Morgunblaðið - 28.02.1997, Blaðsíða 1
B L A Ð
A L L R A
LANDSMANNA
JltffipiafliiftfeUi'
c
1997
FÖSTUDAGUR 28. FEBRUAR
BLAD
—
Bjarni hélt upp á
afmælið í Madrid
BJARNI Guðjónsson, knattspyrnumaðurinn
efnilegi frá Akranesi, lék æfingaleik með
varaliði Real Madrid á miðvikudag og skor-
aði þá þrjú mörk i 4:1 sigri liðsins. Hann
átti 18 ára afmæli sama dag og gat því hald-
ið upp á hann með eftirminnilegum hætti.
Bjarni fór til Spánar á þriðjudaginn og
hafði aðeins mætt á eina æfingu með varalið-
inu fyrir leikinn. í gær átti hann síðan að
æfa með aðalliði félagsins. Hann er væntan-
legur heim á morgun. Eins og áður hefur
komið fram æfði Bjarni með ensku liðunum
Newcastle og Liverpool fyrir nokkrum vik-
um. „Við höfum ekkert heyrt frá þessum
félögum og engin tilboð um kaup á Bjarna
hafa borist til okkar enn,“ sagði Hafsteinn
Gunnarsson, framkvæmdastjóri knatt-
spyrnufélags ÍA.
HANDKNATTLEIKUR
JÓHANNINGITÆKNILEGUR RÁÐGJAFIAFREKSMANNASJÓDS / C3
Jegorova út
í kuldann í
Rússlandi
UUBOV Jegorova, sem féll á
lyfjaprófi eftir sigur i fimm
km göngu á HM í norrænum
greinum f Þrándheimi sl.
sunnudag, keppir ekki meira,
að sögn Alexanders Grishuns,
yfirþjálfara rússneska kvenna-
liðsins. „Ég óttast að hún verði
að taka því að ferili hennar er
á enda,“ sagði hann.
„Þetta var mikið áfall og ég
hef átt erfitt með svefn,“ sagði
Jelena Valbe, sem var önnur í
göngunni en fékk gullið eftir
að niðurstöður lyfjaprófsins
lágu fyrir. Hún áréttaði að
ekki væri við liðið að sakast
heldur ákveðinn einstakling.
„Eftir það sem gerðist í Atl-
anta átti hún að vita að ekki
mætti taka þessar töflur. Nið-
urstaðan gerir það að verkum
að engin ánægja fylgir eigin
sigrurn.”
Jegorova viðurkenndi að
hafa tekið Bromantan, sem er
örvandi lyf á bannlista. „Ég
vissi ekki að efnið væri bann-
að,“ sagði hún og bætti við að
hún hefði tekið það ósjálfrátt
úr gömlum pakka sem hún
hefði átt síðan á Ólympíuleik-
unum f Lillehammer 1994.
„Það jafnast á við sjálfsmorð
að vita að Bromantan sé bann-
að en taka það samt.“
Rússneskir íþróttamenn
lentu f vandræðum á Ólympíu-
leikunum f Atlanta f fyrra
vegna sama lyfs og því kemur
þetta mál sem köld vatnsgusa
framan f Rússa. Jegorova, sem
er 30 ára og hefur sex sinnum
fagnað sigri á Ólympfuleikum,
þrisvar f AlbertviUe 1992 og
þrisvar f LUIehammer, auk
þess að hafa þrisvar orðið
heimsmeistari, hætti keppni
eftir leikana í Lillehammer
vegna barnsburðar. Veikindi
hijáðu hana í bjölfarið en síðan
tók hún upp þráðinn á ný án
þess að ná fyrri styrk.
Trude Dybendahl-Hartz,
sem var f silfursveit Norð-
manna f 4x5 km boðgöngu
kvenna f gær, óskaði Alþjóða
skfðasambandinu til haraingju
með snögg viðbrögð. „Gott er
til þess að vita að sambandið
getur fundið svindlara og refs-
að þeim strax,“ sagði hún.
„Þetta er slæmt fyrir íþróttina
en ég vissi að lyfjamisnotkun
hefur átt sér stað. Ég vorkenni
Rússum en er ánægð með að
kerfið virkar."
Rétt
leið
ÍSLENDINGAR
unnu Egypta 27:22 f
vináttulandsleik í
Smáranum í gær-
kvöldi. Þorbjörn
Jensson, landsliðs-
þjálfari, lagði höf-
uðið í bleyti og
Bjarki Sigurðsson
lagði sitt af mörkum.
Leikur/C4.
Morgunblaðið/Golli
Vemharð ætlar að keppa
fyrir Noreg á ÓL í Sydney
Vernharð Þorleifsson, júdókappi
úr KA, sagði í viðtali við
íþróttablaðið, sem kom út í gær,
að hann hafi ákveðið að flytja til
Noregs. Hann ætlar að gerast
norskur ríkisborgari og keppa fyrir
Noreg á Ólympíuleikunum í Sydney
árið 2000. Ástæðuna segir hann
vera þá að stuðningur íslensku
íþróttahreyfingarinnar dugi ekki til
þess að fleyta honum á toppinn.
Því hafi hann leitað til Norðmanna
sem hafi tekið honum opnum örm-
um og bjóði honum gull og græna
skóga. Hann vonast til að
ákvörðunin hristi upp í íþrótta-
hreyfíngunni. „Kannski er ég
óheppinn að enginn skyldi gera
þetta á undan mér. Það má segja
að ég sé píslarvottur að einhveiju
leyti og vonandi kemur þetta sér
til góða fyrir þá íþróttamer.n sem
eiga eftir að skara fram úr á ís-
landi,“ segir hann í viðtalinu.
Kolbeinn Gíslason, formaður
Júdósambands íslands, sagðist
harma þessa ákvörðun Vernharðs.
„Þessar fréttir komu mér verulega
á óvart. Ég talaði við Vernharð um
daginn og þá minntist hann ekki
einu orði á þetta, sagðist vera
hættur og farinn til Noregs. Vern-
harð lýsti því yfir eftir Ólympíuleik-
ana að hann væri hættur en um
miðjan janúar sagðist hann vera
byijaður að æfa aftur. Við vorum
auðvitað ánægðir með það og sótt-
um um styrk fyrir hann hjá afreks-
mannasjóði ÍSI. Hann fékk úthlut-
að 700 þúsund krónum, en afþakk-
aði það og sagði það of lítið,“ sagði
Kolbeinn.
Kolbeinn sagði að Júdósamband-
ið hafi skrifað Ellerti B. Schram,
formanni ÍSÍ og Óí, bréf fyrir
þremur vikum og óskað eftir að
hann beitti sér fyrir því að fyrir-
tæki styrktu Vernharð. „Þessar
fréttir í íþróttablaðinu koma því
eins og þruma úr heiðskíru lofti,“
sagði Kolbeinn. „Ég held satt að
segja að þetta sé eitthvert upphlaup
af hans hálfu til að reyna að ná
sér niður á Júdósambandinu, sem
hefur þó alltaf verið reiðubúið að
aðstoða hann.“
JÚDÓ