Morgunblaðið - 25.03.1997, Qupperneq 14
14 C ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
HORFT yfir Þorlákshöfn. Neðarlega til vinstri er nýi golfvöllurinn. í sumar verður unnið deiliskipulag að stóru íbúðar- og
iðnaðarsvæði á opna svæðinu í byggðinni fyrir miðri mynd.
LJósmynd/Mats Vibe Lund
Góð eftirspurn eftir nýju húsnæði á Þorlákshöfn
Byggingarframkvæmdir í
bænum með mesta móti
SIGURÐUR Jónsson, byggingafulltrúi á Þorlákshöfn. Myndin er tekin fyrir framan félagsmiðstöð
bæjarins. Áformað er að byggja ofan á húsið og þá verða þar skrifstofur hreppsins, bókasafn og
minjasafn svo og félags- og mennningarmiðstöð. Einnig verður þar húsnæði til útleigu fyrir banka,
verzlanir og þjónustufyrirtæki.
Töluverðar fram-
kvæmdir eiga sér nú
stað á vegum bæjarins
og byggingaraðila í Þor-
lákshöfn og í sumar
verður þar unnið deili-
skipulag að stóru íbúð-
ar- og iðnaðarsvæði.
Magnús Signrðsson
kynnti sér framkvæmd-
ir í bænum.
MIKILL þróttur hefur verið í at-
hafnalífi á Þorlákshöfn að undan-
förnu og atvinnuástand gott. Afleið-
ingin er góð eftirspum eftir bæði
íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði.
í sumar verður unnið deiliskipulag
að stóru íbúðar- og iðnaðarsvæði á
milli svonefnds Unubakka og Sam-
byggðar. Markmiðið er að auka
framboð á lóðum í bænum. Sam-
kvæmt aðalskipulagi er jafnframt
gert ráð fyrir, að ný innkeyrsla inn
í bæinn komi um þetta svæði.
í Þorlákshöfn búa nú um 1250
manns og um 1570 manns í Ölfus-
hreppi öllum. Vegir til og frá Þorláks-
höfn eru góðir og þaðan eru ekki
nema 28 km. til Selfoss og um 50
km. til Reykjavíkur. Atvinnulíf í
bænum byggist á útgerð og físk-
vinnslu og margir koma úr næstu
byggðarlögum á hveijum degi til að
stunda þar vinnu. Eins eru nokkrir,
sem búa á Þorlákshöfn en vinna í
Reykjavík.
Nóg af heitu vatni
Landrými er mikið við Þorláks-
höfn og höfnin góð og vegna stað-
setningar sinnar er bærinn vel í
stakk búinn sem tengistaður íslands
við Evrópu. Um leið er Þorlákshöfn
mjög heppilegur staður fyrir iðnað-
ar- og þjónstufyrirtæki, sem vilja
vera utan við höfuðborgarsvæðið en
þó skammt undan. Nóg er af heitu
vatni á staðnum til húshitunar og
iðnaðar. Heita vatnið er selt í gegn-
um hemil og kostar mínútulítrinn
1.375 kr.
Á síðasta ári var byijað á tólf
nýbyggingum í bænum og öðrum
tólf í dreifbýlinu í kring. Þessar
byggingar eru ýmist íbúðarhús eða
atvinnuhúsnæði og af mismunandi
stærð og gerð. Auk þess eru 24
aðrar byggingar í gangi, sem byijað
var á áður en er ólokið.
Nú auglýsir Ölfushreppur sérstak-
lega tvær lóðir innan hafnarsvæðis-
ins lausar til umsóknar fyrir hafn-
sækna starfsemi. Húsin verða vænt-
anlega 6-8 eininga hús og er gert
ráð fyrir, að atvinnurekendur eða
byggingaverktakar byggi húsin,
ýmist fyrir sjálfa sig eða til sölu.
Kaupendur eru þegar komnir að
tveimur einingum í þessum húsum.
Ölfushreppur býður ennfremur
upp á átta hagstæðar einbýlishúsa-
lóðir við Básahraun, sem er í nýj-
asta hverfinu í norðvesturhluta bæj-
arins. Hreppurinn sér um að und-
irbúa þær með fleygun á klöppum
og fyllingu, þannig að Ióðarhafí get-
ur strax byijað á því að slá upp
fyrir sökkulmótum.
