Morgunblaðið - 18.03.1997, Síða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Skammarkrókurinn í 1. deild karla í handknattleik
Brottrekstrar leikmanna liðanna
Lið
Fjöldi
Mínútur Meðaltal,
; Selfoss 95 190
Stjarnan 88 176
Haukar 85 170
UMFA 84 168
HK 80 160
ÍKA 79 158
Fram 79 158
|íBV 76 152
ÍFH 74 148
fvalur 70 140
;j Grótta 68 136
JR 64 128
1. deildarkeppninni
Brottvísanir
■ PÉTUR Guðmundsson, fijáls-
íþróttamaður úr Armanni, keppti á
móti utanhúss í Alabama í Banda-
ríkjunum um helgina. Hann varpaði
kúlunni 19,18 metra og sigraði.
Hann keppti einnig í kringlukasti og
varð annar með 51,58 metra.
■ ENSKI knattspyrnumaðurinn
Paul Gascoigne var í gær dæmdur
í þriggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi á Ítalíu fyrir að slá ljósmynd-
ara þegar hann lék með Lazio í Róm
árið 1994. Gascoigne leikur nú með
Rangers í Skotlandi.
■ SAVO Milosevic, júgóslavneski
knattspyrnumaðurinn hjá Aston
Villa, hefur verið orðaður við Na-
pólí á Ítalíu. Skv. frétt í einu ensku
blaðanna um helgina ætlar Villa að
selja hann þangað fyrir 4 milljónir
punda og kaupa Stan Collymore frá
Liverpool í staðinn.
■ ZVONIMIR Boban staðfesti um
helgina að Manchester United hafi
áhuga á honum en segist vilja vera
áfram hjá AC Milan á Ítalíu. Hann
er með samning við Mílanóliðið til
tveggja ára í viðbót. Boban, sem er
28 ára og fyrirliði knattspymulandsl-
iðs Króatíu, segist aldrei hafa verið
í beinu samband við fulltrúa Man.
Utd. en vita að félagið hafí verið á
eftir honum í nokkra mánuði.
■ THOMAS Hassler tilkynnti um
helgina að hann ætiaði að vera áfram
hjá Karlsruher næstu þijú árin.
Þýski landsliðsmaðurinn, sem er þrít-
ugur hefur verið orðaður við Bayer
Leverkusen og sitt gamla félag, 1.
FC Köln, síðustu mánuði.
■ ÁÐUR en leikur Aftureldingar
og FH í úrslitakeppni íslandsmóts-
ins í handknattleik hófst í fyrradag
fékk Lárus Sigvaldason afhentan
bikar fyrir að hafa leikið 400 leiki
með Aftureldingu. Hann hefur verið
með liðinu nánast óslitið síðan 1982.
■ EINAR Gunnar Sigvrðsson hjá
Aftureldingu fékk högg á læri um
miðjan seinni hálfleik í fyrmefndum
Ieik og gat ekki beitt sér eftir það
en hann skoraði ekki úr fímm tilraun-
um í fyrri hálfleik.
■ PATRICK Vieira, franski knatt-
spyrnumaðurinn hjá Arsenal, lét
ósæmilega í leiknum gegn Sout-
hampton um helgina. Eftir að hann
var bókaður fyrir brot á Matthew
Le Tissier þótti orðbragð hans ekki
til fyrirmyndar og nokkrir nálægra
áhorfenda kvörtuðu við lögreglu.
Ekki er ljóst hvort þetta dregur dilk
á eftir sér.B SIGURÐUR Sveins-
son varð fyrir FH-ingnum Guðjóni
Árnasyni um miðjan fyrri hálfleik
og meiddist á lærvöðva.
■ SEBASTÍAN Alexandersson,
varamarkvörður Aftureldingar,
missteig sig í upphitun og kom ekki
inná í leiknum.
■ BJARKI Gunnlaugsson fékk að
líta rauða spjaldið á 70. mínútu er
Mannheim sigraði Meppen 1:0 í
þýsku 2. deildinni í knattspyrnu um
helgina.
■ MATTLe Tissier, sem allan sinn
feril hefur verið hjá Southampton,
kvaðst um helgina verða að velta því
fyrir sér að skipta um félag ef það
fellur í 1. deild.
