Morgunblaðið - 18.02.1997, Side 17
t
*
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 C 17
sama fjölbýlishúsi. Nú eru þær
gjarnan mismunandi. Þessi val-
kostur á vafalaust sinn þátt í
aukinni sölu á nýjum íbúðum.
Húsin eru hins vegar afhent tilbú-
in að utan og eins er með sam-
eign og bílastæði.
Tíðar steypuskemmdir í eldri
íbúðum hafa orðið til þess að
auka eftirspurn eftir nýjum íbúð-
um. — Viðgerðir á slíkum
skemmdum í þriggja til fjögurra
herb. íbúð geta kostað fleiri
hundruð þúsund krónur, segir
Olafur. — Þar er í raun og veru
um viðhald að ræða, sem lýsir
sér í því, að slík viðgerð getur
liðkað fyrir sölu, en það fæst
ekkert meira fyrir íbúðina. Við
kaup á nýrri íbúð á fólk aftur á
móti að geta treyst því, að við-
haldskostnaður verði enginn í að
minnsta kosti 3-4 ár.
Byggingaraðilarnir bjóða líka
upp á rýmri greiðslukjör en áður.
Við íbúðarkaup eru oft greiddar
aðeins 300.000-500.000 kr. við
samning og jafn mikið við af-
hendingu. Húsbréfalánin eru síð-
an tekin út á eignirnar, strax og
þær eru fokheldar. Afgangurinn
af kaupverðinu er síðan greiddur
vaxtalaust á 30 mánuðum eftir
afhendingu en greiðslurnar vísi-
tölubundnar eftir fyrsta árið frá
afhendingu.
— Það munar verulega um
þetta, enda hafa margir nýtt sér
það, segir Ólafur. — Með þessu
móti þurfa byggingaraðilarnir
síður að taka eignir upp í kaup-
verðið. Það er því ekki mikið um
eignaskipti á nýbyggingamark-
aðnum nú, sem stafar af því, hve
verð á nýjum íbúðum er hagstætt
og greiðslukjörin rúm.
Nóg af óbyggðum svæðum
— Vegna mikilla íbúðarbygg-
inga að undanförnu er nú svo
komið, að það er orðinn hörgull á
ióðum hjá borginni og víðar, segir
Ólafur. — En það eru vissulega
fyrir hendi framtíðarsvæði, þann-
ig að lóðaskortur ætti ekki að
þurfa að há byggingafram-
kvæmdum á höfuðborgarsvæðinu
í framtíðinni, ef rétt er á haldið.
I Borgahverfi er enn talsvert
af lóðum, sem ekki hefur verið
úthlutað, enda þótt uppbygging
þessa hverfis sé vel á veg komin.
Þar hallar landinu til norðurs eða
norðausturs með góðu útsýni yfir
Leiruvoginn og til Esju, sem er
auðvitað mikill kostur.
Framundan er lóðaúthlutun í
Staðahverfi, sem verður vafalítið
mjög eftirsótt, en það á að liggja
fyrir neðan Korpúlfsstaði í fram-
haldi af Víkurhverfí. Margt úti-
vistarfólk og þá ekki hvað sízt
golfarar hafa sýnt þessu hverfí
mikinn áhuga, en þar verður golf-
völlur, sem fléttast á mjög
skemmtilegan hátt inn í íbúðar-
hverfíð. í þessu hverfí verður
væntanlega meira um sérbýli en
Víkurhverfi
í Víkurhverfi er Gimli m. a. til sölu íbúðir í litlu, fallegu fjölbýli við Breiðuvík 27-29. Þar er um að
ræða 3ja hæða hús með 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðum frá 59 ferm. upp í 93 ferm. nettó fyrir utan
geymslu. Allar fbúðirnar eru með sér inngangi og svölum til suðurs. Verð er frá 6,3 miHj. kr. miðað
við tilbúið til innréttinga en frá 7.150.000 kr. fullbúið en án gólfefna.
bráðlega, þegar það er að kaupa
í Grafarvogshverfunum.
