Morgunblaðið - 11.04.1997, Page 5

Morgunblaðið - 11.04.1997, Page 5
4 B FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1997 B 5 DAGLEGT LÍF DAGLEGT LÍF Nemendur Foldaskóla höfðu gaman af sýningunni um Jónas Hallgrímsson. Skáldið sem hló að hugsunum sínum VINSAMLEGAST hafið augu og eyru opin og lokið munninum því dagskrá um skáldið okkar góða, Jónas Hallgrímsson, fer senn að hefjast," sagði skólastjórinn Ragn- ar Gíslason við nemendur 2. og 3. bekkjar Foldaskóla. Börnin létu ekki segja sér það tvisvar, stillt og prúð horfðu þau á sýninguna sem er í léttum og skemmtilegum dúr og segir sögu skáldsins sem af mörgum er talinn hafa ort feg- ursta ástarljóð íslenskrar tungu, Ferðalok. Jónas fæddist árið 1807 og á því 190 ára fæðingarafmæli um þessar mundir. En hann var ekki einungis gott skáld heldur einnig náttúruvísindamaður og nýyrðasmiður. Orðin rafmagn, hitabelti og aðdráttarafl eru t.d. úr smiðju hans. Fyrir atbeina Sigurðar Björns- sonar hjá Fræðslumiðstöð Reykja- víkur hefur dagskráin um Jónas verið sýnd í grunnskólum Reykja- víkur undanfarnar vikur, en það var Þórdís Arnljótsdóttir leikari sem fékk hugmyndina að verkinu og samdi handritið. Ásamt henni tekur Felix Bergsson leikari þátt í sýningunni og tónlistarmenn eru tveir; Björn Jónsson söngvari og Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari. Sýningin tekur rúman hálftíma í flutningi og er samsett af stuttum leik- og söngatriðum þar sem stikl- að er á stóru í ævi skáldsins. í upphafi eru gestir kynntir fyrir Jónasi sem ungum dreng á bænum Hrauni í Oxnadal. Sagt er að hann hafí þá strax verið mjög eftirtekt- arsamur og séð ævintýri í hvers- dagslegum hlutum. Til dæmis orti hann vísuna Buxur, vesti, brók og skór, aðeins fimm ára gamall. „Hvenær hættir leggur að verða skotinn í skel,” er spurt og í grasa- ferðinni þegar Þórdís í hlutverki Hildar prestsdóttur kyssir kinnina á Felix, sem leikur Jónas, ætlaði allt um koll að keyra í Foldaskóla. Undrunarhljóð, pískur og síðan hlátur ómaði um salinn. Kvæðið hans Jónasar Sáuð þið hana systur mína er einmitt ort um þessa sömu Hildi. Á sýningunni er mikið sung- ið af þekktum kvæðum eftir Jón- as, meðal annars Hættu að gráta hringaná og Vorið góða grænt og hlýtt. Sextán vetra hóf Jónas nám í Bessastaðaskóla og veturinn eftir stúdentspróf gekk hann stoltur Um götur Reykjavíkur klæddur heið- Morgunblaðið/RAX FELIX Bergsson leikur Jónas en með honum á myndinni er Þórdís Amljótsdóttir leikkona og handritshöfundur. Björn Jóns- son söngvari stendur við flygilinn. bláum jakka með logagylltum hnöppum. Hann vann hjá landfóg- eta og samdi tækifæriskvæði á íslensku og dönsku eftir pöntunum bæjarbúa. Þann vetur varð hann ástfanginn af ungfrú Kristjönu Knudsen sem bjó í Landakoti en hún hafnaði bónorði hans svo hann ákvað að sigla til Kaupmanna- hafnar og leggja stunda á náttúru- fræði. Á námsárunum í Kaupmanna- höfn er sagt að Jónas hafi stund- um verið allra manna latastur og oft lá hann tímunum saman uppí sófa með greipar á hnakka og