Morgunblaðið - 28.02.1997, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.02.1997, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 C 3 KÖRFUKIMATTLEIKUR ;ækir að körlu KR-lnga en tll varnar er Jónatan Bow sem lék mjög vel fyrir KR. Morgunblaðið/Árni Sæberg i KR rétla manninn of víðar á hann. Einnig væri í lagi að benda honum á að vera kurteisari við áhorfendur, það þykir ekki við hæfi að „sýna þeim fingur“ eða ulla á þá, jafn- vel þó þeir séu að reyna að hafa áhrif á leik hans. Mikill hraði var á upphafsmínútunum og þá hittu KR-ingar mjög vel, gerðu 13 stig fyrstu þqar mínúturnar. Liðið lék fína pressuvörn og heimamenn áttu í í kvöld Körf uknattleikur Úrvalsdeild: ísafjörður: KFÍ - Keflavík.......kl. 20 Sauðárkr.: UMFT-Haukar...........kl. 20 Handbolti X. deild kvenna: Vestm: iBV - Fram................kl. 20 2. deild karla: Höllin: Ögri - Keflavík..........kl. 21 mestu vandræðum með að brjóta sér leið að körfunni. Það kom þó um síðir og þá skiptu Vesturbæing- ar í svæðisvörn með ágætum ár- angri. Vörn ÍR var hins vegar ekki nægilega góð, sama hvort leikið var maður á mann eða svæðisvörn. Eftir að ÍR komst inn í leikinn var hann spennadi og jafn, KR þó oftast með frumkvæðið nema í leik- hléinu, þá var IR tveimur stigum yfir. Liðið skiptust á um að skora nema hvað eftir fimm mínútna leik í síðari hálfleik gerðu gestirnir átta stig í röð og komust 10 stigum yfir. Það bil tókst ÍR ekki að brúa og undir lokin léku KR-ingar af mikilli skynsemi og héldu fengnum hlut. Eford var geysilega skemmtileg- ur og þeir Bow og Hermann Hauks- son léku báðir mjög vel og það sama má segja um Ingvar, sem átti marg- ar frábærar sendingar. Baker, Ei- ríkur og Eggert báru uppi leik ÍR- inga en aðrir hafa oft leikið betur. IMjarðvík- ingar í góðum gír í Grindavík Frímann Óiafsson skrifar frá Grindavik Hafi einhver haldið að Njarðvík- ingar ætluðu sér að vera í aukahlutverki í baráttunni um ís- landsmeistaratit- ilinn í ár verður sá hinn sami líklega að endurskoða það álit sitt eftir góðan sigur þeirra á Grindvíkingum í íþróttahúsinu í Grindavík í gærkvöld. Þeir komu til leiks staðráðnir í að sigra og tókst ætlunarverk sitt. Leikurinn byijaði með látum og bæði lið sýndu góða baráttu í upp- hafi. Herman Myers fór mikinn í upphafi og var nánast einn í að skora fyrir Grindvíkinga, var kom- inn með 12 stig í stöðunni 16:12 fyrir Grindavík. Þá jenti honum saman við Rúnar Árnason sem endaði með því að hann sló hann í höfuðið og var heppinn að sleppa með ásetningsbrot. Grindvíkingar náðu góðum spretti eftir atvikið og komust í 24:16. Þá bað Ástþór Ingason þjálfari Njarðvíkinga um leikhlé sem hann hafði ekki tæki- færi á að taka því Njarðvíkingar tóku mikinn kipp og komust yfir 27:26 þannig að á endanum var það Friðrik þjálfari Grindvíkinga sem bað um leikhlé sem sýnir hve hlutir gerast hratt í körfuboltan- um. Njarðvíkingar létu forystuna ekki af hendi og í seinni hálfleik léku þeir einfaldlega betur en heimamenn og hleyptu þeim aldrei inn í leikinn. Mesti munur á liðun- um var 19 stig, 79:60 þegar tæp- ar 4 mínútur voru eftir og þann mun náðu Grindvíkingar ekki að minnka. „Þetta var virkilega sætur sigur hjá okkur og við erum að rífa okkur upp núna. Við vorum nánast komnir í svaðið en ákváð- um að snúa bökum saman í stað þess að gefast upp. Það er alltaf gaman að vinna í Grindavík, það er erfitt en þeir voru langt frá sínu besta hér í kvöld og við eigum langt í land ennþá. Þetta var áfangasigur hjá okkur,“ sagði Friðrik Ragnarsson fyrirliði Njarð- víkinga. Torrey John átti skínandi leik fyrir þá, sjálfsagt einn sinn besta í lengri tíma. Sverrir Þór Sverrisson og Kristinn Einarsson áttu einnig góðan leik og Friðrik náði sér vel á strik í seinni hálfleik. Hjá heimamönnum stóð Her- man Myers fyrir sínu að vanda en það dró verulega af honum í seinni hálfleik. Helgi Jónas og Páll Axel áttu ágæta spretti en boltinn rúllaði ekki vel hjá þeim. Hittni Grindvíkinga var slök úr þriggja stiga skotum, ein þriggja stiga karfa úr 22 tilraunum, sem er sjálfsagt félagsmet ef grannt væri skoðað. „Hlutirnir gengu ekki upp hjá okkur, við vorum oft með auðveld skot en hittum ekki. Eg vil ekki meina að við höfum verið taugaveiklaðir í leiknum heldur hitt að við höfum verið of afslappaðir. Við höfum ekki að neinu að keppa en þeir [Njarðvík- inga] eru að reyna að tryggja sér 3.