Morgunblaðið - 11.04.1997, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LIF
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL1997 B 3
BARÁTTUJAXLAR; Gústaf, Siguijón og Hulda.
Morgunblaðið/Kristinn
Gústaf og Hulda eru sammála um
að öll aðstaða til handknattleiksiðk-
unar sé til fyrirmyndar hjá Haukum
og uppskeran eftir því. „I stjórn eru
menn sem voru á toppnum með fé-
laginu á árum áður og þekkja ekk-
ert annað. Þetta á bæði við um karla-
og kvennaliðið,“ segir Gústaf. „Það
er ekki gert upp á milli flokka og
áhorfendur styðja vel við bakið á
okkur,“ segir Hulda. Gústaf læðir
því að að reyndar sé haldið meira
uppá kvennaliðið.
Sigurjón er líka ánægður hjá Aft-
ureldingu og ekki skemmir fyrir ef
liði hans tekst að tryggja félaginu
fyrsta íslandsmeistaratitilinn.
Svo er talinu með herkjum snúið
að öðru, lífinu utan handboltans.
„Hvað er nú það?,“ spytja systkin-
in forviða. Stífar félagsæfingar og
landsliðsæfingar hjá Huldu og Gú-
staf. Það er ekki mikill tími af-
gangs. „Fjölskyldan fær þann tima
sem gengur af,“ segir Siguijón, sem
býr á Selfossi ásamt konu sinni,
Díönu Óskarsdóttur og fimm ára
dóttur, Karenu Helgu. Siguijón
starfar sem sölustjóri hjá S.G. ein-
ingahúsum þar í bæ. Hann keyrir
allt að sex sinnum á viku á æfingar
í Mosfellsbænum en neitar að gefa
ökutímann uppi. „Einar Gunnar
keyrir reyndar, ég er eldri og þarf
að sofa,“ segir Siguijón glottandi,
en hann verður þrítugur í sumar.
Gústaf, 27 ára, starfsmaður hjá
Félagsmiðstöðinni Vitanum í Hafn-
arfirði, er sama sinnis. Þann tima
sem af gengur fær fjölskyldan, kon-
an Hildur Loftsdóttir og eins_ árs
gamall sonur þeirra Daníel ísak.
Hulda er í sambúð með Aroni Krist-
jánssyni, handknattleiksmanni úr
Haukum. Hún er á öðru ári í Kenn-
araháskóla íslands og stingur því
nefi í námsbækurnar milli hand-
boltaæfinga. Huldu gefst þó vonandi
tími til hátíðahalda í kvöld, hún á
nefnilega 24. ára afmæli í dag,
föstudag. ■
lega, tæknilega og
efnislega. Síðan notaði
hann hugmyndirnar
okkar eða útfærði þær
enn frekar.“ Nytjahlut-
irnir sem Katrin tók
þátt í að hanna eru nú
í framleiðslu en koma á
markað á næstu mánuð-
um.
„Starek hefur snilli-
gáfu,“ segir Katrín.
„Hann setur markið hátt
og er ekki bundinn
markaðslegum höftum.
Einn örfárra hönnuða
hefur hann frelsi til að
vera hann sjálfur og
hann sættir sig ekki við
neitt annað en það sem
er fyrsta flokks.“
Verkefni á íslandl
Katrín hefur fengist
við ýmis ólík verkefni
undanfarin tvö ár. Hún
starfaði m.a. við auglýs-
ingahönnun hjá snyrti-
vörufyrtækinu Esteé Lauder í París
og fyrir íslenskt/ rússneskt gos-
drykkjafyrirtæki hannaði hún flösk-
ur úr plasti fyrir Rússlandsmarkað.
í vetur kenndi Katrín þrívíða
hönnun við deild grafískrar hönnun-
ar í Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands. „Ég lagði sérstaka áherslu á
mikilvægi hugmyndavinnu sem
nemendurnir útfærðu síðan í þrívíðu
formi." Markmiðið er að kenha þrí-
víða hönnun í auknum mæli við MHÍ
en fyrirhugað er að Katrín kenni
aftur næsta vetur. í lok apríl mun
hún kynna þetta fag nemendum
Myndlistarskólans á Akureyri.
Upp á síðkastið hefur Katrín feng-
ist við að hanna skáp og hirslur fyr-
ir fatnað og annað úr plastdúk og
áli. „Þetta eru praktískir hlutir og
einfaldir í framleiðslu en mig lang-
aði til að prófa mig áfram með óhefð-
bundin efni í húsgagnahönnun. Ég
ætla að þróa þessa hluti áfram og
síðan kanna hvort ekki reynist
PHILIPPE Starck og búsáhöld sem hann
hefur hannað fyrir Alessi.
grundvöllur fyrir framleiðslu þeirra
hér á landi.“
í umboði MHÍ og FORM ísland
(Félag hönnuða á íslandi) hefur
Katrín skipulagt ráðstefnu um hönn-
unarmál sem fyrirhugað er að halda
í vor eða næsta haust. „Markmiðið
er að skilgreina hönnun í skólakerf-
inu og í atvinnulífinu. En auk þess
er stefnt að því að bæta samskipti
fyrirtækja og hönnuða."
