Morgunblaðið - 28.02.1997, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 B 3
DAGLEGT LÍF
erfðaefni er flutt milli skyldra teg-
unda. Með nýrri tækni er hins veg-
ar gengið skrefinu lengra þar sem
tiltekið gen er flutt á milli alls
óskyldra lífvera.
■ . Framþróunin hefur
. venð hröð og vis-
indamenn eru
lÉk. komnir mun
" "• * ‘ -
lengra í
rann-
völdum. Kanadamenn hafa t.d.
erfðabreytt maísplöntu sem hefur
þol gagnvart skordýralirfum en
hún er nú komin á markað sem
útsæði. Þannig lækkar framleiðslu-
kostnaður því minna þarf af skor-
dýraeitrinu og varan verður sam-
keppnishæfari á markaði.“
Erfðatækni á eftir að skipta
sköpum fýrir þriðja heiminn ef
hægt verður að auka framleiðni í
landbúnaði með því að rækta
hraustari plöntur sem hafa aukið
þol gegn skordýrum og sjúkdóm-
um, að mati Ágústu. „í framtíðinni
verður líklega mögulegt með hjálp
erfðatækni að framleiða bæði
þurrkþolnar og frostþolnar
plöntur og þannig nýta
landssvæði sem
REGLUGERÐIR Á ÍSLANDIOG f E VRÓPU S AMB ANDINU
Erfðabreytt matvæli
eru ennþá óleyfileg hérlendis
sók-
num
en nokk-
um óraði fyrir. Með
framleiðslu á erfða-
breyttum matvælum hafa
iðeins eitt eða örfá gen lífverunnar
/erið einangmð eða klónuð og flutt
.niili lífvera. Með klónun kindarinn-
ar Dollíar sem verið hefur í fréttum
undanfarið er hins vegar allt erfða-
efni hennar flutt inn í eggfrumu sem
síðan er látin skipta sér.“
Framleiðsla á matvörum sem
unnar eru úr erfðabreyttum lífver-
um hefur hingað til verið fram-
kvæmd undir mjög ströngu eftirliti,
segir Ágústa. „Enn er ekkert sem
bendir til að erfðatæknin geti verið
umhverfí eða lífverum hættuleg."
Að sögn Ágústu hefur erfða-
tækni verið notuð hérlendis í rann-
sóknarskyni bæði innan Háskóla
íslands, rannsóknarstofnana og nú
nýlega hjá einkafyrirtæki. Á Rann-
hafa verið
óhæf til ræktunar. Japanir og Kín-
verjar hafa stundað rannsóknir á
hrísgijónaplöntum, með það að
markmiði að auka næringargildi
þeirra. Slíkt hlýtur að hafa gífur-
lega þýðingu þar sem hrísgijón eru
helsta fæðan í þessa heimshluta.“
Áferð matvæla, bragð
og geymsluþol
Meðal vara sem komnar eru á
markað er olía þar sem samsetn-
ingu fitunnar hefur verið breytt
með erfðatækni þannig að hún
verði hollari. „Rannsóknir eru einn-
ig komnar langt í að auka næring-
argildi plöntupróteina. Erfðabreytt-
ar örverur eru notaðar til bjórfram-
leiðslu og til stendur að nota þær
einnig í framleiðslu ýmissa
mjólkurafurða t.d. jógurtar og osta.
Ennfremur er hægt að hafa áhrif
á vinnslueiginleika komtegunda,
svo sem hveitis þannig að það henti
betur til baksturs. Undanfarið hef-
ur tæknin einnig þróast í þá átt
GEYMSLUÞOL melónunnar til vinstri var bætt með erfðatækni.
sóknarstofnun landbúnaðarins er
verið að gera tilraunir með gen úr
melgresi til ræktunar á hveiti. Sjálf
hefur Ágústa unnið að framleiðslu
þorskaensíma í gersveppum sem
ætlað er til matvælavinnslu en
ensímin hafa undanfarin 10 ár ver-
ið rannsökuð á lífefnafræðideild
Raunvísindastofnunar Háskólans.
„Mikilvægt er að viðhalda þeirri
þekkingu og fæmi sem byggð hefur
verið upp á þessu sviði á Islandi."
Þol gegn
skordýraeltrl
Um langt skeið hafa verið stund-
aðar rannsóknir í lyfja- og læknis-
fræði sem byggja á erfðatækni, að
sögn Ágústu. „En rannsóknir í
erfðabreytingum á matvælum era
komnar einna lengst í að gera
nytjaplöntur þolnari gegn sjúkdóm-
um af völdum veira og baktería
en ennfremur er unnt að gera þær
þolnar fyrir skordýram, skordýra-
eitri og illgresiseyði. „Stór hluti
uppskeru eyðileggst oft og tíðum
af völdum skordýra eða sjúkdóma.
