Morgunblaðið - 11.04.1997, Síða 7

Morgunblaðið - 11.04.1997, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL1997 B 7 DAGLEGT LÍF ANNA Flosadóttir er listakennari við Hlíða- skóla og- kennir meðal annars leiklist sem stendur nemendum til boða sem valgrein. Hún segir að ætlunin sé að setja upp svona stórar sýningar í ungl- ingadeildinni á þriggja ára fresti. Fyrir þrem- ur árum var söngleik- urinn „Undir Öskju- hlíð“ sýndur. „Markmiðið var að gera eitthvað sem allir gætu verið með í,“ seg- ir hún „og í ljós kom að hugmyndaflug og sköpunargáfa ungling- anna var í góðu lagi.“ Ólafur Guðmundson leikari leikstýrði sýn- Morgunblaðið/Kristinn ÓLAFUR Guðmundsson og Anna Flosadóttir í leikmynd. ingunni með Önnu og er einnig með nemend- ur 5., 6. og 7. blekkjar Hlíðaskóla á leiklist- arnámskeiði. „Það er athyglisvert að fylgjast með hvernig krakk- arnir brjóta isinn sín á milli og flylja textann feimnislaust, syngja og dansa,“ segir hann. Vinnan við leikritiö breytti stemmningunni í skólanum og þurrkaði út aldursbilið. Þau dást bæði af unga fólkinu, áhuga- seminni og atorkunni. „Það var engin stjarna í sýningunni - allir eru jafnmikils virði,“ segir Anna. En sýningin var röð af 32 atriðum og er blanda af mörgum listgreinum. Morgunblaðið/Kristinn HLUTI leiklistarhóps Hlíðaskóla eftir sýningu á „Það er að koma. Morgunblaðið/Emilía GLEÐINA vantar ekki, hinsvegar blundar óttinn um framtíðina í huganum. hjónaband og fjölskyldulíf. Frakkar hafa meiri áhuga á barneignum en aðrir og sögðust 27% franskra ung- rnenna vilja eignast þijú börn. Skír- lífi skiptir ekki sérlega miklu máli og að meðaltali missa Evrópubúar mey- og sveindóm skömmu fyrir 17 ára afmælið. ítalir eru öllu seinni til að hefja kynlif og bíða að meðal- tali ári lengur en aðrar Evrópuþjóð- ir, en Bretar eru fyrri til og hefja kynlíf að jafnaði í kringum 16 ára afmæl- ið sitt. Bretar reyndust líka stunda kynlíf oftar en jafnaldrar í öðrum löndum, að meðaltali einu sinni í viku og virt- ust þeir leita uppi frum- legri staði og aðstæður til ástarleikja en aðrir. Þegar ungir Evr- ópubúar hittast á skemmtistöðum tala þeir frekar um vinnu og at- vinnumöguleika en per- sónuleg málefni eins og kynlíf. Könnun MTV leiddi í ljós að áhyggjur af atvinnuleysi hijá unga fólkið, sem segir margt að það myndi leggja höfuðáherslu á að leysa málefni atvinnulausra, hefði það pólitísk völd til þess. ■ Brynja Tomer MEÐ AUGUM LAIMDANS V or í lofti $ María Elínborg Ingvadóttir gegnir starfi viðskiptafulltrúa Útflutnings- ráðs íslands í Moskvu. ÞAÐ ER vor í lofti, reyndar svolítið kalt, . en fuglamir syngja L um vorið og sótin skín og borgin er að hrista af sér óhreinindin og slabbið á götunum. I f A miðborginni er unnið I M f yið vorverhin af full- ^ L um krafti, þar eru margar fallegar bygg- ingar frá því um og fyrir aldamótin síð- ustu. Aðrar voru látn- ar víkja fyrir stórum, hagkvæmari bygging- um, þær eru ekki allar augnayndi, reyndar mættu margar þeirra hverfa. Nú eru það önnur sjónarmið sem ráða ferðinni hjá borgaryfirvöldum, endurnýjun og endurbygging fal- legra húsa er efst á lista borgarstjórans, reyndar er 850 ára afmæli borgarinnar í ár og hefur það verið sem drifkraftur á all- ar framkvæmdir. Gatnaframkvæmdir, nýbyggingar og end- urbyggingar, hvert sem litið er, borgin iðar af framkvæmda- gleði, enda verkefnin næg. Það vekur at- hygli, hversu mörg erlend fyrirtæki eru athafnasöm í bygg- ingarstarfseminni og enn meiri athygli vekur, hversu oft það er nafn á banka sem blasir við, þegar hul- unni er svipt af glerf- ínu nýuppgerðu húsi í miðborginni. Hús sem áður hurfu í grá- móskuna, hafa verið lagfærð og máluð í fallegum, mildum