Morgunblaðið - 28.02.1997, Page 2

Morgunblaðið - 28.02.1997, Page 2
2 B FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF • Verður sykur ræktaður á íslandi í framtíðinni? • Getur erfðatækni reynst umhverfi og lífverum skaðleg? • Er hún hugsanleg lausn á fæðuvanda heimsins • Skiptar skoðanir eru meðal Evrópubúa um lffVpm Bölvur eða blessun? VÍSINDAMENN vinna að því að auka frostþoí græn- metisplantna með geni úr fiskum. ERFÐABREYTT MATVÆLI Koffínsnauðar kaffibaunir, frostþolnir tómatar og eldisfiskar sem vaxa með undrahraða. Með erfðatækni er unnt að flytja erfðaeiginleika á milli ólíkra lífvera og möguleikarnir eru nánast ótakmarkaðir, hugmyndaflugið er eini þröskuldurinn. Eru vísindin komin á ystu nöf hins siðferðislega eða er hin nýja líftækni hluti af þekkingarleit og framþróun mannsins? Hrönn Marinósdóttir leitaði svara hjá vísindamönnum, alþingismanni og framkvæmdastjóraNeytendasamtakanna. EIN af verðmætustu kindum í heimi kostar ríflega einn milljarð íslenskra króna. Hún er kölluð Tracy og hefur þann kost umfram aðrar rollur að geta framleitt eggjahvítuefnið Alpha-l-Anti- trypsin sem notað er til lækninga á afar sjaldgæfum en arfgengum lungnasjúkdómi í mönnum. Naut að nafni Hermann er einnig mik- ils metið því afkvæmi hans, ung kvíga, býr yfir þeim fágæta eigin- leika að úr spenum hennar rennur móðurmjólk en ekki venjuleg kúa- mjólk. Galdurinn er fólginn í erfðatækni þar sem gen eru flutt milli alls óskyldra lífvera; örvera, plantna, fiska og spendýra. Skepnur í líkingu við Tracy og Hermann eru enn sem komið er einungis tilraunadýr á rannsókn- arstofum en mögulega er framtíð bænda falin í slíkum búskapar- háttum. Bandarískir vísindamenn hafa verið í fremstu röð á sviði erfða- breyttra matvæla en árið 1994 komu þar á markað svonefndir „flavr savr“ tómatar sem hafa lengra geymsluþol en hefðbundnir tómatar auk þess sem þeir þykja bragðbetri. Erfðatækni hefur fleygt fram síðustu ár og vísinda- menn í Suðaustur-Asíu og á Vest- urlöndum vinna að rannsóknum sem miða m.a. að því að gera plöntur harðgerðari, frost- eða þurrkþolnari. Framleiðsla á erfðabreýttum matvörutegundum^ hefur aukist mikið undanfarið. í Evrópu fékkst t.d. nýlega innflutningsleyfi fyrir sojabaunum sem hafa þol gegn ákveðinni tegund illgresiseyðis og í Bandaríkjunum eru um tuttugu tegundir erfðabreyttra matvara nú þegar fáanlegar. Umhverfis- og siðferðissjónarmið Enn hefur ekkert komið fram sem bendir til að erfðabreyttar lífverur geti reynst skaðlegar heilsu manna eða umhverfínu. Harðar deilur, m.a. í Evrópu, hafa verið um hvort þessi nýja tækni sé siðferðislega rétt en margir óttast að ef eftirlit verði ekki hert og settar alþjóðlegar regl- ur, muni tæknin hafi í fór með sér ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir lífkeðjuna. Fólk sem af trúarástæð- um borðar ekki ákveðnar dýrateg- undir og grænmetisætur hafa lýst yfir harðri andstöðu en tilraunir hafa m.a. verið gerðar með að auka kuldaþol plantna með klónun gena úr fiskum sem eins og kunnugt er þola mikinn kulda. Enn aðrir óttast að tæknin geti valdið nýjum tegundum af ofnæmi eða veirum í mönnum sem hingað til hafa einungis fundist í skepnum. í mótmælaskyni hafa umhverfis- vemdarsamtök í Hollandi og víðar ítrekað eyðilegt uppskeru á ökrum þar sem tilraunir eru gerðar með erfðabreytta ræktun. Námskeið um erfða- breytt matvæli Ágústa Guðmundsdóttir, prófess- or í matvælafræði við Háskóla Is- lands hefur fylgst vel með þróun erfðatækni í matvælaframleiðslu frá árinu 1990 en undanfarin tvö ár hefur hún haldið námskeið fyrir nemendur í matvælafræði um erfða- breytt matvæli. „Nytjaplöntum og skepnum hefur um langt skeið ver- ið breytt með kynbótum þar sem Morgunblaðið/Þorkell ÁGUSTA Guðmundsdóttir, til hægri á myndinni ásamt nemendum í matvælafræði við Háskóla Is- lands sem nýlega sátu námskeið um erfðabreytt matvæli. Driffjöðrin er gróðafíkn HJÖRLEIFUR Guttormsson al- þingismaður telur neikvæða fylgi- fiska erfðabreyttra matvæla vera mikla. „Slík mat- væli eru afleiðing af aðgerðum sem þegar er búið að framkvæma á líf- verum en með þeim er verið að grípa inn í lífkeðjuna með alveg ófyrir- sjáanlegum afleið- ingum. Þótt enn hafi ekkert stór- fellt neikvætt gerst, er ófyr- irsjáanlegt hvað getur komið í ljós í framtíðinni.“ Allt fikt með erfðaefnið er þess eðlis að menn ættu að fara afar varlega, að mati Hjörleifs. „Mikil skammsýni er að meta matvælin sem hættulaus útfrá reynslu örfárra ára. Það sama gild- ir að mínu viti um tæknifijóvgun og einræktun." Nauðsynlegt er, segir Hjörleifur, að merkja allar erfða- breyttar afurðir sem fara á markað og ganga þar með lengra en lög ESB gera ráð fyrir. „Norðurlönd hafa viljað ganga hvað lengst í sérmerk- ingum og það eru mér mikil vonbrigði að íslensk stjórnvöld skuli ekki hafa fylgt þeim fastar að málum.“ Driffjöðrin að baki erfða- breytingum er hagnaðarvonin, að mati Hjörleifs. „Ástæðan er hreinræktuð gróðafíkn en í tengslum við þennan iðnað er veltan orðin gífurleg. Fjöldi alþjóðlegra fyrirtækja í mat- vælaiðnaði hefur þegar tryggt sér einkaleyfi á ákveðnum teg- undum erfðabreyttra matvara og afurða úr erfðabreyttum lífverum. Þróunarlönd standa þar frammi fyrir gífurlegu vandamáli, ekki bara vegna einkaleyfa heldur varðandi framleiðslu á grundvelli þessa iðnaðar sem er gífurlega kostnaðarsamur. Mörg hin fá- tækari lönd hafa litla mögu- leika á að leggja mikið af mörkum og eru jafnvel í þeirri stöðu, þegar til kastanna kem- ur að nýta eigin lífverur í þessu skyni, að standa frammi fyrir hindrunum að því er varðar einkaleyfalöggjöf. Möguleikar á stórfelidu arðráni eru því afar miklir.“ Hjörleifur Guttormsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.