Morgunblaðið - 21.02.1997, Side 4

Morgunblaðið - 21.02.1997, Side 4
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN GUNNAR Einarsson, knattspyrnumaður í Val, sem gerði samning við hollenska liðið Roda á dögunum, var valinn í lið vikunnar hjá hollenska knattspyrnu- .. blaðinu VoetballInternationalí vikunni. Gunnar, sem var leigður til MVV í 2. deild, átti mjög góðan leik í 3:0 sigri á varaliði Eindhoven. Gunnar og annar leikmaður fengu 8 í einkunn hjá blaðinu. ■ Enn setur George heimsmet í stangarstökki ASTRALSKA stúlkan Emma George setti enn eitt heimsmetið í stangarstökki kvenna er hún fór yfir 4,55 metra á móti í Melbourne í heimalandi sínu i gær. George átti sjálf gamla heimsmetið (4,50 metra) en það setti hún fyrir aðeins tæpum tveimur vikum. George setti fyrst heimsmet í nóvember 1995, er hún stökk 4,25 metra, en síðan hefur hún bætt eigið met sex sinnum. Methjá Toronto FOLK ■ ARNAR Bjömsson, íþróttaf- réttamaður á Sjónvarpinu, hefur sagt starfi sínu lausu og er á leið- inni á Stöð 2. Arnar hefur störf á nýja vinnustaðnum einhvern tíma í vor, í síðasta lagi 1. júní. ■ AUSTURRÍSKI landsliðsmað- urinn Tony Vidmar mun ganga til liðs við Glasgow Rangers fyrir næsta keppnistímabil. Hollenska blaðið De Telegraaf sagði frá þessu í gær. Vidmar, sem er 26 ára, er vamarleikmaður hjá hollenska lið- inu Breda. ■ RÚSSNESKI markvörðurinn Sergei Ovchinnikov gekk til liðs við Benfica í gær. Hann fer til Lissabon næsta sumar, eftir að hafa leikið með Lokomotiv í Moskvu. ■ KARLSRUHE, sem skellti Bay- ern Miinchen úr bikarkeppninni á miðvikudagskvöldið, fer í ná- grannaslag við Stuttgart á morg- un. Það er mikill fengur fyrir Karlsruhe, að landsliðsmaðurinn Thomas Hassler er byrjaður að leika á ný með liðinu eftir meiðsli. í blaðinu í gær kom sá misskilning- ur fram, að hann væri leikmaður Bayern. ■ BÆJARAR heimsækja leik- menn Bochum, sem hafa ekki náð að leggja Bæjara að velli heima síðan keppnistímabilið 1985-’86. Þórður Guðjónsson leikur ekki með Bochum, sem hefur ekki tapað heima í vetur. ■ IAN Wright er í vondum málum eftir ljótt á brot á danska landsliðs- markverðinum Peter Schmeichel í leik Arsenal og Man. Utd. á Highbury. Eftir leikinn varð að halda Wright, sem ætlaði að ijúka á Schmeichel er hann gekk af leik- velli. Sú meinlega villa læddist inn í blaðið í gær, að Schmeichel var sagður norskur. ■ DWIGHT Yorke stefnir í að verða fyrsti leikmaður Aston Villa í sextán ár til að skora yfir 20 mörk í deildarkeppninni. Peter Withe vann það afrek þegar Villa varð meistari 1981. ■ NICKY Butt, hinn 22 ára mið- vallarleikmaður Man. Utd., sem meiddist á ökkla á dögunum, mun missa af leik liðsins gegn Porto í Evrópukeppninni. ■ DEMETRIO Albertini, miðvall- arspilari AC Milan, getur vel hugs- að sér að leika með Chelsea. Hann ræddi við Ruud Gullit þegar Lund- únaliðið lék í Mílanó á miðviku- dagskvöldið, einnig markvörðurinn Sebastiano Rossi. jntörgunMAþft Gunnar í liði vikunnar Orlando sigraði í fyrsta leiknum undir stjórn Richie Adubato, sem ráðinn var þjálfari fyrir skemmstu. Áhorfendur létu óánægju sína í ljós fyrir leikinn og bauluðu á alla leikmenn liðsins nema Rony Seikaly, enda telja flestir að leikmenn hafi ráðið miklu um að þjálfarinn Brian Hill var látinn hætta, en hann var vin- sæll meðal fólksins. Það var Portland sem var í heimsókn og varð að sætta sig við 84:95 tap. Seikaly var rekinn af velli þegar rúmar fimm mínút- ur voru eftir af leiknum, fékk