lit- um, sem eiga sérlega vel við byggingarstíl þeirra. Ný hús rísa við hlið þeirra eldri og gaman er að sjá, hversu vel tekst til, nýr stíll, en fellur vel að látlaus- um, en oft á tíðum listilega skreyttum byggingum. Aðalkeppikefli borgarstjórans hefur verið að ljúka við byggingu Frelsiskirkjunnar, sem stendur við ána Moskvu, ekki langt frá Kremlarmúrum og gegnt Pus- hkin listasafninu. Nikulás fyrsti lét reisa þarna fallega kirkju árið 1832 og var hún hærri en klukkuturn ívans grimma, eða 102 metrar. Hún var rifin árið 1931. í stað hennar átti að reisa 315 metra háa ráðstefnu- og fundarhöll, höll ráðanna, í anda stórra hugsjóna. Form þessarar hallar átti að vera eins og stöp- ull, sem mjókkaði upp, en ofan á herlegheitunum átti að standa 100 metra há stytta af Lenin. Eitthvað vildi Moskvuá gæla við undirstöður væntanlegs ferlíkis, sem ekki þoldi atlotin, og því fór svo, að Moskvubúar eignuðust þarna ágæta sundlaug, sem var 130 metrar í þvermál og með heitu vatni, í stað hallar stórra hugsjóna. En nú er verið að end- urbyggja Frelsiskirkjuna og gaman er að fylgjast með þessu listaverki sem rís úr öskustónni og glæðir allt umhverfið ákveðn- um ævintýraljóma. Ekki langt frá Frelsiskirkj- unni, reyndar rétt þar hjá sem listamennirnar halda til á ár- bakkanum með myndirnar sínar, er verið að reisa minnismerki um Pétur mikla. Því verki er ekki lokið, enn er verið að sjóða og lemja saman undirstöður, sem líkjast miklu ölduróti, engu líkara en að stórsjór muni velta fleyi hans á hverri stundu, en efst stendur hann, stór og mikill og vegna undariegra stærðarhlut- falla, þá minnir hann helst á Gulliver í Putalandi. Þetta 60 metra háa minnismerki er nokk- uð stórskorið og fellur ekkert sérlega vel að umhverfinu, enda hefur það mikið verið gagnrýnt, vegna ljótleika aðallega. Jafnvel hefur verið talað um að flytja það. Hér hefur magnið, en ekki gæðin fengið að ráða ferð. Eitt- hvað hefur samsuð- an tafist á herklæð- um kappans, því að upphaflega átti minnismerkið að „afhjúpast“ í októ- ber síðastliðnum, þegar minnast átti þess að 300 ár voru liðin frá því að Pét- ur mikli stofnaði sjóherinn. Uppáhalds arki- tekt borgarstjórans hannaði þetta stór- brotna verk, hann er reyndar einnig hugmyndasmiður að skemmtilegum endurbótum á dýra- garðinum og að Manezh-torgi, þar sem verður miðdep- ill afmælishátíðar- haldanna 7. sept- ember. Undir þessu torgi verður 70.000 fermetra verslun- armiðstöð á þremur hæðum. Manezh- torg, sem stendur við enda Tverskaja og teygir sig að Kremlarmúrum, nær að Hótel Moskvu annarsvegar og að myndarlegri reiðhöll keisarans hinsvegar, þar sem áður æfðu sig riddarar á fráum fákum, en til marks um breytta tíma, hýsir nú sýningar á vörum og varn- ingi. Meðfram þeirri hlið sem snýr að Kreml, er síki, með mósa- ik-myndum í botni og myndarleg- um höggmyndum, bogadregnar brýr tengja torgið og Kremlar- svæðið. Þó að ekki hafí gengið eins vel og ætla mætti að selja kaupmönnum þá hugmynd, að verslun undir Manezh-torgi sé lykill að velgengni, verður það vonandi ekki svo, að borgarstjór- inn haldi afmælisveislu yfir tómu húsi. Það verður allavega ánægjulegt, þegar svæðinu verð- ur skilað fullfrágengnu og það sem sjáanlegt er í dag lofar góðu um árangurinn. Þó að það hljóti að vera erfitt að meta, hvaða verkefni eigi að hafa forgang í stórri borg eins og Moskvu, þar sem verkefnalist- inn er nokkuð langur og af ýms- um toga, gleður það óneitanlega augað og þar með sálina, þegar umhverfið verður snyrtilegra og þá um leið fallegra. Vonandi er sami metnaður lagður í breytingar á öðrum svið- um. Minnismerki um Pétur mikla.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.