Talsvert er um aðrar verklegar
framkvæmdir. Á síðasta ári var unn-
ið að gerð nýrrar bryggju með rúm-
lega 190 metra kanti. Dýpi við
bryggjuna er um átta metrar og því
eiga stærri vöruflutningaskip jafnt
sem fískiskip að geta athafnað sig
þar.
Þorlákshöfn er þekktur staður frá
fomu sem verstöð. Til þess að við-
halda heitum á gömlum kennileitum
hinnar gömlu verstöðar, bera
biyggjurnar við höfnina sömu heiti,
en þau eru Svartaskersbryggja,
Skarfaskersbryggja, Norðurvarar-
bryggja, Suðurvararbryggja og svo
að sjálfsögðu Heijólfsbryggja, því
að þar leggst Heijólfur að, þegar
skipið kemur frá Eyjum.
— Þjónusta við íbúa á Þorláks-
höfn er góð, sagði Sigurður Jónsson,
byggingafulltrúi þar í viðtali við
Morgunblaðið. — Hér er að sjálf-
sögðu heilsugæzla með lækni og
hjúkrunarfólki og eins er hér starf-
andi sjúkraþjálfari.
— Hér er góður einsetinn grunn-
skóli. í sama húsnæði er deild frá
Tónlistarskóla Árnessýslu og
kennsla þar fer fram um leið og al-
menn kennsla í grunnskólanum. Það
er því hægt um vik fyrir þau böm,
sem sækja Tónskólann, að komast
á milli.
íþróttakennsla og sundkennsla fer
fram í íþróttamiðstöðinni, sem er við
skólann og fá börnin sundkennslu
allan veturinn, á meðan skólinn
starfar. Sundlaugin þykir mjög góð,
en þar eru heitir pottar, gufa og
vatnsrennibraut og vaðlaug fyrir þá
yngstu.
Tveggja deilda leikskóli er á
staðnum fyrir börn á aldrinum 2-6
ára og í sumar verður byggt við
hann. Þá eykst húsrýmið fyrir börn
og starfsfólk og betur verður hægt
að koma á móts við þarfír þeirra,
sem þurfa á barnagæzlu að halda.
Unnið er að gerð teikninga fyrir
menningarhús í bænum. Byggt verð-
ur ofan á núverandi húsnæði, sem
notað hefur verið sem félagsheimili
og félagsmiðstöð. Arkitektar eru
Inga Dagfínnsdóttir og Guðmundur
Jónsson. í nýja húsnæðinu verða
skrifstofur hreppsins, bókasafn og
minjasafn svo og félags- og mennn-
ingarmiðstöð og ennfremur húsnæði
til útleigu fyrir banka, verzlanir og
þjónustufyrirtæki.
Við Egilsbraut er eitt hús með
átta eignarhlutaíbúðum fyrir aldr-
aða. Ein af þeim er nú notuð sem
dagvist fyrir aldraða. Ráðin hefur
verið arkitekt til að vinna skýrslu
um möguleika á stækkun eða ný-
byggingu við þetta hús fyrir dagvist
og sambýli fyrir aldraða.
Af öðrum framkvæmdum á veg-
um bæjarins má nefna nýfram-
kvæmdir við vatnsveituna, unnið er
að úttekt á fráveitumálum bæjarins
og verið að ljúka framkvæmdum við
leikvöll við Eyjahraun. Umfangsmik-
il gatnagerð stendur jafnframt yfír
á vegum bæjarins og þar má nefna,
að í sumar verður lokið við gerð
göngustíga með ljósum í Básahrauni
og Eyjahrauni.
Sagan býr í hveiju fótmáli
— Nútímasamgöngur við Þor-
lákshöfn eru greiðar, en til og frá
bænum liggja fleiri leiðir en vegir
Vegagerðarinnar, heldur Sigurður
Jónsson áfram. — Aðrar leiðir eru
gamlar götur, sem vermenn og
kaupmenn fyrri tíma fóru um.
Ferðamálafélag Ölfushrepps hefur
það sem eitt af markmiðum sínum
að merkja þessar leiðir og koma
þeim inn á kort með sögulegum
upplýsingum fyrir ferðamenn jafnt
sem heimamenn.
Austan við Þorlákshöfn er Hafn-
arsandur, ein skemmtilegasta sand-
fjara á landinu. Árlega er þar hlaup-
ið svonefnt fjöruhlaup og koma þá
hingað margir hlauparar víða af