hló með sjálfum sér þótt eigi væri orð mælt. Hlátursefnið var hans eigin hugsun. „Island farsælda frón og hag- sælda hrímhvíta móðir,“ orti Jónas í Kaupmannahöfn. Sjálfstæðisbar- átta íslendinga var hafin og Jónas barðist fremstur í flokki Fjölnis- manna. Þegar Jónas lést í Kaupmanna- höfn, aðeins 37 ára að aldri, hafði hann átt við erfið veikindi að stríða og var einmana. Rétt fyrir andlát- ið óttaðist hann að eftir sinn dag myndu allir gleyma ljóðunum hans. Sá ótti reyndist ástæðulaus. Góðar undlrtektir í leikritinu er Jónasi meðal ann- ars lýst sem gleðimanni með hýr- legt bros sem var fjörugur í góðra vina hópi. Líf hans átti þó sínar dökku hliðar því Jónas þjáðist af þunglyndi. „A sumardaginn fyrsta verð ég aftur til í allt,“ skrifar hann í bréfi til Jóns Sigurðssonar forseta. Við gagnasöfnun grúskaði Þór- dís í gömlum ritum um Jónas, las sendibréf sem hann skrifaði og rituð ummæli samferðamanna. „Vinnan var mjög skemmtileg enda varð handritið þrisvar sinn- um lengra en ætlað var. Við Felix hittumst síðan og fórum yfir text- ann, breyttum og bættum. Það kom mér skemmtilega á óvart hve Jónas skrifaði leikrænan texta en mörg sendibréfanna og kvæðanna eru í samtalsformi og textinn er líflegur.“ Undirtektir bæði yngri sem eldri nemenda hafa verið góðar, að sögn Þórdísar, en til eru tvær mismun- andi útgáfur af dagskránni. Fyrir nemendur 8.-10. bekkjar er fjallað meira um baráttu Fjölnismanna fyrir endurreisn Alþingis og gagn- rýni Jónasar á rímnakveðskap. Samtals eru áætlaðar um 130 sýningar á höfðuborgarsvæðinu, allt þar til skóla lýkur í vor, en þar sem Þórdís segir nálægð við nemendurna skipta miklu máli er áhorfendafjöldi á hveija sýningu takmarkaður. ■ Hrönn Marinðsdóttir JÓHANN Thoroddsen yfirsálfræð- ingur hjá Dagvist barna hefur í sam- vinnu við Jónu Ingibjörgu Jónsdótt- ur kynfræðing og Björk Jónsdóttur sérkennara búið til kennsluefni handa þroskaheftum um kynlíf. Jóna Ingibjörg var aðalhöfundur en Jó- hann og Björk hafa undanfarið kennt starfsmönnum stofnana fyrir fatlaða efnið til miðlunar. Hann kynnti þetta kennsluefni á nám- skeiðinu um lífsgæði í gær. „Það er oft talað um þroskahefta og kynlíf eins og það sé eitthvert sérstakt fyrirbæri,“ segir Jóhann. „Eða að þroskaheftir eigi í miklum erfiðleikum með kynlíf, jafnvel að þeir eigi í töluverðum kynlífsvanda- málum. Staðreyndin er hinsvegar sú, að þeir eiga ekki við nein sér- stök kynllfsvandamál að stríða um- fram aðra menn.“ Kynhvöt þroskaheftra eins og annarra Hann segir fólk oft loka augunum fyrir því að þroskaheftir hafi sömu grundvallarþarfir og það sjálft og að of oft sé komið fram við þá eins og börn, jafnvel þótt um fullorðna einstaklinga sé að ræða, og þeim fátt eitt kennt um kynhvötina. „Það er slæmt vegna þess að kynlíf er mikilvægur þáttur í sjálfsmynd hverrar persónu." Hann telur það skekkja sjálfs- mynd þroskaheftra verulega ef um- hverfið láti eins og þeir hafi ekki kynhvöt. „Kynlífsþroski hefst nán- ast við fæðingu og hann stendur til lífsloka," segir Jóhann. „Hver ein- staklingur þarf að finna til stolts yfir kynhvöt sinni sem karlmaður eða kona - stolts yfir að vera kyn- vera.