Morgunblaðið - 28.02.1997, Side 1
FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997
■ ERFÐABREYTT MATVÆLITIL BÖLVUMAR EÐA BLESSUMAR7/2
FATAKISTUR UIMGA FÓLKSIIMS OPNADAR/4 ■ UNGBARNANUDD/6
■ BLINDIR SKEMMTA SÉR Á SKÍÐUM/6 ■ MED AUGUM LANDANS/7
Gömul furuhúsgögn
njóta nú vaxandi vinsælda
og máli skiptir að viður sé gegnheill
GÖMUL húsgögn úr furu og öðrum
ljósum viði virðast eiga vaxandi
vinsældum að fagna meðal við-
skiptavina antik-verslana. Gallerí
Borg heldur uppboð um helgina í
Síðumúla 34, þar sem alls verða
boðnir upp um 400 munir, aðallega
húsgögn. Eru munir þessir allir til
sýnis á uppboðsstað. „Við erum
með mikið af húsgögnum úr eik,
en einnig talsvert af gömlum furu-
húsgögnum, enda hefur eftirspurn
eftir þeim verið að aukast,“ sagði
Pétur Þór Gunnarsson uppboðs-
haldari. Að sögn hans eru þung
húsgögn úr mjög dökkum viði, með
grófum útskurði, ekki jafn vinsæl
nú og fyrir nokkrum árum, heldur
er nú vaxandi áhugi á léttari hús-
gögnum.
Alþýðleg húsgögn
„Yngra fólk er í meirihluta þeirra
sýna gömlum furuhúsgögnum
áhuga, en eldra fólk er yfirleitt
hrifnara af húsgögnum úr eik.“
Pétur Þór sagði að núorðið skoðaði
fólk antik-húsgögn vel áður en það
CHEVROUET
Pickup '54 verður
í félagsskup húsgagna
ó uppboði um helgina.
keypti þau og margir vildu aðeins
húsgögn úr gegnheilum viði.
„Kannski má segja að áhugi íslend-
inga sé að aukast á alþýðlegum
húsgögnum, en hér er auðvitað líka
þröngur hópur fjársterkra við-
skiptavina sem lítur ekki við öðru
en fínni og dýrari antik-húsgögnum
frá síðustu öld.“
Uppboðið, sem haldið verður um
helgina, er að sögn Péturs Þórs
haldið að danskri fyrirmynd, enda
haldið í samvinnu við danska antik-
heildsala. í sýningarskrá sem gefin
var út í tengslum við uppboðið
kemur fram matsverð á öllum
munum. Pétur Þór sagði að þar
væri miðað við algengt verð á sam-
bærilegum munum í antik-verslun-
um á Islandi. „Á uppboðum seljast
þó yfirleitt 70-80% hluta á verði
sem er lægra en þetta
viðmiðunarverð."
Hjá Antikhúsinu á
’ Skólavörðustíg feng-
ust þær upplýsingar
að þar væru eikarhús-
gögn vinsælust, aðal-
lega borðstofuhúsgögn.
Einnig væri algengt að
fólk sem ætti gamalt borð-
stofuborð keypti staka
stóla. Afgreiðslukona í Ant-
ikhúsinu sagðist ekki hafa orð-
ið vör við að ljós húsgögn væru
orðin vinsælli en þau dökku, tals-
verður áhugi væri til dæmis á dökk-
um eikarhúsgögnum. Húsgögn frá
tímabilinu 1900-1920 eru mest seld
í Antikhúsinu, að sögn þessarar
sömu afgreiðslukonu.
Á Akureyri gætir aukins áhuga
á gömlum húsgögnum úr furu og
ljósum við. Sigurður Magnússon
eigandi Antikbúðarinnar á Akur-
eyri segist hafa orðið var við auk-
inn almennan áhuga á gömlum
húsgögnum. „Við seljum mest af
húsgögnum úr eik, enda eru þau
yfirleitt talsvert ódýrari en húsgögn
frá síðustu öld úr hnotu eða ma-
honí.“ Sigurður flytur inn húsgögn
frá Danmörku og Bretlandi, aðal-
lega frá tímabilinu 1920-1940. ■