Morgunblaðið - 04.03.1997, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Atta liða úrslit Evrópumótanna í knattspyrnu:
MEISRARADEILD EVRÓPU í knattspyrnu
8-liða úrslit, 5. mars og 19. mars:
Dortmund (Þýskal.) ■ Auxerre (Frakklandi)
Manchester Utd. (Engl.) - Porto (Portúgal)
Ajax (Hollandi) - Atletico Madrid (Spáni)
Rosenborg (Noregi) - Juventus (Ítalíu)
>
>
uki
8-liða úrslit,
4. mars og 18. mars:
m
P
Newcastle (Englandi) - Mónakó (Frakklandi)
Tenerife (Spáni) ■ Bröndby (Danmörku)
Schalke (Þýskalandi) - Valencia (Spáni)
Anderlecht (Belgíu) - Inter (Ítalíu)
Undanúrslit,
9. og 23. apríl:
>
URSLITALEIKUR
í Miinchen 28. maí:
EVRÓPUKEPPNI 1t
BIKARHAFA N
8-liða úrslit, 6. mars og 20. mars:
Benfica (Portúgal) - Fiorentina (Ítalíu)
París St. Germain (Fr.) - AEK Aþena (Grikkl.)
Brann (Noregi) - Liverpool (Engl.)
Barcelona (Sp.) - AIK Stokkhólmur (Svíþj.)
■ PATREKUR Jóhannesson
meiddist lítillega í leik Essen og
Fredenbeck í þýsku 1. deildinni í
handbolta um helgina en sagði
meiðslin ekki alvarleg. „Ég verð með
í næsta leik sem verður um helg-
ina,“ sagði hann.
■ PATREKUR gerði eitt mark
áður en hann meiddist en Héðinn
Gilsson var með sjö mörk fyrir Fred-
enbeck sem tapaði 27:25. „Héðinn
er í mjög góðu formi, langbestur hjá
Hameln og allt snýst um hann,“
sagði Patrekur um mótheija sinn.
MALLIACER Urrutia frá Kúbu
setti heimsmet í þrístökki innanhúss
þegar hann stökk 17,83 m á móti í
Sindelfingen í Þýskalandi um helg-
ina. Rússinn Leonid Voloshin átti
fyrra metið, 17,77 m, frá því í
Grenoble í Frakklandi fyrir þremur
árum.
■ LAURENT Viaud, miðjumaður
hjá Mónakó, hefur áhuga á að ganga
til liðs við Everton. Hann verður hjá
liðinu þessa viku til að ræða hugsan-
leg félagaskipti en frestur til þess
rennur út 30. mars. Viaud er samn-
ingsbundinn út tímabilið.
■ CHRIS Renaud frá Kanada
bætti heimsmetið í 50 m baksundi í
25 m laug þegar hann synti á 24,25
sek. á kanadiska háskólamótinu um
helgina. Ólympíumeistarinn Jeff
Rouse frá Bandaríkjunum átti
fyrra metið, 24,37, frá heimsbikar-
móti í febrúar 1995.
■ MICHELLE Smith keppti í sundi
um helgina í fyrsta sinn á írlandi
síðan á Ólympíuleikunum í fyrra.
írska gulldrottningin brást ekki ák-
öfum stuðningsmönnum í Galway
og setti írskt met í 200 m skriðsundi
í 25 metra Iaug, synti á 2.1,38 mínút-
um. Hún var tekin í lyfjapróf eftir
sundið og er það í fyrsta sinn sem
sundmaður er tekinn í lyfjapróf á
Irlandi.
■ MARY Slaney, sem er 38 ára,
hljóp 1.500 m á 4.03,08 mín. á
bandaríska meistaramótinu innan-
húss um helgina og er það besti tími
sem náðst hefur í greininni í 12 ár.
■ GAIL Devers fór 60 metrana á
7,0 sek., sem er besti tími ársins,
en Gwen Torrence kom önnur í
mark á 7,12. Slaney og Devers
tryggðu sér rétt til að keppa á HM
í París um næstu helgi en Torrence
sagðist ekki ætla að vera með þó 2.
sætið hefði tryggt þátttökurétt.
■ DENNIS Mitchell varð í 6. sæti
í 60 m hlaupi og missti af farseðlin-
um til Parísar en hann var mjög
sigursæll í 100 m hlaupi á liðnu ári
þó hann hafi orðið að sætta sig við
4. sætið á Ólympíuleikunum í Atl-
anta.
■ JOHN Godina, sem vann til silf-
urverðlauna í Atlanta, kastaði kúl-
unni 20,64 metra og fer til Parísar
eins og Mark Parlin, sem kastaði
20,55 m. „Ég stefni á sigur í Par-
ís,“ sagði Godina, en Pétur Guð-
mundsson verður þá á meðal keppi-
nauta hans.
