Morgunblaðið - 25.03.1997, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.03.1997, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1997 C 15 -f > ) > > > ► I > > 9 5 > I » I » I » I » » I- BÖÐVAR Gíslason múrarameistari fyrir framan parhús, sem hann hefur byggt á Þorlákshöfn. Húsið er um 150 ferm. með 36 ferm. innbyggðum bílskúr. Það er úr múrsteini innfluttum frá Danmörku, en gluggar, gler og útihurðir eru frá Noregi. VIÐ Egilsbraut hefur Heimir Guðmundsson byggingameistari nýlokið við smíði tveggja fjölbýlishúsa með fjórum íbúðum í hvoru og eru kaupendurnir þegar fluttir inn. Sér bílskúr fylgir hverri ibúð. Nú er Heimir með þriðja húsið í smíðum. landinu til þess að spreyta sig á þessari skemmtilegu leið. Vestan við bæinn er Hafnarberg, “Bjargið" eins og heimamenn kalla það. Þessi staður er mjög sérstakur og þangað fara bæði ferðamenn og heimamenn til þess að horfa á brim- ið og hin stóru björg, sem brimið veltir fram og aftur á klettunum. í febrúar, þegar loðnuskipin eru á veiðum hér rétt við landið, fara margir til þess að fylgjast með þeim. Leiðin áfram til vesturs út í Sel- vog er greiðfær og margt að skoða á leiðinni. Þessi leið verður sérstak- lega stikuð og vörðuð í sumar og komið upp skiltum með upplýsingum um leiðina og áhugaverða staði til að skoða. Vinsælt er að ganga frá Hafnarfirði eða Grindarskörðum nið- ur í Selvog. Þessi leið með bjarginu er því góð viðbót, sem hægt væri að setja inn sem hluta af raðgöngu frá áðurnefndum stöðum. Eins tengjast þessar gömlu leiðir til og frá Þorlákshöfn inn á göngu- leiðina frá Reykjanesvita að Þing- völlum, sem nefnd er Reykjavegur- inn og því ætti Þorlákshöfn að vera góður staður fyrir göngufólk að byija göngu sína frá eða enda á og hvíla síðan lúin bein í góðri sundlaug með heitum pottum eða gufu. Norðaustan við bæinn er verið að gera 18 holu golfvöll. Þegar eru komnar 9 holur, sem hægt verður að spila á í sumar. — Golfvöllurinn er byggður á milli sandhóla niður við sjávarkambinn og er þar af leiðandi erfiður en skemmtilegur, segir Sig- urður Jónsson byggingafulltrúi að lokum. — Aðstaðan í þjónustuhúsinu fyrir golfvöllinn verður einnig nýtt í þágu seglbrettaíþróttarinnar og ann- arrar útivistar á þessu svæði, en margir seglbrettaeigendur hafa lýst yfir ánægju sinni með sandfjöruna. Lágt verð skýrir góða sölu Böðvar Gíslason múrarameistari hefur á tveggja ára tímabili byggt fjögur parhús á Þorlákshöfn og þar af eru tvö seld. Ennfremur hefur hann byggt eitt einbýlishús. Parhús- in eru um 150 ferm. með 36 ferm. innbyggðum bílskúr. Húsin eru úr múrsteini innfluttum frá Danmörku, en gluggar, gler og útihurðir eru frá Noregi. Hönnuður er Einar Matthí- asson byggingatæknifræðingur. Húsin eru seld fullfrágengin að utan en rúmlega fokheld að innan og með grófjafnaðri lóð. Verð þeirra þannig er 5,8-6 millj. kr. — Skýringingin á miklum áhuga á þessu húsum á sér vafalaust rætur í lágu verði, segir Böðvar. — Ég er sjálfur múrari og vandist múrsteini á unga aldri vestur á Flateyri, þar sem ég var alinn upp. Múrsteinninn er mjög endingargóður. Norðmenn reistu fyrir síðustu aldamót stóra verksmiðju á Flateyri. Hún var með risavöxnum skorsteini úr múrsteini og hann stendur enn, þó að ekkert hafi verið gert til að halda honum við, eftir því sem ég veit bezt. Ég byggi trégrindina í húsum mín- um sjálfur með mínum mannskap og framkvæmi allt annað sem þarf, en danskur maður hleður múrsteininn. Ég gæti ýtrustu hagkvæmni og stað- greiði allt efni. Með því móti fæ ég góðan afslátt af