Morgunblaðið - 02.04.1997, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 B 3
ÍÞRÓTTIR
Keflvíkingar miklu
betri en Grindvíkingar
KEFLVÍKINGAR unnu öruggan
sigur á Grindvíkingum í fyrsta
leik liðanna í úrslitum úrvals-
deildarinnar í körfuknattleik í
gærkvöld. Heimamenn gerðu
107 stig en gestirnir 91 og var
sigur Keflvíkinga aldrei í
hættu. Liðin mætast á ný ann-
aðkvöld en það lið verður ís-
landsmeistari sem fyrr sigrar
í þremur leikjum.
Keflvíkingar voru kurteisir fyrir
leik og Guðmundur Bjarni
Kristinsson, formaður körfuknatt-
leiksdeildar Kefla-
SkúliUnnar VÍkur- a^euti Mar'
Sveinsson geiri Guðmunds-
skrífar syni, formanni
körfuknattleiks-
deildar UMFG, platta í tilefni Ís-
landsmeistaratitils kvennaliðs
UMFG. Eftir það var ekki um
neina kurteisi að ræða hjá heima-
mönnum. Gestirnir gerðu reyndar
fyrstu körfuna en eftir mikið fum
og fát beggja liða á upphafsmínút-
unum tóku heimamenn ieikinn í
sínar hendur.
Keflvíkingar voru nokkuð lengi
í gang en það kom ekki að sök
þar sem Grindvíkingar voru enn
lengur að komast í gang, og sjálf-
sagt vilja margir stuðningsmenn
þeirra segja að liðið hafi aldrei
komist í gang. Hvað um það. Eft-
ir erfiða byijun tók stórskotalið
Keflavíkur að hitta og það sem
meira var um vert, liðið lék góða
vörn. Gestirnir reyndu að koma
sér í gang með þriggja stiga skot-
um, en það gekk ekki nema hvað
Unndór Sigurðsson hitti vel utan
af velli, en hann var líka sá eini.
Munurinn í leikhléi var 19 stig
og þó svo að gestirnir næðu að
minnka hann í tíu stig dugði það
ekki. Keflvíkingar voru einfaldlega
miklu betri - og þurfti í rauninni
ekki mikið til því Grindvíkingar
voru alls ekki eins og þeir eiga
að sér í gærkvöldi. Leikur gest-
anna minnir um margt á fyrsta
leik liðanna í úrslitunum í fyrra
þannig að enginn skyldi afskrifa
þá þótt illa hafi gengið í gær.
Grindvíkingar voru alltaf í eltinga-
leik í gær og heimamenn fengu
mikið af fríum skotum sem alls
ekki má gegn Keflvíkingum ætli
menn sér að sigra þá.
Johnson og Falur voru góðir í
liði Keflvíkinga og gerði sá síðar-
nefndi sex þriggja stiga körfur,
þijár í hvorum hálfleik. Kristinn
Úrslitakeppnin
körfuknattieik 1997
Fyrsti leikur liðanna i úrslitunum,
leikinn i Keflavik 1. apríl 1997
KEFLAVÍK GRINDAVÍK
107 Skoruð stig 91
11/13 Vítahittni 14/24
12/29 3ja stiga skot 7/31
30/51 2ja stiga skot 28/50
33 Vamarfráköst 24
12 Sóknarfráköst 10
13 " Boita náð 8
15 Bolta tapað 15
18 Stoðsendingar 14
21 Villur 15
Johnson lék vel
DAMON Johnson lék mjög
vel í liði Keflvíkinga í gær,
þrátt fyrir að vera í mjög
strangri gæslu Péturs Guð-
mundssonar. Hér er John-
son sloppinn framhjá Pétri.
var sterkur fyrir hlé og Albert
eftir hlé og þeir Gunnar og Elent-
ínus léku vel.
Myers hélt Grindvíkingum á
floti og var sá eini sem lék eðlilega.
Hamar
upp w 1
1. deild
Aldis
Hafsteinsdóttir
skrifar frá
Hveragerði
Hamar, Hveragerði, sigraði í
úrslitakeppni 2. deildar karla
í körfuknattleik sem fram fór í
Hveragerði nýverið.
Átta lið tóku þátt
í úrslitakeppninni
en keppt var í
tveimur riðlum.
Hamarsmenn sigruðu í öllum sín-
um leikjum og léku síðan til úrslita
við lið Laugdæla er einnig sigraði
í öllum leikjum í sínum riðli. Úr-
slitaleikurinn var æsispennandi en
Hamarsmenn höfðu þó forystu all-
an leikinn og sigruðu 82:71. Með
sigrinum tekur lið Hamars sæti í
I. deildinni næsta vetur en þá
munu þrjú lið af Suðurlandi leika
í deildinni, Þór, Þorlákshöfn, Sel-
foss og Hamai'.
Morgunblaðið/Ásdís
Norðfirð-
ingar í
litlu stuði
Þróttur Reykjavík vann lið Þrótt-
ar frá Neskaupstað í þremur
hrinum gegn engri í fyrstu viðureign
liðanna í úrslitakeppninni. Leik-
menn Þróttar R. virðast ákveðnir í
að veija íslandsmeistaratitil sinn.
Páskafríið virtist ekki hafa farið vel
í leikmenn Þróttar í Neskaupstað
því stemmninguna vantaði gjörsam-
lega í leik þeirra í gærkvöld - þeir
voru í litlu stuði.