tvær tæknivillur fyrir að rífast við dóm- ara. Með því að skora úr vítaskot- unum minnkaði Portland muninn í 82:79 og farið að fara um áhorf- endur. Leikmenn Orlando þökk- uðu stuðningsmönnunum baulið í upphafi leiks með því að gera átta stig í röð án þess að gestun- um tækist að svara og tryggja þar með sigurinn. Atlanta virðist óstöðvandi á heimavelli, hefur sigrað í 21 af 22 leikjum þar í vetur. Að þessu sinni var það Indiana sem varð fyrir barðinu á liði Atlanta og sig- urinn var öruggur, 100:87. Glen Rice gerði 36 stig fyrir Charlotte er liðið vann Phoenix, 123:115, árangur Rice er jöfnun á meti félagsins svo og skor liðs- ins í einum leikhluta og í hálfleik en leikmenn gerðu 41 stig í öðrum leikhluta. Suns var sjö stigum yfir eftir þriðja leikhluta en réð ekkert við 37 stig Hornets í síðasta hlutan- um. Golden State vann Celtics, 112:101, og þar var Latrell Sprewell með 41 stig og Chris Mullin gerði 19 stig, tók 12 frá- köst og átti 10 stoðsendingar auk þess sem hann „stal“ boltanum 7 sinnum af mótheijum sínum, en leikmenn Boston misstu boltann 27 sinum. LEIKMENN Toronto Raptors burstuðu hið lán- lausa lið San Antonio Spurs, 125:92, ífyrri- nótt. Damon Stoudamire gerði 21 stig en alls voru sex leikmenn sem gerðu fleiri en tíu stig. Leikmenn Toronto hafa ekki gert eins mörg stig í einum leik í vetur og þeir hafa aldrei skorað eins margar þriggja stiga körfur, en liðið gerði fimmtán slíkar. Þetta var fjórði úti- sigur Toronto í vetur en liðið hefur tapað 20 leikjum á útivelli. Walt Williams gerði 19 stig fyrir Toronto og Carlos Rogers 18 auk þess sem hann tók 9 fráköst. „Ég hef enga samúð með þeim. Ég lék í fyrra með Sacramento og þá fóru leikmenn Spurs mjög illa með okkur,“ sagði Williams eftir sigurinn. Síðustu tvö keppnistímabil tapaði Spurs 43 leikjum en í vetur hefur liðið tapað 39 leilq'um. Minnesota skrapp til Kanada og vann Vancouver, 84:73. Heimamenn gerðu aðeins sjö stig í þriðja leik- hluta, en þá var skotnýting þeirra aðeins 13,3% sem er með því lægsta sem sést hefur. Reuter VLADE Dlvac stöðvar hér John Wllllams hjá Suns, en Dlvac gerðl 19 stlg og tók 11 fráköst fyrlr Charlotte sem sigraðl í lelknum. KNATTSPYRNA Tveir Belgar segjast hafa mútað dómara tyrir Anderlecht Reyndu að hafa fé af Anderiecht Tveir Belgar hafa verið kærðir fyrir að reyna að kúga fé út úr belgíska knattspymuliðinu And- erlecht. Belgamir, Jean Elst og Rene Van Aeken, segja að forráða- menn félagsins hafi greitt þeim um 113 milljónir króna árið 1984 til að múta spænskum dómara á síð- ari undanúrslitaleik Anderlecht og Notthingham Forest í Evrópu- keppni félagsliða árið 1984. Forest vann fyrri leikinn 2:0 en Ander- lencht þann síðari 3:0 og komst í úrslit þar sem liðið tapaði fyrir Tottenham. I síðari leiknum var dæmt eitt mark af Forest, sem flestum fannst löglega skorað, og heimamenn fengu mjög vafasama vitaspymu. Forráðmenn Anderlecht óskuðu eftir rannsókn vegna málsins eftir að þeir höfðu fengið nokkur bréf frá þeim félögum þar sem þeir heimta fé fyrir að þegja. Þeir félag- ar segjast hafa níu mismunandi gögn sem sanni að þeir hafi verið fengnir til að múta dómaranum, m.a. segulbandsupptökur, en for- ráðamenn Anderlecht segja gögnin fölsuð. Formaður belgíska knattspymu- sambandsins, Michel D’Hooghe, er ekki ánægður með gang mála. „Þetta er mjög slæmt því við höfum verið að reyna að laga ímynd okk- ar,“ sagði D’Hooghe.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.