■ DARIUSZ Wosz, sem hefur verið
meiddur, var óvænt í byijunarliði
Bochum um helgina en gert hafði
verið ráð fyrir að Þórður Guðjóns-
son hæfi leikinn á móti Werder
Bremen. Unglingalandsliðsmaður-
inn Gueluenoglu sló í gegn og gerði
annað mark Bochum sem vann, 3:2.
SUND
Innanhússmeistaramótið í
sundi sem fram fór i Vest-
mannaeyjum um helgina tókst
vel, ekki einvörðungu fram-
kvæmd þess heldur ekki síður
var árangurinn
óvenjugóður. íslands-
metin voru átta sem
er tveimur fleira en í
fyrra. Það eitt og sér
gerir mótið ekki svo
frábrugðið öðrum
meistaramótum síðustu ára. Það
sem gerði mótið svo glæsilegt
var góður árangur yngri sund-
manna sem settu sterkan svip á
flestar greinar og stóðu þeim
sem eldri eru fyllilega á sporði.
Nokkrir fóru með sigur af hólmi
og saumuðu hressilega að ís-
landsmetum sem staðið hafa
lengi. Eins og einum varð að
orði: „Þegar metin hans Eðvarðs
Þórs Eðvarðssonar eru farin að
falla þá hlýtur sundíþróttin að
vera að rétta úr kútnum.“ Ald-
ursflokkametin hjá keppendum
17 ára og yngri voru á þriðja
tuginn er upp var staðið og ungl-
ingalandsliðshópurinn sem til-
kynntur varí mótslok hefur aldr-
ei verið Qölmennari. Það gerist
þrátt fyrir að lágmarkstímar sem
settir voru fyrir inngöngu þetta
árið hafí ekki í annan tíma verið
strangari. Alls telur hópurinn
tuttugu ungmenni en í fyrra
voru það átta unglingar sem
náðu tilskildum árangri.
Ekki er því að undra að for-
svarsmenn sundíþróttarinnar
beri höfuðið hátt. Eftir nokkurra
ára lægð sjá þeir fram á bjart-
ari tíma og verði rétt á spilunum
haldið má vænta þess að íslensk-
ir sundmenn verði samkeppnis-
færir á eriendum vettvangi á ný.
En til þess þarf að spila rétt úr
spilunum sem eru á hendinni og
það er jafnljóst og að starf und-
anfarinna ára hefur kostað erfíði
að næstu skref verða enn erfið-
ari - að skapa þessum efnilegu
sundmönnum grundvöli til að ná
lengra, hærra og verða sterkari.
Veldur jú hver á heldur.
Tii þess þurfa jafnt félögin
sem sérsambandið að móta
stefnu um hvemig skuli tekið á
máiefnum framtiðarinnar á
sama tíma og huga verður að
næstu kynslóð þanníg að ekki
myndist tómarúm.
Það félag sem að öðrum ólöst-
uðum hefur unnið hvað markviss-
ast síðustu ár er Sundfélag Hafn-
arfjarðar. Í upphafí þessa áratug-
ar var félagið komið að fótum
fram en í stað þess að gefast upp
var blásið til sóknar og á örfáum
árum var félagið orðið það sterk-
asta hér á landi. Sundmenn fé-
iagsins settu flest met og unnu
til flestra gull- og silfurverðlauna
á meistaramótinu. Þar settust
menn niður á sínum tíma, mótuðu
stefnu og fylgdu henni undir ör-
uggri stjóm og markvissri þjálf-
un. í fyrra urðu þjálfaraskipti hjá
félaginu, en áður nýr þjálfari var
ráðinn hafði verið mótuð ný
stefna til næstu ára þar sem tek-
ið var tillit tii ailra féiagsmanna,
jafnt byijenda sem landsliðs-
manna. Ólium eru skýr markmið-
in og enginn iætur góðan árang-
ur dagsins í dag verða til þess
að morgundagurinn gleymist. Á
þennan hátt þarf hreyfíngin í
heild að vinna, þá springa rósirn-
ar út jafnt og þétt allan ársins
hring.
ívar
Benediktsson
Eftir nokkurra ára
lægð sjá þeir loks
fram á bjartari tíma
Átti sundmaðurinn ungi ÖRN ARNARSON von á að bæta 10 ára gamalt íslandsmet?
