Morgunblaðið - 28.02.1997, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 B 5
¥
i
DAGLEGT LÍF
NAFN: Hafdxs Huld
Júliu- og Þrastar-
dóttir
STARF: Meðlimur i
fjöllistahópnum GUS
GUS og nemandi við
Menntaskólann i
Kópavogi
ALDUR: 17 ÁRA
Botnaðu setninguna:
TXSKA ER . . . (skv.
islenskri orðabók)
Ösiður eða venja
eftir breytilegum
smekk, rikjandi um
skemmri eða lengri
tima einkum i klæða-
burði og snyrtingu."
OHafdís fékk þessa fagurrauðu
bandavettlinga í Sundhöll
Reykjavíkur. „Ég var látin hafa þá
fyrir misskilning þegar ég
var að vinna tónhstarmynd-
band með GUS GUS í Sund-
höllinni en þegar heim var
komið uppgötvaði ég að þeir
tilheyrðu mér alls ekki en ég
tók ástfóstri við þá en skil
samt vel ef fyrri eigandi
saknar þeirra og honum er
velkomið að setja sig í sam-
band við mig.“
HAFDÍS Huld hefur
engan sérstakan stíl
að eigin sögn, hún
klæðir sig bara eftir því
hvernig skapi hún er í og er
mikið fyrir að blanda öllu
saman eins og fínni dragt við
grófa gönguskó.
0„Það sem heillaði mig
við þessa dragt var hvað mér
fannst hún „gömlukonuleg“ en mér
finnst gamlar konur voðalega mikil
krútt.“
- Erþetta svona sparidragt?
„Svona jarðarfarardragt mein-.
arðu? Þetta er alveg spari þegar mig
langar að hafa þetta spari annars er
þetta bara ekki spari, það fer bara
eftir því hvernig mig langar að vera
þann daginn. Gönguskóna keypti
mamma á skiptimarkaði fyrir um
það bil 15 árum en ég mæli alls ekki
með þeim í fjallgöngur því þeir eru
óhugnanlega þungir.“
Hafdís hefur mjög gaman af föt-
um en á ekki neinar sérstakar uppá-
haldsbúðii'. „Ég versla mikið í
©Gullskórnir sem minna einna
helst á rauðu skóna henna
Dóróteu í Galdrakarlinum í Oz eru í
miklu uppáhaldi hjá Hafdísi og þeg-
ar hún er í þeim líður henni eins og
ævintýraprinsessu. „Þessa keypti ég
á 500 kr. í bamadeildinni í Hagkaup,
ég er svo heppin að nota stærð 35 og
get því nýtt mér barnaskó."
0„Ég nota þessa skyrtu mjög
mikið en ég var algjör súper-
skáti og var í Skátafélaginu Kópum í
mörg ái’ og fór í henni á landsmótið
1990. Ég man að ég var heillengi að
vinna fyrir þessum merkjum og þess
vegna er eins gott að nota skyrtuna
svo að þau fái að njóta sín.“
bamadeildinni í Hagkaup, flóamörk-
uðum, Hjálpræðishernum og svo hef
ég ofsalega gaman af því að gramsa í
skápunum hjá ömmu.“
- Hvað fínnst þér um tískuna á ís-
landi í dag?
„Ég er ekkert að hafa áhyggjur af
henni, hún er ekkert að trafla mig
en ég hef mjög gaman að fylgjast
með því sem fólk er að skapa varð-
andi fót.“
NAFN: Birgir Orn
Thoroddsen
STARF: Nemandi við
Fjölbrautaskólann í
Breiðholti, i
hljómsveitinni Brim
og einsmannshljóm-
sveitinni Curver.
ALDUR: 21 árs
Botnaðu setninguna:
TÍSKA ER . . .
eitthvað sem gengur
í hringi.
J
r »
wmm.
„ÉG VAR í gleðiferð í London
’ með Bjarna Breiðfjörð vini mín-
um þegar þessi skyrta varð á vegi
mínum. Það sem heillaði mig við
hana var uppáhaldsliturinn minn
appelsínugulur og ekki sakaði að
hún kom frá uppáhaldshönnuðunum
mínum. Þetta leit nú ekki vel út í
fyrstu þar sem eina eintakið var á
leið út úr búðinni með annarri konu.
