30 ►
Ú T T E K T
Framtíð
húsbréfa-
kerfisins
ÞAÐ á strax að hefjast
handa um að færa af-
greiðslu og alla þjón-
ustu vegna húsbréfakerfisins
frá húsbréfadeild til viðskipta-
banka, sparisjóða og verð-
bréfafyrirtækja með sérstök-
um þjónustusamningi, sem lok-
ið yrði fyrir 1. apríl nk.
Þetta er niðurstaða nefnd-
ar, sem unnið hefur að endur-
skoðun húsbréfakerfísins.
Ekki er unnt að hverfa frá rík-
isábyrgð á húsbréfunum, nema
að til komi aðili, sem geti veitt
sams konar ábyrgð. Yinna beri
þó að afnámi ríkisábyrgðar
samkvæmt langtím:iáætlun.
í viðtali hér í blaðinu í dag,
segir Sigurður Geirsson, for-
stöðumaður verðbréfadeildar
Húsnæðisstofnunar, að það sé
með öllu óraunhæft að miða
flutning húsbréfakerfsins til
lánastofnana við 1. apríl.
- Þessi tímamörk eru með
öllu ófullnægjandi, segir Sig-
urður. - Þetta verkefni þarf
tnikinn tíma og undirbúning,
því að leysa þarf úr ótal atrið-
um. Ég tel ekki óraunhæft, að
miða við næstu áramót.
Sigurður telur það mikinn
annmarka á tillögum nefndar-
innar, að þar vantar algjörlega
greinargerð um kosti þess og
galla að flytja húsbréfakerfíð í
bankana. - Án þess er ekki
hægt að leggja dóm á kostina,
segir hann. - Jafnframt er
ekki hægt að bæta úr göllun-
um né heldur bæta úr því, ef
það hagræði, sem að var
stefnt, hefur ekki náðst fram.
/18 ►
Sveiflur í ávöxtun
arkröfu húsbréfa
TALSVERÐAR sveiflur hafa verið
í ávöxtunarkröfu húsbréfa, frá því
að húsbréfakerfið hóf göngu sína
fyrir rúmlega sjö árum. Til að byrja
með sveiflaðist ávöxtunarkrafan
nokkurn veginn í takt við sveiflur í
afgreiddum húsbréfum, þannig að
þegar afgreiðslurnar jukust, hækk-
aði ávöxtunarkrafan en lækkaði,
þegar dró úr afgreiðslunum. Frá ár-
inu 1995 hefur hins vegar ekki verið
hægt að finna slíkt samræmi á milli
afgreiðslu húsbréfa og ávöxtunar-
kröfunnar.
Hæst var ávöxtunarkrafan og af-
fóllin um leið við sölu húsbréfa á ár-
inu 1991, en þá komst ávöxtunar-
krafan í 9% í september. Meðal-
talsaffóll við sölu húsbréfa í þeim
mánuði voru 22,49%.
Ástæðan var sú, að húsbréfaút-
gáfan jókst mjög á árinu 1991 og
varð um 10 milljörðum kr. hærri en
árið áður. Hefur hún aldrei verið
jafn mikil á einu ári. Verðbréfa-
markaðurinn gat ekki tekið við
þessari aukningu og afleiðingin varð
hækkun á ávöxtunarkröfunni.
Lágmarki náði ávöxtunarkrafa
húsbréfa í nóvember 1993, en þá
voru þess nokkur dæmi, að húsbréf
voru seld á yfirverði, það er að
ávöxtunarkrafan varð lægri en
nafnvextir húsbréfanna. Þannig
urðu meðaltalsaffóll í þeim mánuði
ekki nema 1,13%. Þessi lækkun kom
til af aðgerðum ríkissjóðs, sem þá
beitti sér fyrir verulegum vaxta-
lækkunum á innlendum markaði.
Þeim húsum og íbúðum fer nú
stöðugt fjölgandi, sem búið er að
taka húsbréfalán út og nýir kaup-
endur yfirtaka. Þá þarf ekki að gefa
út ný húsbréf nema að litlu leyti. í
lok síðasta árs var talið, að umsókn-
ir um slíkar yfirtökur væru þriðj-
ungur allra húsbréfaumsókna, sem
berast vegna notaðra íbúða.
Þessum yfirtökum á enn eftir að
fjölga, en á endanum verður hús-
bréfakerfið komið í jafnvægi, sem
felst í því, að ný húsbréfaútgáfa
tengist einungis fólksfjölgun í land-
inu og viðhaldi á þegar áhvílandi
lánum. Enn er þó nokkur tími þang-
að til þessu mettunarstigi er náð.
Húsbréf og afföll 1990-1996
17,42 milljarðar kr.
Afgreidd húsbréf
12,73
14,31
Innleysan-
leg bréf
1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996
1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996
TRYGGÐU ÞER BETRA VER0
Seldu Húsbréfin hjá Fjáruangi!
Það borgar sig að gera verðsamanburð!
Kaupgengi Húsbréfa er mismunandi eftir fjármálastofnunum. Fjárvangur keppist viö aö bjóöa
besta kaupgengió og staðgreióir Húsbréfin samdægurs. Ráögjafar Fjárvangs veita allar upplýsingar
um kaupgengi Húsbréfa. Hærra kaupgengi þýðir hærra verð fyrir Húsbréfin þín.
[TTn-
FJÁRVANGUR
lOCCILT VECOBOEIMYRIRIKII
Fjárvangur hf„ löggilt verðbréfafyrirtæki, Laugavegi 170,105 Reykjavík. slmi 5 40 50 60, símbréf 5 40 50 61, www.fjarvangur.is