Það kom mér
mestáóvart
ÖRN Arnarson sundmaður úr Sundfélagi Hafnarfjarðar sló
heldur betur f gegn á Innanhússmeistaramótinu í sundi í Vest-
mannaeyjum. Hann varð áttfaldur íslandsmeistari bæði í karla-
og unglingaflokki auk þess að hafna í öðru sæti í einni grein
í hvorum flokki. Hann fékk verðlaun fyrir öll sund sem hann
tók þátt í. Auk þess setti hann átta piltamet og tvö íslandsmet
- var í sveit SH sem sló metið í 4x100 m fjórsundi og bætti
tíu ára gamalt met Ragnars Guðmundssonar Í400 m skrið-
sundi. Þetta var fyrsta íslandsmetið sem hann setur í einstakl-
ingsgrein. Örn er á 16. ári, fæddur 31. ágúst 1981, og lýkur í
vor prófi frá Víðistaðaskóla og verður af þeim sökum að sleppa
þátttöku á heimsmeistaramótinu siðari hluta apríl, en sam-
ræmdu prófin eru einmitt á sama tíma og prófin.
Það er rík hefð fyrir sundiðkun
í fjölskyldu Arnar og bara
þess vegna skal engan undra að
hann valdi sundið
umfram aðrar
Eftir
ivar
Benediktsson
■róttir. Afí hans
'lafur Guðmunds-
son var emn
fremsti sundmaður sinnar kyn-
slóðar og sama máli gegnir um
afasysturina, Hrafnhildi. Börn
hennar hafa verið í fremstu röð
sundmanna hér á landi. Faðir
Arnar, Örn Ólafsson, blandaði sér
einnig í keppni þeirra bestu á sinni
tíð, en móðirin Kristín Jensdóttir
hefur hins vegar aldrei verið
keppnismanneskja í sundi. Örn
hefur undanfarin ár verið að feta
sig áfram í hóp fremstu sund-
manna landsins og um helgina tók
hann allan vafa af, hafi hann ver-
ið til staðar, Örn er kominn í
fremstu röð. En kom það honum
á óvart að siá íslands- og piltamet
Ragnars Guðmundssonar í 400 m
skriðsundi og bæta 14 ára gamalt
piltamet Eðvarðs Þór Eðvarðsson-
ar í 200 m baksundi?
„Það má segja: bæði og. Metið
í fjögur hundruð metra skriðsundi
kom mér mest á óvart. Ég átti
ekki von á að ná því núna. í flest-
um hinna greinanna hafði ég sett
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar
ÖRN Arnarson úr SH með bikarlnn sem hann fékk fyrir að
vera stigahæsti sundmaður Innanhússmeistaramótsins.
mér það takmark að bæta mig.“
/ Ijósi sögunnar - varstu hvatt-
ur til að æfa sund?
„Ég fékk að ráða því sjálfur og
reyndi mig í nokkrum greinum en
á endanum var það sundið sem
heillaði. Ég hef meira og minna
verið í sundlaug síðan ég fæddist."
Hvetjar eru þínar aðalgreinar?
„Ég á auðvelt með að synda
allar tegundir sunds, en samt sem
áður eru það baksund og fjórsund
sem eru í hvað mestu uppáhaldi
hjá mér nú um stundir."
Er ekki líkamsbygging þín
hentug fyrir baksund?
„Það er rétt. Ég er langur og
mjór og þannig líkamsbygging
hentar mjög vel fyrir baksund."
Hvenærfórst þú að æfa á mark-
vissan hátt?
„Ég byijaði að æfa af mikilli
alvöru þegar Klaus Jiirgen byijaði
að þjálfa hjá SH árið 1991, en
annars hef ég æft meira og minna
síðan ég var sex ára gamall eða
í tíu ár.“
Hvað æfir þú oft í viku hverri?
„Ég æfi allt að níu til tíu sinnum
í viku, tvo tíma í senn. Ég æfi
engar lyftingar en tek aukalega
ýmsar magaæfingar og eitt og
annað styrkjandi."
Nú hefur þú tekið miklum fram-
förum, hvert markmið hefur þú
sett þér?
„Það er að vera á meðal kepp-
enda á Ólympíuleikunum í Sydney
í Ástralíu árið 2000 og komast í
A-úrslit, að minnsta kosti í B-
úrslit. Én ég er nú það ungur að
ég gæti keppt á einum til tvennum
leikum eftir það.“