“ Þroskaheftir þurfa síst á því að halda að samfélagið hefti þá sem kynverur, en geta þeirra á nær öllum sviðum er oft vanmetin. „Það á að leyfa þeim að gera það sem þeir geta og bregðast eðlilega við þörfum þeirra, annars öðlast þeir aðeins ójósar hugmyndir um hæfileika sína og takmarkanir. Þeir verða að læra af mistökum sínum líkt og annað fólk. Þroskaheftir standa verr að vígi gagnvart kynlífinu vegna erfiðleika við að fá uppiýsingar og vegna að- stæðna í umhverfinu. Reynsluheim- urinn getur verið takmarkaður og líkamsvitundin minni. „Gallinn er að kynlíf er flestöllum feimnismál og þeir veigra sér við að ræða ást- leitni þroskaheftra,“ segir Jóhann, „einnig blandast persónulegir for- dómar, skoðanir og trú viðbrögðun- um. Er ég á móti kynlífí fyrir hjóna- band, kynlífi samkynhneigðra, lit- aðra og svo framvegis? Eða að þroskaheftir eignist börn!“ JÓHAIMN THORODDSEN Megum við elskast? innri vilji annar. Mikilvægt er að kalla hlutina sínum réttu nöfnum og kæra nauðganir þroskaheftra, því nauðgun er glæpur óháð því hver fremur hann. Áhersla á tilfinningar en ekkl tækni Í kennsluefni Jónu Ingibjargar, Jóhanns og Bjarkar Jónsdóttur um kynlíf fatlaðra er lögð mikil áhersla á tilfinningar Áður var mælst til að þroskaheft- ir færu í ófijósemisaðgerðir en núna er minna um það. Fóstureyðingar eru einnig möguleiki en getnaðar- varnir æskilegasti kosturinn. Samfé- lagið getur samt ekki brotið gegn vilja þeirra til að eignast bam, en það ber hinsvegar að gæta að hags- munum barnsins í hvívetna. Uppeld- ið getur blessast með góðum stuðn- ingi en stundum þarf að taka barn- ið af þroskaheftum foreldrum. Jóhann segir það vilja brenna við hjá þroskaheft- að stunda rétta kynferðislega hegðun á röngum stað og þar af leiðandi er brýn- ast að kenna þroskaheftum að stunda rétta hegð- un á réttum stað eins og til dæmis sjálfsfróun í ein- rúmi og kynlíf með maka. Siðferði kynlífs þarf líka að kenna eins og að rangt sé af konu að lána vinkonu sinni karlinn sinn. Einnig að rangt sé að segja já sé hinn Dæmi um ást GUÐRÚN býr á sambýli. Greindarskerðing hennar er ekki mik- il og hún er nokkuð sjálfstæð hvað varðar að bjarga sér með flesta hluti. Maður sem starfsfólk sambýlisins þekkir ekki en hún hafði hitt á balli, fer að bjóða henni út á kvöldin og um helgar. Foreldrar hafa samband við sambýlið og vilja að starfs- fólk taki fyrir þetta þar sem þeim lýst ekki á manninn. Hvað er til ráða gagnvart sambandi Guðrúnar og mannsins og gagnvart foreldrunum? JÓHANN Thoroddsen sálfræðingur. Morgunblaðið/Kristinn í stað þess að byggja á tækni eins og skýringarmyndum af kynfærum. „Ánnars þurfum við að finna_ ís- lensku leiðina," segir Jóhann. „í til dæmis Kaupmannahöfn fer starfs- fólk með þroskahefta karlmenn til vændiskvenna. Þar segja sumir það siðferðilega skyldu að gera þroska- heftum kleift að stunda kynlíf.