■ FRANSKI knattspyrnumaðurinn
Robert Pires er á leiðinni til New-
castle frá Metz fyrir 5,5 milljónir
punda. Pires er framliggjandi miðju-
maður og hélt upp á tvítugsafmælið
með því að skora fyrir Frakkland í
2:1 sigri á Hollandi í vináttulands-
leik í liðinni viku.
OTKNNDI
Norðmenn eru gríðarleg
íþróttaþjóð. Þessir frændur
okkar og vinir hafa sópað að sér
verðlaunum í keppni á ýmsum
vettvangi síðustu ár; hafa upp-
skorið eins og þeir sáðu til, því
mikil alvara er I uppbygg-
ingu afreksíþrótta í land-
inu.
Þeir eiga þó ekki topp-
menn í öllum greinum.
Eitt af þvi sem Norðmenn
vantar er frambærilegur
júdómaður á alþjóðavett-
vangi. Þeir eiga engan slíkan.
Ekki ennþá.
Það gæti hins vegar breyst von
bráðar og án þess að þeir þurfi
að hafa mikið fyrir því, vegna
þess að allt bendir nú til þess að
Vemharð Þorleifsson, KA-maður
frá Akureyri, keppi fyrir Noreg
í framtíðinni. Hann er fluttur
utan, stefnir að þvi að fá norskan
ríkisborgararétt i siðasta lagi inn-
an þriggja ára og keppa fyrir
hönd Noregs á Ólympiuíeikunum
árið 2000.
Tiðindin eru slæm og í raun
ótrúleg. íslendingar vi(ja eiga
afreksmenn í iþróttum. Þeir eru
ekki á hvetju strái, og því er það
hneyksli að íþróttamaður sem
mikiar vonir eru bundnar við
þurfi að flytja úr landi og keppa
fyrir aðra þjóð vegna þess að
honum er ekki gert kleift að
keppa fyrir sína eigin.
Jón Amar Magnússon fijáls-
íþróttakappi og Vemharð lýstu
þvi báðir yfir meðan á Ólympíu-
leikunum stóð í Atlanta í sumar
að mikil óvissa væri með fram-
haldið hjá þeim, hvað æfingar og
keppni varðaði vegna fjárskorts.
Þá skrifaði undirritaður m.a. eft-
irfarandi: „Það yrði mikill skaði
fyrir íslenskt íþróttalíf, og raunar
hneisa fyrir íslensku iþróttahreyf-
inguna, ef þessir tveir miklu
keppnismenn næðu ekki að helga
sig keppni enn um sinn. Hvorug-
ur er kominn á hinn svokallaða
besta aldur og báðir eru til alls
líklegir eftir nokkur ár.“
Þessi orð frá því í sumar eru í
fullu gildi. íþróttahreyfingin hefur
Eignast Nordmenn
frábæran júdómann
fyrirhafnarlítið?
sem betur fer gengið frá samning-
um við fijálsíþróttamennina Jón
Amar Magnússon og Guðrúnu
Amardóttur, sem gerir þeim kleift
að helga sig æfingum af kappi
fram að Ólympíuleikum og Vala
Flosadóttir nýtur nánast sama
stuðnings og þau - frá Afreks-
mannasjóði og Ólympíusamhjálp-
inni. Annað var hins vegar upp á
teningnum varðandi Vemharð.
Hann hefur fengið styrki síðustu
ár, en segir þá reyndar ekki hafa
dugað sér því hann sé stórskuld-
ugur vegna íþróttaiðkunar sinnar.
Og Sigmundur Þórisson, formaður
KA, upplýsti eftirfarandi í Morg-
unbiaðinu á laugardag: „Þegar fór
að nálgast úthlutun úr Afreks-
mannasjóði ÍSÍ í janúar hafði ég
samband við Kolbein Gíslason,
formann Júdósambandsins, og
spurði hvort ekki ætti að sækja
um styrk fyrir Vemharð úr sjóðn-
um. Hann sagði það ekki á dag-
skrá því Bjami Friðriksson og
fleiri í stjóminni væru því mót-
fallnir."
Það hlýtur að vera skylda sér-
sambands að styðja við bakið á
íþróttamönnum sínum á allan
mögulegan hátt en svo virðist
sem slíku hafi ekki verið að heilsa
í tilfelli Vernharðs. Hvers vegna?
Skapti
Hallgrímsson
Ætlar Framarinn REYNIR ÞÓR REYNISSON að halda landsliðsstöðunni?
Rosalega
stórstund
REYNIR Þór Reynisson, sem er á öðru ári í sálfræöi í Há-
skóla íslands, var valinn ílandsliðið íhandknattleik ífyrsta
sinn þegar íslendingartóku á móti Egyptum íliðinni viku.