Þróttur R. skellti gestunum í
þremur hrinum gegn engri á aðeins
64 mínútum. Hrinurnar enduðu
15:7, 15:11, og 15:12. Fyrsta hrinan
var nánast einstefna og Reykjavík-
urliðið sýndi þá sínar bestu hliðar í
leiknum og hélt andstæðingunum
algjörlega niðri. Uppgjafirnar voru
mjög sterkar og hávörnin með þá
Áka Thoroddsen og Matthías Bjarka
Guðmundsson í fararbroddi var lítt
árennileg eins og skellar gestanna
fengu margsinnis að reyna í leikn-
um. Önnur hrinan var keimlík þeirri
fyrstu, Reykjavíkurliðið náði strax
afgerandi forskoti, 7:2 en smá-
spenna hljóp þó í leikinn því Norð-
fjarðarliðið náði að jafna og komast
yfír 11:10 - síðan ekki söguna
meir því Einar Ásgeirsson Þrótti
R. setti móttökuna úr skorðum með
sterkum uppgjöfum og hávörnin hjá
Þrótti R. sá síðan um að hala inn
þau stig sem upp á vantaði.
í þriðju hrinunni náði Norðfjarð-
arliðið sinni bestu skorpu í leiknum
og liðið var meðal annars yfir, 9:4
og 12:10, en allt kom fyrir ekki -
gestirnir voru heillum horfnir á
lokakaflanum þar sem mistökin
komu á færibandi. Leikmenn Þrótt-
ar R. komust flestir nokkuð vel frá
leiknum en þeir skiluðu gi-undvall-
aratriðum leiksins nokkuð vel og
gerðu lítið af mistökum en sama er
ekki hægt að segja um gestina.
HANDKNATTLEIKUR / URSLITAKEPPNI KVENNA
Stríðinu er lokið
X
Olafur Lárusson, þjálfari Stjörnunnar, ekki bjartsýnn
eftir að lið hans tapaði fyrir Haukum í Garðabæ
„BETRA liðið vann, svo ein-
falt er það. Haukar hafa betri
leikmenn i flestum stöðum
og eru með besta liðið í dag.
Næsti leikur liðanna verður
beint framhald af þessum og
það er ekki aðeins ein orrusta
töpuð - heldur stríðið," sagði
Ólafur Lárusson, þjálfari
Stjörnustúlkna, eftir 23:18
tap fyrir Haukum í fyrsta úr-
slitaleik liðanna í Garðabæn-
um í gærkvöldi - greinilega
ekki bjartsýnn á framhaldið.
Það var ekki að sjá í byrjun
að Hafnfirðingar hefðu auð-
veldan sigur í þessari orrustu því
Garðbæingar léku góða vörn, sem
skiiaði þoim fjórum
Stefán hraðaupphlaupum
Stefánsson á fyrstu tíu mín-
skrifar útunum. Þeim
tókst að nýta tvö
og það dugði til að liafa 8:5 for-
ystu um miðjan hálfleik en þá
hrökk allt í baklás. Haukar náðu
að koma í veg fyrir fleiri hraða-
upphlaup og lokuðu vörninni, svo
að Stjörnustúlkur skoruðu ekki
mark í 12 mínútur á meðan gest-
ir þeirra skoruðu sex. Stjarnan
náði þó að klóra í bakkann rétt
fyrir hlé og minnka muninn í eitt
mark, 10:11.
Á upphafsmínútum fyrri hálf-
leiks fékk Herdís Sigurbergsdótt-
ir, leikstjórnandi Stjörnunnar,
sína þriðju brottvísun fyrir að
reka höndina óvart í andlit leik-
manns Hauka. Haukastúlkur
kættust, enda Herdís þeim erfiður
ljár í þúfu bæði í vörn og sókn, en
í stað þess að fallast hendur virt-
ist brotthvarf Herdísar stappa
SOKNARNYTING
Fyrsti leikur liöanna í úrslitakeppni
íslandsmótsins, leikinn í Garðabæ
þriðjudaginn 1. aprll 1997.
Stjarnan
Mörk Sóknir %
Haukar
Mörk Sóknir %
10 29 34 F.h 11 28 39
8 31 26 S.h 12 31 39
18 60 30 Alls 23 59 39
5 Langskot 10
3 Gegnumbrot 4
4 Hraðaupphlaup 1
3 Horn 4
1 Lína 4
2 Viti 0
stálinu í Stjörnuliðið og tókst
þeim að halda jöfnu fram í miðjan
hálfleik, 18:18. Þá fór að ganga
á baráttuþrekið enda erfitt til
lengdar að fylla skarð Herdísar.
Haukar gengu á lagið með síð-
ustu fimm mörkunum í öruggum
23:18 sigri.
Lengi vel barðist Stjörnuliðið
af krafti og sigur alls ekki óraun-
hæfur möguleiki en þó maður
komi í manns stað tókst liðinu
ekki að fylla í skarðið eftir Her-
dísi eftir hlé. Ýmsar uppstillingar
voru reyndar en gengu ekki upp.
Hraðaupphlaupin reyndust þeim
gott vopn til að byrja með en lið-
ið komst ekki upp með endalaust.
Fanney átti mjög góðan leik og
varði 17 skot, Herdís var góð og
Björg Gilsdóttir einnig til að byrja
með en Rut Steinsen og Nína K.
Björnsdóttir komu til í lokin.
Enn skilaði þrautseigjan, eða
öllu heldur leikreynslan, Hauka-
stúlkum sigri því þær héldu sínu
striki svo til allan leikinn og þegar
mótheijar þeirra misstu móðinn í
nokkrar mínútur, gengu þær á
lagið. Judit Esztergal, Ragnheiðui-
Guðmundsdóttir, Harpa Melsteð,
Auður Hermannsdóttir og Hulda
Bjarnadóttir voru bestar.
KÖRFUKNATTLEIKUR / ÚRSLITAKEPPNI KARLA
BLAK