“ Ég tel að lausn vandans liggi hjá okkur sem vinnum með þroskaheft fólk. Við þurfum að vinna með okk- ar eigin fordóma gagnvart kynlífi til að geta miðlað því áfram. Við eigum ekki að sýna aumingjagæsku, þroskaheftir eru hvorki forréttinda- stétt né „eilífð“ börn. Við þurfum að læra að styðja þau til sjálfshjálp- ar,“ segir Jóhann Thoroddsen að lokum. ■ MAGN lífs er sennilega hið sama í öllum einstaklingum en gæðunum er misskipt. Heil- brigði opnar möguleika en fötl- un fylgir hindrun. Lífsgæði eru falin í aðstæðum, félagslegum tengslum og andlegri líðan, en hvemig tekst þroskaheftum og öðrum fötluðum á íslandi að öðlast lífsgæði? Núna er jafn réttur til lífs- gæða, óháð líkamlegu og andlegu atgervi, að verða virtur hjá siðmenntuðum þjóðum. Einnig rétturinn til að velja og taka þátt í samfélaginu sem fuligild persóna þrátt fyrir fötlun. En hvað geta fatlaðir, hvað mega þeir, hvert er frelsið í raun og hvaða þjón- ustu fá þeir? Gyða Haraldsdóttir lektor við Háskólann á Akureyri er formaður Félags sálfræðinga er starfa að málefnum fatlaðra. Félagsmenn starfa hjá hinum ýmsu stofnunum og halda nú námskeiðið „Lífsgæði og fatlanir“ fyrir starfsfólk sambýla og aðra sem þjóna fötluðum. „Við viljum vekja umræðu meðal fólks um lífsgæði fatlaðra og hvort sú þjónusta sem er í boði miði að því að auka lífsgæði þeirra," segir Gyða. „Fyrir þroskahefta hefur þjónustan verið að breytast undan- farin ár meðal annars með því að loka stærri stofnunum og opna sam- býli handa fáum.“ Dæmi um það er að vistheimilinu Sólborg á Akureyri var lokað en aðgang að því höfðu aðallega fatlað- ir á Norðurlandi. í stað þess eru komin allmörg sambýli á Akureyri og í nágrannasveitarfélögum. Sambýli hinsvegar eru heimili fatlaðra í venjulegu íbúðahverfi og búa nokkrir saman. En spyija má hvort sambýli séu lausn sem henti eitthvað frekar öllum en stóru stofn- unimar og þau tryggi meiri lífsgæði? Ólík lífsvlðhorf og skemmtanir „Hver ákveður hvað eru lífsgæði? er líka spurning sem maður þarf að velta fyrir sér,“ segir Gyða „og hvort skjólstæðingurinn líti sömu augum á lífsgæði og fagmaðurinn sem ætl- ar að hjálpa honum.“ „Mat hvers og eins á llfsgæðum hlýtur alltaf að vera einstaklings- bundið. Einum fínnst lífsgæði felast I rúmu sjálfræði og því að eiga kost á atvinnu með viðunandi launum,“ segir hún. „Öðrum getur aftur á móti fundist skipta meira máli að eiga vini, geta farið út að borða, I kvikmyndahús, ferðalög eða annað I þeim dúr.“ „Forsjárhyggjan er með öðrum orðum hættuleg - eins og að áætla vilja skjólstæðinganna I stað þess að reyna að komast að honum. Lífs- Valfrelsi þroskaheftra og þátttaka í samfé- laginu ervaxandi. Viðhorf til þeirra eru að breytast og réttur þeirra til að vera mann- eskjur styrkist. Gunnar Hersveinn ræddi við þrjá sér- fræðinga í mál- efnum fatlaðra um lífsgæði þessara einstaklinga. þroskaheftra metin HALLDÓR KR. JÚLÍUSSON Er hægt að mæla lífsgæði? „ER hægt að mæla lífsgæði?" spyr Hall- dór Kr. Júlíusson yfirsálfræðingur hjá Svæðissljórn fatl- aðra á námskeiðinu, og leitast við