Morgunblaðið - 14.03.1997, Page 2
2 C FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
STILROF
Tískan er ekki fyrírsjáanleg. Núna er hún
Eva Hrönn Steindórsdóttir lifði sig inn í
strauma og stefnur í klæðnaði og raðaði
saman mömmustrák og uppreisnarsegg.
STÍLROF, eða andstæður í klæða-
burði og förðun, er lykilorð í tísk-
unni í dag. Má' því í raun blanda
saman glæsileikum rómantískum
klæðum og hversdagslegum, já,
jafnvel fatnaði sem fyrir nokkrum
árum hefði þótt ósmekklegur með
ákveðnum flíkum.
Kvikmyndaleikstjórinn Quentin
Tarantino sagði þegar hann var
spurður um hvert hann sækti hug-
myndir sínar, að búið væri að gera
kvikmyndir um flest það sem fyrir-
fínnst undir sólinni, og að nú gald-
urinn væri fólginn í útfærslu
hverrar hugmyndar og endur-
blöndunar efna á nýjan hátt.
Þessi orð má svo sannarlega
heimfæra á klæðaburð og tísku-
strauma. Allur sá hafsjór af stefn-
um og straumum sem berst um
yfirráðin í tískuheiminum núna
einkennist af endurblöndun eldri
hugmynda, útfærslum sem allar
ganga út á frumleika og stíl-
færslu, sem svo falla loks vel að
hugum þeirra sem kjósa að fylgja
nútímanum, eða með öðrum orðum
- þeirra sem tolla í tískunni.
Skemmtilegar fléttur
Það er því í raun ekki hægt að
segja að eitthvað sérstakt útlit
SAKLAUS rómantík
í klæðnaði.
eigi athygli tískuheimsins :
dag. Margar stefnur og
straumar gára undir yfír-
borði meðalmennskunnar.
Allt fléttast þetta skemmti-
lega saman og möguleik-
arnir eru óendanlegir.
Áhrif pönksins eru farin
að láta á sér kræla í fata-
stefnum og förðun, og
sakleysi blómabarnanna,
kremkennt útlit sjötta
áratugarins og allar
þessar stefnur fá sinn
skerf af athygli nútím-
ans.
Strákur fær sér
settlega tíglapeysu,
kreistir hárgelið úr
túpunni, makar í hár-
ið og út kemur
blanda af góða
mömmustráknum
og uppreisnar-
gjama töffaran-
um. Klassísk föt Glansandi
fá nýtt yfirbragð hreinleikinn
með fmmlegum gerir hana
efnum en tísku- brothætta.
hönnuðir sam-
tímans em
famir að leggja meira og meira
upp úr efnunum sem þeir vinna
með. Möguleikarnir og frelsið er
ótakmarkað og þar af leiðandi
erfitt að njörva þetta niður í
ákveðna flokka og tegundir.
Endurheimt
æskuljómans
Með því sem kallað er glans-
förðun er hægt að ná næstum
gegnsæju yfirbragði húðarinnar,
það er líkt og næstum ósýnileg
HANN Iangar til að vera svona í dag, en ekki endiiega á morgun.
M
Gamall stóll
varð kveikjan að
nýjum fyrir Kaffileikhúsið
SÁ gamli, sem varð kveikjan að þeim nýja.
TVEIR snotrir stólar, fínlegir og frem-
ur einfaldir, verka fyrst og fremst
glaðlegir á manneskju sem veltir
sjaldan fyrir sér hönnun og því sjaldn-
ar hugmyndafræði sem liggur að
baki hönnunar. Þessir stólar öðlast
annað og meira gildi þegar búið er
að útskýra hugsunina bak við
hönnunina.
Ása Richardsdóttir leikhús-
stjóri Kaffileikhússins og Sig-
ríður Heimisdóttir iðnhönnuð-
ur tóku að sér að leiðbeina
fáfróðum gesti Kaffileikhúss-
ins gegnum þróunarferli stóls.
Stóla, réttara sagt, því þeir eru
tveir stólamir sem standa
þama til sýnis í miðju leikhúsi og stinga
mátulega í stúf við skemmtilega gróft
húsnæði Hlaðvarpans í miðbæ Reykja-
víkur.
Annar glaður og hinn í fýlu
Eftir útskýringar er hlustanda orðið
ljóst að bak annars stólsins virðist brosa
Langaðií
stóla sem
væru ís-
lenskir.
en bak hins minnir á skeifu. Þegar þeir
standa hvor við hlið annars skírskota
þeir sem sagt til tákns leikhúss, tveggja
grímna, annarrar brosandi og hinnar
með skeifu. Ekki nóg með það, heldur
mynda stólbökin bylgjur þegar mörgum
stólum er raðað hlið við hlið. Og bylgj-
ur minna á iðandi líf leikhúss-
ins og eilífðarinnar öldudans.
Hönnun stólanna, sem enn
hafa ekki fengið nafn, er sam-
starfsverkefni Kaffileikhúss-
ins og GKS í Kópavogi. Ása
Richardsdóttir leikhússtjóri
segir: „Við höfum notað
gamla stóla í Kaffileikhúsinu
frá opnun, en fyrir skömmu
myndaðist fjárhagslegt svigrúm til að
endumýja þá. Þar sem við vildum gjarn-
an hafa þá íslenska, ákváðum við að
kanna möguleika á að láta hanna stóla
fyrir okkur. Hugmyndinni var mjög vel
tekið hjá GKS og fljótlega eftir áramót
var hafíst handa við hönnun stólanna.“
Sigríður Heimisdóttir iðnhönnuður
TÁKN leikhúss eru tvær
grímur, önnur brosandi og
hin með skeifu likt og bök-
in á nýju stólunum í Kaffi-
leikhúsinu.
tók verkefnið að sér fyrir GKS og seg-
ir að sér hafi frá upphafí þótt það
bæði spennandi og skemmtilegt. Konur
ráða ríkjum í Hlaðvarpanum og byggist
starfsemi í húsinu fyrst og fremst á
samstarfí kvenna. Ása og Sigríður Guð-
jónsdóttir, hönnuður Kaffileikhússins,
komu að verkinu fyrir hönd leikhúss-
ins. „Samvinnan hefur gengið mjög
vel,“ segja báðar og þegar setið er að
spjalli við þær fer ekki milli mála að
þær segja satt. Allar sem hlut eiga að
máli koma skoðunum sínum á framfæri
og jafnræði er greinilegt.
Fara á almennan markað
Sigríður segir að stólarnir verði fram-
leiddir fyrir almenna sölu í náinni fram-