Hann sat á bekknum í fyrri leiknum en kom inná undir lok
fyrri hálfleiks í seinni viðureigninni og átti stóran þátt ífimm
marka sigri, 27:22. Reynir Þór, sem hélt uppteknum hætti
þegar Fram sigraði ÍBV ífyrrakvöld, er í sambúð með Helgu
Sigríði Lárusdóttur hjúkrunarfræðinema og eiga þau dótturina
Birnu Lísu sem er tæplega átta mánaða gömul.
Reynir Þór verður 25 ára í
haust. Hann lék með Víkingi
í öllum flokkum og byijaði að spila
í meistaraflokki 16
ára en skipti yfir í
Fram í fyrra. Hann
spilaði með pilta-
landsliðinu og ung-
mennalandsliðinu en var einnig lið-
tækur í badmintoni og knatt-
spyrnu.
„í yngri flokkunum var ég alls
staðar á vellinum en lék yfirleitt
sem skytta eða í horninu. Róbert
Sighvatsson, línumaður og lands-
liðsmaður, var í markinu hjá okkur
en hann meiddist á fótboltaæfingu
og okkur vantaði skyndilega mark-
mann. Þetta var í þriðja flokki, ég
fór í markið og hef verið þar síð-
an. Hins vegar held ég að ef ég
hefði ekki farið í markið á þessum
tíma hefði ég hætt og farið í golf
eða eitthvað annað.“
Hvaða breytingar hafa orðið í
boltanum síðan þú byrjaðir í meist-
araflokki?
Æfingarnar og álagið hafa ekki
breyst svo mikið en frekar ástund-
un og áhugi. Jafnaldrar mínir,
strákar eins og Patti, Óli og Dag-
ur, voru tilbúnir að æfa tvisvar á
dag þegar við vorum yngri en þessi
áhugi er ekki til staðar hjá piltum
núna, strákar eru ekki tilbúnir að
leggja mikið á sig og því eru ár-
gangarnir ekki eins góðir og áður.
Einhver amerísk ímynd er í gangi,
vera í buxum niður á hæla og með
húfu, slappa af og spila körfu-
bolta. Það er til dæmis mikið
áhyggjuefni að enginn strákur úr
2. flokki æfir með meistaraflokki
Fram.“
Hvers vegna fórst þú í Fram?
„Við féllum í 2. deild í fyrra og
hún er ekki sterk, reyndar mjög
slök. Ég vildi eiga möguleika á að
Eftir
Steinþór
Guðbjartsson
Morgunblaðið/Ámi Sœburg
REYNIR Þór Reynlsson er í sambúö meö Helgu Slgríöi Lárus-
dóttur hjúkrunarfræölnema og elga þau dótturlna Blrnu Lísu
sem er tæplega ðtta mánaða gömul.
komast í landsliðið og taldi þá
ekki vera fyrir hendi nema ég léki
á meðal þeirra bestu. Ég lék ekki
mikið með yngri landsliðunum, var
yfirleitt á bekknum eða uppi í
stúku þegar ég var í hópnum, en
mér hefur gengið vel undanfarin
tvö ár og þegar Þorbjörn landsliðs-
þjálfari sagði í samtali við dagblöð
að ég væri inni í myndinni fór ég
að gera mér auknar vonir."
Hvaða ábrif hefur það á þig að
hafa verið valinn í landsliðið?
„Þetta eflir sjálfstraustið til
muna og er algjör vítamíns-
sprauta. Eg er enn ákveðnari í að
standa mig, held ótrauður áfram
og reyni að bæta mig. Næsta skref
snýr að Fram og ég verð ekki að-
eins að æfa vel heldur skiptir
frammistaðan í leikjum í deildinni
miklu máli. Fyrir þessa landsleiki
hafði ég afskrifað möguleika á að
fara á HM í Japan en þó samkeppn-
in sé mikil um stöður geri ég mér
nú vonir. Hins vegar er baráttan
mikil við sterka menn og ekki er
annað hægt að gera en standa sig,
leggjast á bæn og sjá hveijir verða
valdir."
Hvernig var að sjá drauminn
rætast?
„í fyrri leiknum sá ég að ég fengi
ekki að vera með en í upphituninni
fyrir leikinn í Smáranum var ljóst
hvert stefndi þó ég gerði ekki ráð
fyrir að fá að spila nema fimm til
10 mínútur. Þorbjöm setti mig inn
á til að reyna að veq'a víti tveimur
mínútum fyrir hlé og sagði mér
síðan að ljúka þessu. Eg hef aldrei
unnið titla og því stendur þessi
seinni hálfleikur upp úr á ferlinum.
Þetta var rosalega stór stund, hálf-
gert öskubuskuævintýri.“