að svara spurningunni. „Lífshamingja er annað hugtak,“ seg- ir Halldór, „sem stendur persónu- leikanum nær en lífsgæði. Lífsham- ingjan er stöðug þótt hún sveiflist með áföllum." Lífsgæði eru hins- vegar háðari þjónustu þótt þau séu ekki óháð reynslu og tilfinn- ingalífi manna. Lífsgæði eru þýðing á Quality ofLife. „Uppúr 1970 hófst viðleitni til að búa þroskaheftum eðlilegar aðstæð- ur, og núna eru að þróast aðferð- ir til að meta hvernig lífsgæði hvers skjólstæðings geti orðið sem mest,“ segir Halldór. Hlutverk sálfræðinga núna er meðal annars að meta lífsgæðin. Halldór nefnir dæmi um ytri- breytingar sem hægt er að á vellíðan hvers manns,“ segir Gyða. „Ég tel það rétta stefnu að leggja niður stórar stofnanir eins og Sólborg og Kópavogs- hæli, en það er ekki sjálf- gefíð að sambýlin séu lausn fyrir alla né heldur að breytt búsetuform auki lífsgæði,“ segir hún, „það eru áfram aðrir sem taka ákvarðanir fyrir fatlaða. Við erum ekki komin að leiðarlokum.“ Gyða segir að spurn- ingar vakni um hveijir eigi að búa saman og einnig um að ef til vill vilji sumir bara búa einir og kaupa um að meta aðstæður hjá hveijum og einum áður en ljóst er hvað er best.“ Það þarf að gæta sín gagnvart fötluðum - að ráðskast ekki með þá, en of algengt er að fólk þykist vita hvað þeim er fyrir bestu án þess að spyija þá sjálfa. Fagfólk, að- standendur, embættis- menn - allir þurfa að læra að virða ólíkar þarfir einstakling- Gyða anna. „Kerfið þarf því Haraldsdóttir að vera sveigjanlegt," segir Gyða Haralds- dóttir að lokum. IÐKUN listarinnar eykur lífsgæði þroskaheftra. Mídas konungur í flutningi Perlunnar árið 1993. tengja lífsgæðum. Fækkun vistmanna á deildum á vistheimili hér á landi leiddi til dæmis til þess að út- köllum viðhaldsdeild- ar fækkaði um þriðj- ung. A öðrum stað lengd- ist meðalstarfsaldur starfsmanna úr rúmu ári í rúmlega fjögur ár á 12 ára tímabili. Þriðja dæmið er fjölgun fermetra Halldór Kr. einkarýmis á nýjum Júlíusson sambýlum um tæpan helming á 10 árum. Allt eru þetta umbætur á að- stöðu fatlaðs fólks sem tengist lífsgæðum og eru góð dæmi um að lífsgæðin séu að batna í heild- ina, að mati Halldórs. Betri ytri aðstæður, betri þjónusta og meiri kaupmáttur eiga að vísa á meiri lífsgæði. Hvaða aðferð mælir lífsgæðl? „Mælikvarðinn er enn í þróun, nokkuð ljóst er samt hvað hann á að mæla,“ segir Halldór. „Lífs- gæðin verða metin í þremur lið- um.“ 1) Ytri þættir eins og heilsa, fæði, fjárhagslegt öryggi og lík- amlegt öryggi eru mældir. 2) Félagsleg tengsl í samfélaginu eru skráð. Vinir og kunningjar, borgaralegar skyldur, ferða- frelsi og fleira metið. 3) Mæling á líðan manneskjunnar, ánægju hennar og hamingju. „Meta þarf hvern þátt fyrir sig,“ segir Halldór, „og síðan þjónustuna sem einstaklingurinn fær,“ segir hann. Mælikvarðann á lífsgæði þarf svo að þýða og staðfæra á íslenskar aðstæður. En þróunin er augljóslega í þá átt að þjóna hveijum og einum miðað við þarfir hans og per- sónuleika.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.