Einnig getur skordýra- og illgresis-
eitur í of miklum mæli haft skaðleg
áhrif á plöntur en ekki síst um-
hverfíð sjálft. Með erfðatækni er
að miklu leyti hægt að gera plönt-
ur þolnari gagnvart slíkum skað-
að hafa áhrif á áferðareiginleika
matvara. Þannig er unnt að hafa
áhrif á stinnleika, bragð og
geymsluþol.“
Rannsóknlr á
eldlsflskl
Rannsóknir á erfðabreyttum eld-
isfiski era komnar talsvert áleiðis
m.a. í Japan. Ágústa segir að mið-
að sé að því að auka þol fisksins
gagnvart sjúkdómsvöldum og auka
vaxtarhraða hans. „Norðmenn
stefna nú að því að eyða miklum
fjármunum í rannsóknir á erfða-
breyttum matvælum þar með talið
eldisfiski en þeir hafa hingað til
verið mjög varkárir gagnvart til-
raunum til erfðabreytinga á lífver-
um.
Erfðatæknin er staðreynd og á
eftir að hafa mikil áhrif á matvæla-
framleiðslu í framtíðinni hvort sem
okkur líkar betur eða verr. Hlut-
verk Háskólans er meðal annars
að fylgjast með rannsóknum og
þróun á sviði erfðatækni. Jafnframt
er nauðsynlegt að upplýsa nemend-
ur svo þeir geti miðlað nýrri þekk-
ingu til matvælaframleiðenda. Mik-
ilvægt er einnig að upplýsa neyt-
endur vel um nýjungar sem þess-
ar, því það era þeir sem hafa síð-
asta orðið á markaðnum.“ ■
HOLLUSTUVERND ríkis-
ins hefur yfirumsjón með
framkvæmd laga um erfða-
breyttar lífverur sem sam-
þykkt voru frá
Álþingi í fyrra.
Samkvæmt
þeim er óheim-
ilt að hefja
starfsemi með
erfðabreyttar líf-
verar nema að
fengnu leyfi
stofnunarinnar.
Að sögn
Franklíns
Georgssonar,
forstöðu-
á rannsóknarstofu
Holl-
manns
ustuverndar, er fyrirhugað að ráða
starfsmann á næstunni sem mun
sinna þessum málaflokki sérstak-
lega. Einnig er í bígerð að skipa
níu manna ráðgjafarnefnd þar sem
eiga m.a. sæti sérfræðingar á sviði
erfðafræði og siðfræði. „Hlutverk
hennar er meðal annars að taka
afstöðu til mála er snerta leyfis-
sveitingar, rannsóknir og starf-
NEYTENDASAMTOK í Evr-
ópu hafa krafist þess að um-
búðir allra matarafurðir
erfðrabreyttra lífvera séu
sérmerktar.
Franklín Jóhannes
Georgsson Gunnarsson
semi með erfðabreyttar lífverar,“
segir Franklín.
Enn hefur ekki verið tekin af-
staða til markaðssetningar á
erfðabreyttum matvælum hérlend-
is, að sögn Franklíns. „Matvæli
sem samanstanda af erfðabreytt-
um lífveram eða afurðum þeirra
hafa því ekki verið leyfileg. Hins
vegar er ekki hægt að útiloka að
hluti af hráefni í samsettum mat-
vælum, sem hér eru seld,
hafi verið fenginn frá
erfðabreyttum lífverum,
svo sem í sojabaunum og
maís.“
Dellur um sérmerkingar
í Bandaríkjunum hafa
ekki verið gerðar kröfur
um sérmerkingar á mat-
vörum sem innihalda erfða-
breyttar lífverur en Evr-
ópusambandið samþykkti í
janúar sl. reglugerð um
svokölluð ný matvæli, novel
foods, sem tekur m.a. til
erfðabreyttra matvara og
merkinga á þeim. Langan
tíma hefur tekið að fá lögin
samþykkt þar sem skiptar
skoðanir eru í afstöðu þjóð-
anna til erfðabreyttra mat-
væla. Bretar og Frakkar
vilja ganga hvað lengst í
leyfisveitingum, m.a til til-
rauna með erfðabreyttar
lífverur, en Norðurlöndin
hafa staðið hvað harðast
móti, ásamt hreyfíngum
græningja og kristilegra flokka í
löndum ESB.
Reglugerðin mun taka gildi að
fullu í árslok 1998 en enn sem
komið er hefur hún ekki
verið tekin til meðferðar hjá
EES nefndinni og því óljóst
hvort lögin muni gilda hér-
lendis.