öllum aðföngum og get því haldið verðinu svona lágu, þrátt fyrir það að efnið sé innflutt. Múrsteinninn er gulur og gefur hús- unum fallegt yfírbragð. — Lágt verð á fasteignum hér á sér líka skýringu í því, að lóðir er ódýrar miðað við höfuðborgarsvæðið, segir Böðvar Gíslason ennfremur. — Ég geri ráð fyrir, að gatnagerðar- gjöld séu hér um 1 millj. kr. lægri. Þegar á allt er litið, mætti fasteigna- sala vera hér meiri. Atvinnuástand á Þorlákshöfn er mjög gott, heita vatn- ið ódýrt og öll félagsleg aðstaða mjög góð. Að mínu mati er Þorlákshöfn því afar eftirsóknarverður staður til að búa á. Við Egilsbraut hefur Heimir Guð- mundsson byggingameistari nýlokið við smíði tveggja fjölbýlishúsa með fjórum íbúðum í hvoru og eru kaup- endumir þegar fluttir inn. Sér bílskúr fylgir hverri íbúð. Nú er Heimir með þriðja húsið í smíðum. Að sögn Heim- is er markaðurinn fyrir þessar íbúðir góður og hefur hann selt þær jafnóð- um og þær eru byggðar. Við Selvogs- braut hefur Heimir fengið lóðir undir fjögur raðhús og hyggst hann byija á framkvæmdum við þau í sumar. Söluhorfur á þeim segir hann góðar. Heimir Guðmundsson hefur byggt íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði jöfnum höndum. Fyrir skömmu lauk hann við 1000 ferm. byggingu fyrir fiskmarkaðinn á Þorlákshöfn og er nú að byggja þar fimm eininga iðn- aðarhúsnæði. A Eyrarbakka er hann með í byggingu myndarlegt iðnaðar- hús undir bifreiðaverkstæði. Þá hef- ur Heimir byggt marga sumarbú- staði og er nú með tvo tilbúna. Þeir eru byggðir fyrir félagasamtök og eiga að fara austur í Biskupstungur. Mikið um eignaskipti Að sögn Laufeyjar Ásgeirsdóttur hjá Lögmönnum Suðurlandi á Sel- fossi, sem reka umfangsmikla fast- eignassölu á þessu svæði, gekk sala fasteigna á Þorlákshöfn vel á síðasta ári. — Ég þakka það m. a. góðu atvinnuástandi í bænum, segir hún. — En það er mikið um eignaskipti. Margir, sem eru að stækka við sig, láta þá íbúð, sem þeir áttu fyrir, ganga upp í kaupverðið. — Verð á fasteignum í Þorláks- höfn er samt viðunandi og tiltölulega betra en á Selfossi, sagði Laufey ennfremur. — En mér finnst vera orðinn lítill verðmunur á nýju og NYLEGA var gengið til samninga við þann byggingarverktaka, sem átti lægsta tilboðið í byggingu mötu- neytis- og kynningarhúss Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi í Grindavík, en það var Hjalti Guðmundson í Keflavík. Tilboð Hjalta nam 159.626.615 kr., en kostaðaráætlun hönnuðanna hljóðaði upp á 142.916.313 kr. gömlu. Það er líka töluverður verð- munur á nýjum íbúðum hér og á höfuðborgarsvæðinu. Þannig er ver- ið að selja hér 90 ferm. íbúðir með sér inngangi og nær 30 ferm. bíl- skúr á afar hagstæðu verði, en verð á íbúðunum á neðri hæð er 6,5 millj. kr. og 7,1 millj. kr. á efri hæð. Þessar íbúðir eru fullgerðar að utan sem innan og búnar fullkomn- um innréttingum og heimilistækjum af beztu gerð. íbúðirnar á neðri hæð eru með stórum sólpalli, en íbúðirnar á efri hæð með góðum svölum. Ég er sannfærð um, að þetta er mun hagstæðara verð en á höfuðborgar- svæðinu og það er sennilega að þakka lægri gatnagerðargjöldum hér að nokkru leyti. — Mér líst vel á sumarið, því að eftirspurn er mikil en þó fyrst og fremst eftir sérbýli og litlum sambýl- ishúsum, þar sem íbúðirnar eru með sér inngangi, sagði Laufey Ásgeirs- dóttir að lokum. — Eftirspurn eftir íbúðum í stórum fjölbýlishúsum er hins vegar lítil og engin slík hús í byggingu hér. Bygging mötuneytis- og kynning- , arhúss fyrir Hitaveitu Suðurnesja hefur verið talsverðan tíma í undir- búningi en nú er smíði þess hafin af fullum krafti og á það að vera tilbúið til notkunar í haust. Fjögur tilboð bárust í byggingu og frágang hússins, en þegar tilboðin voru opnuð, kom í ljós að þau voru öll yfir kostnaðaráætlun hönnuða. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson. BYRJAÐ er á byggingu mötuneytís- og kynningarhússins en grunn- urinn verður flóknari en gengur og gerist því undir húsinu á að vera hellir þar sem gestír eiga að geta skoðað hraunið eins og það kemur fyrir ásamt sýnishornum úr jarðfræði staðarins. Hitaveita Suðurnesja Mötuneyti og kynningarhús Grindavík. Morgunblaðið. Mikil sala, vantar íbúðarhúsnæði af öllum stærðum 2ja-3ja herb. með hagstæðum lánum Vantar fallega tveggja herbergja íbúð í Heimahverfi í skiptum fyrir 3ja herb. íb. í sama hverfi. Vantar einbýlishús í gamla bænum í Reykjavík, ekki síst í Þingholtunum. Mikil eftirspurn eftir verslunarhúsnæðum, ekki síst í miðbænum. Vantar 100-150 iðnaðarhúsnæði með stórum innkeyrsludyrum. Fjallalind - parhús á einni hæð með innbyggðum bilskúr samtals 153,5 fm, fjögur svefnherbergi. Húsinu verður skilað fullbúnu að utan en fokheltu að innan. Verð 8.5millj. Starengi - einb. Húsið er 138 fm tilb. að utan en fokhelt að innan. 40 fm bilskúr fylgir. Vill gjarnan skipta á 50-100 fm iðnaðar og skrifsth. Teikningar á skrifst. Verð 9.4 millj. Álfheimar - verslunarhúsnæði. Einkasala. Ca: 30 fm Húsnæðið hefur verið notað sem ísbúð, getur hentað undir ýmsan rekstur og ekki skemmir staðsetningin. Laust strax. Verð 3.5 millj. Hvassaleiti - 3ja-4jra herb. (búðá 3ju hæð 88 fm nettó, 2 svefnherb. Stofa og borðstofa. Geymsluherb. I kjallara með glugga. Bilskúr með sjálfv. hurða- opnara.Skipti mögul. á 2ja herb. Verð 7.6 millj. Strandgata - Hafnarfirði. Um er að ræða gistih. sem hefur verið rekið sem farfuglah. Selja skal bæði húsnæðið og reksturinn með öllum búnaði. Gistirúmafjöldi er nú 24. Verð 11 millj. Gullengi - Falleg 3ja herb. (búð á 1 .hæð í vönduðu fjölbýli. Hús og lóð fullfrágenginn. Hægt að fá íbúðina full- búna án gólfefna. Er í dag rúml. tilb. til innréttingar, rafmagn frágengið. Verð 6.5 millj. Fasteignasalan Suðurveri ehf. Stigahlíð 45-47, 105 Reykjavík Sími 581 2040 Fax 581 4755 Fersk fasteignasala Einar Örn Reynisson, Reynir Þorgrímsson, Helgi Hákon Jónsson, viðskiptafr. og löggiltur fasteignasali. Hringbraut - Hafnarf. Verslunar og iðnaðarh. Samt. 377,6 fm Skiptist í 4 eignarhl. Sem geta selst hver í slnu lagi. Húsn. er allt í leigu. Ásett verð 16 millj. Ýmiss skipti möguleg. Ásholt - einkas. Glæsilegt raðhús á 2 hæðum. Niðri forstofa, gestasn., stofur, eldhús og svalir. Uppi geta verið 3 svefnh. og flísalagt bað. Góð geymsla og bílag. í kjallara. Verð 12,5millj. r/J 551 2600 'V C 5521750 ^ Símatími laugard. kl. 10-13 Vegna mikillar sölu undanfarið bráðvantar allar gerðir eigna á söluskrá. Miðstræti - 2ja Snyrtileg 2ja herb. íb. á jarðh. Sérinng. Verð 2,4 millj. Eirfksgata - 2ja -r Falleg íb. á jarðh. á fráb. stað. Grænahlíð - 3ja 3ja herb. kjib. Sérinng. Verð 4,9 miilj. Hlíðar - 4ra 106 fm falleg endalb. á 4. hæð i fjölbhúsi neðst við Skaftahlíð. V. 7,9 m. Eldri borgarar - Grandav. Óvenju falleg 4ra herb. 115 fm (b. á 8. hæð. Bflskýli. V. 12,5 m. Hjallabrekka - einb. Mjög fallegt 236,8 fm einbhús með innb. bílsk. Arinn [ stofu. Skipti á minni eign mögul. Atvinnuhúsn. - Einholt 190 fm atvinnu- eða skrifstofuhúsn. á 2. hæð. Mjög vel staðsett I hjarta bæjarins. Verð ca 8,5 millj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.