En allt einu eins og þrama úr heið-
skíru lofti píph’ greiðslukortavélin
og afgreiðslumaðurinn segir þungur
á brún við konugreyið að kortinu
hafí verið stolið. Kortið mitt var hins
vegar í fínu lagi því skyrtan er mín í
dag.“
OKJÓLLINN sem Hildur er í er
ekta flamingó-kjóll sem hún
keypti af sígaunakerlingu á Spáni
sem var að selja alla gömlu kjólana
sína. „Kjólinn
hef ég notað við
nokkur hátíðleg
tækifæri og
vakið verðskuld-
aða athygli."
-Hefur þú
lært fíamingó-
dans?
„Nei, því miður,
en kjólhnn er
alla vega fyrsta
skrefið.“
FATASMEKKUR Birgis
gæti kannski talist
frekar klofinn, annars
vegar hefur hann mikinn
áhuga á Hawaii-skyrtum en
eitt helsta einkenni þeirra er
mikil litagleði, hins vegar er
hann mikið fyrir svartan fatn-
að. „Annaðhvort er ég í
Hawaii-skyrtum eða svörtu,
það er lítið þar á milli. Mér
fínnst tískan hér á íslandi
nokkuð góð miðað við í út-
löndum. íslendingar fylgjast
mjög mikið með og kunna al-
veg að klæða sig. Það hafa verið
margar stefnur í gangi og þær eru
núna byrjaðar að fléttast mjög mikið
saman og er gaman að fylgjast með
því.
- En hvað varð til þess að Birgir
fékk svona mikinn áhuga á Hawaii-
skyrtum?
„Ég byrjaði að safna Hawaii-
skyrtum sumarið 1995 í Þýskalandi.
Þá var ég byrjaður að hlusta mikið á
brimbrettatónlist sem heillaði mig
sökum þess hversu hrá og létt hún
var í senn. Upp úr því spratt áhug-
inn á skyrtunum, svo mikill að ég
keypti 15 skyrtur á einu bretti - þó
ekki brimbretti (ha! ha!).“
0„ÞETTA er alveg ekta banda-
rísk Hawaii-skyrta frá byrjun
sjöunda áratugarins þegar brim-
brettatónlistin var sem vinsælust."
Bh’gir segir að oft sé hægt að sjá frá
hvaða tímabili skyrtan er með því að
kanna lengdina á kraganum. „Þessi
skyrta er t.d. með stuttum kraga en
þegar nær dregur 1970 lengjast
kragarnir."
ÞETTA er Hawaii-skyrta með
kínversku ívafi sem Birgir
keypti í Danmörku hjá Hjálpræðis-
hernum þar. „Þessi er algjörlega
komin út í geðveiki og er greinilega
framleidd um 1970 því kragamir eru
svo langir og eru áhrif hippamenn-
ingarinnar augljós."
BIRGIR minnir allra helst á
bandarískan dægurlagasöngv-
ara frá 1960 þó svo að skórnir sem
voru upp á sitt besta á miðjum ní-
unda áratugnum komi upp um hann.
„Jakkann og skóna fékk ég í Hjálp-
ræðishernum en skyrtan er ein af
þessum íýrstu 15 sem ég keypti á
Garage markaðnum í Þýskalandi.
Þetta er eiginlega uppáhalds skyrt-
an mín og það sem mér fínnst flott
við hana er litasamsetningin, hún
minnir dáldið á þegar húmar að
kveldi og þegar ég geri eitthvað sér-
stakt finnst mér þægilegast að vera í
henni.“
ÞAÐ MÁ kannski segja að
þessi skyrta hafi verið mikill
örlagavaldur í lífi Birgis. „Ég var að
reyna að ná athygli fallegustu
stúlku sem ég hef augum litið og
ástæðan fyrir því að hún tók eftir
mér var sú að henni fannst skyrtan
sem ég var í sú allra ljótasta sem
hún hafði nokkurn tímann séð.
Upp frá því hófst gott samband
milli okkar en því miður var skyi’t-
an ekki nógu ljót til að halda í
hana. Þetta er svona ljót/flott
skyrta og það sem er sérstakt við
hana eru brúnu tónarnir og að það
er ein samfelld mynd á henni í
stað margra lítilla."