— í Kópavogi er búið að út-
hluta öllum lóðum í Lindahverf-
inu, en uppbygging þessa hverfis
hefur verið afar hröð, enda er það
hvað eftirsóttasta nýbygginga-
svæðið nú, heldur Ólafur áfram.
— Lega hverfisins á vafalaust
mikinn þátt í því, en hverfíð ligg-
ur afar miðsvæðis á höfuðborgar-
svæðinu.
Næsta byggingasvæði þar í bæ
eru svokallaðir Salir, sem fer í
byggingu næsta vor. Þetta svæði
er í eystri hluta Fífuhvamslands
og liggur beint í austur frá Linda-
hverfinu. Á þessu svæði í heild
er gert ráð fyrir 1000 íbúðum og
það mun væntanlega byggjast
upp á næstu árum. Þegar er búið
að úthluta þar 100 íbúða reit til
byggingafyrirtækisins Suðurhlíð,
sem skipuleggur hann og annast
alla gatnagerð.
Það er beðið eftir nýbygginga-
svæðum í Garðabæ. Margir líta
híru auga til Arnarneshæðarinn-
ar, en þar er búið að skipuleggja
myndarlegt svæði. Það kann
samt að verða bið á, að lóðum
þar verði úthlutað, þar sem ekki
hefur náðst samkomulag við eig-
endur um kaupverð á landinu.
Þá má nefna Hraunsholtið, sem
nú er verið að skipuleggja.
Þau hús sem standa í hrauninu
þar fyrir neðan og tilheyra Garða-
bænum, eru afar eftirsótt og hafa
selzt mjög vel. Loks má nefna
hæðina norðaustur af golfvellin-
um í Garðabæ í átt að Vatns-
enda. Það er að mínu mati mjög
vænlegt byggingasvæði.
í Hafnarfirði er búið að skipu-
leggja afar stórt nýbygginga-
svæði í kringum Ástjöm fyrir ofan
Reykjanesbraut. Þar verður fram-
tíðar byggingasvæði Hafnfírð-
inga. Mikil uppbygging hefur átt
3ja herbergja
LAUFAS
Fasteignasala
Suðurlandsbraut 12
SÍMI: 533 • 1111
FAX:
533-1115
FR0STAF0LD NY11 Þriggja her-
bergja íbúð á fjórðu hæð í lyftu-
húsi. Stór stofa og svalir snúa í
suður. Þvottahús/búr inn af eldhúsi.
Gott skápapláss í herbergjum.
ALFTAMYRI V. 6.0 M. I einkasölu
er rúmgóð 75 fm íbúð á 3. hæð í
fjölbýlishúsi á þessum eftirsótta
stað. Suðursvalir. Þetta er snyrtileg
íbúð og sama er að segja um sam-
eignina í húsinu. Húsið er nývið-
gert að utan.
LYSUM EFTIR EIGNUM
| Lýsum eftir eignum af öllum stærðum og
' gerðum. M.a. vantar okkur mjög góða 4ra
herbergja íbúð með bílskúr, hvar sem er í
bænum, raðhús, parhús eða einbýli í Selásnum eða
Mosfellsbæ og 3ja - 4ra herbergja íbúð í Ártúnsholti.
Þegar litið er til lengri tíma,
má nefna stórt og mikið svæði
við Reynisvatn, sem ætti að koma
til úthlutunar hjá borginni eftir
nokkur ár. En það er spurning,
sem brennur á mörgum nú, hvað
gert verður við Geldinganesið. Nú
er áformað að breyta því í iðnaðar-
svæði. Að mínu mati er það alveg
skelfileg ákvörðun. Geldinganesið
er ein af náttúruperlum Reykja-
víkur og útsýni þar afar fallegt.
Þetta skiptir líka máli fyrir
nýbyggingasvæðin í grennd. Út-
sýnið var ein aðal forsendan fyrir
marga, sem keypt hafa eða byggt
á þessum slóðum. Það verður
ekki fýsilegt að hafa iðnaðar-
svæði fyrir augum í staðinn fyrir
fallega og vel skipulagða íbúðar-
byggð.