í nýrri reglugerð ESB er
kveðið á um að sérmerkja
skuli matvöra sem unnin er
að hluta eða öllu leyti úr
erfðabreyttri lífveru. Einnig
skal merkja vöru sem að
einhveiju leyti er frábragðin
hefðbundinni matvöru, t.d.
hvað varðar efnasamsetn-
ingu, útlit eða gerð. Hins
vegar þarf ekki að merkja
matvæli sem í er afurð úr
erfðabreyttri lífveru ef hún
hefur ekki áhrif á efnasamsetn-
ingu þeirra, útlit eða gerð. Hvar
mörkin liggja þar á milli er nú
deilt um meðal aðildarþjóðanna en
Danir, Svíar og Norðmenn hafa
viljað ganga svo langt að merkja
allar vörur sem era á einhvern
hátt erfðabreyttar. Undir sjónar-
mið þeirra hafa tekið meðal ann-
arra BEUC, heildarsamtök evróp-
skra neytenda.
Neytendur sem tllraunadýr?
„Neytandinn verður að hafa upp-
lýsingar til að byggja val sitt á og
því er nauðsynlegt að sérmerkja
allar vörar sem era á einhvem
hátt framleiddar með erfðabreytt-
um aðferðum.“ segir Jóhannes
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Neytendasamtakanna.
„Matvara framleidd á þennan
máta getur hugsanlega haft aðra
eiginleika en önnur sambærileg
vara þar sem langtímaáhrif af
notkun hennar era ekki kunn.
Þannig eru neytendur gerðir að
nokkurs konar tilraunadýram.“
Jóhannes segir það vera mat-
vælaframleiðenda en ekki neyt-
enda að færa sönnur á að matvara
sé hættulaus og að margir telji
reglugerð ESB fyrst og fremst
miðast við hagsmuni framleiðenda
og seljenda.
„Spurningin er hvort fram-
leiðsla á erfðabreyttum matvælum
sé bæði neytendum og framleið-
endum í hag? Erfðabreyttir tómat-
ar sem komnir era á markað í
Bandaríkjunm, hafa aukið
geymsluþol en það er fyrst og
fremst dreifendum matvara og
kaupmönnum til hagsbóta.“ ■
Vopn gegn fæðuskorti?
ERFÐATÆKNIN
getur orðið til mik-
illa hagsbóta fyrir
íslendinga hvað
varðar ræktun
nytjaplantna að
mati dr. Björns Sig-
urbjörnssonar
plöntuerfðafræð-
ings og ráðuneytis-
sljóra í landbúnað-
arráðuneytinu.
„Hugsanlega geta
íslenskir bændur
fengið mun örugg-
ari uppskeru og
stóraukið tegunda-
fjölda, til dæmis
Björn
Sigurbjörnsson
ræktað sykur og jafnvel hrís-
gijón með því að selja í plönt-
urnar gen sem gerir þær kul-
þolnari og harðgerðari.“ Björn
telur erfðabreyttar matvörur
vera hættulausar og er hlynnt-
ur rannsóknum á
erfðabreyttum líf-
verum.
Síðastliðið haust
var Björn einn af
fulltrúum íslands á
alþjóðlega leiðtoga-
fundinum um mat-
væli, World food
Summit sem hald-
inn var í Róm á ítal-
íu. „Fulltrúar nokk-
urra Evrópulanda
m.a. Hollands og
Þýskalands, lýstu
þar yfir áhyggjum
af slæmum afleið-
ingum þróunar á
sviði erfðatækni. Bandaríski
landbúnaðarráðherrann var
hins vegar á allt annarri skoð-
un, hann lýsti yfir ábyrgð á
hendur þeim og sagði erfða-
breytt matvæli vera einu von-
ina gegn fæðuvanda heims-
ins.“
Engar nýjungar í tœp 40 ár
Það hefur valdið mörgum
miklum áhyggjum, að sögn
Björns að frá upphafi grænu
byltingarinnar, sem hófst á sjö-
unda áratugnum hafa engar nýj-
ungar komið fram í ræktunar-
möguleikum. í grænu bylting-
unni tókst sums staðar með kyn-
bótum að tífalda uppskeru á
ýmsum nytjaplöntum. „Ef mann-
kynið nær tíu milljörðum árið
2030 eins og FAO, Landbúnaðar-
og matvælastofnun Sameinuðu
þjóðanna hefur spáð, er nauðsyn-
legt að tvöfalda uppskeruna tíl
að mæta fæðuþörfinni. Þá er
spumingin hvort meiri hætta sé
fólgin í að láta hluta mannkyns
svelta eða taka áhættuna af
erfðabreyttum lífverum." ■