Modernlstar mörkuðu upphaflð
„Hönnun fyigir ætíð þjóðfélags-
þróun,“ segir Katrín. „Við lok fyrri
heimsstyijaldarinnar var grundvöll-
ur lagður að hugtakinu eins og við
þekkjum það í dag. Þá átti sér
stað uppstokkun, hannaðir
voru einfaldir hlutir sem
var gott að þrífa en
ryk var allt í einu -P
orðið
gamla
Brosandi sjónvarp
PHILIPPE Starck hefur marg-
oft með hönnun sinni kollvarp-
að hefðbundnum hugmyndum
fólks um hluti, húsgögn og
byggingar. „Af hverju þarf
sjónvarp að vera dökkt og fer-
kantað?“ „Hvað er sjónvarp?“
spyr Starck. „Getur sjónvarp
ekki eins verið brosandi og
drapplitt eða jafnvel aðeins
fljótandi skermur á vegg?“ Árið
1993 gerðist hann ráðgjafi hjá
Thomson Multimedia, frönsku
raftækjafyrirtæki í rlkiseigu
sem farið hafði halloka í sam-
keppni við asísk fyrirtæki. Á
nokkrum mánuðum breytti
hann ímynd Thomsons, meðal
annars með hönnun brosandi
sjónvarps.
Endurgerðl forsetahölllna
Starck, sem er tæplega fimm-
tugur Parísarbúi, hefur hannað
nánast allt sem nöfnum tjáir að
nefna; tannbursta, mótorlyól
með eyrnalöguð handföng,
fljúgandi lampa, nýstárlega
stóla og borð auk frumlegra
hótelbygginga víða um heim.
Skólaganga Starcks var stop-
ul og stutt. Hann hóf nám í
innanhússarkitektúr en gaf það
fljótlega upp á bátinn. Nítján
ára stofnaði hann fyrirtæki og
hóf framleiðslu á uppblásnum
helíumlömpum sem héngu í
3s-
915 , w
tákn
lausu lofti en reksturinn gekk
illa. Frægðarferillinn hófst árið
1972 er hann hlaut viðurkenn-
ingu fyrir framúrstefnulega
hönnun á frægum næturklúbbi
í París, Les Bains-Douches.
Boltinn fór að rúlla og fjórum
árum síðar, í tíð Mitterands
Frakklandsforseta, endurgerði
hann Elysée forsetahöllina í
París. Endurgerðin hlaut mikla
athygli því það þótti mikil upp-
SJÓNVARPIÐ hans Starcks er skælbrosandi.
hefð fyrir ungan hönnuð að
stokka upp svo gamalgróið
umhverfi.
Starck er nú heimsfrægur en
utan heimalandsins hefur hann
hlotið hvað mesta athygli í
Japan, á Ítalíu og í Banda-
ríkjunum. Þrátt fyrir mikla
velgengni hefur hann minnk-
að umsvifin á undanförnum
árum og hefur í hyggju að
hætta störfum sem hönnuður
því fólk hefur allt sem þarf að
hans mati og fjölmargt sem
hægt er að vera án. *
ttmans. Hönnuðir þessa tíma, mod-
ernistar, fóru að skapa húsgögn þar
sem formið var látið ákvarðast af
funksjóninni. í fyrsta sinn voru hús-
gögn framleidd úr stáli sem enn í
dag eru ein af undirstöðum hús-
gagnaiðnaðar. Síðan hafa kenningar
modernista farið margoft í þvott og
hönnuðir í dag eru flestir sammála
um að hlutir þurfa að hafa meira
en bara funksjónina nakta. Síðastlið-
in 30 ár hefur verið framleitt ógrynni
hluta, neysluhyggjan hefur verið í
algleymingi. Það kallar hins vegar
á nýjan hugsunarhátt, einfaldleika
og endurvinnslu með inntaki og sál.“
„Verðmætamat fólks er smám
saman að breytast",
segir hugsjónakon-
an Katrín. „Neyslu-
kapphlaupinu hlýt-
ur að linna von
bráðar. Ef ekki
þurfum við brátt að
kveðja þennan
hnött. Fólk kaupir
reyndar vandaðri
vöru í dag en áður
og vonandi hættir
það fyrr en síðar að
kaupa hluti sem það
síðan hendir á
morgun.“
Hönnun ekkl
metln hérlendls
Hönnun og arki-
tektúr í íslensku
þjóðfélagi er ekki
metin að verðleikum, að mati Katrín-
ar. „Að einhverju leyti er það vel
skiljanlegt því hér er iðnaður mjög
takmarkaður, vinnuafl er dýrt og
flutningskostnaður hár. Ánnars
staðar á Norðurlöndum er hönnun
hins vegar meitluð inn í hugarfar
fólks og hún er ein af undirstöðum
í efnahagslífi þessara landa. Til að
mynda státa Danir af mjög góðri
hönnun sem seld er víða um heim.
Ég er hins vegar bjartsýn og tel að
hönnun eigi mikla möguleika og
framtíðina fyrir sér á íslandi, þótt
enn sé töluvert langt í land.“ ■
Notaðu aleíns þal fetsfa,
notaðu TREND snyrtivörur
ÞÖGNIN var viðfangsefni
Katrínar í útskriftarverk-
efninu. Hún hannaði þráð-
lausan síma, dyrabjöllu og
hurðarhandfang.
Með TREND nærðu árangri.
TREND naglanæringin styrkir
neglur. Þú getur gert bínar eigin
neglur sterkar og heilbrigðar.
TREND handáburður með Duo-
liposomes, ný tækni sem vinnur
inní húðinni. Einstök gæðavara.
Snyrtivörurnar frá TREND cru fáanlegar
í apótekum og snyrtivöruverslunum um
land allt. Einnig í SjónvarpsmarkaSnum.
TiÍEND’
COSMETICS
Einkaumboð og heildsala
S. Gunnbjörnsson £ CO,
Iðnbúð 8, 210 Garðabæ.
Símar 565 6317 og 897 3B«7- Fax 565 8217.
Isköld
ávaxtapizza
í ettirrétt!