Vegasambandið við Grafarvog
er líka vaxandi vandamál nú
vegna síaukinnar umferðar yfir
Gullinbrú. Fyrirhuguð vegteng-
ing yfir Elliðavog verður því
meira aðkallandi með hveiju ár-
inu sem líður. Fólk hreinlega stól-
ar á, að þessi vegtenging komi
SAMTENGDSÖLUKRÁ
ÁSBYRGI feAf
BflMBa ^533-M
HHÉBÉmMn ,«533-1115
HLUNNAVOGUR NYTT Þriggja
fjögurra herbergja rishæð í tvíbýlis-
húsi á þessum frábæra stað. Stærð
er um 90 fm. Stofa og eldhús eru
rúmgóð og þvottahús og búr er inn
af eldhúsi. Parket á gólfum í her-
bergjum.
Álfheimar. V. 7,6 m. Ekkert áhvílandi.
Barmahlíð. V. 6,8 m. 3,2 millj. í Bygg.sj.
Hraunbær. V. 6,8 m. Vill stærri eign.
Kleppsvegur. Eigum nokkrar góðar á skrá.
Sérhæðir
Raðhús - Einbýli
Opið virka daga
frá kl. 9 -18.
Opið laugardaga
frá kl. 11 -14.
2ja herbergja
MIKLABRAUT NYTT Engin há
vaðamengunl Mjög góð 80 fm
kjallaraíbúð sem snýr út í raektaðan
garð. Nýleg eldhúsinnrétting og
baöherbergi ný standsett. Parket á
flestum gólfum. Aukaherbergi er
leigt út.
BORGARHOLTSBRAUT NYTT 113
fm íbúð á neðri hæð í steyptu tví-
býli. 2 stofur og 3 svefnherbergi
(möguleiki á 4 svefnherbergjum).
Sérinngangur, sérhiti, sérþvotta-
hús. 36 fm bílskúr. Mikið skápa-
pláss. Góðar innréttingar.
AUÐBREKKA ÞRJÁR SAMAN !
Þrjár íbúðir í sama húsinu. Tvær 3ja.
herb. íbúðir á annarri og þriðju hæð
og ein 2ja.-3ja herb. á fyrstu hæð
(ekkert niðurgrafin). íbúðirnar seljast
sér eða saman. Verð: 1. hæð 4,3 m.
2. hæð. 6,9 m. 3. hæð 5,9 m. Tilvalin
eign fyrirstórfjölskyldu eða sambýli.
Asgarður. Með bílskúr. V. 6,6 m.
Barðavogur. V. 8,4 m. Vilja skipti.
Flétturimi. 93 fm. V. 7,9 m.
4ra herbergja og stærri
JÖKLAFOLD NYTT Glæsileg og vel
innréttuð 116 fm neðri sérhæð í tví-
býlishúsi. Þrjú svefnherbergi með
góðu skápaplássi. Sér útigeymsla.
Ræktuð lóð. Frábært útsýni i austur.
Góð eign á góðum stað.
FLUÐASEL NYTT Gott 150 fm
endaraðhús á tveimur hæðum
ástamt stæði í bílskýli. Fimm svefn-
herbergi. Búr og þvottahús inn af
eldhúsi og gengt þaðan út í garð.
Einbýli:
Háaleitisbraut - skipti. Margt kemur
til greina.
Heiðargerði, frábær staðsetning. V. 14,5 m.
Hverafold, á einni hæð. V. 14,8 m. j
KLEPPSVEGUR NÝTT Mjög snyrti-
leg og vel meðfarin ibúð á fyrstu
hæð. Parket á gólfum. íbúðin veit
öll á móti suðri og það snýr enginn
gluggi út að götunni. Húsið er ný-
lega lagfært og málað að utan.
Verð 4,9 millj.
