Morgunblaðið - 07.02.1997, Síða 1
■ GÖTUIMÖFN GEYMA SÖGU REYKJAVÍKUR/2 ■ EÐALSTEIMAR ÚR DJÚP-
UM HAFSIIMS/3 ■ MÖGULEIKAR TIL LÍKAMSRÆKTAR ERU FJÖLMARG-
IR/4 ■ VERÐIR DYRAIMNA OG HLUTVERK ÞEIRRA/6 ■ EGILSSAGA/8 ■
Ofurfyrirsætur
í höndum íslensks ljósmyndara
TRÚLEGA telja margir að ofurfyrirsætur
hljóti alla jafna að klæðast rándýrum há-
tískufatnaði frá heimsins frægustu hönn-
uðum og fúlsa við fjöldaframleiddum föt-
um, sem almúginn kaupir í stórum stíl.
Að sögn Huggy eða Hugrúnar Ragnars-
dóttur ljósmyndara er Claudia Schiffer
ekki ein af þeim, því kápa frá Vero
Moda er ein af uppáhaldsflíkum þess-
arar þýsku þokkadísar, sem er ein
hæstlaunaða fyrirsæta heims.
Vor- og sumarauglýsingabækl-
ing 1997 frá danska fataframleið-
andanum Vero Moda rak nýverið
á fjörur Daglegs lífs, en á síðum
hans er Claudia Schiffer í aðalhlut-
verki; andlit fyrirtækisins, eins og
stundum er sagt. í smáa
letrinu á baksíðunni seg-
ir að Huggy Ragnarsson
hafi tekið myndirnar.
Blaðamanni þótti vel við
hæfi að slá á þráðinn til
þessa íslenska Ijósmynd-
ara, sem á myndir jafnt
á forsíðum sem innsíðum
helstu tískutímarita
heims.
Myndatökur í
Monte Carlo
„Ég byrjaði að starfa
með Claudiu þegar við
unnum að jólabæklingi
Vero Moda í september.
Myndirnar í sumarbækl-
inginn tók ég hins vegar á þremur
dögum um miðjan desember í
Monte Carlo í Frakklandi. Þetta
voru einu góðviðrisdagarnir þar
um slóðir þann mánuðinn, enda
sögðu samstarfsmenn minir að ég
hlyti að eiga vini í himnaríki.
Claudia er afar einlæg og elskuleg
og mér er minnisstætt hve hún var
þakklát þegar
hún fékk kápu að gjöf
frá Vero Moda meðan á mynda-
tökum stóð. Hún
virðist hafa tekið ást-
fóstri við kápuna, því
ég hef oft séð hana
í henni. Mér finnst
óskaplega gott að
vinna með Claudiu,
við erum orðnar góð-
ar vinkonur og hún
hefur pantað mig í
nokkrar myndatökur
í viðbót,“ segir Hugr-
ún, sem ólst upp í
Bandaríkjunum, var
hátt launuð fyrirsæta
um árabil en söðlaði
um og gerðist tísku-
ljósmyndari.
Hugrún býr í
London, en starfs síns vegna er
hún á stöðugum ferðalögum, enda
eru fleiri ofurfyrirsætur en Clau-
dia, sem óska sérstaklega eftir að
Hugrún festi þær á filmu, þar á
meðal Naomi Campbell, Linda
Evangelista, Karen Mulder og
fleiri. Með hækkandi sól er vænt-
anlegt á markaðinn i Frakklandi
Huggy eöa Hugrún
Ragnarsdóttlr
Ijósmyndarl
starfar með helstu
ofurfyrirsœtum
helms.
57 mínútna myndband með þeirri
síðastnefndu; Another beautiful
day and another day to be beautif-
ul, sem Hugrún leikstýrir og er
jafnframt handritshöfundur að.
Goldie Hawn fyrir Marie Claire
Hugrún hefur mörgjárn í eldin-
um. Innan skamms tekur hún
myndir af Naomi og Claudiu fyrir
tímaritið Ocean Drive, sem gefið
er út í Flórída, en fer senn á al-
þjóðamarkað í sex milljóna upp-
lagi. Einnig hefur hún ver-
ið beðin um að mynda
kyikmyndastjömuna
Goldie Hawn fyrir bresku
útgáfu Marie Claire, en
undanfarin ár hafa margar
myndir Hugrúnar prýtt
tímaritið, eins og reyndar
Vouge-útgáfur víða um
lönd, Elle og mörg fleiri
slík tímarit.
Þótt nafn ljósmyndar-
ans sé jafnan í smáa letr-
inu þykir engu minni upp-
hefð fyrir þá en fyrirsæt-
urnar að fá myndir sínar
birtar á forsíðum eftir-
sóttra tískutímarita. Fyrir
Hugrúnu er slíkt orðið
næstum daglegt brauð og þótt hún
sé ekkert að hugsa um að söðla
um langar hana að snúa sér í auk-
um mæli að gerð myndbanda og
sjónvarpsþátta. „Ég gæti vel hugs-
að mér að gera íslenskan sjón-
varpsþátt um tísku í nánustu fram-
tíð,“ segir Hugrún. ■