-4. sætið í deildinni. Við kom- um þó alltaf með því hugarfari að vinna en það gekk ekki upp í kvöld,“ sagði Marel Guðlaugsson fyrirliði Grindvíkinga eftir leik- inn. ða drepast skilaði forystu á meðan Haukar virkuðu þreyttir en náðu samt að halda í við mótheija sína. Hafnfirðingar brugðu þá á það ráð að taka úr umferð Kristínu Guðmundsdóttur, sem hafði borið uppi sóknarleik gestanna og dugði það til að slæva sókn Víkinga. „Við urðum að vinna,“ sagði Hulda Bjarnadóttir sem átti góðan leik. „Við byijuðum ekki vel en vöknuðum til lífsins þegar á leið. Það er búið að tala svo mikið um að það gangi svo illa hjá okkur að við höfum eflaust verið farnar að trúa því.“ Hulda, Judith og Harpa Melsteð voru bestar hjá Haukum. Ekki vantaði kraftinn í Víkinga í upp- hafi en hann fjaraði út þegar Kristín var tekin úr umferð því engum leikmanni tókst að taka við hlutverki hennar. Það má heldur ekki eiga slaka kafla gegn liði eins og Haukum - fyrir slíkt er strax refsað með mörkum. Helga markvörður var langbest og kom í veg fyrir stærra tap með frábærum leik. IÞROTTAHREYFINGIN / AFREKSMANNASJOÐUR íþróttasamband íslands eykur aðhald og eftirlit hjá styrkþegum Jóhann Ingi tæknileg- ur ráðgjafi sjóðsins Afreksmannasjóður íþrótta- sambands íslands hefur gert samning við Jóhann Inga Gunn- arsson sálfræðing þess efnis að hann verði tæknilegur ráðgjafí sjóðsins gagnvart iþróttamönn- um og -hópum, sem styrktir eru. Hann á að hafa eftirlit með æf- ingum og undirbúningi, vera þjálfurum til ráðuneytis og sjá til þess að áætlunum sé fylgt auk þess sem hann er tilbúinn að veita íþróttafólkinu og þjálfurun- um sálfræðilega ráðgjöf. Jóhann Ingi á að gefa sjóðnum upplýs- ingar um stöðu mála reglulega en samningurinn gildir í eitt ár með því markmiði að halda sam- starfinu áfram fram yfir Ólymp- íuleikana í Sydney 2000. „Við erum mjög ánægð með að hafa fengið Jóhann Inga til starfans," sagði Stefán Snær Konráðsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, við Morgunblaðið í gær. „Hann er ekki aðeins menntaður sálfræðingur með mikla reynslu á því sviði heldur á hann að baki gífurlega reynslu sem þjálf- ari, hefur kynnt sér þessi mál sérstaklega og hefur mikið inn- sæi í þau.“ Stefán Snær sagði að til að byija með væru helstu verkefnin tengd Jóni Araari Magnússyni, Guðrúnu Arnardóttur og ís- lenska karlalandsliðinu í hand- knattleik. „íþróttasambandið leggur fram mikla Qármuni, al- mannafé, til styrktar íþróttafólki og vill fylgjast með því að þeim sé vel varið. Við viljum ná ár- angri í íþróttum og liður f því er öflugt aðhaid og eftirlit sem kemur öllum til góða því upplýs- ingastreymið verður í báðar átt- ir.“ Jóhann Ingi sagði að sér væri sýndur mikill heiður með þessum samningi og hann hefði tekið verkefnið að sér vegna þess að það væri ögrandi. „ÍSÍ er í fyrsta sinn að fara út á þessa braut sem er viðurkenning á afreksmanna- stefnu. Afreksmannasjóður hef- ur ákveðið að gera sérstaklega vel við aUra besta íþróttafólkið okkar og því er eðlilegt að hann viiji tryggja að peningunum sé vel varið með því að fylgjast með að menn vinni vinnuna sína og hlúa sern allra best að íþrótta- fólkinu á öllum sviðum. Þetta er einn áfangi í viðleitni sjóðsins til að stíga inn í 21. öldina og ég hlakka til að starfa með íþrótta- mönnunum og þjálfurunum sem hlut eiga að máli.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.