BJARTAHLIÐ NYTT Góð og björt
íbúð á efri hæð í Permaform húsi,
með sór inngangi.Geymsla og
búr í íbúðinni svo og köld úti-
geymsla. Rúmgott baðherbergi
með tengi fyrir þvottavél. Hér er allt
nýlegt og vel um gengið, lóðin frá-
gengin og hiti í gangstéttum. Frá-
bært útsýni.
LAUGAVEGUR NYTT -Mikið búið
en margt ógert.- Ca 100 fm íbúð á
þriðju hæð í gamalgrónu húsi
ásamt 26 fm óinnréttuðu baðstofu-
lofti með baðherbergi. Hægt er að
útbúa tvö herbergi eða fjölskyldu-
rými á loftinu. íbúðin er mikið end-
urnýjuð í upprunalegum stíl. Verð
6,5 m.
Nýbyggingar
VÆTTABORGIR V. 11,060 Þ.
Skodaðu þetta verð Rúmlega 160
fm raðhús á tveim hæðum á frábæru
verði. Afh. fullbúin á kr. 11.060.000.
Tilbúin til innréttingar á 9.400.000 og
rúml. fokheld á 8.600.000.
SPÓAHÓLAR NYTT Tveggja her-
bergja íbúð á jarðhæð, 61 fm. Góð
eldhúsinnrétting og parket á gólf-
um. Yfirbyggð verönd fyrir utan
stofu. Góð sameign.
SJAFNARGATA NYTT Björt og
rúmgóð rúmlega 120 fm íbúð á
efstu hæð í steyptu þribýlishúsi
ásamt innbyggðum bílskúr. 4
svefnherbergi, parket á gólfum,
hátt til lofts í stofu, útsýni. Góðar
svalir.
LYNGBREKKA NÝTT Rúmlega 90
fm hlýleg íbúð á 1. hæð i steyptu
tvíbýli. 2 stofur og 2 svefnherbergi.
Sérinngangur, sérhiti. 35 fm bílskúr
með rafmagni og hita.
LAUFRIMI NYTT Tæplega 100 fm,
3ja herbergja íbúð á 2. hæð í ný-
byggingu. íbúðinni verður skilað
tilbúinni til innréttinga, án gólfefna
(möguleiki á að skila íbúðinni full-
búinni með innréttingum að vali
kaupanda). Verð miðað við íbúðina
tilbúna til innréttinga kr. 6.600.000.
Borgarholtsbraut. 70 <m. V. 5,9 m.
Bólstaðarhlíð. V. 6,2 m. Ekkert áhv.
Eyjabakki. V. 4,9 m. LAUS STRAX.
Furugrund. V. 5,9 m. Góð lán.
Skúlagata. Risíbúð. V. 3,3 m.
ST0RAGERÐIV. 7,9M Björt og góð
íbúð á fyrstu hæð, 94 fm að stærð.
Parket á stofugólfi, korkur í her-
bergjum. Gler er nýlegt. Bílskúrs-
réttur fylgir eigninni og búið er að
greiða öll gjöld og teikningar. Stutt
í alla þjónustu. Áhvílandi ca
3,5millj. i gömlu lánunum.
MAKASKIPTAMIÐLARINN
Við leitum að: í skiptum fyrir:
4ra - 5 herb. í Foldunum Einbýlisbús í Hverafold
Einbýli m/bílskúr Tvær 4ra herb. íbúðir
Raðhúsi í Mosfellsbæ 4ra herb. í Mosfellsbæ
2ja herb. íbúð Góða 3ja herb. hæð v/Barðavog
2ja-3ja herb. íbúð 120fm einbýli í Húsafellsskógi (húsbréf ákv.)
Eignaskiptayfirlýsingar
Laufás ávallt í fararbroddi - NÝ ÞJÓNUSTA
Er til eignaskiptayfirlýsing um húsið þitt? Frá 1. júni 1996 þarf löggildingu
til að gera eignaskiptayfirlýsingar. Við á Laufási höfum slík réttindi og tökum
að okkur gerð eignaskiptayfirlýsinga.
æ Fjöldi annarra eigna á je
" söluskrá okkar. **
Hríngið - Komið - Fáið upplýsingar